Morgunblaðið - 02.08.2001, Síða 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Kolbeinn Þorsteinsson skemmtir
föstudags- og laugardagskvöld.
CLUB 22: Breski plötusnúðurinn
Dj Panik tryllir lýðinn fimmtudags-
kvöld kl. 21 til 2. 18 ára aldurs-
takmark og 500 króna aðgangseyr-
ir. Barði úr Bang Gang spilar fram
á nótt föstudagskvöld. Dj Johnny
mætir galvaskur og sér um tónlist-
ina fram á morgun laugardags-
kvöld. Þau Andrea Jónsdóttir og
Óli Palli taka höndum saman og
ljúka verslunarmannahelginni
sunnudagskvöld. Frítt inn til 2 öll
kvöldin. Frítt inn alla nóttina fyrir
handhafa stúdentaskírteina.
GAUKUR Á STÖNG: Hljómsveit-
in Í svörtum fötum heldur uppi
fjörinu fimmtudagskvöld. Tveir
heppnir gestir geta unnið miða á
Eldborgarhátíðina. Hljómsveitin
Ný dönsk spilar nýtt og gamalt efni
laugardags- og sunnudagskvöld.
Forsala aðgöngumiða á Gauknum.
Hljómsveitin Kalk mánudagskvöld.
GULLÖLDIN: Það eru snilling-
arnir Svensen og Hallfunkel sem
halda uppi fjörinu föstudags-, laug-
ardags- og sunnudagskvöld.
H-BARINN AKRANESI: Diskó-
rokktekið og plötusnúðurinn
Skugga-Baldur föstudags- og laug-
ardagskvöld. Miðaverð er 500 krón-
ur frá miðnætti.
H. M. KAFFI, Selfossi: Bjórband-
ið heldur sína eigin innihátíð föstu-
dags- og laugardagskvöld.
KA-HEIMILIÐ, Akureyri:
Hljómsveitin Skítamórall föstu-
dagskvöld. Sálin hans Jóns míns
spilar laugardagskvöld. Hljómsveit-
in Greifarnir sunnudagskvöld.
KAFFI REYKJAVÍK: Vinir Dóra
koma saman eftir nokkurt hlé
fimmtudagskvöld kl. 22. Hljóm-
sveitina skipa þeir Halldór Braga-
son, Ásgeir Ásgeirsson, Guðmund-
ur Pétursson og Jón Ólafs.
Hljómsveitin Spútnik spilar mánu-
dagskvöld.
KAFFI-LÆKUR, Hafnargötu 30,
Hafn.: Njáll spilar létta tónlist
föstudags- og laugardagskvöld.
KAFFILEIKHÚSIÐ: Hljómsveit-
in The Bag of Joys heldur sína
fyrstu og einu tónleika í fjögur ár
fimmtudagskvöld kl. 21. Hljóm-
sveitina skipa þau Sighvatur Ómar
Kristinsson, Unnar B. Arnalds,
Lena Viderö og Gústaf Bergmann
Einarsson. Einnig kemur fram
hljómsveitin Rúnk og kassettusnúð-
urinn Músíkvatur. Miðaverð er 800
krónur.
KRÁKAN, Grundarfirði: Viðar
Jónsson heldur uppi sama fjörinu
og síðustu helgi föstudags- oglaug-
ardagskvöld.
KRINGLUKRÁIN: Hljómsveit
Hilmars Sverrissonar og Péturs
Hjálmarssonar skemmtir gestum
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
MÚLINN, Húsi málarans: Tón-
leikar með Kristjönu Stefánsdóttur
í tilefni af nýútkomnum geisladiski
hennar fimmtudagskvöld. Með
henni spila Agnar Már Magnússon,
Birkir Freyr Matthíasson, Michael
Erian, Uli Glassman og Thorsten
Grau.
NELLYS CAFÉ: Dj Le Chef og
Dj Finger sjá um að skemmta gest-
um föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. 500 krónur inn
eftir miðnætti.
NIKKABAR, Hraunbergi 4: Kol-
beinn Þorsteinsson trúbador föstu-
dags- og laugardagskvöld.
