Vísir - 26.06.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 26.06.1979, Blaðsíða 8
VISIR Þriöjudagur 26. júnf 1979. 8 /".".'y utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davlfi Gufimundsson Ritstjórar: Olafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnusson, Sigurður Sigurðsson, Sigurveig Jónsdótlir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Askrift er kr. 3000 á mánufii Auglýsingar og skrifstofur: innanlands. Verð I Sifiumúla 8. Slmar 86611 og 82260. lausasölu kr. 150 eintakið. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linu>. ,Drentun Blaöaprent h/f llörmungar flóttafólks I Suðaustur-Asiu eru nú viö bæjardyr okkar Islendinga. Aö sjálfsögöu veröum viö aö taka þátt I aöstoöinni viö þetta vegalausa fólk. En f hvaöa formi kjósum viö heist aö gera þaö? Flóttamannavandamál í fjar- lægum heimshluta er nú allt í einu komið að bæjardyrum okkar íslendinga. Fyrir íslenskum stjórnvöldum liggur að taka af- stöðu til tilmæla Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna um að veita hér hæli 50 flótta- mönnum frá Víetnam. Fregnirnar af þeim hörmung- um, sem flóttafólkið verður að þola, vekja öllum sæmilega sið- uðum mönnum óhug. Núverandi stjórnvöld í Víetnam eru sýnilega staðráðin í að losa sig með öllu við kínverska minnihlutann í landinu. Þessum minnihluta, sem talinn er vera alls um ein milljón manna, er gert ólíft í landinu, eignir þessa fólks eru gerðar upptækar og það ofsótt með ýmsum öðrum hætti. Harð- ræðið er slíkt, að það hikar ekki við að greiða jafnvel háar f jár- hæðir fyrir leyfi til þess að yfir- gef a landið og sigla út á opið haf i smábátum í algjörri óvissu um það, sem við tekur. Nú er svo mikið af þessu fólki komið til ná- grannalandanna, að þau telja sig ekki geta veitt fleirum hæli og hafa gripið til þess örþrifaráðs að láta draga báta flóttafólksins á haf út á nýjan leik, þar sem það er látið bíða örlaga sinna. Flóttamannastraumurinn ligg- ur ekki aðeins frá Víetnam, heldur einnig f rá Kampútseu og i einhverjum mæli frá Laos. Mörg hundruð þúsund flóttamenn frá þessum löndum dveljast nú í flóttamannabúðum i nágranna- löndunum eða velkjast á sjó úti. Að sjálfsögðu er eðlilegast, að sem f lestar þjóðir heims leggist á eitt um að lina þjáningar þessa hrjáða fólks og finni lausn á vandamálum þess. Brýnast er að finna því samastað, en einnig þarf til að koma f járhagsleg að- stoð og læknishjálp. Við Islend- ingar verðum að leggja hér hönd á plóginn, eins og aðrir. Spurn- ingin er aðeins um það, í hvaða formi við helst kjósum að veita aðstoð okkar. Eigum við t.d. að skjóta skjólshúsi yfir einhvern tiltekinn f jölda flóttamannanna? Tilf inningalegar ástæður mæla með því, að við gerum þetta, og einnig er að sjálfsögðu erfitt að hafna þeirri ósk, sem fram hef- ur verið borin um griðastað hér á landi fyrir nokkurn hóp flótta- manna. En í þessu efni sem öðrum er betra að láta skynsemi og þekk- ingu ráða ákvörðun heldur en til- finningar. Umfram allt þurfum við þó að þekkja okkur sjálf áður en ákvörðun er tekin. Vandamál út af kynþátta- árekstrum meðal grannþjóða okkar, sem á undanförnum árum og áratugum hafa hleypt fólki af t.d. asískum þjóðflokkum inn i lönd sín, hafa ekki sprottið af því, að flest þetta fólk sé í sjálfu sér ekki nýtir þjóðfélagsþegnar. Langstærstur hluti þess er iðju- samt, áreitnislaustog nægjusamt fólk. En mikil vandræði stafa hins vegar tíðum af því, að heimamenn eða lítill hluti heima- manna sættir sig ekki við veru þess, heimamenn áreita það t.d. í afbrýðisemi, vegna andstöðu viðað fá það inn í f jölskyldur sín- ar, vegna samkeppni um atvinnu og af ýmsum öðrum ástæðum sem til mannlegs eðlis verða raktar. Er nokkur ástæða til að ætla, að við íslendingar séum í rauninni nokkuð umburðarlynd- ari en nágrannar okkar? Ætli umburðarlyndi okkar eins og annarra sé ekki mest meðan ekki