Morgunblaðið - 11.08.2001, Side 18
LANDIÐ
18 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR Sigurðsson,
fyrrverandi skólastjóri, er heið-
urslistamaður Borgarbyggðar
árið 2001 og fékk þá útnefningu í
upphafi sumars á setningu Borg-
arfjarðarhátíðar í Reykholti.
Hann var þá staddur í sumarfríi
á Spáni en sendi elsta son sinn
til að taka við viðurkenningar-
skjali og fjárupphæð. Guðmund-
ur segir þetta vera mikinn heiður
fyrir sig og hvatningu til þess að
halda áfram í listsköpun og að
aðalatriðið sé að vinna sín sé
metin.
Listamaðurinn fæddist á
Hornafirði árið 1936 og bjó þar
til 8 ára aldurs. Þá flutti hann til
Reykjavíkur og segir stundum að
þá hafi æskunni lokið.
Eftir að Guðmundur kom til
Reykjavíkur gekk hann í Lind-
argötuskóla hjá Jóni Gissurar-
syni, síðan í Gaggó Aust og fór
þaðan í Kennaraskólann. Þar var
listnám skylda alla fjóra veturna
og kenndi Jóhann Briem. Meðal
annars var lagt upp úr töflu-
teikningu eða hvernig kennari
gæti teiknað á töfluna og tekið
próf í þessu. Annars listnáms afl-
aði Guðmundur sér í Danmörku
veturinn 1973–74 í danska kenn-
araháskólanum.
Skrapp í Borgarnes
Árið 1959 skrapp Guðmundur í
Borgarnes og er þar enn. „Fyrst
kom ég sem kennari við gagn-
fræðaskólann og kenndi raun-
greinar. Ég tók við skólastjórn
1978 og hætti 1998. Mér fannst
þetta kjörinn tími til að hætta,
en ég er þó enn að kenna fáeina
tíma í grunnskólanum. Áður
hafði ég þessa myndlist og sköp-
un sem tómstundagaman en
núna er það orðið að aðalstarfi
og þá er kennslan hobbí.“ Guð-
mundur segir að listsköpunin
hafi verið sér slökun og losað
hann við stressandi hversdag-
leikann. Hann kenndi teikningu í
mörg ár en segir hins vegar að á
meðan hafi hann ekkert teiknað
sjálfur.
Guðmundur hefur málað með
olíukrít og olíulitum auk þess að
vinna skúlptúra úr leir og tré.
Peysufatakonur, englar, dvergar
og jólasveinar eru meðal þess
sem hann hefur töfrað fram. „Ég
á svo góða nágranna og vini, þeir
sem fella tré úr görðunum sínum
koma með þau til mín.
Jólasveinarinir eru allir gerðir
úr reynitrjám og það er virkilega
gaman að smíða úr íslenskum
við. Ég hef líka málað alveg
ógrynni á drumba eða rekavið,
þeir gefa manni sjálfir myndefn-
ið,“ segir Guðmundur. „Ég hef
teiknað mikið af allskonar merkj-
um og fánum, t.d. merki Vírnets,
Vöruflutninga Vesturlands, ég
hef teiknað í ferðabæklinga og
jólakort, síðast fyrir Félag
heyrnleysingja, og svo hef ég
teiknað eigin jólakort alveg frá
1970 að sjálfsögðu.“
Borgarfjörður
í nýju ljósi
Fyrstu sýninguna hélt Guð-
mundur í Borgarnesi í stúkuhús-
inu árið 1962. Hann sýndi þá
myndir unnar úr olíukrít og
nokkrar olíumyndir. Hann hefur
haldið fjórar einkasýningar í
Borgarnesi, eina í Munaðarnesi,
Hveragerði og austur á Horna-
firði, auk samsýninga hér, í
Reykjavík, Noregi, Danmörku og
Svíþjóð.
