Morgunblaðið - 15.06.2001, Síða 29

Morgunblaðið - 15.06.2001, Síða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 29 HAMRAHLÍÐARKÓRINN heldur í dag í fimm daga tónleikaferðalag til Danmerkur. Kórinn syngur í fyrstu á Lálandi þann 16. júní, en heldur síðan til Kaupmannahafnar þar sem hann heldur ferna tónleika, í St. Pálskirkjunni 17. júní, í Tívolí og í Glyptotekinu 18. júní og í Sorgenfri kirkjunni í norðurhluta Kaupmanna- hafnar þann 19. júní. Tilgangur fararinnar er að sögn Þorgerðar Ingólfsdóttur, stjórnanda kórsins, margþættur. Fyrst og fremst er þó lagt í ferðina til að minnast þjóðlagasöngkonunnar Engel (Göggu) Lund með minning- artónleikum á heimaslóðum hennar. Gagga fæddist í Reykjavík alda- mótaárið 1900 og ólst þar upp til ell- efu ára aldurs. Þá flutti fjölskylda hennar til Nakskov á Lálandi og munu tónleikar Hamrahlíðarkórsins í ferðinni verða haldnir í kirkjunni þar. Gagga var heimsþekkt söng- kona og segir Þorgerður það við hæfi, að Íslendingar og ekki síst ís- lenskt tónlistarfólk, votti Göggu og heimalandi hennar þakklæti fyrir framlag hennar til kynningar á ís- lenska þjóðlaginu, en hún gerði það frægt með söng sínum víða um heim. „Ísland átti jafnframt svo sterk ítök í Göggu, að hún kaus að setjast hér að eftir að hún lauk sínum alþjóðlega ferli. Hún gerðist kennari við Tón- listarskólann í Reykjavík auk þess að veita einkakennslu, kenna radd- þjálfun og framsögn.“ Þorgerður var meðal þeirra mörgu ís- lensku tónlistarmanna sem nutu leiðsagnar Göggu. „Ég hóf nám hjá henni sem ungling- ur og má segja að hún hafi verið kennari minn fram á hinsta dag, en fimm ár eru liðin síðan hún lést hér í Reykja- vík. Hver stund með þessari konu var ein- stök, hún var ákaflega sterkur persónuleiki og hafði mikil áhrif á umhverfi sitt. Það er því ekki síst ósk mín, að geta látið í ljós þakk- læti fyrir þá hand- leiðslu og þau áhrif, sem Engel Lund hefur haft á mitt líf og það starf sem ég hef unnið við öll þessi ár, ekki síst við að kynna fyrir ungu fólki okkar þjóðlagaarf og íslenska tónlist al- mennt,“ segir Þorgerður. Í ferðinni flytur kórinn efnisskrá sem mótuð er með Göggu í huga. Stór hluti efniskrárinnar saman- stendur af íslenskum þjóðlögum sem hún kynnti víða um heim og verða þau flutt í útsetningu fyrir blandað- an kór. „Auk þess munum við flytja tónsmíðar sem á beinan eða óbeinan hátt tengjast Göggu, eftir vini henn- ar á Íslandi og fólk sem hún mat mikils. Þar má nefna Pál Ísólfsson og Jón Nordal, sem báðir voru nánir vinir hennar. Þá má nefna yngri tónskáld, sem voru beinir og óbeinir nemendur hennar, s.s. Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson og Gunnar Reyni Sveinsson.“ Þáttur í efnisskránni er kynn- ing á íslenskum og er- lendum verkum sem samin eru við ljóð Hall- dórs Laxness, en hann var einn af vinum Göggu á Íslandi. Þar er m.a. að finna verk eftir eitt helsta tónskáld Dana á liðinni öld, Vagn Holmboe. Þjóðhátíðargleði Þorgerður segir að það verði ekki síður ánægjulegur hluti ferðarinnar að taka þátt í hátíðarhöldum Íslend- inga í Kaupmannahöfn í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní. „Sendiherra Íslands í Danmörku, Helgi Ágústsson, fór þess á leit