Morgunblaðið - 19.06.2001, Page 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HÖRÐ viðbrögð hafa komið fram af
hálfu íbúa Dalabyggðar vegna
ákvörðunar Goða hf. um að hætta í
hagræðingarskyni, slátrun á vegum
fyrirtækisins í Afurðastöðinni í Búð-
ardal að lokinni sláturtíð á hausti
komanda. Búist er við átakafundi um
málið í kvöld í Dalabúð en fulltrúar
Goða og forsvarsmenn Bændasam-
takanna hafa m.a. verið boðaðir á
fundinn. Í sláturhúsinu eru unnin um
14–15 ársstörf.
Sigurður Rúnar Friðjónsson, odd-
viti Dalabyggðar, dregur forsendur
ákvörðunarinnar mjög í efa og segir
fólki brugðið vegna hennar. „Slátur-
húsið í Búðardal hefur verið endur-
nýjað töluvert á undanförnum árum
og er, eftir því sem okkur er sagt, í
mjög góðri stöðu til að takast á við
framtíðarverkefnin,“ segir Sigurður
Rúnar og bendir auk þess á að ekki
vanti nema herslumuninn upp á að
sláturhúsið fái útflutningsleyfi.
Framtíð Afurðastöðvarinnar
var ekki talin í neinni hættu
„Forráðamenn Goða hafa sagt
okkur alveg fram undir það síðasta,
að vinnustaða okkar væri ekki í
neinni hættu. Það hefur margoft
komið fram í samtölum við þá að
framtíð Afurðarstöðvarinnar væri
ekki í neinni hættu. Við munum að
sjálfsögðu safna saman öllum þeim
upplýsingum sem við náum í varð-
andi þetta mál og munum berjast af
alefli á móti því að fyrirtækinu verði
lokað. Dalabyggð hefur samkvæmt
byggðastefnu stjórnvalda verið skil-
greind sem jaðarbyggð og aðalat-
vinnuvegur okkar hefur verið og er
landbúnaður. Það má því líkja þessu
við það þegar stóru frystihúsi í sjáv-
arplássi er lokað.“
Efast um að nokkurt byggðar-
lag hafi fengið slíkan skell
Trausti Bjarnason, bóndi á Á í
Dalabyggð, telur umrædda ákvörð-
un mikið áfall fyrir sveitarfélagið,
ekki síst í ljósi þeirra margfeldis-
áhrifa sem hún kann að hafa.
„Ég efast um að nokkurt byggð-
arlag á landinu hafi fengið annan
eins skell í atvinnumálum, ef þetta á
að verða svona,“ segir Trausti, sem
undanfarin haust hefur lagt inn 300–
400 lömb til slátrunar, auk naut-
gripa. „Áhrif þessarar ákvörðunar
verða mjög slæm, enda mun hún
hafa ýmsar hliðarverkanir sem bitna
á fleirum en þeim sem vinna í slát-
urhúsinu. Ég gæti trúað að hátt í 30
störf tapist ef allt er talið, því starf-
seminni tengjast m.a. flutningafyr-
irtæki og verkstæði.“
Trausti bendir á að ef 30 manns í
690 manna samfélagi missa vinnuna,
blasi samfélagshrun við, sé reiknað
með fjögurra manna fjölskyldu á bak
við hvern þessara 30. „Það er fólk
sem vinnur við slátrun og stundar
smá búskap með. Missi það vinnuna
verður það að fara burt þar sem það
getur ekki lifað einvörðungu af búi
sínu,“ segir hann.
„Það verður því barist til síðasta
blóðdropa með öllum tiltækum ráð-
um til að verja sláturhúsið og starf-
semi þess. Við látum ekki bardaga-
laust rústa byggðarlaginu með svona
ráðstöfunum.“
Síðastliðið haust var alls slátrað 36
þúsund sauðfjár í Búðardal. Auk 14–
15 ársstarfa við slátrunina eru innt
af hendi 50–60 hlutastörf í sláturtíð.
Afurðastöðin er þriðji stærsti vinnu-
staðurinn í sveitarfélaginu, næst á
eftir Mjólkursamlaginu í Búðardal
og Dalabyggð.
Í ljósi ákveðinnar óvissu sem ríkir
um málið segir Trausti það brenna
heitast á sér að krefja Goðamenn
skýrra svara um hvað þeir ætlist fyr-
ir. „Þeir segja reyndar að það eigi að
slátra í Búðardal í haust, en það er
ekki ljóst hverjir ætla að slátra.“
Óvissa um uppsagnir
starfsfólks
Sveinn Gestsson, sláturhússtjóri í
Búðardal, segir ákvörðun Goða al-
varlegt áfall fyrir atvinnusvæðið í
Dalabyggð, enda sé ekki um stórt at-
vinnusvæði að ræða. „Áhrif þessarar
ákvörðunar ná langt út fyrir veggi
sláturhússins, enda kemur þetta illa
við þá aðila sem þjónusta okkur, t.d.
flutningsaðilana, enda hefur tölu-
verður hluti flutninga þeirra verið
héðan frá okkur,“ segir hann.
