Vísir - 26.06.1979, Page 16
» M \ t
rp.hf,l t*Í
f'Y'1 r5'•’T'
vit «
Um 'ijón:
Sigurveig
Jónsi/jttir
vism
Þriöjudagur 26. júnl 1979.
Feraud (Harvey Keitel) meö byssu I lokabardaga einvigisins.
Á19. ÖLD
Einvigiskapparnir/The
Duellists.
Bresk.
Leikstjóri: Ridley Scott.
Handrit: Gerald Vaughan-
Huges eftir sögu Joseph Conrad,
„The Duel”.
Tónlist: Howard Blake.
Sýningartimi 101 min.
Aðalhlutverk: Keith Carradine
og Harvey Keitel.
Conrad byggir sögu sina á
fréttúr frönsku dagblaði, en þar
sagði frá tveim herforingjum i
her Napóleons keisara, sem
háðu einvigi, meö hléum, af
tylliástæðum, á meðan hin
miklu strið stóðu yfir i byrjun
19tu aldarinnar.
Myndin fjallar um þetta efni á
nokkuð óvenjulegan hátt. Hún
setur fram sem andstæður, þá
heimsku mannsins að heyja
einvigi, leiksins vegna, gegn
þeirri skynsemi náttúrunnar, að
leita aldrei eftir hættunum held-
ur foröast þær. Þetta atriði
kemur strax fram i byrjun
myndarinnar. Þar heyr Feraud
(Keitel) einvigi við frænda
borgarstjórans i Strasbourg. Er
hann rekur frændann i gegn,
skiptir myndin yfir á gæsahóp
sem, skynsamlega hræddur,
flýr þessa vitleysu. Og i öllum
einvigjunum heyrist i dýrum,
hestar frisa, kindur jarma,
o.s.frv.
Þrátt fyrir mikið ofbeldi bjó
þetta timabil yfir miklum töfr-
um. Hinn glæsilegi her Napóle-
ons var i óða önn að leggja undir
sig Evrópu, og hugtök eins og
sæmd, heiður og hugrekki voru i
hávegum höfð.
D’Hubert (Carradine) undir-
strikar glæsileik þessa timabils.
Hann hefur viðkunnanlegt and-
kvikmyndir
lit, og hefur tileinkað sér
praktiska framkomu gegn þeim
sem kunna að standa i vegi fyrir
honum. Hann flækist i einvigið
vegna óheppni. Yfirforingi hans
sendir hann til þess að ná i
Feraud og setja hann i stofu-
fangelsi út af einvigi Ferauds og
frænda borgarstjórans. Það að
hann nær i Feraud á heimili
heföarkonu nokkurrar telur
Feraud næga ástæðu til einvigis
við D’Hubert. Myndin fylgir sið-
an D’Hubert eftir, lýsir
persónulegu lifi hans, en hinn
þreytandi og reiðigjarni Feraud
verður nokkurskonar bak-
persóna sem biður ávallt færis á
þvi að drepa D’Hubert i einvigi.
Leikur i myndinni er mjög
góður. Keith Carradine er einn
af Carradine-bræðrunum, og að
minu áliti hefur hann meiri leik-
hæfileika en hinir báðir til sam-
ans. Harvey Keitel er okkur að
góðu kunnur. Hann lék meðal
annars aðalhlutverkið i mánu-
dagsmynd Háskólabiós fyrir
skömmu. Hér er hann i hlut-
verki manns sem er svo hreyk-
inn af sverðkunnáttu sinni að
hann verður að sýna hana i,
tima og ótima, og stofnar af
þeim sökum til einvigja af nærri
engum sökum. Keitel sýnir vel
þann styrk og vilja sem slikur
maöur þarf til að bera.
Tvær konur fléttast inn i lif
D’Huberts. Onnur er herkona
(Diana Quick), og hin er eigin-
kona D’Huberts seinna i mynd-
inni. (Cristina Raines). Báðar
skila hlutverkum sinum með
mikilli prýði.
Mikið af þekktum leikurum
eru I aukahlutverkum. Má þar
nefna Albert Finney, Edward
Fox og Tom Conti.
Sviðsmyndin minnir dálitið á
mynd Kubricks „Barry
Lyndon”. Myndin er ávallt
falleg fyrir augað hvort sem
verið er að sýna landslag eöa þá
nálæg efni svo sem flösku af
vini, perur og brauð á borði
herlæknis eða mýs að éta ost og
epli á heimili D’Huberts.
óhætt er aö segja að ekki er
sýnd betri mynd i bióhúsum
borgarinnar þessa dagana,—Fi-
B&gm nj
WMmm,
■
Listaverkasýningin er i garöi viö gamalt óöalssetur sem heitir Middelheim.
verk eftir fslenska listamenn
á höggmyndasýnlngu I Antwerpen
Fjórir íslenskir listamenn
eiga verk á höggmyndasýningu
sem stendur yfir i Antwcrpen.
Það eru þeir Jón Gunnar Arna-
son, NÍels Hafstein, óiafur
Lárusson og Halisteinn Sigurös-
son. Sýningin var opnuö 17. júni
og stendur fram I október.
Að sögn Hallsteins Sigurðs-
sonar myndhöggvara, hafa ver-
ið haldnar svona sýningar annað
hvert ár i Antwerpen og þá frá
afmörkuðum menningarsvæð-
um i hvert skipti. Að þessu sinni
væri sýningin eftir listamenn frá
Norðurlöndum. Hallsteinn sagði
að hann og Jón Gunnar hefðu
sent verk sin út, en sá siðar-
nefndi hefði sett verk sin saman
sjálfur þar ytra. Niels Hafstein
og Ólafur Lárusson vinna hins-
vegar sin verk á staðnum.
Jón Gunnar á tvö verk á sýn-
ingunni. Annað er flotholt sem
fljóta á vatni. Þau eru tengd
saman og upp úr þeim stendur
viravirki með spegli.
Hitt verkið er úr gljáandi rör-
um, einnig með speglum og
nefnist „Sólbörur”.
Hallsteinn á einnig tvö verk á
sýningunni, hvita gólfmynd og
rauöa veggmynd.
t norska blaðinu Verdens
Gang er fjallað um aðild Norð-
manna að þessari sýningu og
sagt að þetta sé i fyrsta sinn i
tuttugu ár sem úrval af norskri
höggmyndalist sé flutt til ann-
ars lands og sýnd þar.
Sýningin er I stórum garði viö
óöalssetriö Meddelheim. Þar
eru 170 verk eftir sjötiu lista-
menn frá Noregi, Finnlandi, Is-
landi, Danmörku og Sviþjóð.
Antwerpen greiðir flutnings-
kostnað undir verkin og telur
greinarhöfundurinn, Klaes
Krogh þetta vera einstakt tæki-
færi til að kynna norska list.
Islensku listamennirnir munu
allir vera staddir i Antwerpen,
að undanteknum Hailsteini
Sigurðssyni. — jm