Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 25

Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 25
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 25 Gullsmiðir SFR félagar Starfsma›ur sem leggur fyrir vi›bótarframlag í sér- eignarsjó› á rétt á mótframlagi launagrei›anda, 1% gegn 2% framlagi starfsmanns og frá 1. janúar 2002 skal mótframlag launagrei›anda vera 2% gegn 2% framlagi starfsmanns. fiátttaka flín skiptir máli! N‡ tækifæri í lífeyrismálum X Y Z E T A / S ÍA STARFSMANNAFÉLAG RÍKISSTOFNANA Þú kaupir MAM barnavörur og sendir strikamerki til Halldórs Jónssonar ehf. Skútuvogi 11, 104 Reykjavík merkt MAM sumarleikur Glæsilegur vinningur fyrir heppinn þátttakanda Colorado 8 manna fjölskyldutjald frá Seglagerðinni Ægi að verðmæti 60.000 kr. Dregið verður í leiknum föstudaginn 29. júní næstkomandi. SUMARLEIKURINN MAM vörurnar fást í: Lyfju, Lyf og heilsu, Hagkaup, Nýkaup, barnavöruverslunum og apótekum. NIÐURSTÖÐUR vorleiðangurs Hafrannsóknastofnunar í ár sýna í heild tiltölulega mikil áhrif seltu- ríks hlýsjávar fyrir Suður- og Vest- urlandi. Útbreiðsla hans var einnig með meira móti á norðurmiðum eða svipuð og árið 2000. Hiti og selta í kaldri tungu Austur-Íslands- straums norðaustur og austur af landinu voru yfir meðallagi. Átu- magn við landið var yfir langtíma- meðaltali á flestum rannsókna- stöðvum. Hinn 31. maí sl. lauk árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnun- arinnar á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Leiðangurinn er lið- ur í langtímavöktun á ástandi sjáv- ar, næringarefnum, gróðri og átu á hafsvæðunum við Ísland. Athug- anir voru gerðar á alls 107 stöðum í hafinu umhverfis landið, bæði á landgrunninu sjálfu og utan þess. Auk hinna hefðbundnu rannsókna var á völdum stöðvum safnað sýn- um vegna rannsókna á erfðafræði og hrygningu rauðátu og til mæl- inga á geislavirkum efnum og koltvísýringi í sjó. Þá voru teknar upp straummæl- ingalagnir í Grænlandssundi og hugað að setgildru djúpt norðaust- ur af landinu í samvinnu við sam- starfsstofnanir í Þýskalandi og í Bandaríkjunum. Helstu niðurstöð- ur vorleiðangurs voru eftirfarandi. Ástand sjávar Sjávarhiti í hlýsjónum suður og vestur af landinu var 6-8°C og selt- an 35,0-35,2, sem eru tiltölulega há gildi, eins og undanfarin fimm ár. Áhrif selturíka hlýsjávarins voru enn viðvarandi á norðurmiðum, allt austur undir Langanes (hiti 3°-5°C, selta 34,8-35,0). Á norðurmiðum varð lítillega vart seltulítils yfir- borðsjávar sem eru leifar hafíss á þessu vori. Í Austur-Íslands- straumi, í köldu tungunni, utan landgrunnsins norðaustur af land- inu, voru bæði hiti og selta yfir meðallagi. Á landgrunninu fyrir Austfjörðum var sjávarhiti í efri lögum sjávar einnig fremur hár (2°-3°C) og selta álíka eða heldur hærri en vorið 2000. Skilin milli kalda og heita sjávarins fyrir Suð- austurlandi voru norðaustur af Stokksnesi. Plöntusvif Magn plöntusvifs var kannað með mælingum á styrk blaðgrænu. Lítill gróður fannst vestur af land- inu í upphafi leiðangurs, nema næst landi. Fyrir norðan land og austur fyrir Langanes var talsverð- ur gróður, en austan og sunnan lands var lítill gróður á þessum tíma og vorblómi því líklega yf- irstaðinn. Áta Þegar á heildina er litið var átu- magn við landið í