Sveinn segir óvissu ríkja um hvort
starfsfólki sláturhússins verði sagt
upp, enda sé ekki fyllilega ljóst hvað
Goði ætli sér í framtíðinni. „Við höf-
um ekki fengið að vita það enn hvort
starfsfólkinu verður sagt upp eða
ekki. Það á að slátra hér í haust og þá
verður kjöt í húsinu fram eftir næsta
ári. Síðan er hugsanlegt að frysti-
húsið og geymslurnar verði notuð
áfram, sem krefst mannskaps á
staðnum. Ef þeirri starfsemi yrði
haldið úti, yrði kannski svipaður
fjöldi að vinna í húsinu og verið hef-
ur. Óvissan er hins vegar svo mikil
og við höfum ekkert fengið að vita.
Við fáum heldur ekki að sjá skýrsl-
una sem lögð er til grundvallar þeirri
ákvörðun að láta af sláturstarfsem-
inni. Ég tel að það sé ekki djúp hugs-
un á bak við þessa ákvörðun. Mig
langar til að sjá rökin fyrir þessari
ákvörðun því ég hef ekki fengið að
sjá nema brot úr áðurnefndri
skýrslu og af því að dæma sé ég ekki
enn rökin fyrir því að standa svona
að málum.“
Aðspurður segir hann ekki gott
hljóð í starfsfólki, ekki síst vegna
þess að farið var í miklar fram-
kvæmdir við sláturhúsið fyrir tveim-
ur árum og framtíðin talin björt.
Hörð viðbrögð fólks í Dalabyggð við ákvörðun um að hætta slátrun í Búðardal
Berjast af alefli gegn
lokun fyrirtækisins
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sæmdi fimmtán Íslend-
inga heiðursmerki Hinnar íslensku
fálkaorðu við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum á þjóðhátíðardaginn,
17. júní. Þeir eru:
Ármann Halldórsson, fyrrver-
andi kennari á Eiðum, riddara-
kross fyrir störf í þágu menntunar
og uppeldis. Björn Jónsson, fyrr-
verandi prestur, Akranesi, ridd-
arakross fyrir störf að bindindis-
og menningarmálum. Bragi Ás-
geirsson listmálari, Reykjavík,
riddarakross fyrir störf í þágu lista
og menningar. Egill Bjarnason
ráðunautur, Sauðárkróki, riddara-
kross fyrir störf í þágu landbún-
aðar. Guðrún Agnarsdóttir læknir,
Reykjavík, riddarakross fyrir störf
að heilbrigðismálum. Gyða Stef-
ánsdóttir kennari, Kópavogi, ridd-
arakross fyrir störf í þágu mennt-
unar og fræðslu. Haraldur
Sumarliðason húsasmíðameistari,
Reykjavík, riddarakross fyrir störf
í þágu iðnaðar. Helga Ingólfsdóttir
tónlistarmaður, Álftanesi, riddara-
kross fyrir störf í þágu lista og
menningar. Ingibjörg Pálmadóttir,
fyrrverandi ráðherra og alþingis-
maður, Akranesi, stórriddarakross
fyrir störf í opinbera þágu. Jón Ás-
geirsson tónskáld, Reykjavík, ridd-
arakross fyrir störf í þágu menn-
ingar og lista. Kristín H.
Pétursdóttir bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur, Reykjavík, riddara-
kross fyrir störf í þágu bókasafns-
og uppýsingafræða. Stefán Bald-
ursson þjóðleikhússtjóri, Reykja-
vík, riddarakross fyrir störf í þágu
lista og menningar. Svava Jakobs-
dóttir rithöfundur, Reykjavík,
riddarakross fyrir störf í þágu lista
og menningar. Svavar Gestsson,
sendiherra og fyrrverandi ráð-
herra, Reykjavík, stórriddarakross
fyrir störf í opinbera þágu. Þor-
steinn Gunnarsson rektor, Akur-
eyri, riddarakross fyrir störf í
þágu menntunar og vísinda.
Sæmd heiðursmerki
fálkaorðunnar
RÓLEGHEIT einkenndu opnun
Grímsár, Vatnsdalsár og Miðfjarð-
arár og í Laxá í Leirársveit og
Haukadalsá er lítið að gerast.
Óhætt er að segja að laxveiði-
vertíðin byrji ekki vel, en ekki er
öll nótt úti því góðar smálaxa-
göngur gætu breytt öllu.
Tveir úr Vatnsdalsá
„Það var heilmikið líf hér eftir
hádegi á sunnudag, talsvert af fiski
að því er virtist í Hólakvörn,
Skriðuvaði og í Hnausastreng.
Menn settu í átta laxa, en þetta
voru grannar tökur og sjö sluppu.
