Vísir - 24.09.1979, Qupperneq 7

Vísir - 24.09.1979, Qupperneq 7
Mánudagur 24. september 1979 , % V* ■%' *.-* 7 „við erum aiis ekki að kreflast launahækkunar” Vegna athugasemda heilbrigðismálaráðherra viðvikjandi uppsögn sérfræðinga i taugasjúk- dómafræðum á samningi við Tryggingastofnun Rikisins (TR) og Sjúkrasamlag Reykjavikur (SR), bið ég yður að birta eftirfarandi i blaði yðar: Sú fullyrðing ráðherra, aö uppsagnir okkar séu ólöglegar, hlýtur að stafa af þekkingar- skorti. Lög kveða hvergi svo á aö læknar skuli vinna eftir sér- stökum samningi við TR og SR. Hvort uppsagnir okkar sam- rýmast gildandi samningi sér- fræðinga við TR og SR, mun verða skorið úr meö gerðardómi og við munum hlita þeim úr- skurði. 1 nefndum samningi eru uppsagnarákvæði sem stjórn Læknafélags Reykjavikur hefur túlkað svo, að okkur væri heim- ,,Við erum ekki að krefjast kauphækkunar eða neinnar þeirrar breytingar á gjaldskrá, sem leiði til aukinna greiðslna okkur til handa. Deilan stendur um það, að okkar sérfræðilega skoðun sé metin óbreytt frá þvi sem var I samningum fyrir 1. júli en greiðsla fyrir hana ekki lækkuð” segir Sverrir Berg- mann læknir i þessari grein sinni um deilu sérfræðinga við heilbrigðismálayfirvöld, sem hefur leitt til þess að nokkrir læknar hafa sagt upp störfum hjá Sjúkrasamlagi Reykjavfk- ur. ilt að segja okkur undan samningum með ákveðnum fyrirvara miðað við 30. júnl og 31. des. ár hvert. Rétt er aö benda ráðherra á þaö, að upp- sagnir okkar bárust i byrjun þessa árs og áttu að koma til framkvæmda 1. júll s.l. Það var þvi hálft ár til stefnu til skipunar gerðardóms og fyrir hann til að skila úrskurði sinum fyrir 1. júli. Framkvæmd málsins hefur orðið sú, að geröardómur er fyrst fullskipaður nú um miðjan sept.,eða 9 mán. eftir að upp- sagnir okkar bárust. Slik vinnu- brögö eru tæpast til fyrir- myndar. Rétt er einnig að benda ráðherra á það að viðsemjendur okkar hafa ekki sett sig i sam- band við okkur allan þennan tima, þeir hafa ekki tilkynnt okkur um framvindu mála, þ.á.m. um skipun gerðardóms og þeir hafa ekkert frumkvæöi haft um að leysa þann ágreining sem er okkar á milli og sem þeim er vel kunnur. Viö höfum hinsvegar margoft haft samband viö okkar samtök, sem einnig er vel kunnugt um hvað deila okkar snýst. Við höf- um verið reiöubúnir til samn- inga og sett fram fleiri en eina tillögu um hversu leysa mætti ágreininginn, þannig að báðir aðilar mættu sæmilega vel við una. Viðsemjendur okkar hafa ekki sýnt þessu hinn minnsta áhuga. Viö höfum einnig, þrátt fyrir þessa framkomu viðsemj- enda okkar, haldið áfram eftir 1. júli, að veita þjónustu, þótt takmörkuð hafi verið, en þó þannig, að ekkert neyðarástand hefur skapast og öllum vanda- málum hefur verið sinnt tafar- laust, sem enga bið hafa þolaö. Engin greiðsla hefur komiö fyrir þau störf. Vert er að það komi mjög skýrt fram, að við erum ekki að krefjast kauphækkunar eða neinnar þeirrar breytingar á gjaldskrá, er leiðir til aukinna greiðslna okkur til handa. Deilan stendur um það, aö okkar sérfræöilega skoðun sé metin óbreytt frá þvi sem var I samningum fyrir 1. júll, en greiðsla fyrirhana ekkilækkuð. Ekki er siður mikilvægt að ráöherra geri sér grein fyrir þvi, að gerðardómur fær engu um það breytt, hvort stofur okkar verða opnar eða ekki. Umfram þá siðferðilegu skyldu, sem læknar hafa og munu ekki bregðast, veröur sérfræðiaðstoö við sjúklinga ekki tryggð nema með ákvæðum þar um I samningum, er geri heilbrigöis- yfirvöld