Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 19

Morgunblaðið - 16.09.2001, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 B 19 bíó V INSÆLDIR The Deer Hunt-er (’78), einnar af myndumáttunda áratugarins, eru ekki síst að þakka ógleymanlegri túlkun Christophers Walkens. Hann var nánast óþekktur er Michael Cimino valdi hann til að fara með firnaerfitt lykilhlut- verk Nicks, í hinni margverðlaunuðu klasssík. Sjálfur fékk Walken Óskarinn og verðlaun Samtaka kvikmynda- gagnrýnenda í New York, fyrir ógleymanlega túlkun sína á þeim æskuvinanna þriggja, sem náði ekki heim úr hryllingi Víetnamstríðsins. Varð eftir í rústunum, útbrunnið flak, ofurseldur eiturlyfjum og óbærilegri lífsreynslu. Atriðin þar sem þeir fé- lagarnir (hinn leikinn af Robert De Niro), tengjast rússneskri rúllettu, eru með þeim minnisstæðustu á of- anverðri, síðustu öld. Einkum er æskuvinirnir hittast á ný, er De Niro leitar hans í stríðshrjáðri höfuðborg Suður-Víetnam, og finnur undir við- bjóðslegum kringumstæðum og spyr hvað hann hafi gert við hendur sínar. Christopher Walken er fæddur í New York, fyrir miðja 20. öldina, sonur bakara í Queens. Vildi greinilega ekki taka við fjölskyldufyrirtækin en var aðeins 15 ára kominn á leikhússvið í borginni, í utan-Broadway uppfærslu á J.B., eftir Archibald McLeish. Hann kom þá fram sem Ronnie Walken og tók ekki upp Christophersnafnið fyrr en á Broadwaysýningu söngleiksins Bak- er Street (’65). Í millitíðinni stundaði hann nám í listgrein sinni við Hofstra háskólann og ANTA. 1966 vann Wal- ken the Theatre World verðlaunin fyrir góða frammistöðu í nýrri Broadway uppfærslu The Rose Tattoo, eftir Tennessee Williams. Tveim- ur árum síðar birtist hann í fyrsta skipti á tjaldinu, í heimildarmyndinni Me and My Brother. Löngum hallur undir hlutverk sinnisveikra einstak- linga, tók Walken fegins hendi hlut- verki sjálfsmorðsþenkjandi bróður Diane Keaton í Annie Hall (́77) og hafði þá leikið misstór og -góð aukahlut- verk í myndum á borð The Anderson Tapes (’71), The Sentinel (’76), og Next Stop Greenwich Village (’76). Myndin sem fylgdi eftir tímamóta- verkinu The Deer Hunter, var spennumyndin The Last Embrace (’78), ein af fyrstu myndum Jonat- hans Demme (Lömbin þagna). Hefur sjálfsagt litið vænlega út á papp- írnum, en er bragðdauf og gekk illa. Svipaða sögu að segja af næsta viðfangsefni, The Dogs of War (’81). Byggð á ágætri metsölubók Fred- erics Forsythe, en allt kom fyrir ekki, mynd Johns Irvin hlaut enga náð fyrir augum almennings. Við tók Heaveńs Gate (’81), sögufræg risamistök sem kostuðu United Art- ists líftóruna, en Walken reyndi sem hann gat að kála ferlinum, sem enn var í sæmilegu standi, með því að taka næst á eftir, aukahlutverki í Pennies From Heaven (’81), söngva- og dans- amynd sem fældi frá sér áhorfendur. 