Morgunblaðið - 19.06.2001, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 51
DAGBÓK
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð til
London frá 29. júní, allar helgar.
Komið til London á föstudegi og flug til baka á mánudegi
og í London bjóðum við þér úrval hótela á frábæru verði.
Verð kr. 19.720
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug og skattar.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 29.990
Flug og Bayswater Inn hótelið í
3 nætur. M.v. 2 í herbergi.
Skattar innifaldir.
Aðeins 12 sæti
Helgartilboð til
London
29. júní
frá kr. 19.720
Bébécar AT barnavagnar,
Reider AT kerrur og
Easybob bílstólar,
sem passa á
vagnagrindur og kerrur.
Nýir litir
Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 564 6610,
verslun.strik.is/allirkrakkar
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert rólyndur og ráðagóð-
ur og því leitar fólk til þín.
Mundu að brjóta ekki trúnað
þeirra sem til þín leita.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það skiptir sköpum að þú tjáir
þig með þeim hætti að menn
þurfi ekki að velkjast í vafa
um skoðanir þínar. Forðastu
að vera langorður því það fæl-
ir fólk frá.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú mátt aldrei freistast til
þess að sniðganga lögin þótt
þér sýnist það geti einfaldað
einhverja hluti. Það myndi
líka hefna sín grimmilega.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hafnaðu ekki hugmyndum
annarra að óathuguðu máli
því þótt þær séu ekki frá þér
sjálfum komnar getur þar vel
leynst lausn á því verkefni
sem þú ert að glíma við.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Baráttan milli góðs og ills get-
ur stundum verið stríð. Það
varðar þó sálarheill þína að
þér takist að greina þarna í
milli og að grípa aðeins til
góðra ráða.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú verður að leggja af allan
vingulshátt ef þú ætlar að ná
takmarki þínu. Veltu málun-
um fyrir þér og þegar niður-
staða er fengin berð þú hana
ótrauður fram til sigurs.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Í upphafi skyldi endinn skoða.
Hafnaðu því allri fljótfærni og
láttu þig ekki dreyma um að
hætta því sem þér er dýrmæt-
ast og helgast í þessu lífi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er engin ástæða til þess
að gefast upp þótt að hlutirnir
hafist ekki í fyrstu atrennu.
Þolinmæði þrautir vinnur all-
ar og fæst ekki án fyrirhafnar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það gerir manni gott að eiga
trúnaðarvin til þess að deila
með sínum hjartans málum.
En val á slíkum vini verður að
vanda sérstaklega.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Stundum hrífa athafnir meira
en orð og þá áttu hikstalaust
að grípa til þinna ráða. Gættu
þess bara að ganga ekki á rétt
annarra einstaklinga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt þér finnist allt vera að
fara úr böndunum skaltu ekki
örvænta því útlitið er ekki
eins slæmt og þér sýnist.
Gakktu bara öruggur til
starfa þinna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er algjört skilyrði að þú
getir stutt mál þitt með stað-
reyndum en þurfir ekki að
svara út og suður þegar þú ert
spurður út í einstök atriði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt breytingar séu oft til hins
betra er óráðlegt að ráðast í
breytingar aðeins breyting-
anna vegna. Það þurfa að vera
einhverjar knýjandi ástæður
að baki.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19.
júní, verður sextugur Bald-
ur Þór Baldvinsson, húsa-
smíðameistari og formaður
Meistarafélags húsasmiða.
Af því tilefni taka Baldur
Þór og eiginkona hans, Hug-
rún Hlín Ingólfsdóttir, á
móti gestum nk. föstudag
22. júní kl. 17-20 í Veislu-
salnum, Skipholti 70,
Reykjavík.
80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðudaginn 19. júní,
er áttræður Eiríkur Elí
Stefánsson, fyrrverandi
skrifstofustjóri, til heimilis
að Hjúkrunarheimilinu Eir,
2. h. suður, herb. U, Hlíð-
arhúsum 7, Reykjavík.
Hann tekur á móti ættingj-
um og vinum laugardaginn
30. júní milli kl. 15–18 í sam-
komusal á jarðhæð í Ból-
staðarhlíð 43, Reykjavík,
þar sem hann bjó áður.
Ísland vakti verulega at-
hygli á EM í Brighton árið
1987 en þar náði sveitin
4.–5. sæti með Pólverjum í
flokki 22 þjóða. Liðið var
skipað Jóni Baldurssyni,
Sigurði Sverrissyni, Guð-
laugi R. Jóhannssyni,
Erni Arnþórssyni, Aðal-
steini Jörgensen og Ás-
geiri Ásbjörnssyni. Fyrir-
liði var Hjalti Elíasson. Í
þá daga gáfu aðeins tvö
efstu sætin rétt á þátttöku
í HM og þau féllu ískaut
Svía, sem unnu mótið, og
Breta.
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ Á975
♥ ÁK9
♦ G96
♣ ÁK2
Vestur Austur
♠ 8 ♠ DG106432
♥ D10643 ♥ G82
♦ D1042 ♦ 8
♣653 ♣94
Suður
♠ K
♥ 75
♦ ÁK753
♣DG1087
Spilið kom upp gegn
Ítölum og þetta var í
fyrsta sinn (en ekki það
síðasta) sem Ísland náði
stórsigri gegn því stór-
veldi (25-4). Í lokaða saln-
um voru Jón og Sigurður í
AV gegn Lauria og Ro-
sati:
Vestur Norður Austur Suður
Jón Rosati Sigurður Lauria
Pass 1 lauf 3 spaðar Dobl *
Pass 3 grönd Allir pass
Guðlaugur og Örn voru
með sterku spilin í NS á
hinu borðinu gegn Bocchi
og Mosca:
Vestur Norður Austur Suður
Mosca Örn Bocchi Guðlaugur
Pass 1 lauf 3 spaðar 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 6 lauf
Pass
6 tíglar
Allir pass
Byrjunin er sú sama á
báðum borðum – sterkt
lauf og þriggja spaða
hindrun. En Guðlaugur
metur spilin sín nógu góð
til að leita strax eftir
slemmu og meldar eðli-
lega fjóra tígla þegar
Lauria lætur neikvætt
dobl duga. Aðrar sagnir
Guðlaugs og Arnar eru
fyrirstöður (líka 4 grönd)
en sex lauf uppástunga
um að spila slemmuna
þar.
