Morgunblaðið - 19.06.2001, Blaðsíða 39
MINNINGAR
40 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðlaug Jóns-dóttir fæddist
30. mars 1957 í
Reykjavík. Hún lést
7. júní síðastliðinn á
krabbameinsdeild
Landspítalans – há-
skólasjúkrahúss v/
Hringbraut.
Foreldrar hennar
voru Jón Þórðar-
son, f. 26. febrúar
1909, d. 4. mars
1988, og Laufey
Stefánsdóttir, f. 5.
nóvember 1912, d.
22. maí 1988.
Systkini Guðlaugar eru; Guð-
rún Fjóla, f. 23. október 1935,
maki Marvin Lee Jeffries og eiga
þau fjögur börn.
Árni Laugdal, f. 25. júní 1938,
d. 1992, maki Lilly Clouse Jóns-
son, þau skildu og eiga einn son.
Stefán, f. 9. janúar 1947, fyrri
kona hans var Steinunn H. Guð-
bjartsdóttir og eiga þau tvö börn,
f. 3. ágúst 1980, nemi, faðir hans
er Viðar Finnsson frá Ísafirði.
Sambýlismaður Guðlaugar frá
1988 er Aðalsteinn Jörgensen, f.
18. nóvember 1959, atvinnurek-
andi, foreldrar hans eru Áslaug
Hafsteinsdóttir, f. 29. júlí 1938,
matráðskona í Lækjarskóla í
Hafnarfirði, og Peder Jörgensen,
f. 26. apríl 1938, fósturfaðir Að-
alsteins er Kristinn Daníelsson, f.
15. maí 1933.
Guðlaug fæddist í Reykjavík
og ólst upp á Fálkagötunni. Að
loknu grunnskólanámi í vestur-
bænum lá leið hennar vestur á
Ísafjörð. Þar eignaðist hún sín
börn og vann við fiskvinnslu og
skrifstofustörf auk húsmóður-
starfa. Eftir að Guðlaug fluttist
til Reykjavíkur vann hún áfram
við skrifstofustörf og bókhald hjá
ýmsum fyrirtækjum, núna síðast
hjá Brimborg hf. Áhugamál Guð-
laugar voru einkum tengd brids
og tók hún virkan þátt í félags-
starfi því tengdu ásamt keppnis-
og spilamennsku. Auk þess var
garðrækt henni afar hugleikin.
Útför Guðlaugar fór fram í
Fossvogskapellu 18. júní síðast-
liðinn í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
síðari kona hans var
Guðrún Sigurðar-
dóttir, þau skildu.
Kristján Þór, f. 17.
janúar 1948, maki
Lone Jakobsen, sam-
an eiga þau saman
tvo syni auk þess á
Kristján Þór son frá
fyrra sambandi.
Þórður, f. 5. júní
1949, maki Ástríður
Bjarnadóttir og eiga
þau eina dóttur.
Smári, f. 26. apríl
1951, maki Jóhanna
Sigurjónsdóttir og
eiga þau tvö börn.
Geir, f. 20. desember 1954, d.
1994, maki Elina Hrund Krist-
jánsdóttir og eiga þau saman tvö
börn, auk þess átti Geir einn son
frá fyrra sambandi.
Börn Guðlaugar eru Dagbjört
Fjóla f. 3. janúar 1976, hótelfræð-
ingur, faðir hennar er Konráð
Einarsson frá Ísafirði og Gunnar,
Í nóvember árið 1988 kom ung
dama í afmæli sonar míns, glæsi-
leg, með svarta slaufu í rauðu hári
sem náði langt niður á bak, í
svartri dragt, á háum hælum. Þetta
var Guðlaug og hún var komin til
að vera.
Það voru fáir eins og hún og ég
sakna hennar sárt. Það var svo
margt sem hún ætlaði að gera í
sumar en tími vannst ekki til. Þau
áttu fallegt hús og stóran garð sem
hún ætlaði að gjörbreyta. Þar áttu
að vera gosbrunnur og lækur með
buslandi andarungum en fyrir voru
hundurinn Alex og hænurnar tvær,
frú Ása og frú Fríða. Ég hlakkaði
til þess að sjá þennan draum verða
að veruleika.
