Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 5
Á hvítumnót- um og svörtum kippt út úr hinum sjáandi heimi. Ég var töluverðan tíma að jafna mig á því, þannig að það varð nánast ekkert úr neinni skólagöngu hjá mér hér heima. Í Bandaríkjunum gerðu þeir mér grein fyrir því, að ég yrði að ná mínum jafnöldrum í almennu námi og það tókst með mikilli vinnu. Þetta var heimavist- arskóli og ég var þarna fimm daga vik- unnar, en þarna voru um það bil 160 blindir nemendur, alveg frá leikskóla- aldri og upp í stúdenta. Þessi skóli var eins konar fjölbrautaskóli og nemendur voru bæði í bóklegu og verklegu námi. Tónlistardeild skólans var mjög góð og ég hafði frábæran kennara í píanóstill- ingum og píanóviðgerðum, sem og reyndar í flestum öðrum fögum. Þetta var afskaplega góður tími, sem ég hef alla tíð búið að síðan.“ Tók tíma að sanna sig Leifur kom heim frá Bandaríkjunum 1967 með það fyrir augum að starfa við píanóstillingar og viðgerðir: „Starfsemin fór hægt af stað. Það tók sinn tíma að sanna fyrir fólki að blindur maður gæti gert þetta. Blindir menn eru ekki síður hæfir til að stilla píanó. Ég vitna þar í minn fyrrverandi kenn- ara, sem sagði við mig að okkar við- skiptavinir þyrftu að finna þennan þægilega áslátt í píanóinu, að tónarnir væru tærir og hljóðfærið rétt stillt. Hér kemur sjón í rauninni hvergi við sögu. Blindir menn beita höndunum öðruvísi en sjáandi menn og það er þessi tilfinn- ing í höndunum, sem skiptir mestu máli. Spilaverkið í píanóinu er eins og vél þar sem allir hlutir hafa sinn til- gang, en í einu píanói eru um sjö þús- und hreyfanlegir hlutir. Þessir hlutir verða auðvitað allir að virka rétt og þetta er talsverð þolinmæðisvinna, þar sem tilfinning handa og heyrn skipta miklu máli.“ Leifur setti upp verkstæði til að gera upp gömul píanó, sem hann starf- aði við ásamt píanóstillingum: „Þegar mestu umsvifin voru í píanó- viðgerðunum var ég með fjóra menn í vinnu, þar af einn húsgagnasmið. Þá þótti borga sig að gera við gömul pí- anó, en eftir að tollar á hljóðfærum voru felldir niður 1982 datt þessi starf- semi niður. Þá borgaði sig ekki lengur að gera við píanó eða flygla, nema að um væri að ræða einstaklega gott upp- lag. Þá hætti ég með verkstæðið og ákvað, ásamt eiginkonunni, Guðleifu Guðlaugsdóttur, að fara að flytja inn þessi hljóðfæri, ásamt harmonikkum og við stofnuðum Hljóðfæraverslun Leifs Magnússonar. Reyndar hafði ég fengist dálítið við innflutning á píanó- um frá árinu 1973, en eftir að við stofn- uðum verslunina varð innflutningur- inn þungamiðjan í starfseminni, ásamt þjónustu við viðskiptavini til dæmis hvað varðar stillingar.“ Skortur á píanóstillurum Leifur sest nú við eitt píanóið, sem er nýkomið í verslunina og byrjar að stilla. Hann segir að venjulega taki það um einn og hálfan til tvo tíma að stilla eitt píanó. Þó fari það dálítið eftir því í hvernig ásigkomulagi hljóðfærið er. „Það er ákveðin formúla fyrir pí- anóstillingum og þetta er einna líkast því að leggja kapal,“ segir hann og lemur tónkvísl í handarbakið til að fá tóninn A, sem stillt er út frá. Hann segir að nú sé svo komið, að hann anni engan veginn eftirspurn í píanóstillingum, enda sé skortur á fag- lærðu fólki á þessu sviði hér á landi: „Píanóeign í landinu er mikil og eykst stöðugt. Hér á landi eru um 80 tónlistarskólar og talið er að um 13 þúsund manns séu í tónlistarnámi. Ég stilli öll píanó sem ég flyt inn, bæði þegar þau koma og einnig áður en ég afhendi þau kaupendum og síðan þarf að stilla þau að minnsta kosti einu sinni á ári. Auk þess starfa ég við fjölda