Morgunblaðið - 02.08.2001, Blaðsíða 53
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 53
FRÉTTIR
FRAMUNDAN er verslunar-
mannahelgin og margir eru í óðaönn
að skipuleggja fríið og skemmt-
unina um
helgina. Frí sem
á að innihalda
gleði, hlátur og
skemmtun. Frí
sem er ætlað að
skilja eftir góðar
minningar um
ánægjulegar
samverustundir.
Við blasa auglýs-
ingar um hvers
kyns útihátíðir og af nógu er að
taka. Í boði eru dansleikir fram eftir
nóttu með vinsælustu hljómsveitum
landsins, skemmtun og uppákomur
við allra hæfi. Það er því kjörið
tækifæri fyrir fjölskylduna að fara
og skemmta sér saman. En þrátt
fyrir að auðveldlega sé hægt að
finna skemmtun um verslunar-
mannahelgina sem hæfir öllum fjöl-
skyldumeðlimum er enn of algengt
að unglingar sem ekki hafa náð til-
greindum lágmarksaldri fari einir
og án eftirlits fullorðinna á útihá-
tíðir. Fjöldi unglinga fer eftirlits-
laus á útihátíð með áfengi og gott
skap í farangrinum. Góða skapinu
er ætlað að endast helgina á enda en
því miður er það ekki alltaf raunin.
Ölvaður unglingur á frekar á hættu
að verða fyrir líkamsárás, nauðgun
og hvers kyns obeldi. Ölvaður ung-
lingur er kjörið fórnarlamb fíkni-
efna og því miður er það staðreynd
að unglingar komast oft í kynni við
fíkniefni á útihátíðum. Þannig getur
það sem vera átti góð skemmtun
breyst í hina verstu martröð á
skömmum tíma.
Unglingar vilja skýr skilaboð.
Kaupum ekki áfengi fyrir unglinga.
Með því erum við að samþykkja
áfengisdrykkju þeirra. Ég hvet for-
eldra til að sýna gott fordæmi og
segja nei við eftirlitslausum ferðum
unglinga á útihátíðir. Við getum
haft áhrif á það hvernig minningar
við og börnin okkar tökum heim
með okkur að lokinni verslunar-
mannahelgi. Hvort börnin koma
ánægð heim eftir góða og heilbrigða
skemmtun eða hvort þau koma heim
niðurbrotin eftir nauðgun, líkams-
árás eða neyslu fíkniefna. Elskum
óhikað og verjum helginni saman.
MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Nönnustíg 13,
Hafnarfirði.
Góðar
minningar
Frá Maríu Guðmundsdóttur:
María
Guðmundsdóttir
Nú býðst þér ótrúlegt ferðatækifæri til
þessarar heillandi borgar. Þú bókar 2
sæti til Mílanó þann 10. ágúst, en
greiðir bara fyrir 1, og kemst til einnar mest spennandi
borgar Evrópu á frábærum kjörum. Frá Mílanó liggja þér allar
leiðir opnar um Evrópu og hjá Heimsferðum getur þú valið um
gott úrval 3. og 4. stjörnu hótela.
Tveir fyrir einn
til Mílanó
10. ágúst
frá kr. 15.207
Verð kr. 15.207
Flugsæti p.mann, m.v. 2 fyrir 1.
30.414.- / 2 = 15.207.-
Skattar kr. 2.495, ekki innifaldir.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.-
Forfallagjald, kr. 1.800.-
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Aðeins 19 sæti
í boði
SÍÐASTI fyrirmyndar-ökumað-
urinn verður valinn á morgun,
föstudag, en valið er liður í umferð-
arátaki Sjóvá-Almennra, Olís, Plús-
ferða og Rásar 2. Þegar hafa fjórir
ökumenn fengið þennan titil en þeir
sem fyrir valinu verða fá að launum
ferðavinninga.
„Markmiðið með átakinu er að
fjölga þeim sem aka til fyr-
irmyndar, en einungis þeir sem
hafa límmiða átaksins í afturrúð-
unni geta hlotið utanlandsferð,“
segir m.a. í frétt frá Sjóvá-
Almennum. Límmiðarnir eru fáan-
legir á þjónustustöðvum Olís um
landið allt. Hér afhendir Sumarliði
Guðbjörnsson, deildarstjóri bif-
reiðatjóna Sjóvá-Almennra, Baldri
Ingvarssyni ferð til Portúgals, en
hann hafði ekið til fyrirmyndar á
Miklubraut í síðustu viku. Með þeim
er Svanhildur Hólm Valsdóttir,
dagskrárgerðarmaður á Rás 2.
