Morgunblaðið - 15.06.2001, Qupperneq 59
MAÐUR hefur hálfpartinn á tilfinn-
ingunni að það sé verið að bera í
bakkafullan lækinn með þessari
grein hér, þvílík hefur umfjöllunin
verið undafarnar vikur um þessa
þýsku rokksveit sem einhverra hluta
vegna nýtur ómældra vinsælda hér-
lendis. Rammstein hefur nefnilega
fjarri því farið sigurför um heiminn, í
Bretlandi er henni t.d. lítill gaumur
gefinn. Í Þýskalandi, ýmsum Austur-
Evrópulöndum og Íslandi er sveit-
inni hins vegar hampað mjög, af
þungarokksbullum sem öðrum. Hvað
veldur þessu?
Hér er hvorki staður né pláss til að
vera að velta þessu fyrir sér þótt
áhugavert sé. Heyrum öllu heldur
hvað Richard Kruspe, gítarleikari
Rammstein segir gott.
Rammstein er Rammstein
Jæja, Richard minn. Það mætti
segja að tónlist Rammstein sé mjög
einhlít. Lögin eru öll frekar svipuð að
uppbyggingu; sérstaklega þá hröðu
lögin. Nú er ég ekki að segja að það
sé eitthvað neikvætt. En er erfitt að
semja ný gítarstef vegna þessa og ná
fram nýju sjónarhorni á „reiknilík-
anið“?
„Til að semja Rammsteintónlist þá
þarftu að vera Rammstein. Okkur er
það mjög mikilvægt að einkenni
sveitarinnar skíni í gegnum öll lög og
endurspegli það sem við, meðlimir,
erum. Þessi harði taktur hefur t.a.m.
talsvert með það að gera hvaðan við
komum [sveitin kemur frá Austur-
Berlín].“
Listræn hönnun Rammstein-
platna er ansi mögnuð. T.d. er hönn-
unin í kringum plötuna nýju, Mutter,
hreinasta afbragð. Hver er merking-
in á bak við þessar „dauðra manna“
myndir?
„Við uppgötvuðum bók sem inni-
hélt myndir af dánu fólki sem hafði á
einn eða annan hátt verið varðveitt.
Okkur fannst þetta svo merkilegt að
við hringdum í fólkið sem stóð að
þessu verkefni og fengum þau til að
taka myndir af okkur í sama stíl.
Þetta verkefni þeirra hafði og hlið-
stæðu við hugmyndafræðina á bak-
við Mutter þar sem við erum m.a. að
pæla í hugtökum eins og uppruna.
En allt þetta tal um djúphyggni,
merkingu og slíkt...ég meina, tónlist-
in talar sínu máli. Og það er helsti
kosturinn við allar listgreinar. Ef ég
ætti að útskýra hvaða merkingu
þetta hefur í mínum augum þá trufl-
ar það upplifun annarra. Fólk á að
túlka þetta fyrir sig; koma með eigin
hugmyndir.
En hvað með þessi dularfullu sár
sem þú berð á handleggnum í bækl-
ingnum sem fylgir Mutter? Það er
eitthvað mjög dularfullt og djúpvit-
urt við þau.
„Ætli mér hafi ekki verið refsað
fyrir að spila of mikið af gítarsóló-
um.“
Engir asnar
Sumir myndu segja að tónlist
Rammstein endurspegli vel hug-
myndir (fordóma?) sem fólk hefur al-
mennt um Þýskaland. Tónlistin er
köld, vélræn og hörð og þessir þættir
ýta örugglega að einhverju leyti und-
ir vinsældir sveitarinnar. Er þetta
markmiðsbundið eða er ég bara að
bulla? Eruð þið jafnvel að leika ykk-
ur með falshugmyndir fólks?
„Á öllum plötum okkar eru frá-
bærar ballöður og í mínum huga er
þessi tónlist ekki köld. Hún er hlý en
þarna er líka að finna þjáningu og
sársauka. Það er erfitt fyrir mig að
svara þessu því ég sé hlutina ekki
svona. Þetta er bara þýsk tónlist; við
reynum að vera sannir í því sem við
erum að gera. Hljómurinn er vissu-
lega hreinn og beinn, á stundum jafn-
vel „hernaðarlegur“. En það sem er
mikilvægt er að það er mikil tilfinn-
ing og hjartahlýja til staðar líka.“
Í textum, ímynd og lögum Ramm-
stein virðast vera undirliggjandi til-
vísanir í forboðið kynlíf, sadó-masó-
kisma, ofbeldi og slíkt. Af hverju
veltið þið ykkur upp úr þessu? Til að
valda hneykslan og hneisu? Eða er
þetta ákveðin krossferð, gerð til að
draga þessa hluti fram í sviðsljósið?
„Við höfum áhuga á tengslum –
sambandinu á milli fólks. Kynlíf er er
auðvitað hluti af því. Ef við náum að
koma huga fólks á hreyfingu og fá
það virkilega til að hugsa um alla
þessa hluti þá er það alveg frábært.“
Ég hef verið að skoða myndir af
ykkur á Netinu og þar eruð þið ekki
hræddir við að láta sjá ykkur í „eðli-
legu“ umhverfi. Þið eruð að slappa af
yfir mat í S-Frakklandi, sóla ykkur á
baðströndum og labbandi um í túr-
hestastuði með bakpoka á öxlum.
Þetta er ekki eins og með Slipknot
[bandarísk þungarokksveit] sem láta
aldrei mynda sig án grímna?
„Þegar maður er á sviði þá fer
maður í ákveðið hlutverk. En þegar
maður fer af sviðinu þá tekur annað
hlutverk við. Fólki í Bandaríkjunum
fannst þetta t.d. mjög skrýtið og
spurði okkur: „Af hverju eruð þið
svona eðlilegir. Af hverju eruð þið
ekki asnar?“ Fólk virðist hafa
ákveðnar ímyndir af rokkurum og
heldur dauðahaldi í þær.“
Heyrðu, þá er þetta bara komið.
Rammstein ráða!
„Ókei! Rammstein rokkar!“
Rammstein í Höllinni – viðtal við Richard Kruspe gítarleikara
„Rammstein
rokkar!“
Jæja, þá er komið að því. Rammstein spila í
Laugardalshöll í kvöld og á morgun. Arnar
Eggert Thoroddsen ræddi við gítarleikara
sveitarinnar og stofnanda, Richard Kruspe,
um lífsins gagn og nauðsynjar.
Olaf Heine
Rammstein hin rosalega: Richard er fyrsti frá hægri í neðri röð.
arnart@mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 59
PAPARNIR
Vesturgötu 2, sími 551 8900
gera allt vitlaust í kvöld