Morgunblaðið - 20.07.2001, Qupperneq 1
2001 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
LYFJAEFTIRLITIÐ ER SÝNDARMENNSKA / C4
PÓLSKA félagið Pogon Szczech-in, sem mætir Fylki í forkeppni
UEFA-bikarsins í knattspyrnu í
næsta mánuði, teflir fram mikið
breyttu liði á komandi tímabili. Sjö
leikmenn, sem léku með í fyrra, þeg-
ar félagið kom á óvart og náði öðru
sæti pólsku 1. deildarinnar, eru farn-
ir eða á förum frá Pogon, sem á í
miklum fjárhagserfiðleikum.
Markvörðurinn Radoslaw Majd-
an, lykilmaður í liði Pogon, hefur
verið lánaður til Goztepe Izmir í
Tyrklandi til eins árs og þá er bras-
ilískur leikmaður sem kenndur er við
heimalandið og nefndur Brasilia
væntanlega á förum til Energie
Cottbus í Þýskalandi. Fimm aðrir
eru á förum.
Pogon hefur á síðustu dögum leik-
ið þrjá æfingaleiki. Fyrst gerði liðið
jafntefli, 2:2, gegn 2. deildar liði
Ceramika Opoczno, vann 1. deildar
lið Odra 4:1 og tapaði fyrir 1. deild-
arliði Widzew Lodz, 2:1.
Fylkismenn með hópferð
Mikill áhugi er hjá stuðnings-
mönnum Fylkis fyrir leik liðsins
gegn pólska liðinu Pogon Stettin
sem fram fer í Póllandi 23. ágúst.
Fylkismenn ætla að fjölmenna á
leikinn en stuðningsmannaklúbbur
félagsins ákvað að efna til hópferðar
og er um dagsferð að ræða. 213 sæti
eru í boði og að sögn Kjartans Dan-
íelssonar, framkvæmdastjóra knatt-
spyrnudeildar Fylkis, hefur þegar
selst helmingur miðanna í ferðina.
Lagt verður af stað til Póllands frá
Keflavíkurflugvelli kl. 7.30 fimmtu-
daginn 23. ágúst, leikurinn fer fram
klukkan 17 að staðartíma og er áætl-
uð lending í Keflavík klukkan 22.30.
Mikið breytt lið
hjá Pogon
COLIN Montgomerie er efstur eftir
fyrsta dag á Opna breska meist-
aramótinu í golfi á sex höggum
undir pari og þremur höggum á
undan næstu mönnum, en hann lék
á 65 höggum. Tiger Woods er sex
höggum á eftir, lék á part vallarins
– 71 höggi.
„Mér hefur aldrei gengið eins vel
á fyrsta degi áður,“ sagði Colin á
blaðamannafundi. „Fyrstu tíu hol-
urnar voru þægilegar hjá mér, en
ég var í hálfgerðu basli með síðari
átta. Ég fer með allt öðru hugarfari
í þetta mót – ég held að það hafi
hjálpað mér mikið í dag,“ sagði
Montgomerie ánægður.
Þá bar Montgomerie meðspilara
sínum, Fred Couples, söguna vel.
„Freddie og ég náum mjög vel sam-
an og ég held að við hjálpum hvor
öðrum að slappa af á vellinum. Þeg-
ar ég frétti með hverjum ég færi út,
varð ég virkilega ánægður,“ sagði
Montgomerie.
Bandaríkjamennirnir Brad Fax-
on og Chris Di Marco koma ásamt
finnanum Mikka Ilonen þremur
höggum á eftir Montgomerie.
Sigurvegarinn mótsins í fyrra,
Tigar Woods, var ekki sáttur við
gengi sitt eftir fyrsta dag. „Mér
gekk ekki sem best og þurfti virki-
lega að hafa fyrir hlutunum á vell-
inum. En ég er samt sáttur við að
vera enn með í toppbaráttunni og
vonandi gengur mér betur á morg-
un," sagði Woods.
Reuters
Skotinn Colin Montgomerie lék á sex höggum undir pari á
breska opna meistaramótinu í gær. Hann hefur aldrei byrjað
eins vel á mótinu. Þess má geta að þessi litríki kylfingur hefur
aldrei fagnað sigri á stórmótunum fjórum. Besti árangur hans
er annað sætið á Opna bandaríska meistaramótinu 1997.
Montgomerie sex
höggum undir pari