Morgunblaðið - 19.06.2001, Page 24
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 25
ANDREJ Logar, sendi-
herra Slóveníu á Ís-
landi, var hér í heim-
sókn um helgina en
hann var hér til að sam-
fagna Íslendingum á
þjóðhátíðardegi þeirra.
Slóvenía er ríki í Mið-
Evrópu sem áður var
hluti sambandsríkisins
Júgóslavíu. Landið varð
sjálfstætt árið 1991 eftir
snörp átök við Júgóslav-
íuher. Í dag er Slóvenía
vel stödd efnahagslega
og er innganga í Evr-
ópusambandið (ESB)
og Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) efst á baugi í utanrík-
isstefnu landsins.
Vill auka viðskipti milli
ríkjanna
Logar var ekki eingöngu hér til að
taka þátt í hátíðahöldunum heldur
átti hann fundi með Slóvenum bú-
settum hér og einnig hitti hann ís-
lenska athafnamenn. „Ég nota hvert
tækifæri til að hitta menn úr íslensku
efnahagslífi. Stór hluti af mínu starfi
er að styrkja efnahagsleg tengsl
landanna tveggja og ýta undir versl-
un og viðskipti þeirra á milli,“ segir
Logar. „Viðskipti milli landanna eru
ekki mikil eins og er, en ég vonast til
að þau færist í aukana þegar fram
líða stundir.“ Ferðamennsku segir
Logar vera svið sem búi yfir miklum
möguleikum. „Áður en Júgóslavía
liðaðist í sundur kom hingað fjöldi Ís-
lendinga á ári hverju. Við vonum að
íslenskum ferðamönnum fjölgi í
framtíðinni.“
Logar segir sam-
skipti Slóveníu við
önnur ríki fyrrverandi
Júgóslavíu til fyrir-
myndar. Fyrir aðeins
einum mánuði tóku
Slóvenar upp stjórn-
málasamband við
Serbíu og hafa sam-
skipti ríkjanna batnað
til mikilla muna eftir
að Slobodan Milosevic
hrökklaðist frá völd-
um. „Sú stjórn sem nú
situr í Belgrad er sú
besta sem við getum
hugsað okkur. Vojislav
Kostunica og sam-
starfsmenn hans voru mörg ár í and-
stöðu við Milocevic og eru raunveru-
legir lýðræðissinnar.“ Logar segir
það mikilvægt fyrir Serbíu að stríðs-
glæpamenn eins og Radovan Kar-
adzic, Slobodan Milosevic og Ratko
Mladic verði sendir til stríðsglæpa-
dómstólsins í Haag. „Það er nauð-
synlegt að flytja sektina frá serb-
nesku þjóðinni til þeirra sem eiga að
bera hana. Ef þessir menn fá að
ganga lausir þá bera allir Serbar
ákveðna sök á stríðsglæpum síðasta
áratugar. Þjóðarheill Serbíu er það
nauðsynlegt að réttlætið nái fram að
ganga.“
Innganga í ESB og
NATO efst á baugi
Logar segir Slóvena vonast til að
fá inngöngu í ESB og NATO sem
allra fyrst. „Efnahagur Slóveníu
stendur styrkum fótum. Kaupmáttur
er um 70% af meðalkaupmætti í ESB
og við stöndum framar nokkrum að-
ildarríkjum á sumum sviðum.“ Hann
segir stuðning við inngöngu í ESB og
NATO vera mikinn heimafyrir. Slóv-
enar vilja þó ekki að Brussel komi í
stað Belgrad. Þeir vilja ekki ganga í
„Bandaríki Evrópu“, heldur sam-
band sjálfstæðra ríkja, sem hvert
hefur sína menningu, sitt tungumál
og sínar hefðir. „Við erum lítil þjóð
en við viljum að okkur sé sýnd sama
virðing og stærri þjóðum. Þetta er sú
framtíðarsýn sem við höfum af ESB
og við munum reyna að vinna henni
brautargengi þegar inn í sambandið
er komið.“
Logar segir Slóvena hafa mikið
fram að færa fái þeir inngöngu í
NATO. Þeir hafi ekki stóran her en
Ísland sé gott dæmi um að það skipti
ekki öllu máli. „Við höldum í heiðri
þau gildi sem NATO er gert að
vernda, s.s. mannréttindi, lýðræði og
frjálsa verslun.“
Slóvenar styðja Eystrasaltsríkin
til inngöngu í NATO og segir Logar
Rússa ekki hafa neitunarvald í þeim
efnum. „Auðvitað verður að taka tillit
til Rússa og taka athugasemdir
þeirra til skoðunar en það er ljóst að
það eru umsóknarríkin og NATO
sem ákveða hvort af stækkun verð-
ur.“
Logar segir fund þeirra George W.
