Morgunblaðið - 02.08.2001, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 31
UNNUR Ösp Stefánsdóttir, leiklistar-nemi á leið á lokaár Listaháskóla Ís-lands, frumflytur í kvöld heimilda-
leikinn „Venjuleg kona?“ í Nýlistasafninu.
Unnur á veg og vanda af sýningunni ásamt
Birni Thors, skólabróður hennar, en hún er
eini leikari sýningarinnar. Til uppsetningar á
sýningunni fengu þau styrk úr Nýsköpunar-
sjóði námsmanna auk þess sem Listaháskól-
inn leggur verkefninu lið og Nýlistasafnið
leggur til húsnæði. Hugmyndin að verkinu
kviknaði í leiklistardeildinni í vetur og hefur
þróast áfram í sumar.
„Mér hefur lengi fundist sú menning sem
borin er á borð fyrir okkur í nútímanum, þá
sérstaklega sjónvarpsmenningin, vera að
fjarlægjast raunveruleikann heldur mikið,“
segir Unnur Ösp aðspurð um tilurð verksins.
Verkið kallast „Venjuleg kona?“ og kýs Unn-
ur að kalla form þess heimildaleik, en það
fjallar um konur á sjálfsævisögulegan hátt.
„Ég kalla þetta heimildaleik, vegna þess að
verkið er allt byggt á raunverulegum atburð-
um. Annars vegar inniheldur verkið viðtals-
brot sem unnin eru upp úr viðtölum sem ég
tók við konur úti á götu og hins vegar flyt ég
textabrot úr sjálfsævisögum. Þessi aðferð er
vel þekkt innan kvikmyndagerðarlistar, það
er að segja heimildamyndir, en minna hefur
borið á henni í leikhúsinu svo mér fannst til-
valið að rannsaka þetta form. Heitið „Venju-
leg kona?“ vísar eiginlega til þess, að allt það
fólk sem maður mætir á götum úti á sér
ákveðna sögu, fulla af dramatík og fegurð.“
Unnur segir að í verkinu komi fram allt
sem snertir manneskjuna, og þar mætist
upplifanir sem eru bæði erfiðar og stórkost-
legar. Verkið fjallar þó ekki um ákveðnar
konur, heldur um konur sem slíkar. „Ég
byggi verkið á reynslu nokkurra kvenna sem
ég þekki ekki og nokkrum ævisögum sem ég
vann upp úr. Engin áhersla er lögð á það
hver persónan er, enda kemur það ekki mál-
inu við. Margar lýsingarnar sem þarna koma
fram eru mjög áhrifamiklar.“ Ástæðan fyrir
að Unnur valdi konur sem umfjöllunarefni
var einfaldlega sú, að mynda ákveðinn
ramma um verkið. „Ég hefði alveg eins get-
að fjallað um konur og menn, því margt af
þessu efni eru tilfinningar og atburðir, sem
karlmenn geta alveg eins fundið fyrir og lent
í. Við erum jú öll frekar lík inn við beinið.
Það er mín von að áhorfendur eigi eftir að
finna samleið með þessum persónum sem
þarna koma fram, jafnt karlar og konur. “
Leiksýningin er í Nýlistasafninu og lætur
Unnur vel af því að koma þar fram. „Eig-
inlega fannst mér enginn annar staður en
Nýlistasafnið koma til greina og ég fékk
mjög jákvæðar móttökur frá aðstandendum
safnsins. Mér fannst nauðsynlegt að rýmið
sem verkið væri sýnt í væri svolítið þröngt
og mikil nálægð væri við áhorfendur. Það
hefði ekki verið hægt að sýna þetta á stóru
sviði, í þeirri mynd sem þetta er í dag. Þetta
átti að vera þannig að áhorfandinn væri á
sama plani, kæmi inn í eitthvað rými og yrði
vitni að einhverju.“
Unnur Ösp er fyrsti nemandi Listaháskóla
Íslands sem hlýtur styrk úr Nýsköpunar-
sjóði námsmanna. Hún segir verkið hafa
hentað vel til þess forms sem krafist er, eins
konar rannsóknar. „Í raun er þetta rannsókn
á þessu heimildaleikhúsformi, hvernig maður
kemur einhverjum raunverulegum hlutum á
framfæri í gegn um ákveðið listform og hver
munurinn er á þessu og hinu hefðbundna
leikhúsformi.“ segir hún og segist ekki hafa
orðið vör við svipað form á Íslandi áður.
