Morgunblaðið - 11.08.2001, Síða 49
FJÖLBREYTT dagskrá verður á Árbæjarsafni um
helgina. Herdís Jónsdóttir og Steef van Oosterhout leika
saman á víólu og marimbu í safninu í dag, laugardag, kl.
14. Efnisskráin samanstendur af íslenskum þjóðlögum
og öðrum kunnum lögum. Á morgun, sunnudag, verður
handverksdagur og mun fjöldi handverksmanna og
-kvenna sýna gamalt handverk. Eins og aðrar helgar
verður mikið um að vera fyrir börnin í Dillonshúsi.
Tónlist og handverk í Árbæjarsafni
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 49
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl.
13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um veru
franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sumar kl.
10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: alber-
te@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði, s.
423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og eftir
samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykjavík.
Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá 11. júní til 13.
ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Frá 21.5. til 19.8. er opið sem hér segir: mán.–fös. kl. 9–17,
lau. 10–14. Sun. lokað. Þjóðdeild og handritadeild lokaðar
á laugard. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Op-
ið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og
Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er
alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla
virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16. Að-
gangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtu-
daga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Netfang/
E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn@reykja-
vik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstudaga–mið-
vikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–sept-
ember kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799.
reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími 575-
7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt
handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safn-
búð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kand-
ís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/El-
liðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffi-
stofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan
opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bréfas: 552 6476.
Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://
www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin:1. júní - 25. ágúst mánudaga -
laugardaga kl. 11.00 - 16.00
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla daga
kl. 10–18. Opnað fyrir hópa utan þess tíma. Forsýning á
safni Landmælinga Íslands. Maríukaffi býður upp á góm-
sætar veitingar. Til sölu steinar, minjagripir og íslenskt
handveerk. S. 431 5566. Vefsíða: www.islandia.is/steina-
riki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pantað
leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum 861-
0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lok-
aðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
Í DAG, laugardag, mun umhverfis-
ráðherra, Siv Friðleifsdóttir, afhjúpa
nýja útsýnisskífu á Reykjaneshyrnu
í Árneshreppi á Ströndum. Athöfnin
markar upphafið á umfangsmiklu
verkefni undir handleiðslu Land-
verndar um að merkja sérstaka staði
til að vekja athygli á gildi menning-
ar- og búsetuminja í Árneshreppi á
Ströndum og styðja framþróun
ferðaþjónustu og útvistar á svæðinu.
Verkefnið í Árneshreppi á Strönd-
um er styrkt af The Seacology
Foundation, Umhverfissjóði versl-
unarinnar og Þjóðhátíðarsjóði.
Ný útsýnisskífa
á Reykjanes-
hyrnu
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist tekur
upp þráðinn þar sem frá var horfið
fyrr í sumar með göngu um Reykja-
veginn, gönguleiðina sem liggur eftir
endilöngum Reykjanesskaganum frá
Reykjanestá til Þingvalla.
Sunnudaginn 12. ágúst verður
gengin 6. áfangi af 10 og er farið frá
Vatnsskarði í Bláfjöll. Brottför er
kl.10.30 frá BSÍ og ekin Krýsuvíkur-
vegur í Vatnsskarð þaðan sem gengið
er um Breiðdal og Grindaskörð til
Bláfjalla og er þetta 6–7 klst. ganga.
Verð. er 1.500 kr. fyrir Útivistar-
félaga en 1.700 kr. fyrir aðra. Far-
miðar eru seldir í miðasölu BSÍ.
Gengið um
Reykjanes
GUNNAR Hamnöy, starfsmaður
norska lúterska kristniboðssam-
bandsins, og Helgi Hróbjartsson
kristniboði verða aðalræðumenn á
samkomuþrennu sem Samband ís-
Samkomu-
þrenna í Kristni-
boðssalnum
TÍÐAGJÖRÐ og staðarskoðun verð-
ur daglega í Strandarkirkju í Selvogi
11.–17. ágúst. Morgunbænir verða
kl. 9 og aftansöngur kl. 18 og stað-
arskoðun kl. 14.
Tíðagjörðin er sungin eftir hefð-
bundnu Gregortóni sem þróaðist í
Vesturkirkjunni, sérstaklega í
klaustrum frá fimmtu öld og sungið
var hér á landi frá upphafi kristni til
þess að stólsskólarnir voru lagðir
niður á Hólum og í Skálholti.
Kirkjuvörður í Strandarkirkju
þessa daga er Dr. Pétur Pétursson
guðfræðiprófessor.
