Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á ÁKVEÐNUM tímum í lífi hvers einstaklings, er gjarnan staldrað við og reynt að líta fram á veginn. Oftast er þetta tengt áföngum prófa út úr skóla. Áður fyrr, var áhugasviðið eitt lát- ið ráða. En nú í seinni tíð hefur þátt- ur afkomunnar, meir og meir ráðið framvindu mála. Stundum hafa einstakir foreldrar komið að málum í þeim tilgangi að ráða heilt sínu fólki. Í öllum þessum bollaleggingum hafa vitanlega mörg starfsvið borið á góma. En þegar kemur að sjúkraliða- þættinum, þá fyrst fara örvænting- arstunurnar að byrja (--- sérstaklega ef einstaklingurinn hefur bitið þetta í sig og stendur fast á sínu.) Ekki er fjarri lagi að ákveðin læknismeðferð sé þá ráðlögð. Eins og dæmið lítur út í dag, lætur nærri, að verið sé að rústa þessari starfstétt og lífsafkomu þeirra, sem þegar hafa álpast út í þennan voða. Starf sjúkraliða er meðal annnars fólgið í andlegri og líkamlegri hjúkr- un, auk margra annarra atriða, sem ekki er alveg á færi allra að leysa. Það lætur nærri, að líkja megi samninganefnd ríkisins við bilað apparat, sem auk annnars er með bilaðar fastar bremsur. Þrátt fyrir það sem á undan er gengið ætla ég að vona að þeir háu herrar nái að átta sig á þvi, að sjúkraliðar eru bara að reyna að klóra í bakkann til þess að lifa mann- sæmandi lífi-,sem hlýtur svo aftur að skila sér aftur út í starfið og hver veit nema fjölga mundi í stéttinn Ef við gefum okkur það, að þrátt fyrir mikið langlundargeð, þá gæti brostið á kjaraflótti, sem erfitt yrði að sjá fyrir endan á. Frjálsi markaðurinn virkar stund- um sem botnlaus hít fyrir rétta ein- staklinginn, en þar á bæ er yfirleitt borin aðeins meiri virðing fyrir fólki og kjörin eftir því. Eftir standa þá ófaglærðir ein- staklingar,sem e.t.v. eru á misjöfn- um brauðfótum til að annast allavega farna einstaklinga eftir allskonar miskunnarlausa sjúkdóma. Útkoman getur orðið ansi skraut- leg, því þrátt fyrir góðan vilja er ekki alltaf víst, að allir ófaglærðir hafi það andlega þrek sem til þarf. Deildir eru allar misþungar hvað álag snert- ir og oftast eru stöðug áreiti sem þarfnast mikillar þolinmæði. Sumir þættir í starfi sjúkraliða- ,verða oft ekki allir lærðir af bók, og þá þarf oft töluvert innsæi til. Ekki er öllum það gefið að finna leið út úr því völundarhúsi eins sjúklings, sem ekki getur tjáð sig, að honum líði vel á hverju augnabliki. Ég stórefa, að samninganefnd rík- isins geri sér grein fyrir út í hvaða ógöngur og skelfingar þeir eru að leiða illa farna sjúklinga, sem sitja fastir í klafa sjúkdóma og þjáninga stanslaust. Við hin sem eigum að teljast heil- brigð, getum jú alltaf skipt um um- hverfi að vild. En við viljum bara að okkur séu búin þau efnahagslegu skilyrði, að við getum með góðu móti haldið áfram að reyna að gleðja og létta undir með þeim sem minna mega sín og geta ekki sökum heilsu- brests varið sig!!! VALDIMAR ELÍASSON, sjúkraliði á geðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss. Útrýmingarhætta heillar starfsstéttar Frá Valdimari Elíassyni: ÉG HEYRÐI í útvarpinu og sá í Morgunblaðinu frétt um að áfengis- sala hefði aldrei verið meiri hér á landi en á liðnu ári, eða yfir 16 millj- ónir lítra og aukningin frá árinu 1999 hefði verið 7,2%. Ég verð síður en svo undrandi, því að öðruvísi gat varla farið vegna undanlátssemi og vesal- dóms stjórnvalda gagnvart þeim lýð, sem græðir á sölu og dreifingu þessa vímuefnis. Á langri ævi hef ég séð að ætíð, þeg- ar slakað hefur verið á reglum um sölu og meðferð áfengis í landinu, hefur sigið á ógæfuhliðina. Um leið og bann- lögin voru afnumin byrjaði flóðið. Og með síauknum umsvifum áfengissal- anna, til að mynda innflytjenda, bruggara og sjoppugreifa, hefur flóðið aukist og virðist nú stefna í algert jök- ulhlaup. Þessi aukning sýnir þó aðeins það áfengismagn sem opinber gjöld eru greidd af. Hitt vita þeir sem vilja vita, að smygl og brugg hefur marg- faldast síðan yfirvöld komu til liðs við lögbrjótana með því að hætta að láta merkja löglegt áfengi. Og til að kóróna vitleysuna sjá sumir alþingismenn þau úrræði ein, að heimila matvörukaupmönnum að selja þetta vímuefni og gefa gróðap- ungunum leyfi til að auglýsa þennan varning sinn hömlulaust. Ég tel hins vegar brýna nauðsyn að snúa af þessari braut. Verði það ekki gert munu æ fleiri drukkna í áfeng- isflóðinu. Þeim mun einnig fjölga sem ná landi með herkjum, laskaðir á lík- ama og sál. Áfengissalar munu græða en þjóðin tapa milljörðum og það sem verra er, týna sjálfsvirðingu sinni. Brotin heimili, gæfulausir foreldrar og stefnulaus börn eru eitraðir ávext- ir drykkjunnar. Lífsgleði og ham- ingja verða aldrei metnar til fjár. Mikið er talað um vímuvarnir, en sjaldan minnst á að rætur neyslunnar eru í áfenginu. Bestu varnirnar eru bindindi. Gömul sögn segir, að fjand- inn hafi laumað áfengi inn í heiminn til að hrekja menn af réttri leið. Sendiboðar hans eru þeir sem selja það efni og vikapiltar þeirra á Alþingi og víðar. Í æsku lærði ég þessa vísu: „Satan lymskur leitar þín, lifir á glötun manns. Þá er bjór og brennivín, besta vopnið hans.“ Ef menn vilja í alvöru stuðla að vímuvörnum, ber að efla bindindis- hreyfinguna. Því öflugri sem hún verður þeim mun heilbrigðara verður þjóðlífið. Ég vona að þeir tímar séu ekki langt undan. ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi Besta vopnið hans Frá Árna Helgasyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.