„Sýningin sjálf verður stór hluti af niður-
stöðum rannsóknarinnar, en ég ætla líka að
hafa umræðuhóp eftir eina sýninguna og
bera undir fólk hvaða upplifun það fékk af
þessu formi.“
„Venjuleg kona?“ er frumsýnt í Nýlista-
safninu í kvöld, en verður sýnt næstu tvær
helgar eftir verslunarmannahelgi. Sýningar
hefjast kl. 21.
Hver er þessi
venjulega kona?
Morgunblaðið/Jim Smart
ÞAÐ er óhætt að segja að Syl-
vester Stallone hafi ekki tekist
nógu vel upp með handrit sitt að
kvikmyndinni Driven. Þar segir
frá Jimmy Bly, sem er ungur og
hæfileikaríkur kappaksturskappi,
leikinn af Kip Pardue, sem á eitt-
hvað erfitt með að höndla þrýst-
inginn sem hann finnur úr öllum
áttum sem mögulegur heimsmeist-
ari. Það er ekki fyrr en Joe nokk-
ur Tanto, sem Stallone túlkar, er
fenginn til að vera aðstoðarmaður
hans að drengurinn áttar sig bet-
ur. Joe var nefnilega sérlega efni-
legur sjálfur á sínum tíma en eyði-
lagði fyrir sjálfum sér og hann
kennir nú unga manninum sitt af
hverju um heimspekina á bak við
sigur.
Það er gaman að sjá Stallone
setja sig í hlutverk hins gamla og
reynda sem miðlar af reynslu sinni
til að uppfylla drauma sína í gegn-
um yngri mann. En einmitt í hand-
riti hans að Rocky, sem hann
skrifaði fyrir einum 25 árum, var
hann ungi, efnilegi og óagaði
drengurinn, sem fékk tækifæri til
að keppa um heimsmeistaratitilinn
í boxi, og náði þangað með aðstoð
þess gamla sem hafði aldrei réttu
aðstoðina. En þótt sögurnar séu í
grunninn keimlíkar, er þeim ekki
saman að líkja. Á meðan Rocky
var raunsönn, einföld og einlæg
mynd, bara býsna góð, er Driven
yfirborðskennd, húmorlaus,
óáhugaverð. Maður skilur aldrei
tilfinningar aðalhetjunnar, öll sag-
an er sérlega klisjukennd, bæði
væmin og hallærisleg, og kven-
persónurnar í myndinni eru sér-
lega illa skrifaðar.
Eina sem var að litlu leyti
áhugavert í myndinni var tæknileg
hlið leikstjórnarinnar. Renny Har-
lin er flinkur á því sviðinu, og í
kappakstrinum, eða frekar þegar
slysin urðu, voru margar áhrifarík-
ar og flottar brellur. Harlin hefur
hins vegar ekki tekist nógu vel
upp með leikstjórn leikaranna, og
almennt er leikurinn lélegur. Kip
Pardue stendur sig þó ágætlega,
hann er viðkunnanleg týpa og
hefði áreiðanlega geta gert betur
ef persóna hans hefði verið skýr-
ari. Aðrar persónur eru svo klisju-
kenndar að þær verða ýktar, eins
og persóna Cathy, fyrrverandi eig-
inkonu Joe, sem er eina stundina
algjör tík og þá næstu góða eig-
inkonan? Aumingja Gina Gershon
að þurfa að leika hana. Robert
Sean Leonard leikur bróður Jeffs,
og er vægast sagt lélegur. Til
Schweiger er sérlega lítið heillandi
sem hinn frosni Beau Branden-
burg aðalkeppinautur Jimmies og
Estella Warren er sæt sem stelpan
sem strákarnir vilja, og tekur sig
vel út í sundlauginni þótt hún hefði
átt að láta það ógert að herma eft-
ir froski.