„Ég hef verið mjög lánsamur
að selja nánast allt upp á sýn-
ingum og sýningarnar hafa gefið
mér þá athygli sem þarf til að
selja áfram.
Gallerí fyrir sunnan eru að fal-
ast eftir verkum, en það er
reyndar þurrabúð hjá mér núna.
Ég þarf að sinna þessu, því sem
betur fer eru alltaf einhverjir
sem vilja eiga það sem ég bý til,
og ég er mjög ánægður með
það,“ segir Guðmundur og bætir
við að sig langi til að setja upp
sýningu sem heitir „Borgarfjörð-
ur í nýju ljósi“ og er þá að hugsa
um mótív héðan úr Borgarfirði
sem hann myndi þá skálda upp.
„Ég hef mikið glímt við Hafn-
arfjallið og er enn að glíma við
það. Það er erfitt að gera mynd-
efni úr þessu fjalli, það er yf-
irþyrmandi ef maður málar það,
þá eiginlega gleypir það alltaf
alla myndina.
Ég er alveg ákveðinn í að
vinna þetta fjall og gera eitthvað
úr því.“
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Guðmundur málar foss.
Guðmundur Sigurðs-
son heiðurslistamaður
Borgarbyggð
Tréskúlptúrinn „dans aldanna“
eftir Guðmund.
UM helgina verður 50 ára afmæli
Þorlákshafnar minnst með fjöl-
breyttri dagskrá. Dagskráin í dag
hefst á hafnarsvæðinu þar sem
bæjarbúum, gestum og gangandi
verður boðið til morgunverðar.
Hátíðarmessa veður í kirkjunni kl.
10.30 og klukkustund síðar verður
hátíðarstund við Ráðhúsið þar
sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhjúpar listaverk eftir
Helga Gíslason, myndhöggvara.
Eftir hádegi verður fjölbreytt
skemmtun á hafnarsvæðinu þar
sem m.a. fyrirtæki í Þorlákshöfn
kynna afurðir sínar og gefa að
smakka, boðið verður upp á
skemmtiatriði og leiktæki fyrir
börnin ásamt veitingasölu og
harmonikkuleik. Um kvöldið verð-
ur kveiktur eldur, sunginn fjölda-
söngur og skotið upp flugeldum.
Að lokum verður stiginn dans á
bryggjunni. Sesselja Jónsdóttir,
bæjarstjóri Ölfuss, segir það von
bæjarstjórnar Ölfuss og allra
þeirra sem koma að undirbúningi
afmælisins að bæjarbúar taki þátt
í hátíðarhöldunum og að margt
góðra gesta sæki Þorlákshöfn
heim í tilefni afmælisins. Allir séu
hjartanlega velkomnir.
Forsetinn heim-
sækir Þorlákshöfn
Þorlákshöfn
Þorlákshafnarbúar kunna vel að meta sundlaugina og ætti enginn sem
þangað kemur sem gestur að láta þessa paradís fram hjá sér fara.
Morgunblaðið/Jón H. Sigmundsson
SUMARIÐ er útivistartími kúnna
og kærkomin tilbreyting fyrir þær
frá því að vera lokaðar inni í fjós-
um. Oft bera þær í haganum og
leita þá út úr kúahópnum til þess
að vera einar hjá kálfunum í háu
grasi eða næstu laut þar sem fáir
sjá til. Ef langt er í fjósið er óvíst
að nýfæddir kálfar geti gengið alla
leið heim og því þarf að leita að far-
artæki. Þá koma hjólbörurnar í góðar
þarfir og getur talist ágætur „barna-
vagn“ þegar svo ber undir.
Kýrin Humla í Reykjahreppi var
Ánægð
kýr í
haganum
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
ánægð með þetta fyrirkomulag og elti
kálfinn í hjólbörunum langa leið í fjós-
ið sitt eftir að hafa karað hann og
snyrt næturlangt og leyft honum að
sjúga að vild.