Morgunblaðið - 01.07.2001, Page 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Fös 6. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 14. júlí kl. 20 - LAUS SÆTI
WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason
Söngleikur fluttur af nemendum
Verslunarskóla Íslands
Þri 3. júlí kl. 20 – Forsýning,
miðaverð kr. 1.200
Mið 4. júlí kl. 20 – Frumsýning
Lau 7. júlí kl. 20
Sun 8. júlí kl. 20
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
HEDWIG KL. 20.30
Forsýning mið 4/7 UPPSELT
Frumsýning fim 5/7 UPPSELT
Lau 7/7 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda
örfá sæti laus
Fös 13/7
Lau 14/7
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fim 5/7 nokkur sæti laus
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Á leikferð um landið:
!" #$%#&
'(
)%# %*+ !"
, -#
.!
*/
(
'% $ %#01231
& 4
!" #" $% $&''()&
% *+ "" ,% &-- ..'//**!""0+1!2/!
333 & ( $4 & (
HELSTI tónlistarmaðurBrasilíu á okkar tímum,og einn helsti tónlist-armaður Ameríkuálfa al-
mennt, er Caetano Veloso. Þótt
hann hafi aldrei talið sig tónlistar-
mann að því hann segir sjálfur, frek-
ar textasmið, hefur hann gefið út á
fimmta tug af plötum á ferlinum,
sem staðið hefur í á fimmta áratug
og mótað brasilíska dægurtónlist
meira en nokkur annar. Þeir sem um
Veloso fjalla skipa honum gjarnan
sess með stjörnum eins og Bob Dyl-
an, Bob Marley og John Lennon,
sem gefur ágæta mynd af stöðu hans
í poppsögunni. Þetta er hér upp rifj-
að til að draga upp skýra mynd af
því við hvaða væntingar sonur hans,
Moreno Veloso, þarf að glíma þegar
hann sendir frá sér sína fyrstu sóló-
skífu, Music Typewriter, um þessar
mundir.
Þeir sem hlusta af ráði á bras-
ilíska tónlist átta sig snemma á því
að þar getur allt gerst, allir tónlist-
armenn brasilískir eiga það til að
bregða á leik og hræra saman ólík-
legustu stefnum og straumum. Á
síðustu árum hafa þarlendir tónlist-
armenn síðan tekið fegins hendi nýj-
ungum í raftónlist, teknó, umhverf-
ishljómum og naumhyggju. Moreno
Veloso er þar engin undantekning,
því ekki er bara að hann hefur á
valdi sínu MBP-tónlistina sem faðir
hans átti þátt í að búa til, Musica
Populeira Brasiliana, og tropicalia,
sem Veloso eldri var einnig með í að
smíða, og á þeim grunni byggir Mo-
reno Velosio og beitir rokkgíturum
og rafhljóðum af smekkvísi
Nýtískulegri straumar
Platan hans Morenos Velosos
yngir heitir Music Typewriter. Hún
er álíka fjölbreytt og Veloso eldri er
frægur fyrir á ferlinum, en á plötu
Morenos eru nýtískulegri straumar.
Líkt og Caetano beitir Moreno fyrir
sig fjölmörgum tónlistarstefnum og
sækir í þjóðaarf Suður-Ameríku og
Karíbahafs, en hann lítur einnig til
nýrra strauma í raftónlist og þá ekki
í myljandi teknó, heldur frekar í
danstónlist sem ekki er gott að
dansa við.
Moreno Veloso er elsta barn Caet-
anos Velosos, varð 26 ára um daginn.
Hann syngur líkt og faðirinn og
lærði gítarleik í nokkur ár, en hann
er einnig sleipur sellóleikari, var
meðal annars sellóleikari í hljóm-
sveit Carlinhos Browns, aukinheldur
sem hann hefur leikið á slagverk fyr-
ir föður sinn og Gilberto Gil, en einn-
ig var hann um tíma trommuleikari í
tilraunarokksveit.
