Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 1

Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 1
133. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 15. JÚNÍ 2001 Tugir og jafnvel hundruð þúsunda Berba efndu til mikilla mótmæla í Algeirsborg í gær. Saka þeir stjórn- völd um kúgun og valdníðslu og krefjast þess, að réttur þeirra eigin tungu verði viðurkenndur. Alsírska innanríkisráðuneytið sagði í gær, að tveir blaðamenn hefðu látist í átök- unum, orðið undir strætisvagni er bílstjórinn reyndi að forða sér burt. Þá munu um 400 manns hafa slasast. AP Berbar í uppreisn- arhug BANDARÍKIN og Evrópusam- bandið, ESB, hétu í gær að vinna saman gegn mengun og gróðurhúsa- áhrifum en George W. Bush Banda- ríkjaforseti ítrekaði, að stjórn sín ætlaði ekki að samþykkja Kyoto- bókunina. Göran Persson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, sem er í forsæti í ESB, sagði hins vegar, að öll 15 að- ildarríki sambandsins myndu undir- rita bókunina hvað sem liði afstöðu Bandaríkjastjórnar. Bush sagði að loknum fyrsta fundi sínum með leiðtogum ESB-ríkjanna, að Bandaríkjastjórn myndi grípa til sinna eigin ráða í baráttunni við mengun en Kyoto-bókunin væri aft- ur á móti „alvarlega gölluð“. Sagði hann, að framkvæmd hennar yrði allt of dýr bandarísku efnahagslífi auk þess sem ýmsir miklir mengun- arvaldar, til dæmis Kína og Indland, slyppu við að leggja sitt af mörkum. Persson sagði á fundi með frétta- mönnum, að afstaða Bush væri mikið áfall fyrir baráttuna gegn mengun og gróðurhúsaáhrifum en í sameig- inlegri yfirlýsingu ESB og Banda- ríkjanna sagði, að ákveðið hefði verið að vinna saman að þessum málum. Fjölskrúðug mótmæli Nokkur þúsund manns, sumir með fána af Maó formanni og Che Guevara, efndu til mótmæla í Gauta- borg í gær. Beindu sumir spjótunum að Bush og stefnu hans en aðrir mót- mæltu heimsvaldastefnu, alþjóða- væðingu, aukinni fríverslun og Evr- ópusambandinu. Kom til mikilla átaka er nokkur hluti mótmælend- anna tók að grýta lögregluna en hún girti þá af við einn skóla borgarinn- ar. Voru um 243 mótmælendur handteknir. Þrátt fyrir ágreininginn um Kyoto-bókunina lagði Bush mikla áherslu á órjúfanlega samstöðu og samvinnu við Evrópuríkin og undir það tóku margir leiðtoga ESB, með- al annars Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Mikil samstaða var meðal leiðtog- anna um að vinna saman að friði á Balkanskaga og þeir voru einnig sammála um að efna til nýrra við- ræðna um aukna fríverslun á vegum Heimsviðskiptastofnunarinnar. Rússar ekki óvinurinn Bush kemur til Póllands í dag en á morgun mun hann eiga fund með Vladímír Pútín, forseta Rússlands, í Slóveníu. Mun eldflaugavarnaáætl- un Bandaríkjastjórnar verða ofar- lega á baugi í viðræðum þeirra en Bush sagði í gær, að hann myndi leggja á það áherslu við Pútín, að Bandaríkjamenn litu „ekki á Rússa sem óvin sinn. Kalda stríðinu er lok- ið“. Leiðtogafundur ESB hefst form- lega í dag og lýkur á morgun. Eitt helsta umræðuefnið verður stækkun sambandsins. Bush ítrekaði andstöðu við Kyoto-bókunina á fundi með leiðtogum ESB Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti ásamt Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á leið til blaðamanna- fundar. Á milli þeirra sér í Romano Prodi, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Boða aukna samvinnu þrátt fyrir ágreining Gautaborg. AFP, AP, Reuters.  