Morgunblaðið - 19.06.2001, Page 55
VESTUR-Íslendingarnir í hljóm-
sveitinni Kanada (bara grín!) munu
trylla stefnumótagesti Undirtóna í
kvöld með ruglingslegu, en þó hag-
lega smíðuðu bilunarrokki sínu í
kvöld. Á undan mun listamaðurinn
Dorko spila og meðferðis verða svo
mjög sérstakir og leyndardóms-
fullir gestir. Kannski Rammstein?
„Í kvöld fáum við tækifæri til að
taka lög sem við þurftum
að sleppa á Rammsteintónleikunum
síðasta laugardag vegna tækni-
legra örðugleika,“segir Úlfur Eld-
járn, Lykla-Pétur sveitarinnar.
Aðspurður um hvort meðlimir úr
Rammstein ætli að troða upp svar-
ar Úlfur lymskulegri röddu. „Ég vil
ekkert gefa upp um það á þessari
stundu.“
Miðaverð er sléttar
fimmhundruð krónur
eins og venjulega og
aldurs-
takmarkið er
18 ár. Hús-
ið opnar
kl.
21.00.
Grillað í liðinu
Stefnumót á Gauknum
Arnaldur
Halldórsson
Þeir eru
kræfir,
kónarnir í
Kanada.
56 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 235. B.i. 12 ára
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
31 þúsund
áhorfendur
Nýi Stíllinn
Keisarans
Sýnd kl. 3.45. Vit nr. 213
Sýnd kl. 4. Ísl tal.
Vit nr. 231
Miss
Congeniality
Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr 207
Sýnd kl. 8.
B.i. 16. Vit nr. 223
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífum þeirra að eilífu.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og
10. Vit nr. 236.
Sýnd kl. 8 og 10.
B. i. 16. Vit nr 238.
Stórkostleg mynd sem endurskapar einn magnaðasta atburð
seinni heimsstyrjaldarinnar á raunsæjan hátt. Frábær upplifun
fyrir augu og eyru sem er í senn spennandi og góð ástarsaga.
Ef þú ferð bara tvisvar í bíó á ári, þá sérðu þessa tvisvar!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 234
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
31 þúsund áhorfendur
strik.is
1/2 Hugleikur
KVIKMYNDIR.is
Sýnd kl. 4.30 og 8. B. i. 12.
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífum þeirra að eilífu.
Einlæg, dramatísk og bráðskemmtileg
bresk mynd sem lætur engan ósnortinn
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Loksins alvöru tryllir sem fær hárin til að rísa. Með
hinum magnaða Morgan Freeman (Kiss the Girls,
Seven). Hér er komið sjálfstætt framhald myndarinnar
Kiss the Girls. Rafmögnuð spenna frá byrjun til enda.
Hefur verið líkt við Seven og Double Jeopardy.
Svikavefur
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
B. i. 16.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
B. i. 14
sannar að hægt er að gera stórmynd
á Íslandi við þessar sérstöku aðstæð-
ur. Fólk hleypur ekki með aðalleik-
arana og allt gengið upp á jökul á Ís-
landi nema með miklum undirbúningi
og faglegum vinnubrögðum. Það er
óneitanlega mikill gæðastimpill að
aðalmennirnir tala enn þá um hversu
mikil lífsreynsla það hafi verið að
koma hingað að mynda, menn sem
hafa myndað út um allan heim. Það er
mjög jákvætt fyrir kvikmyndageir-
ann á Íslandi að allir sem tóku þótt í
þessu verkefni stóðu sig alveg frá-
bærlega. Þeir geta borið höfuðið hátt
þótt myndin sé kannski léleg.“
Ánægja með tökustaðinn
Í umfjöllun bandarískra fjölmiðla
um frumsýningu myndarinnar nú um
helgina hefur enn fremur verið fjallað
áberandi mikið um hinn óvenjulega
tökustað sem Ísland greinilega þykir.
Chris Brock, einn
aðstandandi takanna hér á landi,
segist hæstánægðir með hvernig til
tókst og þá aðstöðu sem í boði var til
kvikmyndatöku, bæði hafi stórbrotin
náttúran staðið fyllilega undir vænt-
ingum sem sögusvið og einnig bjuggu
heimamenn sem ráðnir voru til að að-
stoða við tökurnar, Saga Film, yfir
allri þeirri tækniþekkingu sem kraf-
ist hafi verið af þeim. Það hafi líka
verið eins gott því tökuskilyrði á
Vatnajökli reyndust afar erfið.
Enn fremur hafa fjölmiðlar vestra
gefið nýju endurgreiðslulögunum ís-
lensku gaum sem kveða á um endur-
greiðslu 12% framleiðslukostnaðar
sem inntur er af hendi á Íslandi og
benda á að Tomb Raider sé eitt fyrsta
verkefnið sem njóti góðs af þeim.
Sigurjón Sighvatsson, framleið-
andi í Hollywood, bendir einnig á
stóran kost fyrir kvikmyndatöku á
Íslandi en það eru hinir löngu sum-
ardagar og miðnætursólin.
Í umfjöllun kemur fram að erlend-
um kvikmyndaverkefnum fjölgi nú
ört á Íslandi, bæði tökum á kvik-
myndum, heimildarmyndum og aug-
lýsingum.
KVIKMYNDARINNAR Tomb
Raider er beðið með eftirvæntingu
um allan heim. Hún var frumsýnd í
Bandaríkjunum fyrir aðstandend-
urna 13. júní sl. og var frumsýnd þar
á landsvísu á föstudag.
