Morgunblaðið - 09.08.2001, Síða 30

Morgunblaðið - 09.08.2001, Síða 30
UMRÆÐAN 30 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þ að hljómar óneit- anlega einkennilega í eyrum Íslendings að heyra danska lækna lýsa því yfir að ráð- lagður dagskammtur af áfengi fyrir gamalmenni sé allt of stór og beri að minnka hann. Þá fer ekki síður um mann þegar ung- lingaráðgjafar viðurkenna að lík- lega sé drykkja á meðal tólf ára barna og táninga árinu eldri farin úr böndunum. Þeir sem aldir eru upp við áfengisstefnu líka þeirri sem tíðk- aðist til margra ára á Íslandi kunna flestir forsjárstefnu rík- isins litlar þakkir. Yfirgengilegt verð, takmarkaður aðgangur og yfirþyrmandi sektarkennd hafa verið nær ófrávíkjanlegir fylgi- fiskar áfengisneyslu, jafnvel eftir að tvítugs- aldrinum er náð. Það eru afleiðingar strangrar áfengisvarn- arstefnu sem hefur gilt á Norðurlöndum og gengur út á að hafi ríkið ekki forsjá fyrir okkur norð- urhjarafólki verðum við öll áfeng- isbölinu að bráð. Eina landið sem ekki hefur tekið þessa stefnu upp á sína arma er Danmörk. Þeir sem aðhyllast meira frjálsræði í áfengismálum hafa gjarnan bent á þjóðir á borð við Danmörku sem dæmi um að ekk- ert sé athugavert við að slaka að- eins á klónni. Eftir árs búsetu í því annars ágæta landi hlýt ég hins vegar að mælast til þess að menn taki önnur lönd sér til fyr- irmyndar, t.d. Frakkland, Ítalíu eða Þýskaland. Í Danmörku er áfengi auðfáan- legt, í öllum sjoppum og mat- vöruverslunum og á nær öllum tímum, þótt strangt til tekið eigi ekki að selja það eftir klukkan átta á kvöldin. Bjór er alls staðar í boði og sést í hendi kvenna og karla á öllum tímum dags. Það sem þó hefur vakið athygli mína er sú mikla drykkja sem við- gengst. Drykkjumenningin er sáralitlu betri en á Íslandi, menn drekka til þess að verða fullir og röflið og ruglið er hið sama og norðar í álfunni. Danir myndu sjálfsagt aldrei skrifa upp á þetta, um það vitnar fyrirlitning þeirra í garð Svía sem streymdu stríðum straumum yfir Sundið til að kaupa ódýrt áfengi og drukku það gjarnan í Kaup- mannahöfn. Þótt drykkjusiðir hinna sænsku gesta hafi breyst töluvert til batnaðar eimir enn sterklega eftir af þessu gamla viðhorfi. En hvað er hægt að segja við áðurnefndum yfirlýsingum lækna um að eldra fólk drekki of mikið, að gamalmenni þoli ekki ráðlagð- an skammt? Danskir læknar hafa hingað til talið það í lagi að karlar drekki 21 skammt á viku en kon- ur 14, þ.e. skammtur samsvarar einföldum skammti af sterku áfengi. Nú segja læknar að sá sið- ur að hefja daginn á því að fá sér einn lítinn á fastandi maga sé af hinu slæma, því það margfaldi hættuna á slysum, eldra fólk þoli áfengi ekki eins vel og yngra fólk og að það sé misskilin velvild að ráðleggja eldra fólki að drekka, einkum fyrrihluta dags. „Danir drekka of mikið og það á ekki síst við um eldra fólk. Líkaminn er veikari og fyrir viðkvæmt tauga- kerfi samsvarar einn snafs 3–4 snöfsum fyrir fólk á besta aldri. Áfengið veldur röð erfiðleika og vandamála við meðferð eldra fólks. Það kostar samfélagið gríð- arlegar fjárhæðir,“ sagði ónefnd- ur yfirlæknir í samtali við eitt af dagblöðunum fyrr í sumar. Starfsfélagi hans bætti því við að þegar kynslóðin sem er á milli fertugs og sextugs komist á eft- irlaunaaldurinn muni vandinn að- eins aukast, því hún drekki ein- faldlega svo mikið. Þetta er