Moreno segist hafa lært tónlist af
föður sínum sem vonlegt var, en
þriggja ára gamall var hann farinn
að syngja lög föður síns. Á unglings-
aldri kom hann upp hljóðveri í félagi
við vini sína og þeir hófu að hljóð-
setja kvikmyndir og vinna efni fyrir
sjónvarp og útvarp.
Nánast fyrir tilviljun
Hann segir svo frá að Music Type-
writer hafi orðið til nánast fyrir til-
viljun, enda hafi hann ekki verið
starfandi með hljómsveit eða neitt
slíkt í bígerð þegar kunningi hans,
sem rekur nútímalistasafn í Sao
Paulo, bað hann að leika tónlist við
opnun sýningar. Hann kallaði á tvo
félaga sína, Alexandre Kassin og
Domenico Lancelloti, og þar sem
þeim gekk svo bráðvel að setja sam-
an nokkur lög og síðan að flytja þau
opinberlega þótti gráupplagt að taka
upp breiðskífu. „Við eigum allir
hljóðver hver fyrir sig, en þar er allt-
af fullt að gera og erfitt að fá sam-
felldan tíma til að taka upp. Þeir
Domenico og Kassin fóru því af stað
upp í sveit að leita að húsi þar sem
við gætum sett upp tæki og tekið
upp, fóru inn í hús sem föl voru og
klöppuðu og sungu til að finna besta
hljóminn. Það hús fannst svo í fjöll-
unum skammt frá Perryopolis og
þótt kuldinn hafi verið að drepa okk-
ur á húsið snaran þátt í því hvað
platan heppnaðist vel.“
Moreno segir að sem Bras-
ilíumenn séu þeir mjög vel meðvit-
aðir um hefðina, sömbur og bossa
nova. „Við þekkjum líka tölvur, raf-
eindatónlist og tilraunamennsku og
því gaf augaleið að blanda þessu
tvennu saman.“ Hann segir að þeir
félagar hafi ekki farið í hljóðver
beinlínis til að taka upp plötu með
lögum hans, en þegar upp var staðið
átti hann flest laganna, auk þess sem
þeir völdu nokkur lög eftir aðra sér
til skemmtunar.
Fjögurra nótna Disney-lag
Caetano kemur sjálfur við sögu á
plötunni, leikur á gítar í einu lagi,
sem er endurgerð Morenos á lagi
eftir Carmen Costa frá 1942, en
mjúkur slagverkskliður sér til þess
að fortíð og framtíð renna saman í
þægilega heild á dæmigerðan bras-
ilískan hátt. Það er svo við hæfi að
lokalag diskins er dúett Morenos
með Daniel Jobim, barnabarni Tom
Jobim, en saman syngja þeir félagar
lágstemmda sömbuútgáfu af I’m
Wishing eftir þá Frank Churchill og
Larry Morey úr Disney-myndinni
um Mjallhvít.
Moreno segir að þeir Daniel hafi
heillast af laginu þegar þeir voru að
horfa á kvikmyndina eitt sinn fyrir
löngu, enda sé það sannkölluð perla.
„I’m Wishing er fyrsta lagið í mynd-
inni og í því eru bara þrjár nótur þar
til undir lokin að sú fjórða bætist við.
Við ætluðum ekki að trúa okkar eig-
in eyrum og endurtókum lagið í sí-
fellu þar til við fórum að syngja það
saman. Það var því sjálfgefið að taka
það upp þegar kom að því að ég
gerði plötu.“
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Samruni fortíðar og framtíðar
Fjölbreytnin í brasilískri tónlist er gríðarleg og
tónlistarvinir þekkja þaðan sömbur, bossa nova,
MBP, tropicalia, forró og dauðarokk, svo fátt eitt
sé talið. Árni Matthíasson segir frá nýrri plötu
Morenos Velosos, sem sýður saman brasilískar
hefðir við rafeindatónlist.