tónleikasala, tvo tónlistarskóla, ríkisútvarpið og sjónvarpið. Sonur minn lærði píanóstillingar og hefur unnið við þær til þessa, en nú er hann að fara í háskólanám í öðru fagi og mig vantar fólk, því einn kemst ég ekki yfir allar þær stillingar, sem þarf að inna af hendi á okkar vegum. Ég vil því nota tækifærið og benda áhugasömu fólki á þennan möguleika, ef það er að leita að góðu framtíðar- starfi. Píanóstillingar eru afskaplega gefandi starf og í Bandaríkjunum eru þær flokkaðar sem listgrein. Það má vissulega til sanns vegar færa, því það getur verið heilmikil kúnst að fá hljóð- færið til að hljóma rétt. Og píanóstill- arinn skilur alltaf eitthvað eftir af sinni eigin sál í hljóðfærinu sem hann stillir, því engir tveir stilla eins,“ segir Leifur H. Magnússon að endingu. Tónlistin hefur fylgt Leifi H. Magnússyni frá því hann missti sjónina á barnsaldri. Hann segir Sveini Guðjónssyni frá því hvernig píanóhljómurinn varð leiðandi tónn í lífi hans. Morgunblaðið/Sverrir Leifur H. Magnússon leitar að hinum rétta tóni einbeittur á svip. Morgunblaðið/Sigurður Jökull mér til að prófa á mínu eigin píanói. Eftir að ég missti sjónina hafði ég alltaf haft gaman af því að vinna í höndunum, til dæmis við smíðar og þess háttar, og ég fann strax að þetta var eitthvað fyrir mig. Ég fékk mikinn áhuga á að læra pí- anóstillingar, þannig að það má segja að Haukur hafi verið örlagavaldur í mínu lífi.“ Haukur hefur fundið inn á að þú hefðir nægilega næmt tóneyra til að fara út í píanóstillingar? „Ég spurði hann nú aldrei um það, en líklega hefur hann haft einhverja trú á mér. Áhugi minn var hins vegar vakinn og svo vel vildi til, eins og svo mörg til- vik í mínu lífi, sem hafa verið af hinu góða, að systir mín var flutt út til Bandaríkjanna og þangað fór ég árið 1963 til að læra píanóstillingar. Fyrst stóð til að ég færi bara á sex mánaða námskeið í nýjum skóla fyrir blinda, sem verið var að stofna, en það dróst á langinn að þessi píanóstillingadeild tæki til starfa þar, svo að við fundum annan blindraskóla í New York, sem er elsti starfandi blindraskóli í Bandaríkj- unum og ég innritaðist í hann. Þetta urðu ekki sex mánuðir eins og til stóð, heldur var ég í þessum skóla í fjögur ár. Ásamt því að læra að stilla pí- anó og gera við, fór ég í almennt nám, enda hafði ég afskaplega takmarkaða menntun héðan. Þegar ég missti sjón- ina átta ára gamall, hafði ég aðeins ver- ið einn vetur í barnaskóla og upp frá því varð skólaganga mín slitrótt. Það tekur auðvitað sinn tíma að aðlagast þessum breyttu aðstæðum, að vera skyndilega M ÉR finnst píanóhljóm- urinn alltaf jafn falleg- ur og fæ aldrei leiða á honum, enda kann ég eins vel við mig í þessu starfi nú og þegar ég byrjaði fyrir 37 ár- um,“ segir Leifur H. Magnússon, píanó- stillari með meiru, en segja má að allan sinn starfsaldur hafi hann verið að fást við hvítar nótur og svartar, eða allar götur frá því hann hóf píanóviðgerðir og stillingar að loknu námi í Bandaríkj- unum, þegar hann var rétt um tvítugt. Ef til vill má orða það svo að allt hans líf hafi verið ein samfelld píanósónata. Leifur segir að tónlistaráhuga sinn megi rekja aftur til þess er hann missti sjónina átta ára gamall. „Það atvikaðist þannig að eftir kirtlatöku komst eitrun í sárið og upp í höfuðið og í kjölfarið fékk ég heilahimnubólgu. Í rauninni var ég mjög heppinn að missa ekki nema sjón- ina, því fjöldi fólks sem hefur fengið svæsna heilahimnubólgu hefur misst miklu meira.