Tíðagjörð í
Strandarkirkju
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
FLUGMÁLASTJÓRN Íslands
sendi í gær frá sér eftirfarandi yf-
irlýsingu:
„Í ljósi þeirrar umræðu, sem fram
hefur farið undanfarna daga um
björgunaraðgerðirnar í Skerjafirði í
kjölfar hins hörmulega flugslyss
fyrir rúmu ári, er óhjákvæmilegt að
eftirfarandi staðreyndir komi fram:
1. Í byrjun júní á síðastliðnu ári tók
gildi þjónustusamningur um
slökkvi- og björgunarþjónustu á
Reykjavíkurflugvelli þar sem
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
(SHS) tekur að sér að annast
slökkvi- og björgunarstörf og verk-
efni sem lúta að öryggismálum. Á
sama tíma var Slökkvilið Flugmála-
stjórnar á Reykjavíkurflugvelli lagt
niður og starfsmenn þess fluttust til
SHS eða hættu störfum. Samkvæmt
samningnum tekur SHS á sig víð-
tækar skyldur við endurnýjun á
slökkvi- og björgunarbúnaði á flug-
vellinum auk þess að bera ábyrgð á
rekstri þjónustunnar, þ.m.t. stjórn-
un björgunaraðgerða. Óútkljáð var
með hvaða hætti ætti að fjármagna
kaup á björgunarbáti en á fundi
þann 7. ágúst sl. var samstaða um að
þetta væri samstarfsverkefni og
báturinn því fjármagnaður af báð-
um aðilum. 2. Á vegum SHS var svo-
nefnd innri skýrsla slökkviliðsins
um björgunaraðgerðirnar samin
þann 31. ágúst á síðasta ári, þ.e.
rúmum þremur vikum eftir slysið.
Skýrslan var afhent Flugmálastjórn
27. júlí síðastliðinn eða tæpum ellefu
mánuðum frá samningu hennar. Allt
fram til þess tíma hafði Flugmála-
stjórn enga vitneskju um þessa
skýrslu og aldrei fengið aðrar upp-
lýsingar um atburðarásina en þær
að björgunin hefði gengið eftir eins
og best var á kosið við þær aðstæður
sem voru á slysstað og lífgunartil-
raunir hafi hafist þegar í stað.
Myndband, sem íbúi í Skerjafirði
tók af björgunaraðgerðunum og
SHS hafði fengið í hendur, var af-
hent Flugmálastjórn á fundi FMS
með fulltrúum SHS þann 7. ágúst
síðastliðinn. 3. Í innri skýrslu SHS
um björgunaraðgerðirnar kemur
fram að 8 mínútur líði frá því að
fyrsti farþeginn er kominn um borð
í björgunarbát flugvallarins þar til
endurlífgun hefst. Þessar upplýs-
ingar hafa verið margendurteknar í
umfjöllun fjölmiðla á undanförnum
dögum í tengslum við yfirlýsingar
Jóns Viðars Matthíassonar varas-
lökkviliðsstjóra um atburðarásina. Í
þessari umfjöllun hefur stærð
björgunarbátsins verið gerð að aðal-
atriði, sem hafi gert það að verkum
að ekki hafi verið hægt að hefja end-
urlífgunartilraunir fyrr en í landi. Í
innri skýrslu SHS um björgunarað-
gerðirnar kemur þó eftirfarandi
skýrt fram: Þrátt fyrir plássleysi í
616 (björgunarbátnum) er athug-
andi hvort ekki hefði verið hægt að
gera frumtilraunir við endurlífgun.
Það er athyglivert að þessar upplýs-
ingar hafa hvergi komið fram í um-
fjöllun fjölmiðla eða hjá þeim sem
hafa tjáð sig um málið og haft hafa
innri skýrsluna undir höndum.
4. Yfirmaður leitar og björgunar
FMS, Hallgrímur N. Sigurðsson,
leggur til í minnisblaði dagsettu 14.
nóvember 2000 að keyptur verði nýr
björgunarbátur og hann fjármagn-
aður af flugmálaáætlun árið 2002.
Enda hafði samgönguráðherra lýst
þeim vilja stjórnvalda á rýnifundi
átta dögum eftir slysið að ekkert
yrði til sparað til að besti fáanlegi
björgunarbúnaður væri til staðar á
flugvellinum. Ljóst er af fundar-
gerðum frá samráðsfundum FMS
og SHS um málefni slökkviliðs flug-
vallarins að full samstaða var hjá
báðum aðilum um þann framgang
málsins sem yfirmaður leitar og
björgunar lagði til, þ.m.t. tímasetn-
ingu þessara kaupa. Í kjölfar þess-
arar tillögu fóru fram nokkrar um-
ræður um hvort eðlilegt væri að
FMS bæri allan kostnað af þessum
innkaupum í ljósi þess þjónustu-
samnings sem er í gildi milli aðila.
