Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 49
Gull
er gjöfin
Gullsmiðir
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga
PRÓF. Jón G. Friðjónsson
sendi mér bréf sem mér þótti
betur fengið en ófengið. Ég
leyfi mér að birta hér með
þökkum meiri hluta þess og
vek sérstaklega athygli á ný-
yrðunum sem koma í stað e.
handout. En bréfið talar skýrt
sínu máli, og þarf umsjónar-
maður síst að umskrifa það:
„Kæri Gísli.
Ég mun hafa sagt þér að mér
blöskrar ofnotkun dvalarhorfs,
einkum í máli íþróttamanna.
Nú er svo komið að ég fæ ekki
orða bundist. Ég ræddi þetta
við Boga Ágústsson og niður-
staðan varð sú að ég kæmi á
fréttastofu sjónvarps og ræddi
um þetta atriði við starfsfólk.
Ég hef þegar átt tvo slíka fundi
með starfsfólki og mun eiga tvo
til viðbótar.
Ég tók saman nokkurs konar
yfirlitspistil um þetta en býst
ekki við að margir nenni að lesa
hann. Því tók ég einnig saman
dreifildi/úthendu sem ég fer yf-
ir með fólkinu. Öll dæmin sem
þar er að finna eru raunveru-
leg. Ég sendi þér þetta til gam-
ans og þér er vitaskuld frjálst
að nota þetta eins og þú vilt. Á
vormisseri mun ég kenna hag-
nýta málnotkun með tilliti til
erlendra áhrifa og þá hyggst ég
hamra á þessu, helst fela nem-
endum verkefni, t.d. að safna
slíkum dæmum. Ég er því mið-
ur hræddur um að mín viðleitni
hrökkvi skammt en mér finnst
þó að við íslenskumenn verðum
að spyrna á móti broddunum.
Nú vík ég að öðru atriði. Ég
sá í einum af þínum ágætu
pistlum að kennari kvartaði
undan því að nemendur sínir
væru ekki sáttir við að segja:
Áttu nokkurt súkkulaði? Það
gladdi mig satt að segja því að
það ber að mínu mati málkennd
nemenda gott vitni. Ég held að
nokkuð standi sem atviksorð í
setningunni: Áttu nokkuð
súkkulaði?, sbr. Áttu kannski
súkkulaði? [Hast du viel-
leicht …; Do you perhaps
have …; Har du måske …].
Gamla og góða reglan um notk-
un nokkuð (no.) og nokkurt (lo.)
á því ekki við í þessu tilviki.“
Kristján Marinó Falsson
skáld skrifar mér svo:
„Kæri Gísli!
Undirritaður hefur hugann
við Eistland í þessu bréfi. Til að
koma strax að efninu, þá þykir
mér alveg hörmung að kalla
íbúa þessa lands Eista, og þar
sem ég hef átt heima í nokkur
ár í nálægð við þessa þjóð, legg
ég til að við köllum íbúana Eist-
lendinga.
Íbúar Íslands heita Íslend-
ingar, og við myndum aldrei
sætta okkur við að þjóðin kall-
aðist „Ísar“ eða „Ísir“. En fyrir
mér er þetta nákvæmlega sama
og Eistlendingar, en hvorki
„Eistar“ eða „Eistir“. Eisti er
hörmungarþýðing á ensku
Estonian. En þetta legg ég í
þinn dóm og vona að sem flestir
geti orðið mér sammála, og
einkum væri vonandi að Eist-
lendingar kæmist í íþrótta-
fréttir blaða og útvarps.“
Umsjónarmaður getur sem
best tekið undir þessa tillögu,
og athyglisvert er að Árni
Böðvarsson gefur fyrst orðið
Eistlendingur, en síðar Eisti
um mann frá Eistlandi. Hvor-
ugkynsnafnorðið eista fælir
okkur frá því að hafa fleirtöl-
una Eistar, um Eista o.s.frv.,
en í fornu máli var þjóðin nefnd
Eistr eða Eistrir. Eistr yrði
Eistur í nútímamáli, og það er
ekki viðkunnanleg fleirtala.
