Vísir - 11.07.1979, Side 24
Miðvikudagur 11. júlí 1979
síminnerðóóll
Spásvæði Veöurstofu tslands
eru þessi:
1 Faxaflói, 2. Breiöafjörö-
ur, 3. Vestfiröir, 4. Noröur-
land, 5. Noröausturland, 6.
Austfiröir, 7. Suðausturland,
8. Suövesturland.
veðurspá
dagsins
Skammtfyrir NA lander 995
mb lægð sem hreyfist NA og
um 800 km SV af landinu er 998
mb lægð sem hreyfist ANA en
mun fara fyrir S land.
S land. Hæðarhyggur er
yfir Bretlandseyjum. Hiti mun
breytast litið.
SV land, Faxaflói, SV mið og
Faxaflóamiö: S og SV gola,
skúrir.
Breiðafjöröur og Breiöa-
fjaröarmiö: SV gola skúrir.
Vestfiröir og Vestfjaröa-
miö: Hæg breytileg átt,
skúrir.
NA miö:V eða NV og kaldi og
skýjað á miöunum, en hægari
til landsins og viða léttskýjaö.
Austfirðir og Austfjaröa-
miö: V gola léttskjfjað.
SA land og SA miö: Hæg-
viðri og Iéttskýjað i dag, en
þykknar upp með A golu eða
kalda I kvöld.
veðrið hér
og par
Veöriö kl. 6 i morgun:
Akureyriléttskýjað 8, Bergen
skýjað 13, Helsinki þokumóða
14, Kaupmannahöfn.skýjað 13
ósló léttskýjað 15 Reykjavfk
skýjað 7 Stokkhólmur rigning
15 Þórshöfn, alskýjað 11.
Veörið kl. 18 i gær:
Aþena léttskyjað 24 Berlfn
skýjað 17 Chicago skyjað 28,
Frankfurt, skyjað 19, Feneyj-
arskyjað 28 Nukléttskyjað 10
Londonskyjaö 20 Luxemburg
skýjað 17 Las Palmas
heiðskirt 25, Mallorka skýjað
27 Paris léttskyjað 22 Róm
heiðsklrt 26 Maiaga alskýjað
Vin, skýjað 16
LOKISEBIR
Benedikt Gröndal utanrlkis-
ráöherra er nú kominn vestur
til Bandarikjanna og dvelur
þar hjá tengdamóöur sinni.
Astæöan fyrir för Benedikts
mun vera sú aö rikisstjórnin
bannaöi honum aö lesa banda-
rlsk dagbiöö hér heima.
I
Gatnagerðarglald í Hafnarflrðl:
Margra ára innheimtu-
aöferö dæmd ólögleg
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar á yfir höfði sér
tugmilljónakröfur frá húsbyggendum i bænum.
Þetta virðist ljóst eftir að bæjarþing Hafnarfjarð-
ar hefur nýverið dæmt um visitölutryggingu
gatnagerðargjalda i bænum að hluta ólögmætar.
Um nokkurra ára skeið hefur
sá háttur verið hafður á I
Hafnarfiröi aö greiðslu gatna-
gerðargjalda hefur verið skipt I
tvohluta. Fyrri helming þessar-
ar greiöslu hafa húsbyggjendur
innt af hendi skömmu eftir að
lóð hefur verið úthlutað, en sið-
ari hluta þegar teikningum hef-
ur verið skilað og endanlegt
byggingarleyfi hefur verið af-
greitt.
1 skilmálum Hafnarfjarðar-
kaupstaðar hefur gatnagerðar-
gjaldið verið bundið við visitölu-
na eins og hún hefur verið þegar
byggingarleyfi er gefið út, Slðan
hefur húsbyggjendum verið
gert að greiða visitölubætur
fyrir allt gatnagerðargjaldiö.
Þar með hafa verið innheimtar
bætur fyrir þann helming
gjaldsins sem greiddur var I
upphafi þ.e.a.s. eftir að lóðaút-
hlutun fór fram.
Þessu vildi einn húsbyggj-
andi I Hafnarfirði ekki una og fór
I mál við bæjarsjóð og kraföist
þess að dæmt yrði ólögmætt að
vlsitölubinda gatnagerðargjöld.
Til vara krafðist hann að óheim
ilt væri að innheimta visitölu-
bætur fyrir þann hluta gatna-
gerðargjaldsins sem innheimt-
ur var I upphafi þ.e.a.s. þegar
lóðaúthlutun fór fram.
Dómur I bæjarþingi Hafnar-
fjarðar féll á þá leið að fallist
var á varakröfu lögmanns
stefnanda Jóns Steinars Gunn-
laugssonar. Var bæjarsjóður
dæmdur til að greiða húsbyggj-
andanum 277.855 krónur til baka
vegna hinnar ólögmætu inn-
heimtu. Þessi upphæð veröur að
teljast óvenju há og stafar það
fyrst og fremst af þvi hve langur
tlmi leið frá þvi lóðinni var út-
hlutað og þar til byggingarleyfi
var afgreitt en þann drátt má
rekja til þess hve seint, hús-
byggjandinn lagði fram teikn-
ingar að húsi slnu.
Reglugerð sú sem umrætt
gatnagerðargjald byggist á er
frá þvi I októbermánuði 1975 og
ef dómur bæjarþings Hafnar-
fjarðar reynist hafa fordæmis-
gildi þá ættu þeir sem greitt
hafa gatnagerðargjöld eftir
þann tima að eiga kröfu á
endurgreiðslu á hluta visitölu-
tryggingarinnar.
