Morgunblaðið - 19.06.2001, Qupperneq 43
44 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGARMÓTINU um
Guðmund Arnlaugsson, sem hald-
ið var föstudaginn 15. júní í hátíð-
arsal Menntaskólans við Hamra-
hlíð, lauk þannig að Jóhann
Hjartarson sigraði með 11½ vinn-
ing af 13. Er þetta annað árið í
röð sem Jóhann lýkur keppni sem
sigurvegari minningarmótsins. Í
öðru sæti varð Arnar Gunnarsson
með 10 vinninga og í því þriðja
varð Helgi Ólafsson með 9½ vinn-
ing. Þátttakendur voru 14 talsins
og tefldar voru 13 umferðir með
því fyrirkomulagi að hver kepp-
andi fékk 3 mínútur í upphafi
skákar og 2 sekúndur bættust við
eftir hvern leik.
Guðmundur Arnlaugsson var
einn fremsti skákmeistari hér-
lendis og jafnframt einn virkasti
og þekktasti skákrithöfundur
okkar Íslendinga. Auk þess varð
hann fyrstur allra Íslendinga til
að vera útnefndur alþjóðlegur
skákdómari af FIDE. Guðmund-
ur var einnig rektor Menntaskól-
ans við Hamrahlíð. Hann lést 9.
nóvember 1996, 83 ára að aldri.
Eftir lát hans var sá siður tekinn
upp að í júnímánuði á hverju ári
skyldi verða haldið minningarmót
honum til heiðurs.
Úrslit mótsins urðu eftirfar-
andi:
1. Jóhann Hjartarson 11½ v. af
13
2. Arnar E. Gunnarsson 10 v.
3. Helgi Ólafsson 9½ v.
4.–5. Þröstur Þórhallsson og
Sigurbjörn J. Björnsson 7½ v.
6. Helgi Áss Grétarsson 7 v.
7. Margeir Pétursson 6 ½ v.
8.–9. Róbert Harðarson og Karl
Þorsteins. 6 v.
10. Rúnar Sigurpálsson 5½ v.
11.–12. Björn Þorfinnsson og
Áskell Örn Kárason 5 v.
13. Ingvar Ásmundsson 3½ v.
14. Guðmundur Kjartansson ½
v.
Eins og sést á þessum úrslitum
fengu stórmeistararnir okkar
óvenju mikla samkeppni að þessu
sinni og sérstaka athygli vekur
frábær árangur Arnars Gunnars-
sonar.
Lárus H. Bjarnason, rektor
MH, setti mótið. Skákstjórar
voru Ríkharður Sveinsson og
Gunnar Björnsson. Helgi Ólafs-
son sá um skipulagningu mótsins.
Fyrsta Íslandsmót öldunga
Fyrsta Íslandsmót öldunga
verður haldið í íþróttaviku Garða-
bæjar dagana 22.-24. júní. Tefldar
verða 7 umferðir og byrjar sú
fyrsta föstudaginn 22. júní kl. 18.
Umhugsunartími verður einn
klukkutími á mann. Heildarverð-
laun eru 25.000 krónur auk gripa
en sigurvegari mótsins öðlast
þátttökurétt í sama aldursflokki á
Norðurlandamótinu sem haldið
verður í Fredrikstad í Noregi í
haust. Skáksambandið mun senda
einn keppanda á það. Þátttöku-
rétt eiga þeir sem fæddir eru
1941 eða fyrr. Þátttökugjald er
1.500 kr. Teflt verður í Garða-
lundi í Garðabæ en hugsanlegt er
að mótið verði flutt til vegna
framkvæmda. Tekið er á móti
skráningum með tölvupósti
(pall@vks.is) eða í símum 861
9656 og 580 9743. Áríðandi er að
þátttakendur tilkynni sig sem
fyrst svo hægt verði að meta um-
fang mótsins í tæka tíð.
Úr mótaáætlun
Skáksambandsins
22.6. TG. Íslandsm. 60 ára og e.
23.6. TR&SÍ. Helgarskákmót
Jóhann Hjartarson sigur-
vegari á minningarmóti um
Guðmund Arnlaugsson
SKÁK
M e n n t a s k ó l i n n v i ð
H a m r a h l í ð
MINNINGARMÓT
UM GUÐMUND
ARNLAUGSSON
15.6. 2001
Daði Örn Jónsson
Jóhann Hjartarson tefldi við Ingvar Ásmundsson í fyrstu umferð
minningarmóts um Guðmund Arnlaugsson.