Niðurstaða: Köllum íbúa
Eistlands Eistlendinga.
Metfé er í Orðabók Menning-
arsjóðs skilgreint svo: „verð-
mikill hlutur, úrvalsgripur, eða
eitthvað sem var svo dýrmætt
að meta varð það sérstaklega.“
Þetta er alveg í samræmi við
máltilfinningu umsjónarmanns.
Í Blöndalsorðabók er þetta
skýrt svo á dönsku: „Særlig
værdigfuld Genstand el[ler]
dyr …“ og síðan er bætt við
dæmi um óeiginlega merkingu
á íslensku: „Kver þetta má
kalla metfé.“ (úr Eimreiðinni
XVII).
Í orðabók Fritzners yfir
fornmálið segir að metfé sé
eignir sem verði að meta sér-
staklega, ef þær eigi að ganga
upp í gjald eða borgun.
Umsjónarmaður setur þetta
á blað vegna þess að orðið hef-
ur enn fengið nýja merkingu:
fjárhæð sem er svo há að hún
slær öll fyrri met. Þetta er
einkum haft um gjald fyrir af-
burðamenn í íþróttum, t.d. við
félagaskipti. Einhver leikmað-
ur var seldur fyrir metfé. Mér
þótti þetta svolítið hæpið fyrst,
en ég sætti mið við það. Metfé
er í sjálfu sér mjög gott orð, og
merking orða hefur oft breyst í
aldanna rás, enda má tunga
okkar ekki verða steingerving-
ur, þótt við vöndum hana og
verjum.
Sigfríður sunnan kvað:
Honum Brynjólfi heitnum á Bóli
var brattgengur mannlífsins skóli;
margt fékk hann kaunið
og fór mjög oft á Hraunið
í minningu Kalla á Hóli.
Umsjónarmaður hefur verið
spurður um nafnið Darri, en
vinsældir þess hafa farið vax-
andi nú hin síðari árin. Þegar
ég heyri þetta nafn, detta mér
fyrst í hug Darraðarljóð sem
varðveitt eru í Njáluhandrit-
um. Það var orustukvæði, enda
merkir darraður=(kast) spjót,
og sömuleiðis orðið darr, hvor-
ugkyns. Líklega er þetta skylt
sögninni að derra sig, og kem-
ur þá að þeirri niðurstöðu sem
algeng er á nöfnum karla, að
þau merkja hermaður.
Darri kemur ekki fyrir eitt
sér í fornum heimildum og ekki
í bók Þorsteins hagstofustjóra
um íslensk skírnarnöfn 1921–
50. En í þjóðskrá voru komnir
25 1982, og í sams konar skrá
1989 51. Þetta var síðara nafn
þrjátíu og tveggja í þeim hópi.
Þá hringdi Guðlaug Ágústs-
dóttir og fannst lýsingarorðið
margur í hættu. Í staðinn væri
þrástagast á „mikið af“. Þessar
áhyggjur Guðlaugar eru því
miður ekki ástæðulausar. Þá
rifjaði hún upp að gamall kenn-
ari hennar í Flensborg, Þor-
valdur Jakobsson, hefði sagt
þeim að ástæðulaust væri að
forðast sögnina að éta. Honum
fannst sögnin að borða eigin-
lega frekast merkja að leggja á
borð, en ef mönnum þætti éta
gróft og dýrslegt, mætti allt-
jent nota gerðina að eta.
Auk þess er þgf.flt. af banani
banönum, ekki „bönunum“.
Seinni orðmyndin er af orðinu
bani sem bæði merkir dauði og
banamaður.
