Morgunblaðið - 02.08.2001, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Þú getur tilkynnt aðsetursskipti á
www.postur.is
Veit Pósturinn hvar þú býrð
Í niðurstöðum Skipulagsstofnunar
segir að ekki hafi verið sýnt fram á að
annar ávinningur af fyrirhuguðum
framkvæmdum verði slíkur að hann
vegi upp þau verulegu, óafturkræfu,
neikvæðu umhverfisáhrif sem fram-
kvæmdin muni fyrirsjáanlega hafa.
Fjallað er í ítarlegu máli um áhrif
virkjunarinnar og framkvæmda við
hana á náttúrufar, landslag og sam-
félag í úrskurði Skipulagsstofnunar.
Stofnunin telur m.a. að upplýsingar
skorti um umfang framkvæmdanna.
Komið hafi í ljós að framkvæmdalýs-
ing sem lögð var fram af Landsvirkj-
un í matsskýrslu og fylgigögnum hafi
ekki verið tæmandi um alla megin-
framkvæmdaþætti. Hvergi sé að
finna aðgengilegt yfirlit yfir alla meg-
inframkvæmdaþætti og upplýsingar
séu í sumum tilfellum misvísandi. Á
grundvelli framlagðra upplýsinga
liggi þó fyrir að líklegt sé að fram-
kvæmdirnar hafi í för með sér veru-
leg umhverfisáhrif, einkum vegna
fyrri áfanga virkjunarframkvæmd-
anna, og þá sérstaklega Hálslóns og
veitu Jökulsár á Dal til Jökulsár í
Fljótsdal og Lagarfljóts.
Einnig er bent á að ekki liggi fyrir
hvert orkuverð til álvers í Reyðarfirði
verði, en Landsvirkjun fullyrði að
framkvæmdin verði arðsöm.
„Skipulagsstofnun telur enn frekar
hafa verið leitt í ljós við athugun
stofnunarinnar heldur en vænta
mátti, þegar ákvörðun var tekin um
matsáætlun um framkvæmdina síð-
astliðið sumar, að virði náttúrufars á
áhrifasvæði framkvæmdarinnar sé
hátt og áhrif framkvæmdanna á nátt-
úrufar í mörgum tilfellum veruleg og
óafturkræf. Skipulagsstofnun telur
því enn frekar en fyrr var ætlað að
þörf sé á að fjárhagslegt mat á nátt-
úruverðmætum sem framkvæmdirn-
ar myndu raska eða eyðileggja sé lagt
til grundvallar mati á þjóðhagslegum
áhrifum framkvæmdarinnar,“ segir í
úrskurði Skipulagsstofnunar.
Heimilt að kæra úrskurðinn
til umhverfisráðherra
Í niðurstöðum úrskurðarins segir
að Skipulagsstofnun líti svo á að leiði
athugun stofnunarinnar í ljós að
framkvæmd muni hafa í för með sér
umtalsverð umhverfisáhrif og að ekki
hafi verið sýnt fram á við athugun
stofnunarinnar að annar ávinningur
sé slíkur að hann muni vega upp hin
neikvæðu áhrif að viðunandi marki,
þá beri stofnuninni að leggjast gegn
viðkomandi framkvæmd.
Heimilt er skv. lögum um mat á
umhverfisáhrifum að kæra úrskurð
Skipulagsstofnunar til umhverfisráð-
herra og er kærufrestur til 5.
september.
Umtalsverð umhverfisáhrif
og ófullnægjandi upplýsingar
SKIPULAGSSTOFNUN leggst gegn byggingu Kárahnjúkavirkjunar ,,vegna
umtalsverðra umhverfisáhrifa og ófullnægjandi upplýsinga um einstaka þætti
framkvæmdarinnar og umhverfisáhrif hennar“, eins og segir í úrskurði sem
stofnunin birti í gær. Davíð Oddsson forsætisráðherra telur of fljótt að segja til
um hvort stofnunin sé að dæma úr leik allar framkvæmdir í virkjunarmálum
norðan jökla. Halldór Ásgrímsson utanríkisráherra segir úrskurðinn ekki
koma á óvart. Fulltrúar náttúruverndarsamtaka fagna niðurstöðunni.
Ýmsir/32
Úrskurður/32
Formaður Framsóknarflokksins seg-
ir úrskurðinn ekki koma sér á óvart
SMÁRI Geirsson, forseti bæjar-
stjórnar Fjarðabyggðar, segir úr-
skurð Skipulagsstofnunar um mat á
umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkj-
unar leiða til vangaveltna um hvort
um sé að ræða pólitíska niðurstöðu
frekar en faglega. Hann segir að
flest af því sem komi fram í umhverf-
ismatsskýrslunni og skipti megin-
máli sé dregið í efa um leið og tekið
sé undir margt af því sem komi fram
í athugasemdunum.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, for-
maður Landverndar, segir niður-
stöðu Skipulagsstofnunar ekki koma
sér á óvart og að hún sé í fullu sam-
ræmi við þær upplýsingar sem fram
koma í matsskýrslunni sjálfri. Hún
segist treysta því að ríkisstjórn Ís-
lands með umhverfisráðherra í far-
arbroddi skoði málið ítarlega frá fag-
legu sjónarmiði verði úrskurðurinn
kærður. Þá segir hún mikilvægt að
beðið sé eftir rammaáætlun ríkis-
stjórnarinnar um nýtingu vatnsfalls
og jarðvarma sem gefi stjórnvöldum
nýja sýn og nýjan þátt til ákvarð-
anatöku um stóriðjuframkvæmdir.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, á frekar von á að
úrskurðurinn verði kærður. Haldist
úrskurður Skipulagsstofnunar hins
vegar óbreyttur verði ekki séð að
vatnsorka í jökulám á Austurlandi
verði nýtt í framtíðinni.