NÝJA BÍÓ, Siglufirði: Milljóna-
mæringarnir ásamt Páli Óskari og
Bjarna Ara laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Stuðbandalagið leikur fyrir
dansi föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Hljómsveitina
skipa þeir Orri Jónsson, Indriði
Jósafatsson, Ásgeir Holm, Bragi
Björnsson og Guðjón Guðmunds-
son.
RABBABARINN, Patreksfirði:
Hljómsveitin Sólon spilar mánu-
dagskvöld.
RAUÐA LJÓNIÐ: Guðmundur
Reynisson spilar mánudagskvöld.
RÁIN, Keflavík: Hljómsveitin
Hafrót leikur um verslunarmanna-
helgina.
SIRKUS, Klapparstíg: Mínus og
Klink halda dúndurtónleika í port-
inu laugardagskvöld. Heitt á grill-
inu frá kl. 19.
SJALLINN, Akureyri: Sálin hans
Jóns míns föstudags- og sunnu-
dagskvöld. Hljómsveitin Greifarnir
laugardagskvöld.
SPORTKAFFI: Hljómsveitin
Buttercup fimmtudagskvöld.
SPOTLIGHT: Ibiza-stemming
alla helgina. Dj Cesar spilar föstu-
dags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld.
THOMSEN: Undirtónar og
Thomsen standa fyrir góðu partýi
alla helgina. Fram koma Egill Sæ-
björns, Natalie og Raven, Frank
Murder og Einóma fimmtudags-
kvöld, Dj Sunshine (Sóley), Skurk-
en, Biogen, Ívar Örn, ILO og Mar-
geir föstudagskvöld, Dj Guðný
Súpergirl, Hugarástand og Mark
Knowles laugardagskvöld, Robbi
Chronic, Árni Einar og Darius
sunnudagskvöld. Kvöldin hefjast kl.
22 og miðaverð er 500 krónur. 18
ára aldurstakmark.
ÚTHLÍÐ, Biskupstungum:
Hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar fimmtudags- og föstudagskvöld.
Hljómsveit Rúnars Júlíussonar
laugardags- og sunnudagskvöld.
ÚTLAGINN, Flúðum: Diskó-
rokktekið og plötusnúðurinn
Skugga-Baldur sunnudagskvöld.
Miðaverð er 500 krónur.
VIÐ POLLINN, Akureyri:
Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir
dansi föstudags-, laugardags og
sunnudagskvöld.
VÍDALÍN: Kvartett Röggu Grön-
dal spilar fimmtudagskvöld.
VÍKIN, Höfn: Rúnar Þór og
félagar föstudags- og laugardags-
kvöld.
ÝDALIR, Aðaldal: SSSól hefur
yfirreið sína um landið mánudags-
kvöld.
ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN:
Hljómsveitin Jagúar með tónleika
sunnudagskvöld. Dj Afro Funk
opnar kvöldið. Fólk er hvatt til að
mæta í 70’s-klæðnaði.
Frá A til Ö
Hljómsveitin Mínus spilar ásamt Klinki í portinu hjá Sirkus.
Morgunblaðið/Arnaldur
Egill Sæbjörns tekur þátt í
helgarveislu Undirtóna og
Thomsen.
ÞUNGAROKKIÐ, einkanlega hið
umdeilda afkvæmi þess, svartþunga-
rokkið, þarf oft og tíðum að gjalda
fyrir hluti sem tengjast ekki tónlist-
inni sem slíkri á nokkurn hátt. Hvað
svartþungarokkið áhrærir hefur kol-
svört, satanísk ímyndin og fáránleg-
ustu ofbeldisverk eins og kirkju-
brennur og morð fælt flesta frá því
sem skiptir höfuðmáli, þ.e. frá sjálfri
tónlistinni. Án þess að ætla að leggja
dóm á það hversu samtengd tónlistin
þarf nauðsynlega að vera menning-
unni sem henni fylgir er engu að síð-
ur mikilvægt að átta sig á því að
svartþungarokkið getur verið glæst-
ur og tilkomumikill stíll; hreinasta
list sem lýtur sömu fagurfræðilegu
einkennum og önnur tónlist. Þessari
staðreynd verða því miður allt of
margir af; einfaldlega vegna þess að
fíflagangurinn í kringum formið slær
sandi í eyru þeirra.