Ekki hafa verið gerðir út-
reikningar á þvi hjá Hafnar-
fjarðarbæ hve margir aðilar
hafa greitt gatnagerðargjöld
samkvæmt fyrrgreindri reglu-
gerð, né heldur um hve háar
upphæðir gæti orðið að ræða ef
til stórfelldra endurgreiðslna
kæmi.
Að sögn Valgeirs Kristinsson-
ar bæjarlögmanns I Hafnarfirði,
hefur ekki veriö tekin ákvörðun
um það ennþá hvort dómi
bæjarþings verði áfrýjað, en sú
ákvörðun verður væntanlega
tekin á morgun.
— GEK
[■ 11 ■ 1 Æ' y - : ■PJ m4fí 1 1
n| 1 I -j flv' .1" ww I 1 I
fl|| 1 1 jk jÆggk ijP - *f'**~'• '■> ■
T(
(Jtlendir feröamenn Iáta ekki sunnlenskt sumarveöur meö súld og rigningu og jafnvel slyddu (eins og I
gærmorgun) á sig fá þegar ferðir til Gullfoss og Geysis eru annars vegar. Þeir þyrpast um borö f rúturn-
ar til þess aö berja undrin aúgum hvernig sem viörar. Vfsismynd: GVA
Ný Lands-
vlrklun:
Samninganefndir sem skipaðar
voru I mars á þessu ári af borgar-
ráði Reykjavíkur, bæjarráði
Akureyrar og iðnaðarráðherra,
hafa náð samkomulagi um
sameignarsamning vegna út-
vlkkunar á starfssviði og eignar-
aöild Landsvirkjunar.
Kom þetta fram á fundi sem
iðnaðarráðherra og fulltrúar úr
samninganeíndunum héldu með
blaðamönnum i gær.
I samningnum felst að
Akureyrarbær verður eignaraðili
aö Landsvirkjun ásamt Reykja-
vikurborg og rikissjóði og eignar-
hlutföllin veröa: rikissjóður 50%,
Reykjavlk 42.4%, og Akureyri
7.6%.
AKUREYRARBÆR
MEÐEIGANDI
#
Raforkuverð kemur ekki til
I með að hækka I kjölfar samein-
ingarinnar, en til þess að svo
mætti verða yfirtekur rlkissjóður
skuldir-vegna byggðalagsins sem
við siðustu áramót námú jafn-
virði 5.6 milljarða islenskra
króna I erlendri mynt.
| Landsvirkjun mun ekki yfir-
taka Kröfluvirkjun fyrr en
rekstur hennar verður kominn á
traustan grundvöll, en þá verður
yfirtaka heimiluð á þeim for-
sendum, „aö hún sé þá eigi fjár-
hagslega óhagkvæmari kostur til
raforkuöflunar en aðrir kostir,
sem völ er á, að mati stjórnar
Landsvirkjunar”, eins og segir I
sameignarsamningnum.
Stjórn Landsvirkjunar verður
skipuð 9 mönnum og við
afgreiðslu mikilvægra mála eins
og t.d. I sambandi við nýjar virkj-
anir, nýjar aðveitur eða nýja út-
sölustaði, verður þess krafist aö
2/3 hlutar stjórnar sé sammála.
Fulltrúar Reykjavikur og
Akureyrar undirrituðu
samkomulagið meö fyrirvara um
samþykki borgar- og bæjar-
stjórna viðkomandi staða.
Hin nýja Landsvirkjun mun
væntanlega taka formlega til
starfa I byrjun næsta árs.
P.M.
Skattskráln á
vesttidrOum:
Sá hæstl með
30 mllljðnlr
Hækkun gjalda á einstakl-
inga á Vestfjörðum mun nema
um 60% og á félög um 97%
samkvæmt skattskrá kjör-
dæmisins sem veröur lögö
fram I dag. Af. fyrirtækjum
ber Hraðfrystihúsið Norður-
tangi hæst gjöld, samtals 150.7
milljónir króna Næst kemur
Ishúsfélag Isfirðinga með 89
mikjónir, en það var skatt-
hæsta fyrirtæki á Vestfjörðum
I fyrra. Hæst gjöld einstakl-
inga ber Jón Fr, Einarsson
byggingameistari I Bolungar-
vik með 29.6milljónirkróna og
annar hæsti einstaklingur er
Hrafnkell Stefánsson lyfsali á
Isafirði með 14,9 miHjónir
króna. Eru þetta sömu ein-
staklingar og báru hæstu gjöld
I fyrra.
Alögð gjöld á Vestfjörðum
samkvæmt skattskrá 1979
nema fjórum mikjörðum á 5496
einstaklinga og 1.3 milljöröum
á 500 félöfL^^_^_—JIVl
EvrðpumðtiD I hrldge:
Frakkar taka
forystuna aft-
ur af írum
Frakkar unnu Tyrki I
fimmtándu umferð Evrópu-
meistaramótsins I bridge, sem
haldið eri Sviss, með 16 stigum
gegn 4, og juku þannig enn á
forskot sitt á mótinu
Italir unnu Islendinga meö
14 stigum gegn 6, þrátt fyrir
fjarveru leikmannsins Giorgio
Belladonna, og eru hinir fyrr-
neftidu nú I ööru sæti. írland
féll niður I þriðja sæti.Frakkar
hafa nú 216 stig, Italir 198, og
írar 193.
Islenska liöið er i tlunda sæti
með 161.5 stig.
I áttundu umferð kvenna-
mótsins biöu Bretar sinn
fyrsta ósigur, fyrir Þjóðverj-
um, sem hingaö til hafa verið
heldur linir. Italska liðið vann
hið iSraelska og er nú aöeins
sex stigum á eftir breska
kvennaliðinu. Bretland hefur
140 stig, en ítalia .134. — AHO.