Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 7

Morgunblaðið - 16.09.2001, Side 7
Börn eru pottþétt- ir ferðafélagar Til Græn- lands í fæðingar- orlofinu  ÓTILGREINT breskt fyrirtæki hyggst opna Bítla- hótel í Liverpool innan fáeinna missera. Miðað er við að hótelið verði 120 herbergja og tilbúið árið 2003. Gert er ráð fyrir að nóttin í tveggja manna herbergi muni kosta rúmar átta þúsund krónur og er hugmyndin sú að herbergi hótelsins verði nefnd eftir þekktum bítlalögum eða bítlaminnum. Enginn eftirlifandi meðlima hljómsveitarinnar fyrrverandi tengist starfsemi hótelsins. Hin síðustu ár hefur borið á auknum straumi ferðamanna til Liverpool, heimabæjar bítlanna fjögurra þar sem tónlist þeirra rekur sífellt á fjörur nýrra kynslóða. Í Liver- pool hefur til þessa verið boðið upp á Magical Mystery útsýnisferð um bæinn og meðal annars komið við á æskuheimilum Johns, Pauls, Georges og Ringos, ekið að Strawberry Field og eftir Penny Lane. Við höfnina er Bítlasafnið síðan til húsa og eilítið ofar í bænum má sjá hluta Cavern-klúbbsins þar sem Bítlarnir spiluðu einum 300 sinnum áður en þeir urðu heimsfrægir. Bítlahótel í Liverpool STÖÐUG aukning er hjá Flug- leiðum í sölu farmiða á Netinu, bæði hér heima og erlendis, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða. Flugleiðir hafa boðið viðskipta- vinum sínum undanfarin ár að kaupa flugfar til allra áfangastaða félagsins, auk þess að bjóða kaup á flugi til þúsunda áfangastaða um heim allan beint á netinu. Viðkom- andi fær farseðilinn síðan sendan. Á sama tíma hóf félagið starf- semi Netklúbbs Flugleiða sem vaxið hefur hröðum skrefum síðan og er í dag stærsti netklúbbur landsins, að sögn Guðjóns. Á þessu ári var í fyrsta skipti byrjað að bjóða meðlimum í Net- klúbbnum sérstök vildarkjör á öll- um flugferðum félagsins til Evr- ópu, auk þess að bjóða áfram hin vinsælu Netklúbbstilboð á ákveðna áfangastaði bæði í Evr- ópu og Bandaríkjunum. Þessi skipti. Ýmis flugfélög hafa tekið þau upp með ágætum árangri. En vegna þess að Flugleiðir veita fulla þjónustu flugfélags, það er að selja flug og ýmiskonar ferða- þjónustu annarra flugfélaga og þjónustuaðila um allan heim, þá teljum við hagsmunum viðskipta- vina enn best þjónað með því að hafa farseðla.“ þjónusta er í þróun hjá félaginu, segir Guðjón og er gert ráð fyrir að þjónusta og vöruframboð verði aukið og bætt í vetur. Farmiðalaus viðskipti ekki á dagskrá „Við fylgjumst vel með alþjóð- legri þróun þessara mála, til dæmis hvað varðar miðalaus við- Sífellt fleiri kaupa far- miða í gegnum Netið Morgunblaðið/Jim Smart Viðskiptavinum Flugleiða hef verið boðið undanfarin ár að kaupa flugfar til allra áfangastaða félagsins í gegnum Netið.  TESTOFA í veitingahúsi við sjávarsíðuna í Corn- wall hefur hreppt verðlaun fyrir besta tebolla Bret- lands, samkvæmt This Week in Britain. Staðurinn nefnist Trenance Cottage Tearoom and Gardens og hefur verið útnefndur besta testofan, af breska ter- áðinu. Hópur dómara heim- sótti breskar testofur á laun í apríl og maí fyrr á þessu ári og lagði mat á bragð- gæði, styrk og hitastig, svo eitthvað sé nefnt. Önnur atriði sem lögð voru til grundvallar við valið var útlit leirtausins sem notað var við framreiðsl- una, viðmót starfsfólks og þekking á tei, og er greint frá því að umræddir dómarar hafi verið svo ánægðir með Trenance Cottage tehúsið að þeir gáfu eigendunum, Bob og Judy Poole, hæstu einkunn í nánast öllum flokkum. Bretar drekka 165 milljónir tebolla á degi hverj- um og er þess vænst að samkeppnin hjálpi heima- mönnum í þeirri viðleitni að laga hinn fullkomna te- bolla. Besta breska teið í Cornwall  EKKI verður í boði áætl- unarflug til Tor- onto í Kanada í vetur eins og verið hefur undanfarin ár, á vegum SAS og Air Canada, að því er kemur fram í Berlingske