kynslóð sem hefur alið upp þá sem eru að komast til vits og ára, og gefa foreldrum sínum, öfum og ömmum ekkert eftir í drykkj- unni. Ekki aðeins þykir það ekki lengur neitt tiltökumál að tólf ára krakkar drekki bjór, foreldrar þeirra hafa kvartað yfir því að börn og unglingar séu undir æ meiri þrýstingi að drekka. Ný- lega birtust viðtöl við tólf og þrettán ára skólakrakka sem sögðu að það þætti fínt að vera svo fullur í partíum að maður myndi ekkert daginn eftir. Það væri töff að drekka svo mikið að maður kastaði upp og að þeir sem ekki drykkju væru hallærislegir. Þessi ungmenni, eða börn öllu heldur, sögðust ekki aðeins drekka bjór, einkum og sér í lagi stelpurnar drukku sterkt áfengi. Kennarar og sérfræðingar í málefnum unglinga sögðu að- spurðir að unglingar hæfu drykkju æ fyrr og umgengjust áfengi á æ óvarkárari hátt. Ástæðuna sögðu þeir einfalda; það lærðu börnin sem fyrir þeim væri haft. Foreldrar væru ekki aðeins ótrúlega umburðarlyndir gagnvart tólf–þrettán ára krökk- um þegar þau byrjuðu að drekka, heldur sæju börnin foreldra sína iðulega undir áhrifum áfengis og teldu því ekkert athugavert við að byrja að hella í sig. Þessi afstaða til áfengis birtist m.a. í því merki um vorkomuna í Danmörku að skyndilega er fjöldi fólks drukkinn á götum úti. Dag- inn fyrir hátíðisdaga er mikil drykkja, einkum ungmenna, ófrá- víkjanleg staðreynd, og hún stendur fram á hátíðisdaginn, fyrir eldri þó einkum á börum sem eru opnir á næturnar og morgnana. Þetta kemur sjálfsagt engum á óvart sem dvalið hefur í Dan- mörku þótt ég verði að við- urkenna að ég átti von á sið- menntaðri afstöðu til áfengis en raunin varð. Kannski var það óskhyggja, því ég tilheyri eftir sem áður þeim hópi fólks sem tel- ur stefnu íslenskra stjórnvalda í áfengismálum gamaldags og úr- elta og ekki til þess fallna að bæta umgengni almennings við áfengi. Danska stefnan í áfengismálum er þó hins vegar tæpast til eft- irbreytni, ég leyfi mér aðeins að vona að hún sé ekki til marks um að Norðurlandabúar geti ekki umgengist áfengi af neinni skyn- semi, heldur að röng stefna hafi verið valin, að umburðarlyndið hafi ef til vill verið of mikið. Og að allt sé best í hófi. Er amma full? Danskir læknar segja eldra fólk drekka allt of mikið og það sama á við um börn og unglinga, þótt enn séu ekki margir sem taka undir það. VIÐHORF Eftir Urði Gunnarsdóttur urdur@mbl.is BORGARSTJÓRN Reykjavíkur ráðstafar nú Vatnsmýrinni eins og hún eigi mýrina sjálf og hafi átt skuldlausa frá landnámi. Þó hlýtur henni að vera ljóst að fyrir seinna veraldar- stríð bjó fjöldi Reykvík- inga á svæðinu sem lagt var undir breskan her- flugvöll með ofbeldi. Bæði vinaleg lögbýli með gæðum og áhalds- gögnum jafnt sem reisuleg íbúðarhús með mörgum fjölskyldum við heilu göturnar. Vatnsmýrin frá Öskju- hlíð að Grímsstaðarholti var eins og hvert annað blandað bæjarhverfi sem hélt sig vera langt frá heimsins vígaslóð. Eigi að síður voru þessir Reykvík- ingar sviptir bæði heimili sínu og eignum ásamt hamingju með bráða- birgðalögum ríkisstjórnar Her- manns Jónassonar um að taka eign- arnámi land við Skerjafjörð undir flugvöll hinn 16. nóvember 1940. Fólkið mátti horfa á eftir heimilum sínum og bújörðum undir flugbrautir eða fékk náðarsamlega að hunskast með húsin sín inn á Teiga í annað bæjarhverfi. Bætur frá stjórnvöldum voru ekki upp í nös á