Morgunblaðið - 02.08.2001, Side 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SEX félagar í björgunarsveit
breska flughersins, sem er sjálf-
boðaliðasveit innan hersins, eru
væntanlegir til landsins undir lok
næstu viku. Þeir munu í kjölfarið
halda á jökulinn þar sem breska
sprengjuflugvélin fórst með fjórum
mönnum árið 1941, eða fyrir 60 ár-
um. Með þeim í för verða félagar úr
Björgunarsveitinni Súlum á Akur-
eyri.
Flak vélarinnar fannst í jökli á
hálendinu, milli Öxnadals og Eyja-
fjarðar fyrir tveimur árum. Hörður
Geirsson, safnvörður á Minjasafn-
inu á Akureyri, fann flak vélarinnar
en hann hafði þá leitað hennar í 20
ár og farið 10 ferðir upp á fjöllin án
árangurs.
Flugvélabrakið sótt næsta vor
Tilgangur ferðar Bretanna á jök-
ulinn er að sækja þær líkamsleifar
sem komið hafa í ljós. Einnig að
flytja brakið úr vélinni sem kom
upp úr snjónum í ár og fyrra, upp á
hærra svæði, þannig að það standi
upp úr snjónum næsta vor þegar
stefnt er að því að flytja það til
byggða.
Líkamsleifar mannanna verða
settar í grafir sem útbúnar voru í
Fossvogskirkjugarði á síðasta ári og
er það gert með vitund ættingja
þeirra.
Á þessu ári hafa verið farnir tveir
leiðangrar á jökulinn. Í byrjun maí
var farinn birgðaleiðangur á vél-
sleðum, til að undirbúa leiðangur
Bretanna, hinn 13.–17. ágúst nk. Þá
var einnig breidd út stór loðnunót á
snjóinn. Í leiðangri á jökulinn um
síðustu helgi, þar sem aðstæður
voru skoðaðar, kom í ljós að nótin
hafði brætt 50–80 cm af jöklinum,
enda tekur hún í sig mikinn hita
þegar sólin skín. Því hefur komið
meira upp af braki vélarinnar, sem
annars hefði ekki komið í ljós fyrr
en mun seinna.
Flugferð sú sem endaði á þessum
stað var farin á Fairy-Battle-flugvél
breska flughersins. Flugvélin flaug
frá Melgerðismelum yfir Akureyri
og út Eyjafjörð. Til vélarinnar
heyrðist frá vegagerðarmönnum í
Öxnadal og einnig heyrðu hermenn
á Melgerðismelum í vélinni skömmu
áður en hún fórst. Mikil leit var
gerð að vélinni um allt land en hún
fannst ekki fyrr en tveimur dögum
síðar, er leitarflokkur sem hafði að-
setur á Bakka í Öxnadal fann hana.
Í skýrslu sem var gerð var eftir
leitarmönnum og fannst í London
vorið 1999 kemur fram að þeir töldu
ekki mögulegt að safna saman lík-
amsleifum þeirra manna sem fórust
með vélinni. Þessi skýrsla varð þó
til þess að hægt var að staðsetja
flakið á gömlu korti frá breska
hernum á þessum tíma.
Breskir hermenn á leið á jökulinn þar sem sprengju-
flugvélin fórst fyrir 60 árum með fjórum mönnum
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
Skúli Árnason stendur við skrúfublað flugvélarinnar.
Séð í átt til flugvélabraksins á jöklinum. Fremst
sést í hluta hjólastellsins upp úr snjónum.
Ætla að sækja líkamsleifar
sem komið hafa í ljós
ARI B. Hilmarsson á Þverá í Eyja-
fjarðarsveit hefur á undanförnum
misserum komið upp 9 holu golfvelli á
landareign sinni, ofan þjóðvegarins.
Ari og synir hans Jón, Stefán og
Steingrímur luku nýlega við smíði lít-
ils grillskála og buðu því til grillveislu
á dögunum og lýstu golfvöllinn form-
lega tilbúinn til notkunar. Á undan-
förnum mánuðum hefur fólk þó tekið
forskot á sæluna og æft sig af kappi.
Hver 9 holu hringur kostar aðeins
500 krónur, sem er mun ódýrara en
víðast hvar annars staðar. Það er því
upplagt fyrir fólk að nýta þessa að-
stöðu til æfinga. Ari sagði að sér virt-
ist sem fólk væri mjög þakklátt og
ánægt með þessa aðstöðu en notend-
ur vallarins koma aðallega frá Akur-
eyri, en þaðan er aðeins nokkurra
mínútna akstur að Þverá.
Golfvöllur að Þverá
tekinn í notkun
Eyjafjarðarsveit
Morgunblaðið/Benjamín
Ari B. Hilmarsson á golfvelli
sínum að Þverá.
UMHVERFISRÁÐ og bæjarráð
Akureyrar hafa samþykkt tillögu
að deiliskipulagi svæðis Háskólans
á Akureyri á Sólborg. Deiliskipu-
lagssvæðið í heild er rúmir 100
þúsund fermetrar en deiliskipulag-
ið tekur til núverandi og framtíðar
svæðis HA að Sólborg. Núverandi
lóð HA er 47.000 fermetrar og
heildarflatarmál núverandi bygg-
inga er um 4.800 fermetrar.