ÍSLENSKT MÁL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1124. þáttur
MIKLAR endurbætur hafa verið
gerðar á dvalarheimilinu í Stykk-
ishólmi. Nýr borðsalur var tekinn
í notkun. Hann var stækkaður
með viðbyggingu úr gleri. Þá var
eldhúsið endurnýjað og öllum
tækjum skipt út. Skipavík í
Stykkishólmi sá um breytingarn-
ar og eldhústækin voru keypt frá
A. Karlssyni.
Að sögn Jóhönnu Guðbrands-
dóttur, forstöðukonu dvalarheim-
ilis, hafa breytingarnar tekist vel.
Borðsalurinn var fyrir löngu orð-
inn of lítill og lítið hefur verið
gert fyrir eldhúsið þau 40 ár sem
húsið hefur verið í notkun, fyrst
sem heimavist Grunnskólans og
frá 1978 sem dvalarheimili. Nýi
borðsalurinn er bjartur og fær
sólin að skína meira og færir yl
til heimilisfólksins. Kostnaður við
breytingarnar á dvalarheimilinu
eru áætlaðar um 18 milljónir
króna.
Við dvalarheimilið starfa 16
manns í 9 stöðugildum. For-
stöðukona er Jóhanna Guð-
brandsdóttir og tók hún við starfi
í vor af Kristínu Björnsdóttur.
Byggt við
dvalarheim-
ilið í Stykk-
ishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Heimilisfólkið á dvalarheimilinu í Stykkishólmi er ánægt með hvernig
til hefur tekist með breytingar á borðsalnum og er salurinn mun bjart-
ari og hlýlegri. Fremst á myndinni eru Hjálmfríður Hjálmarsdóttir og
Rannveig Guðmundsdóttir að gæða sér á kvöldmatnum.
SUNNUDAGINN 26. ágúst er kom-
ið að göngudegi SPRON og FÍ. Í
þetta sinnið verða tveir valkostir í
boði.
Annars vegar verður gönguglöð-
um boðið í fjölbreytta gönguferð frá
Hveragerði til Þingvalla. Liggur
leiðin úr Rjúpnabrekkum, um
Reykjadali, fram hjá rótum Ölkeldu-
hnúks, með Ölfusvatnsá og gljúfrum
hennar. Þetta er áætluð 4–6 klst.
ganga og vegalengdin er rúmir 14
km. Landslagið er fagurt og fjöl-
breytt með sterkum og fjölbreyttum
gróðri, litskrúðugum hverum og fag-
urri útsýn, segir í fréttatilkynningu.
Hins vegar verður efnt til göngu
við Þingvallavatn í samvinnu við
þjóðgarðsvörð þar og er sú ferð ætl-
uð þeim sem treysta sér síður í
lengri göngur. Í þessari ferð er
reiknað með 3 klst. göngu, að mestu
eða alveg á láglendi. Brottför í lengri
ferðina er kl. 10.30 frá BSÍ og komið
við í Mörkinni 6 en lagt verður af
stað í Þingvallaferðina kl. 13, einnig
frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6.
Þessar ferðir eru sérstakt sam-
starfsverkefni SPRON og FÍ og í
boði Sparisjóðsins þannig að þátt-
takendur þurfa ekki greiða neitt far-
gjald. Að auki fá þeir svo þjóðlegar
veitingar í leiðarlok, segir í fréttinni.
Allir eru velkomnir.
Göngudagur
SPRON og FÍ
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Skipu-
lagsstofnun:
„Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum
undanfarið um að í úrskurði Skipu-
lagsstofnunar um mat á umhverfis-
áhrifum Kárahnjúkavirkjunar sé
fjallað um athugasemdir eða gagn-
rýni sem fram hefur komið við at-
hugun Skipulagsstofnunar, en ekki
um jákvæða afstöðu einstakra
umsagnaraðila til virkjunarinnar,
vill stofnunin koma eftirfarandi á
framfæri:
Í úrskurðum Skipulagsstofnunar
um mat á umhverfisáhrifum er
fjallað um jákvæð og neikvæð áhrif
framkvæmda á umhverfið, þ.e.