Bush Bandaríkjaforseta og Vladim-
írs Pútín Rússlandsforseta hafa skipt
miklu máli fyrir Slóveníu. Fundurinn
kom okkur aftur á kortið,“ segir Log-
ar. „Það var okkur líka mjög mikils
virði að báðir forsetarnir gáfu sér
tíma til að ræða við forsætisráðherra
Slóveníu. Þar gafst gullið tækifæri til
að koma sjónarmiðum okkar á fram-
færi.“
Sendiherra Slóveníu um aðild að NATO og ESB
Andrej Logar
Haldið fast í sjálfstæði
ARGENTÍNA er komin á fornar
slóðir. Umbótunum á síðasta ára-
tug var ætlað að koma landinu út
úr viðvarandi kreppu en í apríl
1991 tengdi fjármálráðherra Arg-
entínu, Domingo Cavallo, pesóinn
við dollarann á genginu einn á móti
einum. Nú, tíu árum síðar, er herra
Cavallo að reyna að verjast sam-
drætti og fjárlagahalla.
Á síðustu tíu árum hafa heims-
viðskipti orðið frjálsari og fyrirtæki
sem og lífeyrissjóðir verið einka-
vædd. Fjárlagahallinn var tekinn
föstum tökum, innra skipulag fjár-
málaheimsins var endurnýjað og
hann styrktist. Þessi vinna sem
miðaði að auknu jafnvægi í gjald-
eyrisviðskiptum ásamt auknu fjár-
streymi til Argentínu ýtti undir
blómatímabil í efnahag landsins.
Það entist til ársins 1995 þegar
kreppa í efnahagsmálum skall á í
Mexíkó. Vöxtur jókst svo verulega
til ársins 1998. Síðan hafa Argent-
ínumenn staðið frammi fyrir við-
varandi samdrætti og ríkisstjórnin
á erfitt með að endurfjármagna
þjóðarskuldina.
Þeim, sem er annt um hag Arg-
entínu, telja að erfiðleika landsins
megi rekja til ringulreiðar á fjár-
málamörkuðum heimsins sem og til
styrks dollarans en þessi atriði
draga úr samkeppnishæfni útflutn-
ingsvara frá Argentínu. Gengisfell-
ingin í Brasilíu árið 1999 dró einnig
úr þessari samkeppnishæfni. Lágt
verð á matvöru og verndartollar á
landbúnaðarvörum hafa einnig sitt
að segja.
Sömu menn segja, og að ein-
hverju marki með réttu, að krepp-
una í Argentínu megi að hluta
rekja til framtíðarspár sem lánar-
drottnar settu sjálfir fram. Þar sem
kreppa hefur skollið svo oft á í Arg-
entínu búast fjárfestar alltaf við
hinu versta og draga peninga út úr
fjárfestingum um leið og þá grunar
að eitthvað sé að og ýta þar með
undir frekari kreppu. En ekki má
eingöngu kenna óheppni um. Vegna
þess að pesóinn er tengdur doll-
aranum er enginn öryggisventill á
falli hans þegar efnahagurinn fær
skell utan frá.