Málið verði
skoðað frá
faglegu
sjónarmiði
Þetta er/10
ÞAÐ hefur löngum verið sagt um
álftina að hún sé á stundum grimm-
astur íslenskra fugla. Að minnsta
kosti eru fyrir því heimildir að álftir
hafi ráðist á sauðfé og einnig menn
og því er vissara að vera ekki fyrir
þegar sá gállinn er á henni. Er ljós-
myndari átti leið um Hamarsfjörð á
Austfjörðum á dögunum blasti við
honum þessi sjón. Engu er líkara en
álftir og sauðfé hafi gert með sér
þegjandi samkomulag. Álftin lætur
bithagana í friði og sauðféð hættir
sér ekki út á hólmana.
Morgunblaðið/RAX
Dýralíf í Hamarsfirði
TVEIMUR bátum ferðaþjónustunn-
ar Tindfjalla hvolfdi með 19 manns
innanborðs eftir siglingu í straum-
harðri Skaftá við Hunkubakka
skammt frá Kirkjubæjarklaustri á
ellefta tímanum í gærkvöld. Fólkið
var starfsfólk á Hótel Kirkjubæjar-
klaustri auk þriggja leiðsögumanna.
Sveinn Akerlie, farþegi í öðrum
bátnum, segir ferðina hafa verið ný-
hafna þegar tveir fremstu af þremur
bátum hópsins steyttu á skeri og
þeim hvolfdi. „Við lögðum af stað í
björtu veðri og allt gekk vel. Tveir
fremstu bátarnir lentu svo í vand-
ræðum og hvolfdi. Fólkið í bátunum
var á floti niður ána en sumir náðu þó
að koma sér aftur upp í bátana eða í
land af sjálfsdáðum,“ sagði Sveinn.
Nokkur hluti hótelstarfsmannanna
fór ekki í siglingu heldur beið á ár-
bakkanum. Þetta fólk kom, að sögn
Sveins, félögum sínum samstundis
til hjálpar. „Við héldum svo fjórir
félagarnir áfram niður ána til að leita
að fólki og gekk björgunin vel nema
hvað tveir úr hópnum voru illa á sig
komnir og gripu ekki árina þegar við
vorum að reyna að koma þeim um
borð. Það tókst þó um síðir og þeir
hafa nú fengið aðhlynningu lækna.“
Eftir að öllum hafði verið komið á
land var fólkið flutt í félagsheimilið á
Kirkjubæjarklaustri þar sem það
fékk frekari aðhlynningu. „Það eru
allir undir teppum og margir eru enn
í sjokki og grátandi,“ sagði Sveinn.
Aðspurður hvort áin hefði verið
óvenjustraumhörð sagði hann að
hún væri mjög vatnsmikil núna og
straumhörð. Björgunarsveitin í Vík
var kölluð til hjálpar og þyrla Land-
helgisgæslunnar, TF-LÍF, fór á
vettvang með þrjá kafara innan-
borðs. Þyrlan var kölluð til baka.
Nítján björguðust úr Skaftá
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sveinn Jensson og Sveinn Aker-
lie voru blautir og hraktir eftir
að bátum þeirra hvolfdi í Skaftá.
TÆPLEGA 70% verðmunur er
á pylsum milli verslana á höf-
uðborgarsvæðinu. Goðapylsur
kosta minnst 479 kr. kílóið í
Bónus en mest 812 kr. í Nettó,
samkvæmt verðkönnun ASÍ á
vörutegundum sem ætla má að
séu mikið keyptar fyrir versl-
unarmannahelgina. Könnunin
var gerð í tíu verslunum sl.
þriðjudag.
Mikill
verðmunur
á pylsum
Um 70% verðmunur/20
TUTTUGU og tveggja ára gömul
pólsk kona hefur verið úrskurðuð í
þriggja vikna gæsluvarðhald en hún
var handtekin með 1.600 e-töflur inn-
anklæða á fimmtudaginn í síðustu
viku. Ljóst er að eiturlyfin voru ætl-
uð til dreifingar hér á landi.
Alls hefur verið lagt hald á um
23.600 e-töflur það sem af er þessu
ári. Þetta er mun meira magn en lagt
var hald á allt árið í fyrra.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
stöðvaði konuna þegar hún var að
koma frá Kaupmannahöfn en hún
hafði komið þangað frá Hamborg í
Þýskalandi. Konan var handtekin
þar sem tollverði grunaði að konan
bæri fíkniefni. Fíkniefnalögreglan í
Reykjavík var kölluð til og sem fyrr
segir fundust 1.600 e-töflur á kon-
unni.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, segir að kon-
an hafi lítið látið uppi við yfir-
heyrslur.
Í viðtali við Morgunblaðið í júlí sl.
sagði Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, að svo
virtist sem fíkniefnasalar sæktust í
auknum mæli eftir útlendingum til
að smygla eiturlyfjum til landsins. Á
síðustu 18 mánuðum hefur tollgæsl-
an á Keflavíkurflugvelli stöðvað einn
Dana, þrjá Ítala, Þjóðverja, Hollend-
ing, Breta, einn Bandaríkjamann og
nú síðast pólsku konuna vegna fíkni-
efnasmygls. Sterkur grunur leikur á
að öll hafi þau verið að smygla fíkni-
efnum fyrir innlenda fíkniefnasala.
Tekin með 1.600 e-töflur