Fimmti fyrirmyndaröku-
maðurinn valinn á morgun
LAUGARDAGINN 4. ágúst kl. 14–
16 efnir Alviðra, í samvinnu við
UMFÍ til skógargöngu um Þrastar-
skóg.
Hreinn Óskarsson skógfræðingur,
sem starfar sem sérfræðingur á Mó-
gilsá, leiðir gönguna.
Gangan er létt og á flestra færi,
boðið er upp á kakó, ketilkaffi og
kleinur. Gangan hefst við söluskál-
ann Þrastalund.
Þátttökugjald er kr. 600 fyrir full-
orðna, 400 fyrir 12–15 ára og eru
veitingar innifaldar í verði.
Skógarganga
um Þrastaskóg
ÞINGVALLAVATNSSIGLING-
AR hafa í sumar, eins og undan-
farin ár, boðið upp á útsýnissigl-
ingar með bátnum Himbrimanum
á Þingvallavatni. Sigling á vatninu
er vinsæl afþreying meðal þeirra
sem dvelja í tjöldum og sumarbú-
stöðum í uppsveitum Árnessýslu
eða aka Þingvallahringinn. Þessar
ferðir verða í boði um helgina.
„Ferðir Himbrimans um versl-
unarmannahelgina eru kl. 11, 14
og 17 laugardag, sunnudag og
mánudag og á öðrum tímum eftir
samkomulagi. Lagt er upp í sigl-
ingarnar frá bryggjunni á Skála-
brekku í Þingvallasveit. Á hring-
ferð um Þingvallavatn er spjallað
um það helsta sem fyrir augu ber í
landslaginu, sagðar sögur af
mannlífi við vatnið og lífríki þess
undir yfirborðinu. Á siglingunni
geta svangir ferðalangar keypt
heimabakaðar skonsur með
reyktri Þingvallableikju og sporð-
rennt með heitu kakói.
Hægt er að velja um þrjár mis-
langar ferðir; allt frá 40 mínútna
eyjasiglingu til tveggja og hálfrar
klukkustundar hringferðar um
vatnið með viðkomu í Arnarfelli,
þar sem farið er í létta fjallgöngu.
Á vefsíðu Þingvallavatnssigl-
inga er auðvelt að nálgast frekari
upplýsingar um útsýnissiglingar
Himbrimans á Þingvallavatni.
Slóðin er www.himbriminn.is,“
segir í fréttatilkynningu.
Himbriminn á Þing-
vallavatni um helgina
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist býður
upp á fjölbreytt úrval ferða um
verslunarmannahelgina.
Í flestar þeirra er farið á laug-
ardagsmorgninum 4. ágúst og komið
til baka 6. ágúst. Um er að ræða ferð
í náttúruperluna, Núpsstaðarskóga
þar sem tjaldað er við skógana og
gengið um nágrennið m.a. að Tví-
litahyl, að Súlutindum og víðar.
Ferðir verða á Fimmvörðuháls og í
fjölskylduparadísina, Goðaland -
Bása. Í Fimmvörðuhálsferðinni
verður gist fyrri nóttina í Fimm-
vörðuskála Útivistar og seinni nótt-
ina í Básum, en í Básaferðinni er
hægt að velja um gistingu í Útivist-
arskálunum eða tjöldum. Á föstu-
dagskvöldinu er brottför í fjögurra
daga ferð um Hólamannaleið milli
Barkárdals og Hóla. Þann 4. ágúst
er farin fjögurra daga trússferð um
svokallaðan Strútsstíg, sem er ný
gönguleið Útiivstar frá Eldgjá í
Hvanngil en í þeirri ferð er gist eina
nótt í tjöldum og tvær í skála m.a. í
nýjum skála á Álftavatnakróki.
Undirbúningsfundur fyrir Strúts-
stígsferðina og fleiri slíkar er mið-
vikudagskvöldið 1. ágúst kl. 20:00 á
Hallveigarstíg 1. Dagsferð Útivistar
um verslunarmannahelgina er
ganga á Ármannsfell mánudaginn 6.
ágúst kl.10:30.
Útivist með margar
ferðir um helgina
♦ ♦ ♦