menn, dýr, plöntur og annað í lífrík-
inu, jarðveg, jarðmyndanir, vatn,
loft, veðurfar og landslag, samfélag,
heilbrigði, menningu, menningar-
minjar, atvinnu og efnisleg verðmæti
og samspil þessara þátta. Í úrskurð-
um er ekki byggt á almennri afstöðu
einstakra aðila til fyrirhugaðra
framkvæmda heldur á efnislegri um-
fjöllun um umhverfisáhrif þeirra. Því
hefur það ekki áhrif á niðurstöðu úr-
skurða um mat á umhverfisáhrifum
hversu margir lýsa sig almennt
fylgjandi eða mótfallna einstökum
framkvæmdum.“
Fjallað um já-
kvæð og nei-
kvæð áhrif
framkvæmda
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer á
sunnudaginn 26. ágúst í 7. ferð af 10
um Reykjaveginn. Gengið frá Blá-
fjöllum og austur fyrir þau um Leiti
að Lambafelli við Þrengslavegamót.
Þetta er um 6 klst. ganga og er verð
1.500 kr. fyrir félaga og 1.700 kr. fyr-
ir aðra. Brottför er frá BSÍ kl. 10.30.
Stansað við Select. Miðar í farmiða-
sölu. Fararstjóri er Gunnar H.
Hjálmarsson. Nánar má kynna sér
ferðir Útivistar á heimasíðu félags-
ins: utivist.is
Reykjavegur
með Útivist
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR veitti á
fimmtudag styrki til 13 verkefna
sem stuðla að tækninýjungum og
umbótum í byggingariðnaði, en
styrkirnir eru veittir árlega í sam-
ræmi við ákvæði laga um húsnæðis-
mál.
Í ár bárust 38 umsóknir um styrki
að fjárhæð um 93 milljónir króna.
Veittir voru styrkir samtals að fjár-
hæð 16 milljónir króna, til 13 verk-
efna.
Hæsta styrkinn, 3,5 milljónir
króna, hlaut Lagnakerfamiðstöð Ís-
lands og verður styrkurinn notaður
til byggingar Lagnakerfamiðstöðvar
Íslands.
Fyrirtækið Farhús ehf. hlaut
tveggja milljóna króna styrk til þró-
unar á flytjanlegum íbúðarhúsum og
Möl og sandur hlaut einnig sömu
upphæð fyrir SP plötur með hita-
lögn.
Íbúðalána-
sjóður styrkir
nýjungar
Rúm fyrir einn á röngum degi
Í blaðinu sl. fimmtudag var rangt
farið með sýningardag á leikritinu
Rúm fyrir einn sem sýnt er í Hádeg-
isleikhúsinu, Iðnó. Fyrsta sýning
eftir sumarfrí er næstkomandi föstu-
dag, 31. ágúst. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
Leiðrétt
MORGUNBLAÐIÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd:
Samvinnuferðir/Landsýn vilja leið-
rétta þann misskilning sem fram
kemur í grein Jónasar Garðarssonar í
Morgunblaðinu hinn 24. ágúst sl. að
lögfræðistofan, sem vinnur fyrir út-
gerð skipsins Clipper Adventure hér
á landi, sé jafnframt lögfræðistofa
Samvinnuferða/Landsýnar. Svo er
ekki. Samvinnuferðir/Landsýn hafa
aldrei skipt við umrædda lögfræði-
stofu. Stofan vann að þessu tiltekna
máli á vegum eigenda skipsins fyrir
milligöngu umboðsmanns þess hér á
landi.
Þá vilja Samvinnuferðir/Landsýn
taka fram að ferðaskrifstofan kallaði
ekki til lögreglu vegna komu Clipper
Adventure hinn 7. ágúst síðastliðinn
enda bað ferðaskrifstofan ekki um
lögbann á mótmæli vegna komu þess.
Athugasemd
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