Guðlaug og Aðalsteinn skráðu
sig í dansskóla í vetur sem leið og
engan óraði fyrir að því námi
fengju þau aldrei að ljúka. Þau
voru ólöt að sýna okkur hvað þau
höfðu lært og liðu oftar en ekki
saman í dans á stofugólfinu. En
dansinn þeirra varð styttri en efni
stóðu til.
Tengdadóttir mín var fínleg kona
og kvenleg sem starfaði sem bókari
hjá ýmsum fyrirtækjum í Reykja-
vík. Það var því erfitt að gera sér í
hugarlund að fyrr á ævinni stund-
aði hún sjómennsku af kappi vestur
á fjörðum, reri stundum ein til
fiskjar og veiddi vel. Hún lét sig
heldur ekki muna um að afla sér
skipstjóraréttinda á þrjátíu tonna
bát og sýndi þá sem oftar að henni
óx fátt í augum. Hún fór ekki í bæ-
inn til að kaupa sér kjól… nei, hún
kom heim með háþrýstidælu og
vakti þannig ósvikna kátínu við-
staddra. Aðalsteinn minn er búinn
að missa mikið. Hann stóð við hlið
konu sinnar eins og hetja í erfiðri
baráttu við hræðilegan sjúkdóm og
nærvera hans og barnanna tveggja,
Dagbjartar og Gunnars, var henni
meira virði en nokkuð annað. Ég
veit að hún bað þau öll fyrir hvert
annað og umhyggja þeirra og gagn-
kvæm virðing á sér heldur engin
takmörk.
Aldrei fann ég betur hvað
tengdadóttir mín var sérstök kona
en síðustu vikurnar sem hún lifði.
Við hefðum getað fyllt Laugardags-
höllina til að kveðja hana hinsta
sinni en hún kaus kyrrð og ró og
aðeins sína nánustu.
Elsku Aðalsteinn, Dagbjört og
Gunnar, ég veit að þið eigið oft eft-
ir að þurfa á Guðlaugu að halda og
spyrja hana að ýmsu án þess að fá
nokkur svör. En í rauninni búa
svörin hennar í hjörtum ykkar þar
sem hún gróðursetti þau meðan
hún gat.
Guð varðveiti ykkur og styrki.
Áslaug Hafsteinsdóttir.
Eitt er víst að enginn veit sinn
næturstað en aðfaranótt fimmtu-
dagsins 7. júní sl. kvaddi Gulla
frænka í síðasta sinn. Jafnótíma-
bærri kveðju fylgir gríðarlegur
söknuður en vekur jafnframt upp
margar góðar minningar um stund-
ir með Gullu frænku. Maður spyr
sjálfan sig aftur og aftur „af hverju
Gulla“ hún sem var nýbúin að
koma sér svo vel fyrir með Alla í
fallega húsinu þeirra í Salthömrum.
Ég minnist óteljandi kvöldstunda í
Salthömrunum en það var alltaf
tekið vel á móti manni af hundinum
Alex sem á sér engan líka. Við sát-
um svo löngum stundum í eldhús-
inu hennar og ræddum um allt á
milli himins og jarðar. Það var svo
gaman að fylgjast með því hvernig
Gulla blómstraði í nýja húsinu, og
hversu stolt hún var af garðinum
þar sem hún dvaldi löngum stund-
um og gróðursetti tré og blóm og
skreytti svo með litlum garðálfum
sjálfum sér og öðrum til ánægju.
En svo dundi ógæfan yfir og Gulla
hóf baráttu við illvígan sjúkdóm
sem að lokum hafði yfirhöndina.
Áræðni, viljastyrkur og ákveðni
einkenndi Gullu. Sem dæmi um
ákveðni hennar lét hún gamlan
draum sinn rætast á vordögum og
fékk sér tvær íslenskar hænur sem
hún kom haganlega fyrir í litlu úti-
húsi úti í garði. Hænurnar fengu að
sjálfsögðu sitt nafn, frú Fríða og
frú Ása sem hún nefndi eftir sinni
ástkæru tengdamóður sem var
hennar stoð og stytta á erfiðum
tímum. Það er komið að kveðju-
stund og ég bið þann sem öllu ræð-
ur að styrkja Alla, Dagbjörtu,
Gunnar og aðra ástvini á sorgar-
stund.