Eins og þegar um slíkar stórmynd-
ir er að ræða er mikið lagt í mark-
aðssetningu og um þessar mundir
standa yfir ýmsar keppnir í sambandi
við myndina á evrópskum sjónvarps-
stöðvum, þar sem einn vinninga er
ævintýraferð til Íslands. En eins og
allir vita var myndin að hluta kvik-
mynduð hér á landi, atriði sem eiga
að gerast í Síberíu. Á tímabili ætluðu
framleiðendur reyndar að breyta því
í Ísland en svo varð víst ekki.
Bílstjóri Jolie
Jónas Þorgeirsson á fyrirtækið
arctic-ice.is og sér um jeppaferðir á
sérútbúnum jeppum upp á Vatnajök-
ul og aðra jökla á landinu. Jónas var
einmitt bílstjóri leikstjórans Simon
West meðan á upptökunum stóð og
sá einnig um að flytja aðstoðarleik-
stjórann og aðalleikkonuna Angelinu
Jolie. Hann á nú von á vinningshöf-
unum í ævintýraferð næsta sumar
eða allt að 30 manns. „Þau munu
gista á Hótel Höfn og ég fer með þau
á grænlenskum hundasleðum um
Vatnajökul. Við förum á upptökustaði
myndarinnar og í ferð á Jökulsárlón,“
segir Jónas sem segir ævintýri sein-
asta sumars hafa verið mjög
skemmtilegt og að leikkonan sé bæði
hógvær og indæl og hafi sent sér
stórfína mynd af sér.
Gífurleg landkynning
Leifur Dagfinnsson hjá Saga Film
var framkvæmdastjóri íslensku aðil-
anna þegar á upptökunum stóð hér-
lendis. Hann segir Saga Film ekki
koma að neinni frekari kynningu á Ís-
landi í sambandi við Tomb Raider.
„Paramount Pictures sjá alfarið
um það, við komum mjög lítið nálægt
því. Þeir hafa verið í beinu sambandi
við Jónas.“
Síðar í mánuðinum verður frum-
sýning í London, en myndin var gerð
út þaðan, og líklega verður forsýning
fyrir þá sem unnu að myndinni hér-
lendis áður en myndin verður frum-
sýnd þann 29. júní.
Sú gagnrýni sem þegar hefur birst
um Tomb Raider er mjög misjöfn og
frekar neikvæð. Leifur segist hafa
eitthvað heyrt um það,en taki það
ekki nærri sér, og er spenntur að sjá
hvernig myndinni muni ganga.
„Þetta verður samt gífurleg land-
kynning. Á heimasíðu myndarinnar,
www.tombraidermovie.com, er
minnst á Ísland á marga vegu auk
þessara ferða hingað. Þetta sýnir og
„Frábær
landkynning“
Reuters
Lara Croft er sögð eggjandi kvenkynsútgáfa
af Indiana Jones. Jolie í hlutverki sínu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hluti leikmyndarinnar fyrir Lara Croft: Tomb
Raider við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi.
Tomb Raider-ævintýraferðir til Íslands
FYRIR síðustu jól gaf saxófónleikar-
inn Óskar Guðjónsson út plötuna
Söngdansarar Jóns Múla Árnasonar.
Á áttræðisafmæli Jóns gaf hann svo
út ásamt Eyþóri Gunnarssyni, píanó-
leikara og fóstursyni Jóns Múla, plöt-
una Keldulandið. Nú hafa þeir Óskar
og Eyþór ákveðið að leggja land undir
fót í þeim tilgangi að breiða út boð-
skap og tóna Jóns Múla.
„Okkur langaði að fylgja plötunni
eftir og fara út á land að spila,“ út-
skýrir Óskar. „Þetta er afraksturinn
af því, að fara á þessa þrjá staði.“
Þeir þrír staðir er Óskar talar um
eru Höllin í Vestmannaeyjum þar
sem þeir leika í kvöld, Stykkishólms-
kirkja en það verða þeir næsta
fimmtudag og Edinborgarhúsið á Ísa-
firði þar sem þeir leika eftir viku.
Nýja platan er töluvert ólík þeirri
sem kom út fyrir síðustu jól, í raun al-
gjör andhverfa hennar. Lögin á plöt-
unni eru leikin í sinni einföldustu og
rólegustu mynd. „Það sem vakti fyrir
okkur var það að taka lögin út úr þeim
búningi sem allir þekkja þar sem text-
arnir ráða ferðinni. Þegar þú ert bú-
inn að taka textana í burtu getur þú
gert hvað sem er við þessar melódíur.
Þá finnst mér lögin verða oft trega-
blandnari en þau eru almennt með
textunum. Þau gefa til kynna að það
sé eitthvað meira sem liggi á bak við
þau heldur en bara glensið.“
Óskar segist vera að færa sig frá
því að leika svokallaða „standarta“
bandarískra djassspilara og að það sé
ein af grunnástæðum þess að hann
ákvað að taka lög Jóns Múla upp á
arma sína.
„Þetta er liður í því sem ég er að
gera núna, seinna í sumar kemur út
plata með lögunum úr Dýrunum í
Hálsaskógi sem ég er búinn að gera.
Ég er að spá í það hvaðan maður er að
koma, hvert maður er að fara og hvað
hefur hreyft við manni. Ég man eftir
því þegar ég fékk fyrstu spóluna með
„Dýrunum“ að hafa spilað hana þar til
hún gafst upp,“ segir Óskar Guðjóns-
son að lokum.
Keldu-
landið fer
út á land
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óskar Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson.
Óskar Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson fara í tónleikaferð