Þetta voru allt vænir fiskar og sá
sem náðist áætlaður 13 pund. Í
morgun var síðan annað upp á ten-
ingnum, fiskur virtist á bak og
burt og við höldum að hann hafi
gengið upp úr Flóðinu og inn á efri
svæðin. Þá er að finna hann þar.
Það bættist samt einn lax við í
morgun, 18 pundari. Við erum
ekkert óhressir með þessa byrjun,
það er líf í ánni,“ sagði Pétur Pét-
ursson, leigutaki Vatnsdalsár, í
gærdag.
Þungt hljóð í Torfa
„Ég hef aldrei kynnst þessu
svona lélegu og hljóðið í mér er
eins djöfullegt og hugsast getur.
Það er gott vatn í ánni, gott veður,
allar aðstæður í ánni og frá hendi
himnaföðurins hinar bestu, en það
er bara enginn lax. Við sjáum varla
fisk og síðan á föstudaginn, þegar
við opnuðum, hafa aðeins tveir lax-
ar komið á land. Hvað veldur? Það
er óvenjulega mikið af sel hér úti
fyrir, líka fyrir utan Laxá í Dölum.
Maður hefði haldið að einhverjir
ættu hér hagsmuna að gæta. Von-
andi verður eitthvað gert í þessu,“
sagði Torfi Ásgeirsson, umsjón-
armaður Haukadalsár, í gærdag.
Fyrsta hollið með sjö laxa
Lárus Jónasson, kokkur í Laxa-
hvammi, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að fyrsta hollið í
Miðfjarðará hefði náð sjö löxum,
flestum 10 til 12 punda, en einum
13 punda stærstum. „Menn voru
ánægðir hérna, sáu talsvert af laxi
en hann virtist styggur. En þetta
voru fallegir laxar,“ sagði Lárus.
Lítið að gerast í Leirársveit
Aðeins átta laxar eru komnir á
land úr Laxá í Leirársveit síðan á
fimmtudagsmorgun. Þar af veidd-
ust fimm á stuttum tíma á sunnu-
dag. Það sjást einhverjir laxar, en
áin hefur verið vatnslítil og veður
bjart. Það var farið að rigna í gær-
morgun, en samt veiddist ekkert.
Gott gengi í Blöndu
Blanda gefur langbestu veiðina
það sem af er. Í gær var áin komin
með yfir 100 laxa á aðeins fjórar
stangir. Efst er hins vegar Norð-
urá með um 140 laxa, en það er
heildarveiði á 15 stangir og því
mun lakari meðalveiði á stöng.
Laxinn í Blöndu er meira og minna
stórlax. Fyrir skemmstu setti einn
og sami veiðimaðurinn í tíu laxa í
beit og landaði öllum.
Róleg
byrjun –
Blanda góð
Guðmundur Ágúst Pétursson
með þrjá væna laxa úr Blöndu.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
SÆNSKU konungshjónin Karl
Gústaf XVI og Silvía drottning
hafa boðið forseta Íslands Ólafi
Ragnari Grímssyni og Dorrit
Moussaieff að vera gestir sínir
við hátíðarhöld í tilefni af silfur-
brúðkaupi konungshjónanna.
Hátíðarhöldin hófust í gær-
morgun, 18. júní, og standa
jafnframt í dag, 19. júní.
Í gærmorgun sigldu kon-
ungshjónin og gestir þeirra frá
Drottningholm höllinni áleiðis
til Gripsholm kastalans þar sem
hátíðarkvöldverður konungs-
hjóna verður. Í dag er fjölbreytt
dagskrá sem lýkur með úti-
hljómleikum sænskra tónlistar-
manna í hallargarði Drottn-
ingholm hallarinnar. Hljóm-
leikarnir eru einnig opnir
almenningi.
Sækja silfur-
brúðkaup
sænsku
konungs-
hjónanna
RÍKISSTJÓRN Íslands sam-
þykkti í gær viljayfirlýsingu um
15 milljóna króna framlag í sér-
stakan Alheimssjóð vegna al-
þjóðlegrar baráttu gegn al-
næmi.
Í fréttatilkynningu frá heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu kemur fram að boðað
hafi verið til aukaallsherjar-
þings Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar, WHO, í lok júní
og fer það fram í New York.
Á alþjóðaheilbrigðisþinginu,
sem haldið var í Genf um miðj-
an síðasta mánuð, lýsti Kofi
Annan, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, því yfir að stofnaður
yrði sérstakur Alheimssjóður
varðandi alnæmi og heilbrigði á
vegum samtakanna. Skoraði
hann á ríkisstjórnir heims og
einkaaðila að leggja sitt af
mörkum og hafa Bandaríkja-
menn meðal annars lýst því yfir
að fjárframlag þeirra verði 200
milljónir dollara.
Framlag
Íslendinga
15 milljónir
Alheimssjóður vegna
baráttu gegn alnæmi