“ Heillaðist af harmonikkutónum „Ég lá á Vífilsstöðum í hálfan fimmta mánuð og í næsta herbergi við mig lá maður, sem spilaði á harmónikku. Ég heillaðist af þessum tónum og þar með var tónlistaráhuginn vakinn. Ég kom heim úr þessari legu í desember 1955 og þá gaf föðursystir mín mér hnappa- harmónikku og fjarskyldur ættingi kenndi mér að spila á hana. Svo skipti ég yfir á píanóborðsnikku og var einnig að fikta eitthvað við gítarspil. Á mínu æskuheimili var til píanó og ég fór að læra á það og þar með varð ekki aftur snúið. Þegar ég fermdist rættist gamall draumur, því þá keypti ég kontrabassa, sem mig hafði einhverra hluta vegna alltaf langað til að spila á, þótt ég þekkti hljóðfærið ekki nema af afspurn. Þetta var líka fyrsti kontrabassinn sem kom á Akranes, eftir því sem ég best veit. Á þessum tíma var að byrja sinn feril skólahljómsveit á Akranesi, sem hét Dúmbó. Þeir félagar fréttu af því að kontrabassi væri kominn í bæinn og að ég væri að æfa mig á hann heima í stofu eftir segulbandi. Þeir hóuðu í mig og ég sló til. Ég keypti kontrabassann 1. júní 1961 og 17. sama mánaðar, á þjóðhátíð- ardaginn, kom ég fyrst fram opinber- lega sem kontrabassaleikari með Dúmbó. Reyndar bar ég mig vitlaust að í upphafi, því ég sló á strengina með þumalputta hægri handar í stað þess að kroppa þá með hinum fingrunum, eins og venjan er. Ég stundaði ekki böll á þessum árum en það gerðu hins vegar hinir strákarnir í hljómsveitinni og ég bað þá um að fylgjast með því hvernig aðrir bassaleikarar bæru sig að. Þannig lærði ég réttu tökin á þessu og ég spil- aði með Dúmbó í tvö ár, en hljómsveitin sló ekki í gegn fyrr en eftir að ég var hættur, hvort sem eitthvað samhengi er nú þar á milli eða ekki,“ segir Leifur og hlær. Organistinn var örlagavaldur Þáttaskil urðu í lífi Leifs árið 1963 þegar hann fór til Bandaríkjanna í nám: „Tildrögin voru þau, að árið 1960 kom á Akranes Haukur Guðlaugsson, síðar söngmálastjóri, og tók við Tónlist- arskólanum og organistastarfi við kirkjuna og ég fór í píanónám hjá hon- um. Hann hafði verið í Þýskalandi og sagði mér frá því, að þar í landi væri ekki óalgengt að blindir menn stunduðu píanóstillingar sér til framfæris. Hauk- ur átti lítinn stillilykil, sem hann lánaði DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 B 5 Í HLJÓÐFÆRAVERSLUN Leifs Magnússonar rakst Daglegt líf á pí- anó sem gætt er þeim eiginleikum að með einni sveif er hægt að gera það hljóðlaust. Þá kemur hljómurinn að- eins úr heyrnartækjum, sem stungið er í samband við hljóðfærið. „Fyrir nokkrum árum fóru menn að framleiða svona hljóðfæri eins og til dæmis þetta píanó, sem er þýskt af gerðinni Seiler,“ sagði Leifur að- spurður um þetta sérstæða hljóðfæri. „Þetta er venjulegt píanó að öllu leyti, með strengjum og hömrum. Til að taka af því hljóðið, en hafa samt sömu snertingu á nótnaborðinu, er lítilli sveif undir nótnaborðinu snúið og þá fer málmslá með gúmmíkanti að hömrunum, þannig að þeir ná ekki í strenginn. Í staðinn er tölvustýrður búnaður inn í píanóinu og snertifletir undir nótunum sem nema tóninn og skila honum í heyrnartæki, eins og á rafmagnspíanói. Það gefur auga leið að þetta getur komið sér ákaflega vel, til dæmis fyrir atvinnumenn sem búa í fjölbýli og þurfa að æfa sig mik- ið. Þú veldur engum ónæði og getur æft þig lon og don, jafnvel um hánótt. Og það góða við þetta hljóðfæri er að það er með eðlilegum áslætti og tvær stærstu gerðirnar af því eru með flygiláslætti þannig að þau er tilvalin æfingatæki fyrir konsertpíanista.“ Hljóðlaust píanó Morgunblaðið/Sigurður Jökull Hljóðlausa píanóið, sem reyndar getur líka verið venjulegt píanó.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.