Vísir - 11.07.1979, Side 12
12
VISIR Miðvikudagur 11. júii 1979.
13
VlSIH
Miðvikudagur
11. júll 1979.
HROLLUFi
TEITUR
AGGI
Frosti sýnir blaðamanni Visis húsgögn úr skrifstofum sildargrósseranna sem komið verður fyrir á efri hæð Norska sjómannaheimiiisins. Til hægri á myndinni má sjá handvagna sem notaðir voru á siidarplönunum.
Þegar ferðalangar koma til Siglu-
fjarðar i fyrsta sinn, kemur bærinn
mörgum þeirra fyrir sjónir sem eitt
alisherjar minnismerki um sildarárin,
sem voru einskonar gullöld þessa stað-
ar.
Sildarsöltunarplönin, sem hér fyrr
meir iðuðu af lifi og fjöri, eru nú svo
fúin að stórvarasamt er að ganga þar
um og allsstaðar blasa við hálfhrunin
hús, sem ekki hefur verið hirt um að
halda við eftir að siidin var uppurin.
Þessi mannvirki stóðu og féllu með
þeirri siid sem áður gæddi þau lifi.
Ekki stendur þó Siglfirðingum með
öllu á sama um þá hluti sem minna á
forna frægð staðarins. Nú hefur verið
ákveðið að koma á fót sjóminjasafni
þar sem haldið verður til haga lilutum,
sem merkilegir teljast frá atvinnu-
sögulegu sjónarmiði.
Blaðamaöur Visis sem heimsótti
Siglufjörð á dögunum, ræddi af þvl til-
efni við Frosta Jóhannsson.þjóðhátta-
fræðing sem hefur yfirumsjón með
uppbyggingu safnsins.
— Það má segja að þetta starf skipt-
ist I tvo meginþætti. Annarsvegar er
um að ræða úttekt á atvinnusögu bæj-
arins, sem ég er að vinna aö og hins-
vegar söfnun og endursmið gamalla
hluta sem merkilegir teljast.
Við höfum fengið 3 hús friðlýst og
verður safnið að mestu leyti til húsa i
þeim.
A jarðhæðinni i svokölluðum Is-
firðingabrakka verður stærri hlutum,
einsog t.d. nótabátum, komið fyrir, en
fyrirferðaminni hlutir verða geymdir i
Norska sjómannaheimilinu.
Efri hæðin I ísfirðingabrakkanum
verður varðveitt i sinni upprunalegu
mynd, en þar var áður svefnstaöur
sildarstúlkna. Menn hafa jafnvel látið
sér detta i hug að nýta hæðina sem
svefnpokapláss fyrir ferðamenn, enda
alltaf skemmtilegra þegar tekst að
halda sögulegum byggingum lifandi á
einhvern hátt.
— Er ekki mjög kostnaðarsamt að
koma upp svona viðamiklu safni?
— Það hefur komið upp sú hugmynd
að gera þetta að sjóminjasafni fyrir
allan Norðlendingafjóröung, þvi það
er ekki á færi einstakra byggöarlaga
að koma þessu upp og reka svo mynd
verði á.
Bærinn hefur fjármagnað þetta að
mestu leyti hingaðtil, en auk þess
fengum við á þessu ári 1 1/2 milljón
króna i styrk úr Þjóöhátiöarsjóöi og
Sildarverksmiðjur rikisins hafa einnig
lagt fram fé. Alls höfum viö 7 milljónir
króna til ráðstöfunar á þessu ári.
— Hvenær má búast við að safniö
verði tilbúið?
— Mér finnst mest um vert að vinna
markvisst og stöðugt að þessu, það er
ekkert unniö við að djöfla þessu upp I
einhverjum flýti. En til þess að geta
unnið skipulega þarf fastar fjárveit-
ingar og þær eru ekki fyrir hendi, eins-
og málin standa.
Mesta vinnan hingaötil hefur falist I
þvi að viða að okkur þeim hlutum sem
á safninu verða og er þvi verki að
miklu leyti lokið, en þaö er samt langt I
land með að safnið sem slikt verði til-
búið.
— PM.
Sfldarplanið fyrir framan tsfirðingabrakkann er farið að láta á sjá, en þar eru
þó enn ummerki eftir siidarsöltunina.
Úr vistarverum sfldarstúlkna.
Frosti Jóhannsson þjóðháttafræðingur. i baksýn er tsfirðinga-
brakkinn þar sem sfldarstúikurnar héldu sig þær fáu stundir sem
ekki var unnið á planinu.
Sæby-húsið er elsta bygging á
Siglufirði. Það reisti danskur
beykir sem kom til tslands á
vegum Gránufélagsins 1886.
Norska sjómannaheimilið var
byggt 1915. Þaö var jafnframt
fyrsta sjúkrahúsiö á Siglufiröi.
Bátum og öðrum stærri hlutum verður komið fyrir á jaröhæð ts-
firðingabrakkans.
Það kennir ýmissa grasa í þvidóti sem Sjóminjasafnið hefur sankaö
að sér. A gólfinu liggur m.a. köfunarhjálmu*^^