ábyrgari en nú er og svo með þvi auðvitað að eölileg samvinna sé milli lækna annars vegar og TR og SR hins vegar. Framkoma þessara siöast- nefndu aðila og nú einnig ráð- herra I okkar máli er hinsvegar með þeim hætti, að ekki verða teknar alvarlega yfirlýsingar þeirra um áhyggjur vegna hags og velferðar skjólstæðinga þeirra sem þeir svo kalla, það er hinna sjúku og læknisþurfandi. Fari svo að sérfræöingar I taugasjúkdómafræðum veröi endanlega lausir samninga við TR og SR, hvort heldur þaö gerist 1. nóv. eða siðar, er þar viö engan að sakast nema þessa siðarnefndu aöila, sem með FROSKMENN NÝKOMIÐ KtJTAR LUNGU RELTI OG BLÝ Utilíf Glæsibæ — Sími 30350 FLEIRI SÉRFRÆOINGAR SEGJA SIG UR SJÚKRASAMLAGINU: TAUGASJÚKDÚMALÆKNAR LOKA STOFUM SÍNUM ,\st*ðan lyriruppsogn okkar hja sjukrasam- «"•«• >™« t.»n ' V I.iginu var deila um taxtann Vift vorum að mot- '*“* .. mata lakkunhans oft samsetmngu. en þrtta var M*V'HV "» ■*•. •' ^ fkki stftrt Ijarhagsmar. sagfti Svemr Berg- mann. sertræftingur i taugasjukdftmum I samtali ““^*» »•-” •».»».-*,<••«»»«». *•£" framkomu sinni hafa brugðist þeirri meginskyldu við skjól- stæðinga sina að tryggja þeim sérfræðilega læknisaðstoð. Þetta er þeim mun sorgiegra, sem deilumál okkar gaf ekkert tilefni til þess og að allur vilji var fyrir hendi hjá okkur að komast að samkomulagi, án þess aö þaö hefði I för með sér nokkra aukningu á greiðslum, hvorki hinna sjúku né tryggingakerfisins. Aðrar athugasemdir ráöherra eru ekki svaraverðar. Sorglegt er til þess að vita að hann skuli telja aö skattsvik og fégræögi liggi að baki ákvörðun okkar. Hætt er við að þessar ásakanir ráðherra kunni að reynast örlagarikari en hann ætlar og hefðu betur verið geymdar I huga hans en á prenti. Sú full- yrðing hans að læknar séu með uppsögn samninga að afla sér meira fjár fyrir vinnu sina er staöleysa og gagnvart okkur sérfræðingum I taugasjúk- dómafræöi er þessi fullyrð- ing I hæsta máta ómakleg eins og ráðherra gæti komist að raun um, ef hann vildi vita og þekkja áður en hann talar. Hvað skattsvikum viðkemur hafa sérfræöingar fengið öll sin laun greidd hjá opinberum aðilum og greitt opinber gjöld af hverri krónu lögum samkvæmt á hverjum tlma og þvi sýnst tekjuhærri en ýmsir aðrir I þessu þjóöfélagi, sem eftir skattframtölum hafa vart nema fyrir nauöþurftum, þó þeir hafi að ööru leyti sýnt ótrúlegustu umsvif á afgangi matarpen- inganna. Ef sjúkrasamlög endurgreiöa reikninga lækna sem starfa utan samlaga, er hægt að fylgjast með tekjum þeirra meö sama hætti og áður, og skattsvik koma á engan hátt inn i myndina. Þetta atriði er þó ekki hægt að ræöa frekar við ráðherra, því hann er ekki aö koma á fram- færi sinum skoöunum heldur þvi sem mæla illar tungur. Þaö verður að vera mat hans sjálfs hvort hann telur sæmandi og við hæfi að hafa Gróu á Leiti að sér- stökum skjólstæöingi sinum. Sverrir Bergmann BETRA ÚTLIT, MEIRA ÖRYGGI. Fjölskyldubíllinn VW Derby hefur gengið í gegnum nokkrar breytingar til bóta fyrir útlit hans og öryggi. Nú býöst hann með nýju erilli, nýjum Ijósum og glœsilegra mœlaborðt Styrktum stuðurum auk endurbætts og kraftmeira hita- og loftræstikerfis. Derby er sparneytinn svo af ber og hár á vegi. Traust Volkswagen þjónustan er og góður bakhjarl. Stór orð um nýjan Derby, komdu og sannreyndu þau sjálfur. Nokkrir bílar fyrirliggjandi. S ÝNINGARBÍLL Á STAÐNUM. HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 z NUFÆ5TNYR

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.