Morgunblaðið - 17.06.2001, Page 20
20 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HRINGFERÐIN ersjálfstætt verkefninemenda við mynd-listardeild Listahá-skóla Íslands í sam-
vinnu við ýmis bæjarfélög vítt um
landsbyggðina og var það form-
lega opnað í gærdag í húsnæði
Listaháskóla Íslands. Verkefnið
felur í sér að fjörtíu nemendur
myndlistar- og hönnunardeilda
skólans hafa opnað myndlistarsýn-
ingar á tólf stöðum á landinu.
Nemendurnir fóru í smærri hópum
til ákveðins bæjarfélags og dvöldu
þar í eina til tvær vikur við vinnu
og uppsetningu myndlistarsýn-
inga. Á meðan á dvölinni stóð,
voru vinnustofur þeirra opnar og
gátu gestir og gangandi fylgst með
listamönnunum við störf sín. Opn-
anirnar fóru fram á tímabilinu 16.
maí til 6. júní og munu sýning-
arnar vera opnar til 21. júlí.
Á sýningunni í Laugarnesi gaf
að líta heimildavinnu sem unnin
var í kring um verkefnið af sýning-
arstjórninni, en í henni eru sex
nemendur í Listaháskóla Íslands,
og gafst þá nemendum og kenn-
urum skólans tækifæri til að
kynna sér verkefnið, sem og lista-
mönnunum að bera saman bækur
sínar og reynslu.
Staðurinn endurspeglast í listinni
Hugmyndina að verkefninu og
framkvæmd má rekja til sýninga-
stjórnarinnar, þeirra Bryndísar
Ragnarsdóttur, Daníels Björns-
sonar, Hugins Þórs Arasonar, Re-
bekku Ragnarsdóttur, Ágústar
Ævars Arnarsonar og Geirþrúðar
Hjörvar, en þau luku öll öðru ári
við myndlistar- eða hönnunardeild-
ir Listaháskólans í vor. Leiðbein-
andi hópsins var Ósk Vilhjálms-
dóttir.
„Hugmyndin kviknaði fyrir ári
síðan,“ segir Daníel Björnsson, að-
spurður um tilurð Hringferðarinn-
ar. „Við hugsuðum þetta þannig að
þetta væri eins konar framlenging
á skólanum. Skólayfirvöld tóku
þessu mjög vel, en frumkvæðið var
algerlega okkar. Við fórum þá í
einskonar forhring um landið,
skoðuðum staði og könnuðum
möguleika á því, að nemendur úr
Listaháskólanum gætu komið og
verið í tvær vikur og fengið að-
stöðu til að búa, vinna og sýna.“
Mikil undirbúningsvinna fylgdi í
kjölfarið og hittust sexmenning-
arnir reglulega á fundum í vetur.
Send voru bréf til allra bæjar-
félaga og fengu þau að sögn mjög
jákvæð viðbrögð, en úr voru svo
Kort af sýningarstöðunum tólf er í bæklingi sem gefinn er út í tengslum við Hringferðina.
Morgunblaðið/Arnaldur
Sýningastjórn og hugmyndasmiðir Hringvegarins. Frá vinstri: Daníel, Geirþrúður, Huginn, Bryndís og Ágúst. Á myndina vantar Rebekku Ragnarsdóttur.
Land lagt undir fót
í nafni listarinnar
Mótel Venus
Berglind Ágústsdóttir
Hanna Christel
Sigurðardóttir
Melkorka Þ. Huldudóttir
Ísafjörður-Gamla
sjúkrahúsið
Davíð Örn Halldórsson
Guðmundur Thoroddsen
Margrét Rós
Halldórsdóttir
Pétur Már Gunnarsson
Blönduós-Safnaðarheimili
Blönduóskirkju
Arndís Gísladóttir
Hrund Jóhannesdóttir
Karen Ó. Sigurðardóttir
Margrét M. Norðdahl
Þórunn Inga Gísladóttir
Siglufjörður-Bæjar-
skrifstofur Siglufjarðar
Arnfinnur Amazeen
Baldur G. Bragason
Elín Helena Evertsdóttir
Sigrún Sigurðar
Húsavík-Hvalamiðstöðin og
víðsvegar um bæinn
Elín Hansdóttir
Sara Riel
Sigurður Guðjónsson
Tómas Lemarquis
Úlfur Chaka
Skriðuklaustur
Elísabet Stefánsdóttir
Margrét Ómarsdóttir
Seyðisfjörður-
Norðurgata 2
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Sólveig Einarsdóttir
Þórarinn Hugleikur
Dagsson
Neskaupsstaður-Egilsbúð
Gunnar Þ. Vilhjálmsson
Svavar Pétur Eysteinsson
Djúpivogur-Langabúð
Asami Kaburagi
Julia Steinman
Luigi Puxeddu
Höfn í Hornafirði-
Pakkhúsið og Sindrabær
Þuríður Elfa Jónsdóttir
Vík í Mýrdal-
Gamla pósthúsið
Birta G. Guðjónsdóttir
Bryndís Erla
Hjálmarsdóttir
Linda Dögg Ólafsdóttir
Sigríður Björg
Sigurðardóttir
Þorlákshöfn-Bæjarskrif-
stofur Þorlákshafnar
Markús Þór Andrésson
Ólafur Breiðfjörð
Þuríður S. Sigurðardóttir
Hringferðin er yfirskrift
myndlistarsýninga
nemenda úr Listaháskóla
Íslands, þar sem Ísland allt
er sýningarsalurinn. Inga
María Leifsdóttir hitti tvo
af skipuleggjendum, þau
Daníel Björnsson og Geir-
þrúði Hjörvar, og ræddi
við þrjá þátttakendur,
Úlf Chaka og Lóu Hlín
Hjálmtýsdóttur, myndlist-
arnema, og Hafstein Jó-
hannesson, sveitarstjóra í
Mýrdalshreppi.