vorleiðangri meira en í meðallagi. Út af Vest- urlandi var átumagn nálægt með- allagi, en talsvert yfir meðallagi norðan- og austanlands. Að venju reyndist átan mest í kalda sjónum djúpt norðaustur og austur af land- inu, þar sem stórar og hægvaxta kaldsjávartegundir voru algengast- ar. Fyrir Suðurlandi og á Selvogs- banka var átumagn einnig yfir meðallagi. Séu niðurstöður um átu bornar saman við vorið 2000 kemur í ljós að á vestur- og norðurmiðum var átumagn svipað og þá, en meira á austur- og suðurmiðum. Leiðangursstjóri í vorleiðangri var Héðinn Valdimarsson, en alls tóku 9 rannsóknamenn frá Hafrann- sóknastofnuninni þátt í leiðangr- inum, auk þriggja frá þýskum og bandarískum samstarfsstofnunum. Skipstjóri var Ingi Lárusson. Sjórinn bæði hlýrri og saltari HÁTÍÐAHÖLD vegna sjó- mannadagsins á Þórshöfn hófust strax á föstudagskvöld með sjó- mannadansleik í Þórsveri. Á laug- ardag lá leiðin á bryggjuna þar sem hörð keppni var um það hver yrði sterkasti maður Þórshafnar eftir ýmsar svínslegar þrautir, eins og komist var að orði. Tunnuburðurinn var erfið þraut, einnig bekkpressa sem útbúin var úr tveimur stórum brúsum á stöng, um 80 kíló en keppninni lauk með reiptogi milli tveggja manna sem urðu jafnir að stigum. Vestmannaeyingurinn Einar Gíslason í Netagerðinni hreppti titilinn eftir harða baráttu og tók við farandbikar úr höndum bryggjustjórans Almars Mar- inóssonar. Koddaslagur var harður en þá komust menn og konur að því að sjórinn er bæði blautur og kaldur. Fleira var til gamans gert á bryggjunni á laugardaginn og kvennadeild Svfí-Landsbjörg var með kaffisölu í húsi félagsins en endapunkturinn var skemmtisigl- ing með mb. Geir í blíðskap- arveðri og sólskini á sunnudag- inn. Morgunblaðið/Líney Margt var sér til gamans gert á Þórshöfn. Fjörugt á bryggjunni Þórshöfn. Morgunblaðið. ALMENN þátttaka í blíðskapar- veðri setti svip á rúmlega tveggja daga hátíðarhöld sjómanna á Pat- reksfirði helgina 9. og 10. júní með dagskrá, keppnum og leikjum frá föstudagskvöldi og fram á sunnu- dagsnótt. Margir hópar brott- fluttra streyma jafnan til Patreks- fjarðar á sjómannadaginn, þar sem áhersla er lögð á skemmtan og leik, engar hátíðaræður eða póli- tískt pex. Í þetta sinn var þar fjöl- mennt ættarmót, þar sem á annað hundrað manns mætti, og a.m.k. fimm hópar fermingarsystkina, fyrir utan fjölda einstaklinga og ættingja, auk heimamanna sem all- ir virtust á ferli daginn langan. Var því fjölmennt á götunum og við höfnina, þar sem hátíðarhöld fóru fram, öllum að kostnaðarlausu utan lokadansleikurinn aðfaranótt mánudagsins. Í þetta sinn minntust Patreks- firðingar sérstaklega samskipta við franska sjómenn sem á skútuöld vöndu komur sínar í áratugi á Pat- reksfjörð og gátu þá legið 80-100 skútur á firðinum. Sérstök sam- skipti höfðu Bretónar í bæjunum við Saint Brieuc-flóann og hafa sjó- menn á Patreksfirði nýlega tekið upp samskipti við Dahauet-Plé- neuf. Voru þrír fulltrúar þaðan gestir á sjómannadaginn: Jaque Gueguen, Pierre Yves Legoff og Paul Trehen. Afhentu þeir minn- ingarskjöld úr rauðu graníti frá Peros-Guirek kletti til minningar um 14 franska fiskimenn sem þarna hlutu gröf á sínum tíma, en nú er búið að hafa upp á nöfnum þeirra. Af þessu tilefni flutti Elín Pálmadóttir rithöfundur erindi með myndum