Fyrir stuttu kom út geislaplatan
The Goat of Mendes með bresku
öfgaþungarokkssveitinni Akercocke.
Plötunni hefur verið hampað í þunga-
rokksblöðum, eins og t.a.m. Terrori-
zer sem er Biblía þeirra sem vilja það
„hratt, hátt og þungt“, sem meistara-
legu verki sem setji nýja staðla um
leið og unnið sé úr fornum arfi á
einkar séðan hátt.
The Goat of Mendes er athyglis-
verð blanda af dauðarokki því sem
hæst fór í byrjun síðasta áratugar;
Ljósmynd/Joanna Surmacz
Settlegt svartþungarokk(?). Meðlimir Akercocke leggja áherslu á vand-
aða sviðsframkomu og snyrtilegan klæðaburð.
Akercocke
FORVITNILEG
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
svartþungarokki og dómsdagsrokki
því sem sveitir eins og Anathema
hafa lagt stund á. Eins og nafnið gef-
ur til kynna eru meðlimir rammir sat-
anistar og er það undirstrikað með
öfugum krossum, textum, lagaáferð
og ekki síst lagatitlum eins og „Horns
of Baphomet“, „Infernal Rites“ og
„Of Menstrual Blood and Semen“.
Sveitin er byggð á rústum satan-
ísku þungarokkssveitarinnar Salem
Orchid sem starfaði um og upp úr tí-
unda áratug síðustu aldar. Hún lagði
upp laupana árið 1992 en samkvæmt
trommuleikara Akercocke og eins
stofnenda hennar, David Gray, voru
meðlimir farnir að „eyða of miklum
tíma í útbreiðslu satanískra hugsjóna
og of litlum tíma í að æfa sig á hljóð-
færin“.
Akercocke var svo stofnuð árið
1996 og fyrsta platan, Rape of the
Bastard Nazarene, kom út árið 1999
og var gefin út af meðlimum sjálfum
undir merkjum Goat of Mendes Re-
cords. Plata sú vakti gríðarathygli
innan þungarokksheima og gerði
sveitin samning við Peaceville-útgáf-
una í kjölfarið en hún hefur löngum
verið með stórtækari þungarokksút-
gáfum og er með sveitir eins og Ka-
tatonia, My Dying Bride, Opeth og
At the Gates á sínum snærum.
The Goat of Mendes kom svo út
síðastliðinn júní og hefur líkt og
frumburðurinn vakið mikla athygli
fyrir meinfýsna og allrosalega nálgun
við þungarokksformið. Ætli það geti
þá verið að djöfullinn eigi öll bestu
lögin?
BRESKI plötusnúðurinn Dj Panik
mun sjá um að þeyta skífum fyrir
dansáhugamenn á Club 22 í
kvöld.
Þetta er í þriðja sinn sem hann
sækir Ísland heim og hefur hann
meðal annars troðið upp á Herra
Breakbeat.is-keppninni og á
Synthetic-viðburði á Gauknum
fyrr á árinu.
Dj Panik er plötusnúður í fullu
starfi á einum öflugasta trommu-
og bassatónlist-
arstað heims,
Movement í Lond-
on. Hann er jafn-
framt með útvarps-
þátt á vefsíðunni
londondirect.com.
Dj Panik er van-
ur að nálgast
trommu- og bassa-
tónlistina frá öllum
hliðum þar sem
hann blandar sam-
an eldri tónum við
spánýja tónlist.
Húsið verður
opnað klukkan 21
og stendur við-
burðurinn til
klukkan 2. Miða-
verð er 500 krón-
ur.
Áhugasamir geta
nálgast frekari
upplýsingar um
kappann á
www.panik.com.
Breskt óðagot á 22
Dj Panic þeytir skífum
Íslandsvinurinn
Dj Panik.