ketti. Meðferðin á þessum Íslendingum er hreinn og klár mannréttindaglæpur og best geymda feimnismál þjóðfélagsins sem nú þarf að opna upp á gátt. Landið í hers höndum Breskur her tók land á Íslandi vor- ið 1940 í óþökk íslensku þjóðarinnar. Hernámið var hertaka í orðsins fyllstu merk- ingu og landið var í hers höndum. Ríkis- stjórnin mótmælti her- náminu og sagði orð- rétt að „hlutleysi Íslands var freklega brotið og sjálfstæði þess skert“ og „mót- mælir íslenska ríkis- stjórnin kröftuglega of- beldi því, sem hinn breski herafli hefur framið“. Jafnframt sagði stjórnin ofbeldið vera brot á löglegum réttindum Íslands sem frjáls og fullvalda ríkis. Hermann Jónasson sagði í ávarpi til Íslendinga að Bretar hefðu „hertekið Reykjavík“ og að ríkisstjórnin hefði áður hafnað breskri hervernd. Dag- blöðin lögðu orð í belg í fréttum og leiðurum og töluðu ýmist um „her- nám“ eða „hertöku Íslands“. En hvað þýðir orðið hernám? Orðið hernám þýðir að hermenn hafi numið landið eða tekið frá lög- mætri ríkisstjórn og valdhöfum. Herinn ráði lögum og lofum í landinu þótt ríkisstjórnin fái að sitja áfram í herkví og nýrri leppstjórn ekki kom- ið á fót. En hvers virði er ríkisstjórn sem er beitt ofbeldi í hertekinni höf- uðborg í herteknu landi sem hún sjálf lýsir sem ríki með brotið hlutleysi, skert sjálfstæði og brotið fullveldi? Hvað er þá eftir af sjálfstæðistákn- um einnar þjóðar? Ríkisstjórn Ís- lands var í raun og veru jafn valda- laus og leppstjórnir Quislings norska og Kavals franska. En hvað kemur hernámið við splundraðri byggð í Vatnsmýri Reykjavíkur? Skerjafjarðarlögin og Kópavogsfundurinn Lögin um eignarnámið í Skerja- firði voru sett af ríkisstjórn sem réð ekki sínu eigin búi heldur stóð and- spænis Breska heimsveldinu gráu fyrir járnum. Flugvöllurinn var ekki lagður fyrir Íslendinga heldur Breta sem notuðu hann til hernaðarþarfa í styrjöld sem snerti ekki Íslendinga að því leyti. Óskir Breta um flugvöll voru bornar fram á byssustingjum á sama hátt og á Kópavogsfundinum. Amerískir bandamenn Breta kalla ofbeldi af þessu tagi haglabyssu- brúðkaup. Að vísu var bótum fleygt í húseigendur og fólk þiggur það sem að því er rétt til að forða fjölskyldu sinni frá vergangi þegar heimilin eru jöfnuð við jörðu í hernumdu landi í heimsstyrjöld. En kvittanir fólks fyr- ir „skaðabótum“ vegna eignarnáms við spjótsodda eru marklausar og detta niður dauðar og ómerkar dag- inn sem stríðinu lýkur. Skerjafjarð- arlögin hafa aldrei öðlast lýðræðis- legt gildi frekar en Kópavogsfund- urinn því þau eru samþykkt við sömu aðstæður. Lögin eru hluti af hörm- ungum stríðsins sem siðaðar þjóðir eru enn að leiðrétta um allan heim með því að færa eigendum aftur her- teknar eigur sínar og nú síðast í lönd- um Austur-Evrópu. Og spyrja má: Af hverju fengu fórnarlömb Skerjafjarðarlaganna ekki eignir Glæpirnir í Skerjafirði Ásgeir Hannes Eiríksson Stríðsminjar Hvað hefur íslenska ríkið haft miklar tekjur, spyr Ásgeir Hannes Eiríksson, af þessu illa fengna landi frá stríðslokum og til dagsins í dag? ALLIR sem hafa starfað í háskóla þekkja þá tilfinningu að hafa metnað fyrir hönd skólans og sinn- ar deildar. Fyrir þá er mikilvægt að kennsla við skólann og rann- sóknir á hans vegum haldi sínum sessi til þess að menntun þeirra verði metin af sanngirni í framtíð- inni. Forsenda þess að svo megi verða er að við skólann