Berum Argentínu saman við
Ástralíu sem hefur lent í sambæri-
legum áföllum. Árið 1997 féll ástr-
alski dollarinn úr 78 bandarískum
sentum og var kominn í 53 sent í
maí 2001. Þetta hélt jafnvægi í út-
flutningi Ástrala og viðhélt hag-
vexti í 2% á ársgrundvelli.
Argentína er viðkvæm gagnvart
ytri áföllum eins og lækkandi verði
á landbúnaðarvörum þar sem
landsmenn báru ekki gæfu til að
auka fjölbreytni útflutningsins. Út-
flutningurinn samanstendur eink-
um af korni, kjöti, unninni matvöru
og öðrum landbúnaðarvörum. Út-
flutningur á vélbúnaði og sam-
göngutækjum, þar sem hátækni
kemur við sögu, var ekki nema 10%
af útflutningi landsins og einungis
1% af þjóðarframleiðslunni.
Þeim, sem tóku þátt í endur-
skipulagningu markaðsmála, láðist
að hugsa um hvert hlutverk rík-
isstjórnarinnar átti að vera í að
bæta tæknilega getu landsins.
Markaðskerfi sem virkar vel ýtir
undir að erlendir fjárfestar setji fé
í hátækni og kemur fótunum undir
hátækniiðnað heimafyrir. En efna-
hagskerfi sem byggt er í kringum
hátækni þarfnast sterkra háskóla
með háu skráningarhlutfalli og rík-
isstyrkja til vísindaverkefna.
Bandaríkjamenn setja til að
mynda 90 milljarða dollara af al-
mannafé í vísindarannsóknir. Sum
þróunarríki eins og Ísrael, Kórea
og Taívan fjárfesta ríkulega í æðri
menntun og vísindarannsóknum.
Það gerir Argentína ekki.
Um 600 vísindamenn eru á
hverja milljón Argentínumanna en
í Kóreu eru þeir 2.200 á hverja
milljón. Argentína setur minna en
1% þjóðartekna í rannsóknir og
þróun á móti 2,5% í Kóreu. Argent-
ínskir uppfinningamenn fengu
einkaleyfi á 63 vörutegundum í
Bandaríkjunum á árinu 2000 á móti
3.400 einkaleyfum sem Kóreumenn
fengu.
Munurinn er vel sýnilegur í hag-
vextinum. Efnahagsvöxtur var
0,5% á einstakling í Argentínu á ár-
unum 1980–1998 á meðan vöxturinn
var 6,2% í Kóreu á ársgrundvelli og
var sá vöxtur einkum byggður á út-
flutningi tæknivarnings. Áður gátu
lönd náð háu velferðarstigi með því
að mergsjúga náttúruauðlindir.
Þau ríki sem spjara sig hvað best í
hagkerfi heimsins í dag byggja for-
ystu sína einkum á þekkingu og
nýrri tækni. Einstök ríki verða að
hlúa að menntun og nýjungum,
jafnframt því að sýna alhliða stöð-
ugleika og búa yfir heilbrigðu
markaðsumhverfi. Umbæturnar í
Argentínu og löndum sem eru í
svipaðri stöðu ættu að snúast um
að hlú að hæfni samfélagsins á sviði
menntunar, vísinda og tækni.
Argentína aftur
á byrjunarreit
©Project Syndicate
Jeffrey Sachs er Galen L. Stone-
prófessor í hagfræði og fram-
kvæmdastjóri Alþjóðaþróun-
armiðstöðvarinnar við Harvard-
háskóla.
Eftir Jeffrey Sachs
Þar sem kreppa hefur
skollið svo oft á í Arg-
entínu búast fjár-
festar alltaf við hinu
versta og draga pen-
inga út úr fjárfest-
ingum um leið og þá
grunar að eitthvað sé
að og ýta þar með
undir frekari kreppu.