Við gerð deiliskipulagsins er
horft til frekari uppbyggingar og
aukinna umsvifa HA og leitast við
að skapa stofnuninni sem mesta
möguleika á svæðinu og jafnframt
vinna með náttúru og landslagi
þess. Í deiliskipulaginu eru m.a.
skilgreindir þrír byggingareitir
fyrir allt að 23.000 fermetra bygg-
ingar að flatarmáli.
Í byggingarreit A, sem er um
5.500 fermetrar verður byggt
kennslu- og skrifstofuhúsnæði
vegna núverandi starfsemi HA og
byggingarreitur B er fyrir rann-
sóknarhús, allt að 9.000 fermetrar
á 5-7 hæðum. Svæði C er svo í til-
lögunni frátekið fyrir framtíðar-
byggingar HA en frekara skipulagi
þess er þó frestað. Þar má þó gera
ráð fyrir allt að 9.000 fermetra
byggingu en svæði B og C eru
bæði rúmir 16.000 fermetrar að
stærð.
Auglýst eftir athugasemdum
Skipulagstillagan verður auglýst
í vikunni og höfð almenningi til
sýnis í minnst fjórar vikur. Í aug-
lýsingunni verður tiltekinn frestur,
minnst 6 vikur, til að gera athuga-
semdir við tillöguna. Ef engar at-
hugasemdir berast má afgreiða til-
löguna endanlega eftir eina
umræðu í bæjarstjórn.
Deiliskipulagið er unnið af Hall-
dóri Jóhannssyni landslagsarkitekt
hjá Teikn á lofti ehf. á Akureyri.
Tillaga að deiliskipulagi svæðis Háskólans á Akureyri á
Sólborg samþykkt í umhverfis- og bæjarráði
Möguleiki á um 23.000 fer-
metra byggingum til viðbótar
LÖGREGLUNNI í Ólafsfirði barst
tilkynning um vandræði tveggja
manna á báti á Ólafsfjarðarvatni
seinni partinn á fimmtudag. Björgun-
arsveitin Tindur var send til aðstoðar
mönnunum sem eru á þrítugsaldri.
Þegar björgunarsveitarmenn nálg-
uðust mennina kom í ljós að bátinn
rak stjórnlaust undan vindi, þar sem
mennirnir voru báðir mjög ölvaðir og
af þeim sökum höfðu þeir misst ár-
arnar. Þá höfðu þeir einnig misst
veiðistangir sem þeir höfðu meðferð-
is. En þeir komust klakklaust til
lands með aðstoð björgunarsveitar-
manna.
Harður árekstur
Síðar um kvöldið varð harður
árekstur tveggja bíla á horni Aðal-
götu og Ægisbyggðar í Ólafsfirði.
Tvær ungar konur óku bílunum en
þær sluppu ótrúlega vel miðað við að-
stæður. Annar bíllinn kom frá Æg-
isbyggð en hinn var á leið í bæinn frá
brúnni sem liggur yfir ósinn.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Áreksturinn í Ólafsfirði var nokkuð harður.
Ölvaðir lentu í
vandræðum á bát
Ólafsfjörður
Á SJÖTTA Tuborgdjassi í Deiglunni
á Heitum fimmtudegi í kvöld kl.
21:30, leikur píanódúó skipað þeim:
Gunnari Gunnarssyni á píanó og
Tómasi R. Einarssyni á kontrabassa.
Gunnar Gunnarsson er Akureyr-
ingur að uppruna og stundaði tónlist-
arnám þar og í Reykjavík. Hann er
starfandi kirkjuorganisti en um leið
einn helstu djasspíanistum landsins.
Tómas R. Einarsson hefur verið
virkur í íslensku djasslífi í tvo ára-
tugi og verið eitt afkastamesta djass-
tónskáld landsins. Á síðasta ári komu
út tveir geisladiskar með tónlist
hans. Þeir Gunnar og Tómas R. hafa
starfað mikið saman undanfarin sex
ár og leikið bæði innanlands og utan.
Efnisskráin er óvenju fjölbreytt af
djassprógrammi að vera; þar eru lög
klassískra djasshöfunda, latíndans-
ar, norrænar vísur í djassbúningi og
íslensk tónlist. Aðgangseyrir er 500
krónur.
Píanódúó á Heitum
fimmtudegi
Á SÍÐASTA skólaári stunduðu 688
nemendur nám við Háskólann á Ak-
ureyri en á næsta skólaári 2001-2002
er reiknað með að um 900 nemendur
muni stunda nám við Háskólann,
sem er ríflega 30% fjölgun milli ára.
Mesta fjölgun nemenda er í
rekstrardeild, en þar fjölgar þeim úr
168 í 293, og í kennaradeild, þar sem
þeim fjölgar úr 258 í 342. Nemendum
í fjarnámi fjölgar mikið eða úr 156 í
273. Nemendum í sjávarútvegsdeild
fækkar hins vegar um þrjá á milli
ára. Ný deild, upplýsingatæknideild,
tekur til starfa í haust og þar munu
33 nemendur hefja nám í tölvunar-
fræði til BS-prófs.
Nýnemum í hjúkrunarfræði á
heilbrigðisdeild fækkar um tæplega
helming á milli ára, verða 30 næsta
skólaár en voru 56 á því síðasta. Ný-
nemum í iðjuþjálfun fjölgar hins veg-
ar. Í kennaradeild fjölgar nýnemum
um helming milli ára, úr 30 í 59 en
fækkar á leikskólabraut úr 59 í 42
næsta skólaár.
Nemendum fjölgar
um 30% milli ára