Morgunblaðið - 02.08.2001, Blaðsíða 46
MINNINGAR
46 FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ragnheiður mín. Nú
er þínum þjáningum
lokið. Þú hefur kvatt í
bili, en það er ég viss
um, að við munum hitt-
ast á ný.
Í örfáum orðum viljum við kveðja
þig. Þakka þér fyrir kynnin, sem hóf-
ust þegar við fluttum á Bakkann. Í
næsta hús við ykkur Helga, og
krakkana. Frá fyrstu stundu tókst
þú okkur (já og þið öll) opnum örm-
um. Alltaf varstu tilbúin að aðstoða
og hjálpa, ef á þurfti að halda. Þú og
Helgi voruð okkar stoð og góðu vinir
er við fluttum inn í lítið samfélag.
Þú áttir svo stórt hjarta og máttir
ekkert aumt sjá, varst alltaf tilbúin
að standa með þeim, sem minna
máttu sín.Og ekki varstu feimin við
að segja skoðanir þínar. En hlátur-
inn og grínið voru aldrei langt und-
an. Það var líf og fjör í kringum þig.
Enda sóttust Ragnheiður nafna þín
og Eldbjörg eftir að vera hjá ykkur.
Þar mættu þær hlýju og kátínu.
Kæra vinkona. Nú skilur leiðir um
sinn. Guð geymi þig um ókomna tíð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
RAGNHEIÐUR
MARKÚSDÓTTIR
✝ RagnheiðurMarkúsdóttir
fæddist á Landspítal-
anum í Reykjavík 17.
september 1954. Hún
lést í Sjúkrahúsi Suð-
urlands 16. júlí síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá Eyr-
arbakkakirkju 21.
júlí.
Elsku Helgi. Þú sem
hefur staðið þig eins og
hetja. Guð styrki þig og
krakkana, og öll hin
sem eiga um sárt að
binda. Nú er gott að
eiga góðar minningar.
Össi sendir ykkur
innilegar kveðjur.
Ingunn og Örn.
Elsku Ragnheiður
frænka. Mig langar að
skrifa svo margt til að
minnast þín, en það eru
svo margar minningar
að þær verða ekki allar skrifaðar
hér. En ofarlega í mínum huga er
spjallið sem við áttum á ættarmótinu
í fyrrasumar. Þá sagði ég þér að þú
værir mín hetja og mjög sterk mann-
eskja og það er hverju orði sannara.
Þú barðist hetjulega í erfiðum og
ósigrandi bardaga, en nú ertu komin
á betri stað og það er komið að
kveðjustundu. Guð geymi þig elsku
frænka.
Elsku Helgi, Kjartan, Gunnar,
Ómar, Gugga og aðstandendur. Mín-
ar dýpstu samúðarkveðjur.
Ólöf Árnný.
Elsku Ragnheiður mín, nú er erf-
iðri baráttu lokið. Mikið fannst mér
þú vera ákveðin og hörð af þér en ég
vanmáttug og veikbyggð. Ég held að
öllum er umvöfðu þig á þessum erf-
iða tíma hafi liðið eins og mér. Við
viljum hafa allt eins og það hefur
verið en ráðum engu. Ég vil minnast
okkar bestu og áhyggjulausustu ára.
Fyrst í Vallarhjáleigu smáar hnátur
á eilífu iði, eins og fiðrildi í blóma-
garði, alltaf sól og lífið svo sykur-
sætt. Afi, mömmur, pabbar og systk-
ini, heyskapur og hestar. Við örlítið
þroskaðri í Gerðum, farnar að fara
afsíðis tvær saman, uppátektarsam-
ar og áhyggjulausar. Samverustund-
irnar fannst okkur vera allt of stutt-
ar. Þegar ég átti að fara suður, þú
búin að suða um að fá að fara með
eða ég að fá að vera eftir. Ef ekki
tókst að sannfæra foreldra okkar um
hversu nauðsynlegt væri fyrir okkur
að fylgjast að, þá földum við okkur
og héldum jafnvel að við myndum
gleymast. Stundum tókst okkur þó
að sannfæra fullorðna fólkið, þá urðu
tvær litlar hnátur hamingjusamar og
lofuðu öllu fögru, sem gleymdist um
leið og bíll foreldra minna rann úr
hlaði. Ég sé fyrir mér sigursvipinn
þinn og heyri snöggu röddina þína
segja: „Við unnum.“
Síðan breyttumst við í unglinga og
urðum skvísur. Farnar að verða upp-
teknar af sjálfum okkur, framtíðinni
og námi.
Báðar orðnar giftar konur, með
börn og bú. Þú flytur í bæ og ég í
sveit. Börnin orðin fullorðin. Ég orð-
in amma. Og þú elskan mín kveður
allt of fljótt í blóma lífsins, áttir svo
ótalmargt eftir sem ástvinir vildu
njóta með þér.