um frönsku fiski- mennina í Félagsheimilinu á laug- ardagskvöldið. Sjómannskonan María Óskarsdóttir las upp þýð- ingu úr skipsbók skipstjórans á einni frönsku skútunni sem var að veiðum á þessum slóðum. Og einn frönsku gestanna lék þá og oftar gegn um alla hátíðina frönsk lög á hefðbundin gömul hljóðfæri frá heimaslóðum þeirra, sekkjapípu, litla harmoniku og dýrmætt hljóð- færi frá 17. og 18. öld sem nefnist viel (á okkar máli líklega nikk- elharpa). Hátíðin hófst með opnun sam- sýningar í Patreksskóla, þar sem hafði verið dregið saman mikið af listmunum, gömlum ljósmyndum, frönskum póstkortum og fleiri sýn- ingargripum. Jafnframt var sjóstangaveiðimótið í undirbúningi á bryggjunni. Þar hélt áfram á laugardeginum hvers kyns samkeppni, dorgveiði- keppni barna, fimikeppni með lyft- ara, koddaslagur yfir sjó o.s.frv. og fjörugar uppákomur. En fisk- vinnslustöðin Oddi hf. kynnti starf- semi sína og afurðir og veitti vel. Munu hafa komið yfir 400 gestir, börn og fullorðnir. Í frystigeymsl- unni gengu menn að hákarli og skötustöppu með vodka og brenni- víni, en í borðsal var gengið að langborði með fallegum réttum úr öllum þeim fiskafurðum sem þarna eru unnar, ásamt kaffi og öðrum drykkjum. Um kvöldið var efnt til Landleguhátíðar á hafnarsvæðinu með dansi á kajanum við leik hljómsveitarinnar Blátt áfram. Fjölskyldurnar skemmtu sér þar í kyrru blíðviðri kvöldsins fram á miðnætti. Sunnudagurinn hófst með hinni hefðbundnu hátíðarsiglingu fiski- báta, þar sem allt að 30 bátar hlaðnir eigendum, fjölskyldum þeirra og gestum sigldu út á fjörð- inn í langri röð, undir sekkjapípu- leik Fransmannsins í stafni hjá Halldóri Árnasyni skipstjóra á Sæ- björgu BA í miðri röðinni, svo tók undir í hlíðunum. Þá var stutt minningarathöfn við minnisvarð- ann um látna sjómenn, og Frakk- arnir afhentu minningarskjöldinn um sjómennina 14 sem jarðsettir eru við Patreksfjörð. Þaðan var haldið í skrúðgöngu til kirkju með viðkomu við minnisvarða breskra sjómanna. Í sjómannadagsmessunni predik- aði sr. Hannes Björnsson og var það jafnframt kveðjumessa hans. Á sjómannadaginn er kirkjukórinn eingöngu skipaður karlmönnum, konur víkja og sjómenn fylla skörðin. Og í messulok koma þeir upp í kórinn til prests og prófasts og leiða í fjöldasöng sjómannalög, Síldarvalsinn, Ship ahoy o.s.frv. At- Kátt á Patreksfirði á sjómannadaginn Ljósmynd/Elín Pálmadóttir Frá róðrarkeppninni í Patreksfjarðarhöfn. höfnin í kirkjunni endar á að allir vagga sér í söng og gleði. Eða eins og einhver sagði, þessi dagur er hefðbundin hátíð okkar allra, sem sannarlega sýndi sig síðdegis á há- tíðarsvæðinu á Króki, þar sem háir sem lágir, börn og fullorðnir og hvers konar hópar voru dregnir í alls kyns keppni í pokahlaupi, þrí- hjólakeppni á grasi og margs kon- ar gaman. Ekkert lát var á fram að kappróðrinum í höfninni sem háður var við mikla hvatningu úr öllum áttum. Að venju buðu kvenfélagskonur í Sif upp á hið rómaða hlaðborð í Félagsheimili Patreksfjarðar og höfðu mikið bakað að undanförnu. Hátíðinni lauk með tvískiptum dansleikjum, kl. 19.30 til 21.30 fyrir yngri en 15 ára, en kl. 20,30 tók við stórdansleikur fyrir fullorðna til kl. 3 um vornóttina undir leik stór- hljómsveitarinnar Í svörtum fötum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.