Tidende. Flogið verður þangað fram í október en eftir það verður ekki beint flug milli Skandinavíu og Kanada, í það minnsta fram á næsta vor. Eins og kunnugt er hætta Flugleiðir áætlunarflugi sínu til Halifax með haustinu. SAS flýgur ekki til Kanada Á TAÍLANDI nánar til- tekið í borginni Pattayja, skammt frá Bangkok, hef- ur verið rekið gistiheimili á vegum Íslendingsins Magnúsar Karlssonar frá því fyrir jólin í fyrra. Gistiheimilið Geysir hef- ur verið vel sótt af Íslend- ingum, sér í lagi yfir vetr- artímann, en margir kunna vel að meta að vera nálægt löndum sínum auk þess sem þeir fá íslenskan mat ásamt taílenskum á staðn- um, að sögn Magnúsar. „Við erum með þrjú her- bergi eins og er, sem henta einkar vel einstak- lingum en til stendur að bæta við herbergjum fyrir áramótin.“ Hótelið segir Magnús vera vel staðsett, í um 100 metra fjarlægð frá strönd- inni Magnús hefur dvalið í Taílandi frá árinu 1997 en hann er kvæntur þarlendri konu, Siriworraluck Bo- onsart, og eiga þau lítinn son. Ætlunin er að fjölga herbergjum á Gistiheimilinu Geysi. Íslenskt gisti- heimili á Taílandi Gistiheimilið hefur net- fangið: geysir@torg.is. Síminn er 006638413711 Gistiheimilið stendur við Soibowling. NÝR veitingastaður, sem enn hef- ur ekki hlotið nafn, var opnaður á Flughóteli í Keflavík um miðjan júní síðastliðinn. Sverrir Þór Hall- dórsson veitingamaður sagði að viðtökur hefðu verið vonum fram- ar frá opnun. Þrír salir eru í hót- elinu einn aðalsalur, sem rúmar um 60 manns, kaffitería fyrir um 50 manns og veislusalur fyrir 80 manns í sæti og er hann leigður út fyrir fundi og ýmis veisluhöld. „Aðalsalurinn er opinn á kvöldin en kaffiterían er opin frá 5:45 að morgni til 17:30. Þar er boðið upp á salatbar, súpu, brauð og einn heit- an rétt en enga skyndibita,“ sagði hann. „Í aðalsal er sérstakur mat- seðill sem byggist á gömlum hefð- um. Í sumar hefur að vísu verið lögð áhersla á fisk og lambakjöt fyrir útlendingana en nú fer ég að breyta matseðlinum og færa yfir í búning fyrir Íslendinga og setja meiri rjóma út í matinn en leiðin að hjarta Íslendinga að vera með með áfengi og síðan rjóma og sykur í matnum.“ Íslendingar vilja rjóma, áfengi og sykur Gönguferð á Krít með menningarívafi Sími 585 4140 4 sæti laus vegna forfalla í vikuferð 26. september. Fararstjóri er Tryggvi Sigurbjarnarson. FJÖRUKRÁIN í Hafn- arfirði opnar formlega í dag veitingasal með grænlensku og færeysku sniði. Jóhannes Viðar Bjarnason eigandi Fjöru- krárinnar segir veit- ingareksturinn tengjast Vestnorræna menning- arhúsinu sem starfrækt er á sama stað, þar sem meðal annars hefur verið boðið upp á gistingu og grænlenska og færeyska listviðburði. Fjörukráin mun áfram bjóða matar- gestum upp á sinn hefð- bunda matseðil og segir Jóhannes færeysku og grænlensku réttina ein- ungis viðbót. Meðal rétta á hinum nýja matseðli eru færeyskt skerpukjöt og hnettir, sem Jóhannes segir fiskibollur með sérstöku sniði, og sauðnaut og ýmiss konar fiskmeti frá Græn- landi. Veitingasalur Fjörukrárinnar hefur verið stílfærður með fær- eyskum og grænlenskum munum og munu lista- menn frá fyrrgreindum löndum skemmta gestum sjálfan opnunardaginn og á næstunni, auk Jóns Möller, sem lengi hefur spilað fyrir gesti á staðn- um. Fjörukráin verður 12 ára næsta vor og segist Jóhannes búast við 400 manns í vestnorrænan mat í dag. Segist hann ennfremur telja að nýju réttunum verði vel tekið, bæði af Færeyingum og Grænlendingum búsettum hér á landi, sem og þeim sem vilji reyna eitthvað nýtt. Matur og list frá Fær- eyjum og Grænlandi Fjörukráin í Hafnarfirði breytir um svip Morgunblaðið/Þorkell Fjörukráin hefur feng- ið nýjan svip með ýmsum munum frá Færeyjum og Græn- landi. Jóhannes Viðar Bjarnason eigandi glímir við ísbjörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.