Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 31

Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 31 1. flokki 1989 – 43. útdráttur 1. flokki 1990 – 40. útdráttur 2. flokki 1990 – 39. útdráttur 2. flokki 1991 – 37 útdráttur 3. flokki 1992 – 32. útdráttur 2. flokki 1993 – 28. útdráttur 2. flokki 1994 – 25. útdráttur 3. flokki 1994 – 24. útdráttur Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. ágúst 2001. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í DV föstudaginn 15. júní. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. hugmyndina um þjóðernið,“ segir Guðfríður Lilja, „þess vegna þurfum við að spyrja hvort eitthvað hindri að- gang aðfluttra að þjóðerninu, hvort þeim séu settar einhverjar skorður uppruna, litarháttar, trúarbragða, málhreims eða einhvers annars. Get- um við „innfæddir“ Íslendingar verið stolt af stöðu innflytjenda eða þurfum við að skammast okkur fyrir fram- komuna og/eða andvaraleysið?“ Stephan G. og fjölmenningin Viðar Hreinsson bókmenntafræð- ingur flytur erindi á málþinginu, en hann er í samstarfshópi í Reykjavík- urAkademíunni um málefni innflytj- enda. Hópurinn varð til í samstarfi við Breiðholtsskóla vegna nýbúa- kennslu, en fólk í hópnum er víða að. „Málþingið er eitt af þremur aðal- verkefnum sem hópurinn vinnur að HVER erum við? Hver viljum við vera? Hver vorum við? Þjóðin heldur hátíð á 17. júní og fagnar því að geta verið hún sjálf og ráðið sér. En geta allir verið með og lifað sig inn í stemmninguna? ReykjavíkurAkademían hefur boð- að til þjóðhátíðarmálþings 16. júní í JL-húsinu, Hringbraut 121, klukkan 10, þar sem spurt verður um sjálfs- mynd og þjóðernisvitund Íslendinga og innflytjenda. Þjóðhátíð hverra? spyr til dæmis Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir sagnfræðingur sem hefur skipulagt málþingið. Hún vill skoða, í tilefni af fyrsta þjóðhátíðardeginum á nýrri öld, hvernig „Íslendingar“ líta út í spegli fjölmenningarsamfélags. „Gleymast einhverjir hópar á þessum degi? Eru einhverjir útilokaðir frá fögnuðinum og þjóðlífinu yfirleitt?“ spyr Guðfríður Lilja. Hún segir að málþingið sé haldið daginn fyrir þjóðhátíðardaginn til að vekja spurningar um hvaða veg Ís- lendingar vilji fara í málefnum fólks af erlendum uppruna. „Ætlum við að feta í fótspor rasista, eða viljum við læra af öðrum þjóðum til að fara heillavænlegri leiðir?“ spyr hún, „hvernig geta innflytjendur orðið Ís- lendingar? Eða orðið til dæmis jap- anskur-Íslendingur?“ Hvernig má víkka hugtakið og þjóðernisvitund- ina? Hún segir að spurt sé í jákvæðum tón um hvort allir geti fagnað á þess- um degi. „Íslendingar eru að breyt- ast, mynd þeirra er að breytast, og nýir hópar innflytjenda geta auðgað til að byrja með. Hin eru annarsvegar þýðingar- og yfirlestrarþjónusta til að aðstoða innflytjendur t.d. við að skrifa blaðagreinar eða taka þátt í umræðunni. Hinsvegar að Reykja- víkurAkademían geti verið með sí- menntunarnámskeið t.d. um fjöl- menningarsamfélagið, mannréttindi eða umburðarlyndi. Námskeiðin væru fyrir hinar ýmsu starfstéttir,“ segir Viðar. Erindi Viðars nefnist „Gulltöflur í grasi. Fjölmenningarleg mannúð í verkum Stephans G. Stephansson- ar“. „Stephan G. var „nýbúi“, hann var innflytjandi í framandi heimi og það setur mark á kveðskap hans. Hann orti mögnuð kvæði til Kanada og um það að festa rætur í nýju