reynir á það? Við skulum skoða hug okkar vel áður en við tökum á móti framandi flóttafólki frá Suð- austur—Asíu og kanna rækilega allar aðrar leiðir til aðstoðar, sem til greina koma. Við skulum líka forðast alla hræsni gagnvart okkur sjálfum og í opinberum umræðum um málið. sala stöðvuð á gaffalbitum tll Sovétríkjanna: Varan reyndlsl gölluð sam- kvamt núglldandl samningum „Það var alls ekki komið að þvi að skipa ætti þessum gaffalbitum út til Sovétrikjanna, en við hér i ráðuneytinu höfum reynt að fylgjast mjög vel með þessum málum, eftir það sem kom fyrir á siðasta ári, og ég hafði grun um að þessi vara myndi reynast ósöluhæf samkvæmt núgildandi samningum og tilkynnti þvi framleiðanda, Sigló- sild, að ráðuneytið myndi ekki samþykkja út- flutning á gaffalbitunum” sagði Gisli Einarsson deildarstjóri i iðnaðarráðuneytinu i samtali við Visi. Unga kynslóöin f Skálatúni aö ræöa máfin. Skálatúnsheimilíð tuttugu 09 fimm ára Um er aö ræöa 5400 kassa af gaffalbitum, en Rannsóknar- stofnun fiskiönaöarins úrskurö- aöi aö geymsluþol þeirra væri á þrotum og gallar komnir fram, og því væri varan ósöluhæf, samkvæmt þeim samningum við Sovétmenn sem nú eru i gildi og gera ráö fyrir aö Sölustofnun lagmetis, sem sér um sölu til Sovétrikjanna, ábyrgist fram- leiösluna 6 mánuöi frá út- skipunardegi. „Varan er ekki ónýt” sagöi Gisli, ,,en gölluö, samkvæmt samningnum,og þvi yröi aö gera um hana sérsamning. Viö höf- um reynt að halda mjög utanum þessi mál, það er lifsspursmál fyrir okkur og því var Siglósild tilkynnt aö ráöuneytiö féllist ekki á útflutning aö óbreyttu.” Gylfi Þór Magnússon hjá Sölustofnun lagmetis sagði aö gaffalbitarnir, aö verömæti 85 milljónir króna, hefðu veriö framleiddir á siöasta ári upp i samninga þessa árs, en slikt væri gert á eigin ábyrgö fram- leiöanda. Vara Siglósildar heföi verið lsta flokks en vegna tafa á undirritun samnings viö Sovét- menn og siöan vegna farmanna- verkfalls heföi geymsluþol veriö á þrotum. Sölustofnunin hafi fylgst með ástandi vörunnar og talið að ekki bæri að flytja hana út ef hún stæöist ekki gæöakröf- ur. „Afstaða iönaöarráðuneytis breytti þar engu um” sagöi Gylfi, „heldur fóru skoðanir okkar vel saman, eins og eöli- legt er. Nú hefur Sovétmönnum veriö gert tilboö um kaup á vörunni á lægra verði, þeim send sýnis- horn og látið koma fram aö geymsluþol er takmarkaö. A þessu stigi biöum viö svars þeirra.” IJ Fyrir skömmu voru liðin tuttugu og fimm ár frá þvi Skálatúnsheimiliö i Mosfells- sveit hóf starfsemi sina, en þaö er heimili fyrir þroskahefta. Nú dveljast að Skálatúni fimmtiu og sjö vistmenn en voru i upphafi sautján. Þeir eru á aldrinum fimm til fimmtiu og eins árs af báöum kynjum og á öllum stigum þroskahömlunar. Heimilinu er skipt i þrjár deildir eftir þroska vistmanna og i hverri þeirra búa bæði piltar og stúlkur. Reynt er með stööugri kennslu og þjálfun i skóla og á heimiliseiningum aö gera vist- menn eins sjálfbjarga og unnt er. Þaðer aö segja, aö halda sér þurrum og hreinum, klæöast sjálfir, matast hjálparlaust og svo framvegis. Daglega koma 46 manns til þjálfunar og kennslu viö hiö nýja vinnu- og þjálfunarhús á staðnum Um þennan þátt starfsins sjá sextán manns. Vinnustofur og skóli starfa frá 9- 15 virka daga. Reynt er aö raöa nemendum i hópa eftir þroska og getu, en veitt einstaklings- meðferð eftir þvi sem hægt er. Talkennari veitir talkennslu og sumir nemendur fá bóklega kennslu^neðal annars i meöferö peninga. Handavinnukennsla er rikur þáttur af starfinu og smiöakennsla hefur verið frá siðastliðnu hausti. 1 vinnustofu eru unnin verkefni fyrir ýmis fyrirtæki og eins hefur veriö kennd matreiðsla. Reynt er að glæða lif hvers einstaklings þeirri fyllingu sem auðið er og unnið að þvi að opna þeim sem til þess hafa getu, leiö úr Skálatúni, út i þjóðfélagið. — JM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.