1983 rofaði til, Walken fór vel með hlutverk „venjulegs“ manns og vann hug og hjörtu bíó- gesta í spennuhrollinum The Dead Zone (’83), byggðri á met- sölubók Stephens King, gerðum af David Cronenberg. Því næst lá leiðin í James Bond sápuna, A View to a Kill (’85), árið eftir var hann magnaður sem varasamur þrjótur og faðir Seans Penn, í At Close Range, vanmetinni og fáséðri mynd. Síðustu 15 árin hefur Walken ekki þurft að kvarta undan atvinnuleysi, en flest hafa hlutverkin og myndirnar verið lítt minnisstæðar og einhliða. Walken hefur leikið í allt að 7 myndum á ári (’98), og myndirnar telja á sjötta tuginn þennan hálfa annan áratug, Þar er að finna algjört rusl, einsog McBain (’91), Celluloid (’95) Touch (’97), og Vendetta (’99). Ábúðarmikið rusl: Nick of Time (’95), Last Man Standing (96) og A Blast From the Past (’99). Inná milli hefur glitt í betri myndir á borð við King of New York (’90), True Romance (’94), Suicides King (’97), og Sleepy Hollow (’99). Þá brá honum fyrir í Pulp Fiction (‘94), og hann raddsetti með ágætum, eina fígúranna í Antz (’98). Upptekinn og illskeyttur Reuters Sæbjörn Valdimarsson SVIPMYND Christopher Walken hefur vart átt tilfinningaþrungnara atriði en síðara rússnesku rúll- ettuatriðið í The Deer Hunter í síð- ustu 30 myndum, eða svo. Eftir þetta glæsilega gegnumbrot, snemma á ferlinum, hefur leið magn- aðs leikara að mestu leyti legið niður á við og hann ílenst í hlutverkum vafasamra persóna, oftar en ekki heilsutæpra á geði. Christopher Wal- ken er senn sýnilegur Íslendingum í gamanmyndinni American Sweethe- arts (’01), einni af mörgum sem þessi eftirsótti aukaleikari kemur fram í í ár og á því næsta. D UNST hefur fengiðfeikigóða dóma fyrir yf-irvegaðan, seiðandi leik sinn í hlutverki Lux Lisbon, einnar fimm systra sem af ill- skiljanlegum ástæðum svipta sig lífi í frumraun Sofia Coppola, Virgin Suicides, sem byggð er á skáldsögu Jeffrey Eugenides. „Þetta er eftirlætismyndin mín af þeim sem ég hef leikið í,“ segir hún í blaðaviðtali. Frammistaða hennar sýnir að hún er orðin þroskuð leikkona, aðeins 19 ára gömul en með um 40 bíómyndir að baki. Hún er barnastjarna, sem náð hefur að vaxa í faginu um leið og hún vex úr grasinu. Sama má segja um leik henn- ar í nýju myndinni Crazy/ Beautiful, sem þó er allt annar fótleggur – rómantískt unglinga- drama. Ekki er algengt að slíkar myndir fái jafn góða dóma og þær fá aðsókn, en það gerðist þó með Crazy/Beautiful. Kirsten Dunst leikur hér ekki beinlínis prúðu og penu stúlk- una; í upphafi er hún uppreisnargjörn þingmannsdóttir, sem skrópar í skóla, reykir hamp og drekkur stíft en þeg- ar hún verður ástfangin af stilltum, metnaðarfullum en fátækum strák af rómönskum ættum verða kaflaskil í þroskasögu hennar. Mömmustelpa Sjálf á hún ekki æskuppreisn að baki. Í rauninni hefur hún ekki haft tíma fyrir hana vegna þess að hún hefur verið fyrir framan tökuvélina sem næst samfleytt frá þriggja ára aldri þegar hún hóf að „leika“ í aug- lýsingum. Hún hélt áfram fyrirsætu- störfum þar til hún kom sjö ára gömul fram í agnarsmáu hlutverki í kafla Woodys Allens í New York Stories. Móðir hennar hefur verið drifkraft- urinn bak við þennan feril Kirsten, en hún er fyrrverandi listaverkasali sem skildi við föðurinn og fluttist frá aust- urströndinni með dótturina og soninn Christian til Los Angeles. Þegar þangað var komið lét móðirin Kirsten mæta í allt að þrjár leikprufur á dag. „Hún er mjög hvetjandi,“ er orðalag Kirsten og hún neitar því að móðirin hafi ýtt henni í störf sem hún vildi ekki sjálf. „Við höfum alltaf ákveðið allt saman,“ segir hún. Þær mæðgur reka nú saman framleiðslufyrirtækið Wooden Spoon Productions. Oj bara að kyssa Brad Pitt! Eftir að Kirsten fékk hlutverk dótt- ur Toms Hanks