við okkur að við kæmum til Kaup- mannahafnar og yrðum þar í tengslum við þjóðhátíðardaginn. Úr varð að við höldum helgistund með íslenska prestinum í Kaupmanna- höfn í St. Pálskirkjunni og munum við flytja þar íslenska tónlist. Að því búnu verður gengið í Jónshús þar sem þjóðhátíðargleðin heldur áfram,“ segir Þorgerður. Hún segir kórinn hlakka mikið til að halda tón- leika í Tívolí daginn eftir, en Peter Bröste, sem veitt hefur Íslendingum Bjartsýnisverðlaun Bröstes síðast- liðin 20 ár, stendur fyrir þeim tón- leikum. Kórinn syngur um kvöldið í Glyptotekinu í boði danska útvarps- ins og býður íslenski sendiherrann gestum til tónleikanna í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga. „Loka- tónleikar Hamrahlíðarkórsins í ferð- inni fara síðan fram í Sorgenfri kirkjunni í Kaupmannahöfn. Í þess- ari kirkju er góður hljómburður og er hún mikið notuð til tónleikahalds og fyrir upptökur. Það er okkur mik- ill heiður að koma fram meðal þeirra fjölbreyttu og alþjóðlegu tónlistar- manna, sem þar koma fram í sum- ar,“ segir Þorgerður. „Vonandi náum við að halda íslenska fánanum hátt á lofti í þessari ferð. Unga fólkið sem syngur í kórnum hefur lagt mik- ið á sig til að svo megi verða, enda hafa annir verið miklar hjá þeim undanfarið. Ég er ekki síst þakklát kórnum fyrir að leggja svo mikið á sig til að hugmyndin um minning- artónleika, sem hefur blundað í mér lengi, geti orðið að veruleika nú um helgina.“ Hamrahlíðarkórinn heldur í fimm daga tónleikaferð um Danmörku Minnast Göggu Lund á heimaslóðum hennar Hamrahlíðarkórinn ásamt stjórnanda sínum, Þorgerði Ingólfsdóttur. Fyrir dyrum standa fimm tónleikar í Danmörku. Engel (Gagga) Lund Morgunblaðið/Jim Smart Í NÝLISTASAFNINU við Vatnsstíg stendur yfir dag- skrá um þessar mundir sem ber heitið Pólýfónía. Þar verður lögð áhersla á að kanna mörkin og markaleysið á milli tónlistar og myndlist- ar. Í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20, kemur fram Paul Lydon, IVCP (Haraldur Karlsson og Marteinn Bjarnar Þórðarson) – Taktur sólkerfisins. Pólýfónía í Nýló Gallerí Fold, Rauðarárstíg Afmælissýning Braga Ás- geirssonar hefur verið fram- lengd til miðvikudagsins 20. júní. Gallerí Fold er opið dag- lega frá kl. 10–18, laugardag kl. 10–17, en lokað er á þjóðhátíðardaginn. Sýning framlengd ÞRJÁR myndlistarkonur opna sýningu í Safnahúsinu á Sauð- árkróki á morgun, laugardag, kl. 16. Sýninguna nefna þær Þrjár stöllur og eru verkin flest unn- in á síðasta ári og þessu, verk unnin í leir, olíu á striga, hveraleirlit, vatnslit, gifs, blýant og pappír. Stöllurnar eru Anna S. Hróðmarsdóttir, Bryndís Siemsen og Dósla – Hjördís Bergsdóttir. Allar hafa þær stundað myndlistanám og lokið prófum frá myndlista- skólum, tvær frá MHÍ og ein frá Myndlistaskóla Akureyrar. Þær eiga að baki bæði einkasýningar og samsýning- ar. Sýningin er opin alla daga vikunnar frá kl. 14–18 og stendur til 24. júní. Þrjár stöllur í Safnhúsinu ÓSKAR Guðjónsson saxófón- leikari og Eyþór Gunnarsson píanóleikari leika saman nokk- ur af ástsælustu lögum Jóns Múla Árnasonar í Japis á Laugavegi 13 á morgun, laug- ardag, kl. 14. Lög Jóns Múla í Japis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.