Morgunblaðið - 11.08.2001, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 29
Útsala
20-40% afsláttur
Opnunar-
tími
mán.-fös.
10–18,
lau. 10–16 og
sun. 13–16.
Lækkað verð á
- speglum í viðarrömmum,
- skenkjum,
- stólum,
- garðhúsgögnum,
- bastkommóðum,
- bókahillum,
og mörgu mörgu fleira.
Stærð 120x70 cm.
Verð áður kr. 23.500,
nú kr. 18.800.
Stærð: Hæð 90 cm, lengd 150 cm,
dýpt 45 cm. Verð áður kr. 69.000,
nú kr. 59.000.
Oval borðstofuborð, stækkanlegt, á hjólum.
Stærð: Hæð 78 cm, breidd 120 cm, lengd 200 + 40 +
40 cm, og 8 stykki stólar með leðri í setu.
Verð áður kr. 258.200, nú kr. 199.000.
Stærð: Hæð 206 cm, breidd 202 cm,
dýpt 38 cm. Verð áður kr. 69.000
-30%, nú kr. 48.300.
Piramid kommóða. Verð áður
kr. 8.900, nú kr. 5.900.
Stærð 140x80x48 cm.
Verð áður kr. 49.000
-20%, nú kr. 39.200.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogi,
sími 544 4420
Lesandi, sem er kona um átt-
rætt, hafði farið í skoðunarferð
til slökkviliðsins með sínu kven-
félagi. Þessir indælu menn
mældu hjá þeim blóðþrýstinginn
og sitthvað fleira. Svo sögðu
þeir henni að það vantaði líklega
súrefni í blóðið hjá henni og að
blóðþrýstingurinn væri 205/102.
Spurning: Hvað þýðir að mig
vanti súrefni í blóðið og hvað er
þá helst til ráða?
Svar: Fyrst er að nefna blóð-
þrýstinginn sem er of hár og er
ástæða til að láta mæla hann
aftur til að kanna hvort hann er
áfram svona hár, sem er ekki al-
veg víst. Ef blóðþrýstingurinn
er áfram of hár gæti verið
ástæða til að gefa blóðþrýstings-
lækkandi lyf. Æskilegt er að
blóðþrýstingurinn sé ekki mikið
hærri en 140/90 en á þessum
aldri er ekki alltaf ástæða til að
eltast við það markmið.
Í blóðinu eru rauð blóðkorn
og í þeim er blóðrauðinn
(hemóglóbín). Blóðrauðinn er
stór sameind sem inniheldur
járn, getur bundið súrefni og
flutt það um líkamann. Það er
þannig hlutverk blóðrauðans og
rauðu blóðkornanna að binda
súrefni í lungunum og flytja það
til allra vefja líkamans sem
verða að fá súrefni til að geta
lifað og starfað eðlilega. Við
eðlilegar aðstæður hjá ungu
fólki er blóðrauðinn því sem
næst 100% mettaður af súrefni í
blóðinu sem kemur frá lung-
unum og er að finna í slagæðum
líkamans. Súrefnismagn blóðsins
ákvarðast bæði af lungna-
starfsemi og ástandi hjarta og
æðakerfisins. Eitt af því sem
gerist hjá öldruðum er að súr-
efnismagn blóðsins (súrefn-
ismettun blóðrauðans) minnkar
vegna minnkaðrar starfsemi
lungna og hjarta og teljast þess-
ar breytingar til eðlilegra breyt-
inga sem fylgja öldrun. Ým-
islegt óeðlilegt getur einnig
orðið til þess að súrefnismagn
blóðsins minnkar og ef súrefn-
ismettunin fer undir 85% getur
sést blámi t.d. á vörum. Svona
breytingar geta orðið við hjarta-
bilun og ýmiss konar lungna-
sjúkdóma. Sumir anda illa
vegna offitu, lömunar eða of-
skömmtunar vissra lyfja og get-
ur það leitt til lágrar súrefn-
ismettunar í blóði. Sama er að
segja um nokkra tiltölulega al-
genga lungnasjúkdóma eins og
langvinna lungnateppu-
sjúkdóma, astma og lungnabjúg.
Hægt er að gera tiltölulega ein-
föld próf til að kanna hvort or-
sakir súrefnisskorts í blóði er
frekar að finna í lungum eða í
hjarta og æðakerfi. Eitt af því
sem margir geta gert til að
bæta súrefnismagn í blóði er að
bæta líkamlegt ástand sitt með
því að grennast og stunda
heppilega hreyfingu eða líkams-
þjálfun. Ef um er að ræða sjúk-
dóma í lungum eða hjarta þarf
að meðhöndla þá eins og kostur
er og forðast lyf eða annað sem
slævir öndun. Þeir sem eru með
lungnabilun, oftast vegna lang-
varandi reykinga, geta þurft á
stöðugri súrefnisgjöf að halda
og þurfa alltaf að hafa súrefn-
iskút hjá sér.
Hvernig sem allt snýst ætti
bréfritari að fara til læknis og
láta kanna ástand sitt.
Getur vantað
súrefni í blóðið?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Rauð
blóðkorn
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á hjarta.
Tekið er á móti spurningum á virkum dög-
um milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100
og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok.
Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent
fyrirspurnir sínar með tölvupósti á net-
fang Magnúsar Jóhannssonar:
elmag@hotmail.com.