Þrátt fyrir 4-1 legu
trompi var einfalt fyrir
Guðlaug að vinna sex
tígla. Hann fékk út hjarta,
tók tígulás og spilaði svo
smáum tígli að G9. Vestur
fékk aðeins einn slag á
drottninguna í trompi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
VÖGGUVÍSA
Illa dreymir drenginn minn:
Drottinn, sendu engil þinn
vöggu hans að vaka hjá,
vondum draumum stjaka frá.
Láttu hann dreyma líf og yl,
ljós og allt, sem gott er til,
ást og von og traust og trú.
Taktu hann strax í fóstur nú.
Langa og fagra lífsins braut
leiddu hann gegnum sæld og þraut.
Verði hann bezta barnið þitt.
Bænheyrðu nú kvakið mitt,
svo ég megi sætt og rótt
sofa dauðans löngu nótt.
Páll Ólafsson.
STAÐAN kom upp á EM-
einstaklinga er lauk fyrir
skömmu í Ohrid í Makedón-
íu. Vadim Malakhatko
(2524) hafði svart gegn Stef-
áni Kristjánssyni (2371). 30.
...e3! Hvítur á sér ekki við-
reisnar von eftir þetta.
Framhaldið varð: 31. fxe3
fxe3 32. Rxe3 Dd4 33. He1
Hfe8 34. Kf2 Hxe3
35. Hxe3 Hf8+ og
hvítur gafst upp.
Lokastaða efstu
manna varð þessi:
1.-2. Ruslan Pon-
omarjov (2673) og
Emil Sutovsky
(2604) 9 vinninga af
13 mögulegum.
3.-4. Judit Polgar
(2678) og Zurab
Azmaiparashvili
(2670) 8 ½ v. 5.-11.
Loek Van Wely
(2670), Georgy
Timoschenko
(2537), Rafael Vaganjan
(2641), Vadim Milov (2605),
Alexander Graf (2649),
Sergei Tivjakov (2603), Ash-
ot Anastasjan (2574). Alls
tryggðu sér 46 skákmenn
þátttökurétt á HM sem
haldið verður síðar á árinu.
Á meðal þekktra skák-
manna sem ekki tryggðu sér
sæti á HM voru: Artúr Jús-
upov (2645), Viktor Kortsnoj
(2643), Vladimir Akopjan
(2654), Michal Krasenkov
(2655), Jeroen Piket (2628)
og Joel Lautier (2658).
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FRÉTTIR
60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19. júní
verður sextugur Gunnar
Tryggvason frá Arnarbæli,
Fellsströnd, Dalasýslu. Í til-
efni dagsins tekur hann á
móti gestum milli kl. 17–20 í
Krókabyggð 16, Mosfells-
bæ.
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19.
júní, verður fimmtugur Leif-
ur Steinn Elísson, Silunga-
kvísl 17, Reykjavík. Af því
tilefni hafa hann og eigin-
kona hans, Sveinbjörg J.
Svavarsdóttir, boðið vinum
til fagnaðar nokkru síðar.
85 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 19.
júní, er 85 ára Svanhvít
Unnur Ólafsdóttir hús-
freyja, Miðleiti 7. Hún er í
húsmæðraorlofi.
NÝTT gestakort Reykjavíkur
„Reykjavík Tourist Card“ kemur út
19. júní. Kortið er ætlað öllum þeim
sem vilja kynnast borginni betur,
bæði Íslendingum og erlendum ferða-
mönnum. Tilgangurinn er sá að gefa
sem flestum aðgang að fjölbreyttri
þjónustu og menningarstarfsemi á
hagstæðu verði, eins og segir í frétta-
tilkynningu.
Kortið veitir aðgang að ellefu söfn-
um, sundlaugum Reykjavíkur en þær
eru sjö talsins, Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Laugardal og gildir
sem farmiði í Strætisvagna Reykja-
víkur.
Kortið veitir meðal annars aðgang
að sýningarsölum Þjóðmenningar-
hússins og að nýju Listasafni Reykja-
víkur í Hafnarhúsi. Þá er hægt að
njóta útivistar í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Laugardal eða slappa
af í sundlaugunum.
Handbók fylgir kortinu. Gestakort
Reykjavíkur fæst meðal annars keypt
hjá Upplýsingamiðstöð ferðamála í
Bankastræti og í Ráðhúsinu en einnig
verður hægt að kaupa kortið í nokkr-
um í bókaverslunum.
Hægt er að velja um kort sem gild-
ir í einn, tvo eða þrjá sólarhringa og
verðin eru 1.000, 1.500 og 2.000 krón-
ur. NETIÐ markaðs- og rekstrarráð-
gjöf hefur unnið ásamt Reykjavíkur-
borg að undirbúningi og ráðgjöf
vegna verkefnisins og mun sjá um
kynningu sem að stórum hluta snýst
um að kynna kortið fyrir starfsmönn-
um hótela og gistiheimila auk auglýs-
inga í miðlum fyrir ferðamenn.
Nýtt gestakort Reykjavíkur.
Gestakort Reykjavíkur