Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 22

Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 22
LANDIÐ 22 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FJÖLBRAUTASKÓLA Vestur- lands var slitið 2. júní sl. og voru þann dag brautskráðir 57 nemendur við hátíðlega athöfn á sal skólans. Af þessum fjölda luku 35 stúdentsprófi, 17 útskrifuðust af iðnbrautum skól- ans og 2 luku öðru námi. Auk þess kvöddu 3 skiptinemar skólann. Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skírteini sín. Birna Gunnlaugsdóttir aðstoðarskóla- meistari flutti annál vorannar 2001. Margar viðurkenningar fyrir fram- úrskarandi námsárangur voru veitt- ar. Michal Tosik Warszawiak sem út- skrifaðist af hagfræðibraut hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi. Michal fékk einnig verðlaun fyrir ágætan árang- ur í viðskiptagreinum. Aðrir sem hlutu viðurkenningu frá skólanum fyrir ágæta frammistöðu voru: Júlí- us Sólberg Sigurðsson fyrir góðan árangur í fagbóklegum greinum í húsasmíði; Hrönn Ágústsdóttir í ensku; Bjarni Þór Hannesson í raun- greinum; Bjarki Jóhannesson í sænsku. Bjarki hlaut einnig viður- kenningu úr sjóði Elínar Írisar Jóns- dóttur fyrir íslenska ritgerð. Ólafur Ingi Guðmundsson fékk viðurkenn- ingu fyrir skólasókn, en hann hefur mætt stundvíslega í hverja kennslu- stund frá því hann hóf nám við skól- ann haustið 1997. Að þessu sinni hlaut Ásdís Halla Sigríðardóttir verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar á Sýruparti. Þau verðlaun eru veitt einum út- skriftarnema í lok hvers skólaárs fyrir framúrskarandi árangur í námi. Ásdís lauk stúdentsprófi frá skólanum við lok haustannar. Guð- mundur Páll Jónsson forseti bæjar- stjórnar á Akranesi afhenti náms- styrk Akraneskaupstaðar. Hann hlaut Bergrós Fríða Ólafsdóttir sem lauk stúdentsprófi frá skólanum við lok haustannar. Hörður Helgason skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur í lokin, árnaði þeim heilla, ræddi um gildi menntunar og þakkaði þeim fyrir samveruna. Fjölmargar gjafir bárust Ólafur Ingi Guðmundsson nýstúd- ent flutti ávarp fyrir hönd útskrift- arnema. Pétur Ottesen, sem lauk námi frá skólanum fyrir 10 árum, til- kynnti um stofnun Nemendasam- bands Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nemendur sem útskrifuðust fyrir 20 árum færðu skólanum bókagjöf og eintök af 3 fyrstu árgöngum skólablaðsins. Andrea Guðmunds- dóttir nýstúdent söng við undirleik Flosa Einarssonar kennara. Fyrir athöfnina léku Oddný Björgvinsdótt- ir nemandi í Fjölbrautaskólanum og Kristín Sigurjónsdóttir nemandi í Heiðarskóla á harmóniku og fiðlu. Tveir fyrrum starfsmenn skólans, Þórir Ólafsson og Inga Harðardótt- ir, voru kvaddir með formlegum hætti og þeim færðar gjafir frá skól- anum. Þórir var skólameistari þar til í apríl er hann hóf störf við mennta- málaráðuneytið. Inga kenndi íþróttir við skólann frá stofnun hans. Hún hefur verið í leyfi undanfarin ár en lætur nú formlega af störfum. Að athöfn lokinni þáðu gestir kaffiveitingar í boði skólans. Fjölbrautaskóla Vesturlands slitið Akranes Morgunblaðið/Guðni Hannesson Útskriftarnemar Fjölbrautaskóla Vesturlands. MARKAÐSRÁÐ kindakjöts og Matra sem er samstarfsverkefni Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins og Iðntæknistofnunar um mat- vælarannsóknir skrifuðu undir samning um rannsókna og þróun- arvinnu í tengslum við kindakjöt. Markaðsráð kindakjöts styrkir verkefnið um þrjár miljónir á ári en samningurinn er til sex ára. Borið verður saman villibráð- arkjöt af norðurslóðum, íslenska lambakjötið er þar meðtalið, og þar verða bornir saman og rann- sakaðir eiginleikar kjöts af „villt- um“ dýrum í norðurhéruðum norð- urlandanna, villibráð norðursins. Í verkefninu verða eiginleikar íslenska lambakjötsins rannsakaðir og kortlagðir. Fyrsti hluti verkefn- isins, sem mun taka tvö ár, fjallar um vöðvaþræði í lambakjöti og tengsl á milli eiginleika vöðva- þráða og meyrni kjötsins. Einnig hvernig eiginleikar vöðvaþráðanna hafa áhrif á samsetningu, útlit og bragðgæði kjötsins. Að sögn Hannesar Hafsteins- sonar, forstöðumanns Matra, er ís- lenska lambakjötið meyrasta lambakjöt í Evrópu samkvæmt verkefni þar sem borið var saman kjöt frá sex Evrópulöndum. Þessi samningur miðar að því að komast að orsökinni til þess, auk þess sem þekking á eiginleikum og vinnslu kindakjöts eykst. Yfirfærsla þekk- ingar úr öðrum ólíkum verkefnum verður auðveldari, heildaryfirsýn fæst yfir þau verkefni sem unnið er að og nýting fjármuna verður betri. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Hannes Hafsteinsson forstöðumaður Matra, Aðalsteinn Jónsson for- maður Markaðsráðs kindakjöts og Landssambands sauðfjárbænda og Özur Lárusson framkvæmdastjóri Markaðsráðs Kindakjöts. Villibráð af norðurslóðum Norður-Hérað Íslenska lambakjötið HÉRAÐSNEFND Snæfellinga hef- ur ráðið Aldísi Sigurðardóttur for- stöðumann Byggðasafns Snæfell- inga með aðsetur í Stykkishólmi. Aldís tekur við af Sigrúnu Ástu Jónsdóttur sem hefur tekið við nýju starfi í Reykjanesbæ. Aldís er þjóðfræðingur að mennt og útskrifaðist árið 1992. Síðasta ár starfaði hún sem forstöðumaður Gamla Apóteksins á Ísafirði og hafði þar umsjón með unglingastarfi. Að sögn Aldísar var ástæðan fyrir því að hún sótti um starfið að hún hafði orðið áhuga á að starfa á því sviði sem hún er menntuð til og starfið lítur út fyrir að vera spenn- andi og um leið krefjandi. Þá á hún ættir að rekja til Stykkishólms, faðir hennar er úr Hólminum og þar býr amma hennar, komin hátt á tíræð- isaldur. Starf hennar felst í umsjón með rekstri Norska hússins og sjá þar um sýningahald. Þá er hún ráð- gefandi fyrir safnið í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Einnig mun hún halda utan um muni sem safnið á og annast skráningu á munum sem safninu berast. Aldís segir að hún taki við góðu búi og mikið sem liggur fyrir. Stærsta verkefnið er að skipta þarf um þak á Norska húsinu og setja timburklæðningu eins og var á hús- inu upphaflega. Það kostar mikið og þarf að hefjast handa að safna pen- ingum til þess verkefnis. Um miðjan júní verður opnuð sýn- ing í Norska húsinu sem heitir „Á 19. öld“ og á að sýna hvernig var um- horfs í Norska húsinu á þeim tíma hjá efnameiri Íslendingum. Húsið verður opið daglega í sumar. Nýr for- stöðumað- ur Byggða- safnsins Stykkishólmur Mikill áhugi fyrir Norðurlandsskógum Jón bóndi á Hjaltastöðum og bróðir hans Halldór Kristján með mótororfið. Með þeim á myndinni er Helen, ættuð frá Bretlandi, sem hefur verið á ferðalagi hér á landi. umráða, óháð búsetu, geta tekið þátt og miðast lágmarksstærð lands við 20 ha. vegna timburskógræktar og 25 ha. vegna landbótaskógræktar. Til þátttöku í skjólbeltarækt er mið- að við 20 ha. Eitt af megineinkennum Norður- landsskóga er fjölbreytni og er lögð á það áhersla að blanda tegundum saman og forðast einræktun. Þá er talið að fjölbreyttara vistkerfi mynd- ist sem er betur í stakk búið að taka við óvæntum áföllum. Miklar vonir eru bundnar við þetta nýja byggðaverkefni sem talið er að muni hafa áhrif á þróun byggð- ar, bindingu kolefnis, landgæði, landnýtingu, atvinnulíf, veðurfar og ferðaþjónustu. Þá mun ásýnd margra jarða breytast eftir því sem tíminn líður. Kynningarefni um Norðurlandsskóga hefur verið sent út í Þingeyjarsýslu og hefur Guðríð- ur Baldvinsdóttir skógfræðingur umsjón með framkvæmdum. Laxamýri Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hjalti Kristjánsson á Hjalta- stöðum, heldur hér á lerki og greni sem hann gróðursetti. ÞAÐ var gróðursett af kappi á Hjaltastöðum í Ljósavatnshreppi um helgina, en ábúendur þar eru þátttakendur í Norðurlandsskógum og ætla að setja niður allt að 6.000 plöntur í sumar. Það eru Jón Hjalta- son og fjölskylda hans sem standa að verkefninu og hafa gert samning til 10 ára um skógrækt á 40 ha svæði í landi jarðarinnar. Um er að ræða bæði skógrækt og skjólbeltarækt og hefur land Hjaltastaða verið kortlagt með tilliti til þess hvaða tegundir henti á hverjum stað og er unnið út frá þeim niðurstöðum. Á Hjaltastöðum er einkum notað lerki og greni í skóginn, en alaska- víðir, viðja, ösp o.fl. í skjólbelti sem búið er að ganga frá og setja á plast- dúk. Því er ætlað að auka uppskeru í túninu auk þess að vera skjól fyrir búfénað og þá einkum kýr. Mikill áhugi er fyrir Norðurlandsskóga- verkefninu í Suður-Þingeyjarsýslu og hafa margar umsóknir borist um þátttöku. Í vor verður gróðursett á níu skóg- arjörðum alls um 67 þús. plöntur, einkum birki, fura, greni, lerki og ösp. Þetta eru auk Hjaltastaða, Hrafnsstaðir, Hróarsstaðir, Jódísar- staðir, Kárhóll, Landamót, Lauga- fell, Pálmholt og Narfastaðir. Skjól- beltajarðirnar eru Björg, Háls, Hjaltastaðir, Hrafnsstaðir, Narfa- staðir og Torfunes. Norðurlandsskógar byggjast á lögum um landshlutabundin skóg- ræktarverkefni og er tilgangur lag- anna að stuðla að ræktun fjölnytja- skóga og skjólbelta auk verndunar og umhirðu þess skóglendis sem fyr- ir er. Allir þeir sem hafa lögbýli til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.