Þessi skoðanamunur, sem reynt
hefur verið að blása upp í umfjöllun
sumra fjölmiðla, var endanlega
leiddur til lykta á fundi SHS og
FMS síðastliðinn þriðjudag eins og
áður hefur verið frá greint.
5. Í umfjöllun um framangreint
minnisblað yfirmanns leitar og
björgunar, sem Flugmálastjórn af-
henti einum aðstandenda fórnar-
lambs flugslyssins þann 4. maí síð-
astliðinn, hefur öll áhersla verið lögð
á mat hans á núverandi björgunar-
bát flugvallarins. Tillögur hans til
úrbóta, og þá sérstaklega tímasetn-
ing þeirra, hafa einhverra hluta
vegna ekki þótt jafnathygliverðar.
Flugmálastjórn hefur aldrei legið á
þeirri skoðun sinni að þeir sem
komu að björguninni hafi staðið sig
mjög vel. Þessi skoðun stofnunar-
innar hefur ekki breyst þrátt fyrir
þær upplýsingar sem fram koma í
innri skýrslu Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins og hafa verið uppistað-
an í umræðu fjölmiðla um málið
undanfarna daga. Það er sérkenni-
legt hvernig reynt hefur verið að
snúa út úr þessari skoðun stofnun-
arinnarsem flugmálastjóri setti
fram í viðtali við Ríkisútvarpið.
Sjálfsgagnrýni af því tagi, sem fram
kemur í skýrslu SHS, er hins vegar
sett fram til að bæta megi alla þætti
björgunaraðgerða þ.m.t. vinnu-
brögð og búnað og endurspeglar
vilja björgunaraðila til að skoða eig-
in gerðir. Sú viðleitni tekur engan
endi fremur en stöðug vinna Flug-
málastjórnar að bættu flugöryggi.“
Yfirlýsing frá Flug-
málastjórn Íslands
LAUGARDAGINN 11. ágúst mun
Evró hf., umboðsaðili Piaggio-vespa
á Íslandi, standa fyrir svokölluðum
vespudegi. Öllum eigendum vespa á
Vespudagurinn
haldinn á Íslandi
♦ ♦ ♦
lenskra kristniboðsfélaga gengst
fyrir dagana 13. til 15. ágúst í
Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut
í Reykjavík. Samkomurnar hefjast
kl. 20.30.
Helgi Hróbjartsson hefur um ára-
bil starfað að kristniboðs- og hjálp-
arstörfum í Eþíópíu og Gunnar
Hamnöy hefur nokkrum sinnum áð-
ur komið til Íslands og talað á sam-
komum Kristniboðssambandsins.
Mun Gunnar tala á samkomu á
mánudag og sýna myndir en Helgi
verður aðalræðumaður á samkomum
þriðjudag og miðvikudag. Þá mun
Gunnar Hamnöy tala á samkomu í
húsi KFUM og K við Holtaveg næst-
komandi sunnudag kl. 17.
MENNINGARMIÐSTÖÐ Horna-
fjarðar stendur fyrir fjölskylduferð
um söguslóðir Þórbergs og Stein-
þórs Þórðarsona á Hala sunnudag-
inn 12. ágúst nk. Farið verður í rat-
leik sem tengist útiveru og fræðslu
um sögu og mannlíf. Valdir kaflar úr
bókum Þórbergs og Steinþórs verða
á hverjum stað.
Mæting er við minnisvarðann ofan
við Hala á tímabilinu kl. 13–15.
Söguferð með
Þórbergi
♦ ♦ ♦
Íslandi er boðin þátttaka.
Samkvæmt bifreiðaskrám er enn
þó nokkuð af vespum árgerða fyrir
1970 skráðar. Elsta vespan er frá
árinu 1954 og verður hún til sýnis í
sýningarsal Evró á laugardaginn.
Skráning í Vespuklúbb Íslands
stendur yfir. Klúbburinn stendur
fyrir hópakstri um Reykjavík á laug-
ardaginn. Lagt verður af stað frá
Evró í Skeifunni um kl. 13:30.
♦ ♦ ♦
Helga Möller
á Players-
Sportbar
HLJÓMSVEITIN Hot and Sweet
og Helga Möller sem slógu í gegn á
kántrýhátíð á Skagaströnd um versl-
unarmannahelgina verða á Players-
Sportbar í Kópavogi föstudags- og
laugardagskvöld.
Hljómsveitina skipa Helga Möller,
Birgir J. Birgisson og Hermann I.
Hermannsson.