landi,“ segir Viðar og að verk Steph- ans G. séu mörg um manngildishug- myndir, um það að búa mönnum sæmileg lífsskilyrði til að þroskast og njóta þeirra kosta sem í þeim búa. Viðar segir að Íslendingar, nýir og gamlir, geti notað margt úr verkum Stephans G. því það þarf stöðugt að endurskoða sjálfsmyndina. Hug- myndir hans voru fjölmenningarleg- ar og hann orti t.d. um Kanada sem „heimaland sérhverrar þjóðar og tungu“ árið 1902 í „Bundinni ræðu fyrir minni Kanada“. Þetta er áhugavert vegna þess að um aldamótin 1900 var rasismi sterk hugmyndafræði. Stephan G. orti á skjön við hana, og fjölmenningarhug- myndir hans urðu að opinberri stjórnarstefnu í Kanada 60-70 árum síðar. Viðar segir að á þjóðhátíðarmál- þinginu á laugardaginn verði spurt um raunveruleg verðmæti í menning- unni og þjóðarvitundinni, hvað þurfi að varðveita, hvað þurfi að varast og hvernig best sé að vinna að fjölmenn- ingarsamfélagi svo allir geti tekið þátt í gleðinni á 17. júní. Hverjir fagna á þjóðhátíð? guhe@mbl.is Daginn áður en þjóðin fagnar sjálfstæði sínu verður glímt við spurningar um sjálfs- mynd hennar og vitund. Gunnar Hersveinn segir frá þjóðhátíðarmálþingi sem haldið verður á morgun, laugardag, og fjölþjóð- legri myndlist í JL-húsinu í Reykjavík. Morgunblaðið/Sverrir Er Ísland fjölmenningarlegt þjóðfélag? spyr Neysa Gyedu-Adomako í þjóðhátíðarerindi sínu.  Þjóðhátíðarmálþing Reykjavík- urAkademíunnar fer fram laugardag- inn 16. júní í húsakynnum Reykjavík- urAkademíunnar í JL-húsinu að Hringbraut 121 og er öllum opið. Þingið hefst kl. 10.00, hlé verður gert kl. 12:00-12:30 og þingi verður slitið kl. 13:30. Erindin eru flutt á íslensku en einnig dreift á ensku til gesta.  Samhliða málþinginu mun næsti nágranni akademíunnar, Myndlista- skólinn í Reykjavík, opna fjölþjóðlega myndlistasýningu með ljósmyndum af verkum nemenda sinna. Tæplega 30 börn frá 6 ára aldri sem ýmist eiga uppruna sinn á íslenskri grund eða erlendri en hafa verið búsett á Íslandi um lengri eða skemmri tíma eru nem- endur á sumarnámskeiðum skólans. Börnin hafa unnið að verkefnum sem tengjast hugtökunum jörð/ bústaður og vísa beint og óbeint í þema málþingsins. Börnin eru frá Albaníu, Chile, Filippseyjum, Græn- höfðaeyjum, Íslandi og Póllandi og verk þeirra munu verða sýnd í húsa- kynnum Myndlistaskólans og ReykjavíkurAkademíunnar.  Erindi á málþinginu flytja: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sagnfræðingur: „Þjóðhátíð hverra?“ Toshiki Toma prestur: „Þjóðerni – bara þetta eða hitt?“ Þorgerður Þorvaldsdóttir kynja- og sagnfræðingur: „Þjóðgarðurinn Ísland: af náttúruperlum og mann- auði í landi hreinleikans“ Ana Isorena Atlason stjórnmála- fræðingur: „Íslendingur, alveg eins og þú!“ Unnur Birna Karlsdóttir sagn- fræðingur: „Rasismi í norðurálfu“ Godson Anuforo viðskiptafræð- ingur: „Innflytjendur og þjóðern- iskennd“ Anna Guðrún Júlíusdóttir kennari: „Nýbúastarf í grunnskóla“. Natalija og Natasa Stankovic nemendur í móttökudeild Breiðholtsskóla lesa upp ljóð á serbókróatísku. Neysa Gyedu-Adomako félags- fræðingur: „Er Ísland fjölmenning- arlegt þjóðfélag?“ Viðar Hreinsson bókmenntafræð- ingur: „Gulltöflur í grasi. Fjölþjóðleg mannúð í verkum Stephans G. Steph- anssonar“ Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður. Málþing og myndlist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.