starfi hæfileikaríkt og dug- andi fólk sem laði að efnilega nemendur. Sem betur fer er málum Háskóla Íslands þannig háttað í dag en þrátt fyrir það eru ýmsar blikur á lofti og eigi orðstír skólans að haldast verður vakning að eiga sér stað. Samkeppni um starfsfólk Flestir gera sér grein fyrir mik- ilvægi þess að Ísland dragist ekki aftur úr í tæknibyltingu nútímans. Ekki er gott að treysta einungis á fiskvinnslu og stóriðju og hafa því margir bundið vonir sínar við ís- lenskt hugvit. Með fjölgun tækni- fyrirtækja landsins hefur eftir- spurn eftir vel menntuðu fólki aukist til muna. Háskóli Íslands stendur því frammi fyrir vanda- máli sem hann hefur ekki þurft að glíma við áður – mikilli samkeppni um starfsfólk. Á síðustu misserum hefur skól- um sem bjóða sambærilega mennt- un við menntun Háskóla Íslands fjölgað. Það verður að teljast já- kvæð þróun því æskilegt er að stúdentar hafi sem flesta valkosti í sínu námi og að Háskólinn hafi eðlileg viðmið í rekstri sínum. Sú hætta er þó alltaf fyr- ir hendi að Háskóli Ís- lands hafi ekki fjár- muni í að keppa við einkarekna skóla á háskólastigi því kenn- arar eru eins og annað launafólk og leita eftir góðum kjörum. Skólar sem hafa meiri fjárráð geta einnig boðið upp á betri náms- og kennsluaðstöðu. Því má teljast lík- legt að stúdentar horfi til þessara þátta þegar háskólanám er valið og er hætta á að gildi menntunar úr Háskólanum rýrni. Tækifæri fyrir þá sem bera hag Háskóla Íslands fyrir brjósti Árið 1995 voru Hollvinasamtök Háskóla Íslands stofnuð og er til- gangur samtakanna tvíþættur. Annars vegar er markmið þeirra að veita kandidötum og öðrum hollvinum Háskólans stuðning og tækifæri til að taka þátt í hinu aka- demíska samfélagi og hins vegar er hlutverk þeirra að styrkja skól- ann í baráttu sinni fyrir auknum gæðum menntunar og fræðistarfa. Samtökin hafa einnig yfirumsjón með starfi einstakra hollvinasam- taka skólans sem hafa nú verið stofnuð í flestum deildum. Nýjasta dæmið um slík samtök er stofnun Hollvinafélags við- skipta- og hagfræðideildar í Odda. Yfirlýstur tilgangur félagsins er að aðstoða viðskipta- og hagfræði- deild við að þjálfa fólk til foryst- ustarfa í íslensku atvinnulífi með öflugum stuðningi við starf hennar. Betri tengsl við atvinnulífið Vaka hefur lengi haft uppi hug- myndir um eflingu hollvinasam- taka innan deilda háskólans, sem hafa það að markmiði sínu að auka og efla tengsl deildanna við at- vinnulífið, fyrrum nemendur sína og aðra þá er bera hag þeirra fyrir brjósti. Þetta væri gert með það að markmiði að bæta kennslu og rannsóknastarf innan deildanna og aðstoða þannig við þjálfun einstak- linga sem í framtíðinni munu taka þátt í atvinnulífi þjóðarinnar. Til þess að samtökin geti sinnt hlut- verki sínu verður háskólafólk að leggja sitt af mörkum og samein- ast um betri háskóla. Því er mik- ilvægt að bæði fólk úr atvinnulífinu og stúdentar skrái sig sem fyrst í hollvinasamtökin til að geta tekið þátt í eflingu Háskóla Íslands og rannsóknastarfi hans. Eflum hollvinasamtök Háskóla Íslands Brynjólfur Stefánsson Samtök Mikilvægt er að fólk skrái sig sem fyrst í hollvinasamtökin, segir Brynjólfur Stefánsson, til að geta tekið þátt í eflingu Háskóla Íslands. Höfundur situr í atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs fyrir hönd Vöku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.