Til leigu
skrifstofuhúsnæði
220 fm gott skrifstofuhúsnæði vel staðsett
í Kvosinni, Kirkjuhvoli, gegnt Dómkirkjunni
og Alþingi. Laust 1. júlí.
Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll,
traust fasteignafélag sem sérhæfir
sig í útleigu á atvinnuhúsnæði,
sími 892 0160, fax 562 3585.
Til leigu
skrifstofuhúsnæði
400 fm glæsilegt skrifstofuhúsnæði í virðu-
legu húsnæði í miðborginni. Mikil lofthæð.
Glæsilegur fundarsalur. Glæsileg sameign
— lyfta. Laust strax.
Tilvalið fyrir metnaðarfullt fyrirtæki.
Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll,
traust fasteignafélag sem sérhæfir
sig í útleigu á atvinnuhúsnæði,
sími 892 0160, fax 562 3585.
Sjávarútsýni
Til leigu nýtt sérlega glæsil. verslunar-/skrif
stofuhúsnæði við Skúlagötu. Um er að ræða
ca. 162 fm á götuhæð með sérinngangi.
Gegnheilt parket á gólfum. Stórir og bjartir
gluggar. Að mestu sem opið rými.
Óhindrað útsýni til sjávar. Laus 1. júlí.
Sláðu strax á þráðinn til Ágústar í s. 894 7230
eða kynntu þér málið á holl.is (832).
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Íbúð til leigu
3ja herbergja íbúð með húsgögnum til leigu
í Hlíðahverfi. Tilboð sendist til auglýsingadeild-
ar Mbl. sem allra fyrst, merkt: „Sól — 23“.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Íbúð óskast
Ung hjón, tölvunarfræðinemi og málarameistari
með 1 barn óska eftir að leigja 3-4 herb. íbúð
helst í Hlíðunum frá og með 1. júlí. Reyklaus
og reglusöm. Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Upplýsingar í síma 690 1800.
Áttu atvinnuhúsnæði?
Vantar 5000 fm lagerhúsnæði á stór-Reykjavík-
ursvæðinu.
..........
Fyrir sandsölu bráðvantar okkur ca 300 fm hús-
næði
...........
Ef þú ert að leita að atvinnuhúsnæði skaltu
hætta því strax og láta okkur sjá um leitina.
Ágúst 894 7230/Frans 8934284
...........
Hóll - alltaf rífandi sala.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu á Laugavegi 17
skemmtilegt húsnæði undir verslun (baklóð),
áður verslunin Jónas á milli.
Upplýsingar í síma 565 1144.
TILKYNNINGAR
Ókeypis lögfræði- og
félagsráðgjöf fyrir konur
Opið í kvöld, þriðjudagskvöld, frá kl. 20.00—
22.00 og á fimmtudögum frá kl. 14.00—16.00.
Kvennaráðgjöfin,
Túngötu 14, Reykjavík,
sími 552 1500.
Eftirlýst bifreið
Bifreiðin MJ 027, sem er Grand Cherokee árgerð
1998, grá að lit, er eftirlýst vegna vörslusvipting-
ar fyrir uppboð sem fram á að fara 23. júní 2001.
Síðast skráði eigandi hefur ekki gefið upp hvar
hann er að finna. Bíllinn sást síðast í Árbæjar-
hverfi.
Mynd af bíl sömu tegundar.
Heitið er góðum verðlaunum þeim sem getur
bent á hvar bifreiðin er niðurkomin og ábend-
ing leiðir til vörslusviptingar. Ábendingum skal
komið til Þorleifs Sigurðssonar, viðskiptastjóra
hjá SPH, sími 550 2000 eða tölvupóstur
thorleifur@sph.is .
Sparisjóður Hafnarfjarðar.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA DULSPEKI
■ www.nudd.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Til leigu í Hafnarfirði
jög gott 200 fm húsnæði við Dalshraun til
leigu undir verslunar- eða veitingarekstur.
Húsnæðið er fullinnréttað og tilbúið til reksturs
pizzastaðar. Góð bílastæði.
Upplýsingar í síma 565 1144.
Býð upp á miðlun og
sálarteikningar.
Tímapantanir í síma 848 5978,
Birgitta.