Ungur nemur gamall temur
KVIKMYNDIR
S a m b í ó i n
Leikstjóri: Renny Harlin. Handrit:
Sylvester Stallone. Aðalhlutverk:
Kip Pardue, Burt Reynolds, Til
Schweiger, Gina Gershon, Estella
Warren, og Robert Sean Leonard.
Warner Bros 2001.
DRIVEN Hildur Loftsdótt ir
kostnað annarra glæpamanna þar
til kemur að skuldadögum.
Höfundur myndarinnar er Ta-
keshi Kitano en mynd hans, Han-
a-bi, var sýnd hér um árið þar sem
hann lék með þögninni og úr varð
næstum ljóðrænn tregi; Kitano er
eins konar Clint Eastwood austurs-
ins. Í Bróður er hann kominn til
Bandaríkjanna og þá er eins og
honum finnist við hæfi að hafa háv-
aðann sem mestan og lætin sem
óskiljanlegust. Mynd hans er of-
beldiskennd að sönnu, hér á fyrst
og fremst að selja skotbardaga og
blóðslettur, en það sem verra er;
hún er fram úr hófi tilviljanakennd
BRÓÐIR eða „Brother“ líkist
helst japanskri útgáfu af Scarface,
þ.e. endurgerð Brians De Palma,
nema hvað Bróðir er langt í frá
jafngóð. Japanskur krimmi, sem
lætur byssurnar tala, verður land-
flótta og heldur til bróður síns í
Bandaríkjunum þar sem hann legg-
ur undir sig æ stærri svæði á
og ruglingsleg. Maður veit aldrei
hver verður skotinn næst eða hvers
vegna og áður en langt um líður er
myndin orðin illskiljanleg.
Hvar sem tveir menn eða fleiri
hittast eru dregnar upp byssur og
menn verða eins og gatasigti. Sum-
ir skjóta sig sjálfir í hausinn. Aðrir
fremja harakiri með hníf. Enn aðrir
skera af sér litla fingur, rúnir
trausti að því er virðist.
Eitthvað á þetta allt saman að
segja um grafalvarlega menn að
takast á við grafalvarlegar japansk-
ar hefðir og hvernig japanska mafí-
an heldur þær í heiðri en framsetn-
ing Kitanos er með þeim hætti að
hlegið var í salnum þegar minnst
varði. Myndin skýtur einfaldlega
yfir markið og verður kjánaleg á
köflum, vandræðaleg og næsta
furðuleg.
Bræðra-
bönd
KVIKMYNDIR
B í ó b o r g i n o g
K r i n g l u b í ó
Leikstjóri: Takeshi Kitano.
Handrit: Kitano o.fl. Klipping:
Kitano. Aðalhlutverk: Takeshi
Kitano, Claude Maki, Omar Epps
og Susumu Terajima. Japönsk/
bandarísk. 95 mín.
„BROTHER“ 1 ⁄2
Arnaldur Indriðason
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri
á síðustu sætunum til Costa del Sol, 23. ágúst, í 2 vikur. Þú
bókar núna og 3 dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú
gistir og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
okkar allan tímann.
Verð kr. 49.985
Verð á mann miðað við hjón með
2 börn, 2–11 ára, flug, gisting,
skattar, 23. ágúst, 2 vikur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 59.930
Verð á mann miðað við 2 í íbúð,
23. ágúst, 2 vikur.
Síðustu sætin
Stökktu til
Costa del Sol
23. ágúst í 2 vikur
frá kr. 49.985
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Sími 555 0455 Sími 564 6440
20%
afsláttur af
barnamyndatökum
í júlí