í skellinum Bonfire Of the Vanities fóru stóru hlutverkin að bjóðast og hún vakti mikla eftir- tekt í erfiðu hlutverki barnungrar stúlku sem vampýrurnar Tom Cruise og Brad Pitt gerðu að blóðsugu í Int- erview With the Vampire, þá aðeins 12 ára gömul. Leikstjóri myndarinn- ar, Neil Jordan, valdi hana úr hópi 5.000 umsækjenda, m.a. Christina Ricci. Nokkrar deilur spruttu vegna kynferðislegra undirtóna hlutverks- ins en sjálf segir Kirsten sér hafa fundist mjög vont að þurfa að kyssa Brad Pitt! Skemmtilegt þótti henni hins vegar að beita höggtönnunum og svolgra í sig blóð. Sama ár, 1994, stað- festi hún hæfileika sína sem hin létt- úðuga Amy í kvennadramanu Little Women og þar með varð hún ein eftir- sóttasta barnastjarnan í Hollywood. Helstu hlutverk hennar sem stelpu hafa verið í Jumanji, Wag the Dog og Small Soldiers. Og oj bara að kyssa Kevin Spacey! Þegar hún komst á unglingsárin tókst henni, ólíkt mörgum barna- stjörnum, að halda velli í samkeppn- inni og sýndi t.d. bráðglúrinn leik í gamanmyndunum Drop Dead Gorg- eous og Bring It On. Og allt útlit er fyrir að hennni takist jafnframt að feta sig frá unglingamyndunum yfir í fullorðinsmyndir. Hún segist hafa valið Crazy/Beautiful sem eins konar brú þangað; hún var orðin þreytt á sætu og góðu stelpunum og langaði í eitthvað kröfuharðara og flóknara. Hún þurfti að leika kynlífsatriði með mótleikara sínum Jay Hernandez en kveðst í blaðaviðtali harma að fram- leiðendur klipptu hana til. Það kemur á óvart því samkvæmt fréttum voru það hún og móðir hennar sem kröfð- ust þess að tveggja mínútna nektar- sena væri klippt burt. Þess má geta að Dunst hafnaði hinu djarfa hlut- verki Angelu í American Beauty. Um þá ákvörðun hefur hún sagt: „Þegar ég las handritið var ég 15 ára og ég held að ég hafi ekki verið nógu þrosk- uð til að skilja það. Ég vildi ekki kyssa Kevin Spacey. Og að þurfa að liggja þarna nakin með rósablöð yfir mér!“ Hún hefur nú tekið kossa í sátt og slegið sér upp með ýmsum sjálfsagt kyssilegum náungum í Hollywood, þ.ám. syni Dustins Hoffmans og leik- aranum Ben Foster. Um ástina segir ungfrúin: „Ég mundi aldrei gráta út af einhverjum strák. Hvers vegna að eyða tárum í einhvern sem fær mann til að gráta?“ Og er það sjónarmið í sjálfu sér. Í næstu mynd sinni þarf hún að kyssa ýmsa og leikur „uppfyrir“ sig, 27 ára leikkonu að nafni Marion Dav- ies sem var ástkona Williams Hearst blaðakóngs, sem var fyrirmyndin að Citizen Kane, sögufrægu meistara- verki Orsons Welles. Myndin heitir The Cat’s Meow og er leikstýrt af Peter Bogdanovich, sem ekki hefur gert mynd lengi. Og næsta sumar birtist hún í Kóngulóarmanninum í hlutverki kærustu titilpersónunnar. Hún gleymist tæpast í bráð, hún Kirsten Dunst. Kostir og kossar Kirsten Dunst Ungstirnin, sem skjótast upp á Hollywood-hvelfinguna, eru mörg, skin þeirra oftast dauft og flest sogast þau aftur í svarthol gleymskunnar. Kirsten Dunst gæti orðið ein af undantekningunum, skrifar Árni Þórarinsson, enda reynsla hennar lengri en flestra. Hún sannar það í tveimur myndum í sýningu hérlendis, Virgin Suicides og Crazy/Beautiful, sem frumsýnd er um helgina. Með fyrrverandi tilvonandi tengdapabba: Kirsten með Dustin Hoffman og Mimi Rog- ers á góðri stund. Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.