Ég kveð þig með ljóðinu „Sökn-
uður“ eftir tengdaföður minn heit-
inn.
Það heltekur sál mína harmafregn
í hjartanu sorgin brennur.
Og tilfinninganna táraregn
um titrandi kinnar rennur.
Þær spurningar vakna í harmþrungnum
hug
er hrygg ég stari út í bláinn.
Hvort vina mín hafi aðeins farið í flug
sé flutt en ekki dáin.
(Geir G. Gunnlaugsson.)
Hvíl í friði.
Þín frænka,
Hjördís.
✝ Óðinn Valdi-marsson fæddist
á Akureyri 21. janú-
ar 1937. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 16. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Valdimar
Kristjánsson og Þor-
björg Jónsdóttir. Óð-
inn var yngstur
þriggja bræðra, en
hinir eldri eru: Sig-
þór, sem er látinn,
og Ragnar, sem er
búsettur á Akureyri.
Óðinn ólst upp á Ak-
ureyri og leit alltaf á sig sem Ak-
ureyring. Hann lærði prentiðn á
Akureyri og vann síðan ýmis
störf m.a. hjá Rafmagnsveitunni
og ýmis störf á sjó. Söngurinn og
tónlistin var samt það sem flestir
tengja hann við. Hann söng með
Atlantica, með hljómsveit Ingi-
mars Eydal og KK og margir
muna tónleika hans á Egilstöðum
og Akureyri til
styrktar Marínar
Hafsteinsdóttur,
dótturdóttur hans,
en hún þurfti að
gangast undir erfið-
ar hjartaaðgerðir.
Óðinn eignaðist tvö
börn: 1) Önnu, f.
1961, móðir hennar
er Kristín Sveins-
dóttir. Eiginmaður
Önnu er Hafsteinn
Guðmundur Hin-
riksson, þau eru bú-
sett í Danmörku og
börn þeirra eru:
Fannar, Sunna og Marín, sem lést
1998; 2) Jón Óðinn, f. 1963, móðir
hans er Sigríður Waage. Kona
hans er Elvý Guðríður Hreins-
dóttir. Þau eru búsett á Akureyri
og eiga tvo syni sem heita Óðinn
Snær og Birkir Blær. Fyrir átti
Jón Óðinn, Jóhann Frey.
Útför Óðins fór fram frá Foss-
vogskapellu 23. júlí.
Minning um Óðin afa.
Ég vil minnast Óðins með fáein-
um orðum. Hann var alveg ein-
stakur maður, alveg frá því ég var
lítil stelpa hefur Óðinn alltaf verið
mér eins og afi, ég kallaði hann
alltaf afa og hann tók mér alltaf
sem einu af barnabörnunum sín-
um. Þegar hann var giftur Auði
ömmu minni og hún og afi voru að
passa mig er það efst í huga mín-
um þegar ég og afi sátum fyrir
framan sjónvarpið með alla kettina
í fanginu.
Þú varst alltaf svo kátur og
hress og ég man að við sungum
alltaf saman.
Einu sinni baðstu mig að syngja
með þér til þess að styrkja litlu
dótturdóttur þína sem þú vildir
allt gera fyrir. Mér fannst alltaf
svo gaman og yndislegt að vera í
kringum þig, elsku afi minn. Minn-
ing þín mun alltaf geymast í hjarta
mínu.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hvíl þú í friði.
Kolbrún Eva.
Einn af okkar bestu dægurlaga-
söngvurum var til moldar borinn
þriðjudaginn 24. júlí á Akureyri.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt.
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Inga Dóra.
ÓÐINN
VALDIMARSSON
! "#!
$
%# $
%
$
&
'
()* +
, -./
01 2-1
!
"
3
#"
%
" $
%2 ""
#"
%
4% #!
%
-,
#" % )03#&
#$
* * 5
+((*
%
& &
'
()
*+
&
, ,
$
&
-,
&+
67 1
&
$
$
,
8 57')
+((*
,, !,.9
+
!
-
%
"
"+
3:% "
#
%# "0
"0"1 %$,,$
&
.
"
"
/
,
0
&0&
"
,
+
+
;
<(=
:
%$.
7 0
&
)-" %"#!
%
4
$20-" #!
4
;2
""
4-" #!
%
-,
>?
#2 ""
<
-" "
4)" ! "#!
%
$
&
8@ +
3
:
""1:
# 2-1
",:
AA
! 2%
"
' "
+
1
%
$
%"1
"#!
2 ""
2 #
%
!"#!
0% $
1,#"#!
% *%2 "
"1
,#"" % !"#!
< ,,#"" %
-,"#!
$
,#""
" @$
%
$
,#"" #!
%
B!
"#!
$
%
$
&
2
+
&
+
0
&0&
"
+
+
+
& 5
!
C
% <- #
<"
C4 2 """&
@
%
?(
0%%2 #!
D $
E(
0%%2
""
$3#
"#!
4
"#!
&F&*% "
$
%
$
&