Guð blessi minningu Guðlaugar
Jónsdóttur.
Anna Svava Þórðardóttir.
Guðlaug Jónsdóttir, kona Aðal-
steins frænda míns, er frá okkur
farin eftir baráttu við illvígan sjúk-
dóm sem í raun var lengri en hún
lét uppi. Þessi bjarta, kraftmikla
stúlka bar ekki líðan sína á torg
þótt hún vissi að hverju stefndi og
tókst á við veikindi sín af hugprýði
og æðruleysi. Mest var henni í mun
að gera öðrum léttara fyrir að ann-
ast sig og fannst mér það til eft-
irbreytni öllum þeim sem fremur
huga að eigin hag.
Guðlaug hætti störfum utan
heimilis vegna veikinda sinna. Hún
kvaðst vilja nota hverja stund til að
lifa lífinu og gera sitthvað sem í sér
hefði blundað en aldrei verið tæki-
færi til vegna anna. En tíminn rann
út fyrr en hún hefði kosið.
Ég er þakklát fyrir að hafa feng-
ið að kynnast Guðlaugu lítillega í
áranna rás og margt gat ég af
henni lært. Söknuður Aðalsteins og
barna hennar, Gunnars og Dag-
bjartar, er mikill en fögur mynd
móður og konu mun fylgja þeim í
gegnum lífið. Guð gefi þeim styrk.
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Góðir vinir eru gulls ígildi. Við
eignuðumst góða vini þegar Alli
frændi minn og Gulla fluttu í Graf-
arvoginn fyrir fjórum árum. Þeir
voru ófáir „göngutúrarnir“ milli
Salthamra 1 og Hlaðhamra 1.
Garðurinn og blómin voru Gullu
mikils virði. Fyrir dyrum stóðu
margvíslegar framkvæmdir svo
garðurinn fengi að njóta sín sem
best og allt vildi Alli ráðast í til að
gleðja hana.
Við gátum setið tímunum saman
og talað um blóm og garðrækt eða
bara allt milli himins og jarðar og
oft hlógum við að því hvað við vor-
um ólíkar. Meðan ég fór og keypti
skraut og óþarfa, fannst Gullu mun
gáfulegra að eyða í verkfæri og
aðrar nauðsynjavörur.
Á þriðjudagskvöldum fórum við
öll fjögur og dönsuðum af lífi og
sál. Þá voru Gulla og Alli búin að
æfa stíft frá hádegi og biðu
óþreyjufull eftir okkur hjónum sem
úfin og óæfð kepptumst við að
komast frá börnum og búi. Gulla
naut þess að dansa og gat til dæm-
is aldrei setið kyrr undir samba-
tónlist. Að dansi loknum settumst
við að ostum og rauðum veigum á
heimilum okkar til skiptis og lukum
þar líflegum kvöldstundum við
GUÐLAUG
JÓNSDÓTTIR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
0
' !
' !'
'!
B2@"
@"" $4# ,D
>/E #*,
-
>*'+ B4'( /--
8/ B4'(B4'( )* 2)1)
%0(% )/--
0 ')- B4'( )* > )-1 .* )- )/--
$ ', B4'( /-- 9 'F)*
3 6'% 8/ )/-- # )-))*
+ +; *,+ + +
" !
" 2"&"8
"
"'% , #1)'
3 #1
&
$
5 &
' "'& (
8/ > ' 0
))* ", $ - /--
@ , A-
)/--
1)'
%0(% ))*
8/ )$ ''/
))*
1 ", 10%
)/-- #'' 8*) E6B -
*,+ +;
3" !
5<G@
G"
$ )-%
40% -'6 (')4
# ,7!
-
' 3,,# /--
"# 3,,# /--
*, 0 0)- %
0
!' !
' !' '!
">
""
%(; D" '*))
40% $ *-.3# +
6'&
-
78 $&
*#1) 2 /--
!"##
$%& !!'
( !"## )! !"##
!"## *+&#,- !!'
$%& !'
+ !"##-