Stálinu stappað/26 SAPARMURAT Niyazov, for- seti Túrkmenistans, leitar allra leiða til að bæta bágan efnahag landsins og hefur nú fundið nýja tekjulind – útlendinga sem vilja giftast túrkmenskum borgurum. Utanríkisráðuneyti Túrk- menistans hefur sent sendiráð- um í Ashgabat tilskipun frá for- setanum um að útlendingar í giftingarhugleiðingum greiði tryggingastofnun landsins and- virði fimm milljóna króna. Ráðuneytið segir að litið sé á greiðsluna sem tryggingu fyrir því að ríkið hafi ekki kostnað af framfærslu barna komi til skilnaðar. Túrkmenskir karlmenn hafa greitt „brúðargjald“ í margar aldir en það hefur þó aldrei ver- ið skylda. Að sögn embættismanna í Ashgabat eru túrkmenskar stúlkur vinsælar meðal Tyrkja, Írana, Breta og Þjóðverja. Skattur á útlendinga í makaleit Ashgabat. Reuters. STJÓRN Makedóníu óskaði form- lega eftir því í gær, að Atlantshafs- bandalagið aðstoðaði við að afvopna albanska uppreisnarmenn féllust þeir á að leggja niður vopn. Stjórnin samþykkti einnig í fyrsta sinn að ræða kröfu Albana um að stjórnar- skránni yrði breytt til að tryggja réttindi albanska minnihlutans í landinu. Boris Trajkovski, forseti Make- dóníu, ræddi við George Robertson lávarð, framkvæmdastjóra NATO, og óskaði eftir því að bandalagið sendi hermenn til landsins til að hafa umsjón með afvopnun uppreisnar- mannanna féllust þeir á friðaráætlun sem stjórnin samþykkti fyrr í vik- unni. Robertson sagði, að NATO myndi taka beiðnina til athugunar en lagði áherslu á að bandalagið hefði ekki í hyggju að senda herlið til Makedóníu fyrr en samkomulag næðist við stjórnmálaflokka al- banska minnihlutans um umbætur til að tryggja réttindi hans. Kröfum uppreisnar- manna hafnað Fyrr um daginn buðust uppreisn- armennirnir til að leggja niður vopn gegn því að þeim yrði öllum veitt sakaruppgjöf og fulltrúar þeirra fengju að taka þátt í samningavið- ræðum við stjórnina um réttindi Al- bana. Trajkovski forseti hafnaði þessum kröfum og sagði að ekki kæmi til greina að semja við upp- reisnarmennina. Samingaviðræður yrðu hins vegar hafnar strax við tvo flokka albanska minnihlutans, sem eiga aðild að samsteypustjórn Make- dóníu, meðal annars um breytingar á stjórnarskránni. Í áætlun stjórnarinnar er aðeins gert ráð fyrir því, að uppreisnar- mönnum, sem eru makedónskir rík- isborgarar, verði veitt sakaruppgjöf. Friðaráætlun Makedóníustjórnar NATO aðstoði við afvopnun Skopje. Reuters, AFP. ÍSRAELSKAR og palestínskar byssukúlur rufu í gær vopnahlé, sem komið hafði verið á fyrir tilstuðlan Bandaríkjamanna og féllu bæði Pal- estínumenn og Ísraelar í átökunum. Leiðtogar deiluaðila reyndu eftir mætti að hafa hemil á óeirðunum. Ísraelar sögðu að þeir hefðu byrj- að á að fylgja samkomulaginu til reynslu í tvo sólarhringa með því að aflétta ferðabanni á heimastjórnar- svæði Palestínumanna. Utanríkis- ráðherrann, Binyamin Ben Eliezer, sagði að vopnahléið, sem George Te- net, yfirmaður bandarísku leyni- þjónustunnar, fékk deiluaðila til að sættast á, hefði í raun hafist á hádegi á miðvikudaginn. Nú hafa alls fallið 611 manns í uppreisn Palestínumanna gegn her- setu Ísrela en hún hefur staðið síðan í september í fyrra. Langflestir hinna föllnu eru Palestínumenn. Ísraelski herinn hóf í gær að slaka á strangri herkví sem heimastjórn- arsvæði Palestínumanna á Gaza hef- ur verið í og er þetta í samræmi við skilmála vopnahlésins. Efnahagsrefsiaðgerðir gegn Pal- estínumönnum hafa gert að verkum að þúsundir þeirra eru atvinnulaus- ar. Þriðjungur íbúafjölda heima- stjórnarsvæðanna, um ein milljón manna, er undir fátæktarmörkum og verður að framfleyta sér á sem svar- ar til tæplega 200 króna á dag. Mið-Austurlönd Byssukúl- ur rjúfa vopnahléið Jerúsalem. AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.