Vísir - 24.10.1979, Side 15
vtsm
Mi&vikudagur 24. október 1979
Jóhanna Siguröardóttir er hálf einmanaleg á þessari mynd innan um alla karlkynsþingmennina. Nú eru
uppi raddir um aö of litiö sé af konum á þingi og jafnvel taiaö um sérstakan kvennalista.
Það er nóg af
konum í framboði
MA hringdi:
Ég sá i Visi að raddir væru
uppi um þaö i Vesturlandskjör-
dæmi að bjóða fram sérstakan
kvennalista. Það þætti nii saga
til næsta bæjar ef boðiö yrði upp
ásérstakan karlalista einhvers-
staðar. Mér þykir meira að
segja liklegt að það þætti furðu-
leg uppákoma ef kæmi sérstak-
ur framboðslisti með lög-
fræðingum, hjúkrunarkonum
eða leigubilstjórum.
Annars er það skondið að
ihaldið skuli hafa verið i farar-
broddi með alþingismenn af
„veikara” kyninu og að það
skuli hafa átt einu konuna sem
setið hefur i ráðherrastól hér-
lendis. Það eru þó aðrir ftakkar
sem hafa verið háværastir um
jafnrétti kynjanna.
Alþýðubandalagið lætur sig
hafa það i nafni þessa jafnréttis
að ætla einni konu öruggt sæti á
lista flokksins hvað sem hæfi-
leikum liöur og er nú verið að
leita að frambærilegri konu, þar
sem Svava Jakobsdóttir rithöf-
undur ætlar að hætta. Alþýðu-
flokkurinn ætlar lika aö bjóöa
upp á Jóhönnu Sigurðardóttur
áfram, en hún á sæti I stjórn
Verslunarmannafélags Reykja-
vikur svo væntanlega gefst
þeim Reykvikingum, sem sér-
staklega vilja sýna velvild tii
kvenna á prófkjörs- og
kosningalista , kostur að sýna
hug sinn hjá öllum flokkum
nema Framsókn.
Sjálfstæðisflokkurinn gerir
sér eflaust vonir um að fá Sigur-
laugu Bjarnadóttur aftur inn
fyrir vestan, en Geirþrúður
Bernhöft gefur ekki kost á sér i
Reykjavik. Það gera hinsvegar
fjórar aðrar konur i þeim flokki,
þær Björg Einarsdóttir sem
mun vera f ormaður Sjálfstæðis-
kvennafélagsins Hvatar, Jóna
Sigurðardóttir, Ur fjölmennustu
stétt landsins, húsmóðurstétt-
inni, Erna Ragnarsdóttir innan-
húsarkitekt sem berst fyrir
menningunni og loks Bessi Jó-
hannsdóttir kennari og vara-
borgarfulltrúi sem mun hafa
mestan áhuga á menntamálum
og hefur gengið á undan i bar-
áttunni fyrir að kveða niður
vinstri áróður i skólum og að
ekki sé gengið á kristnifræði-
kennslu.
Fljótt á litið virðist þvi nokk-
urt framboð vera af konum sem
Reykvikingar geta sagt álit sitt
á i komandi kosningum. Þeirri
fullyrðingu Jarnréttisráðs að
fleiri konur verði að komast á
þing geta kjósendur einir svar-
að.
En sérstakur kvennalisti
finnst mér uppgjöf hjá konum
og hreinasta grin.
ARNI STEND-
IIR UTAN VID
HREPPARÍGINN
Ekkí bara í
Dessari vlku
S. Jónsson Akureyri
hringdi:
Það er gott tilþess að vita, að
þeir aðilar, sem vinna að
áfengisvörnum i landinu skuli
hafa getað komið sér saman um
að gangast fyrir vikuherferö
gegn þessum vágesti. En ég er
bara svolitið hræddur um að
þetta verki ekki nógu vel, þótt
mikið sé skrifað og skrafað um
þessi mál i eina viku. Þaö getur
orðiö of mikið af þvi góða og
farið að minna menn of mikið á
áfengið.
Betra væri aö jafnt og þétt
væri fólk frætt um skaðsemi
vimugjafanna og finnst mér að
rikisfjölmiðlarnir ættuað ganga
þar á undan með góöu fordæmi
og aðrir fjölmiðlar að fylgja á
eftir.
Það ætti að vera hægt að
skjóta inn stuttum varnaðarorð-
um og fræðslu um þau mál eins
og umferðarmálin, sem enginn
friður er fyrir.
Þingeyingur simar:
„Mér hefur verið sagt að i
Dagblaöinu hafi birst lesenda-
bréf frá „nokkrum sýslungum”
Braga Sigurjónssonar. Þar hafi
menn verið hvattir til að kjósa
Braga en hafna Árna Gunnars-
syni þar sem Árni væri fulltrúi
Reykjavikurvaldsins.
Ekki hefi ég geð i mér til aö
svara þessu á siðum Dagblaðs-
ins sem svo hart berst á móti
bændum. Hins vegar finnst mér
ástæða til að geta þess að við
Þingeyingar kjósum Arna mun
frekaren Braga. Þaðkom best I
ljós á fundi sem haldinn var á
Húsavik um daginn hjá Alþýðu-
flokksmönnum en þar var
sterkur vilji fyrir þvi að skora á
Braga að draga sig I hlé.
Bragi Sigurjónsson ætti að
geta sætt sig við að hætta I póli-
tikinni sem ráðherra og draga
sig i hlé, enda kominn um sjö-
tugt.
Arni Gunnarsson er hins veg-
ar ekki fulltrúi neins valds,
hvorki Reykjavikur eöa Akur-
eyrar og það gerir gæfumuninn.
Það ríkir nefnilega mikill rigur
á milli til dæmis Akureyrar og
Húsavikur og Húsvikingum
finnst flestum óþolandi að Akur-
eyri skuli ráða efstu sætunum i
öllum flokkum. Þvi er það sem
Arni á miklu meira fylgi I Þing-
Bréfritari telur Arna Gunnars-
son geta sett niöur riginn milli
Akureyringa og Húsvikinga.
eyjarsýslum heldur en Bragi.og
mér sagt af Akureyringum að
þar beri mönnum saman um aö
taki Arni aö sér að leysa úr mál-
um kjósenda, hvar I flokki sem
þeir standa, þá standi hann við
það.
En það sem ég vildi leggja
áherslu á er að gamla grýlan
um Reykjavikurihaldið er löngu
hætt að hrifa hér. Þvert á móti
er það miklu vænlegra til ár-
angurs að fá hæfan mann eins
og Arna á þing þar sem hann
blandast ekki inn i hreppariginn
sem enn er hér milli gömlu kjör-
dæmanna”.
15
Djóðum ondlitsböð með hinumviður-
kenndu Dior og Loncome snyrtivörum
Dömur othugið
Sérstokur ofslottur of Ojo skipto
ondlitsnuddkúrum
Opiðó
^oy lougordögum
s/f Gl^i
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
Reykingcamenn
Fimm daga námskeið til að hætta reykingum
verður haldið í Safnaðarheimili aðventista á
Blikabraut2 í KEFLAVIK. Námskeiðið hefst
sunnudaginn 28. október 1979 kl. 20:30 og
stendur yfir í fimm kvöld. Meira en tólf
milljónir manna víða um heim hafa notið góðs
af þessari viðleitni aðventista til að bæta
heilsu almennings.
Leiðbeinendur verða
Snerri Ólafsson lœknakandidat
og
David West prestur
e
Upplýsingar eg skráning
í sima 91-13899 á skrifstofutíma
eða 92-2477 efftir kl. 19
íslenska bindindisfélagið
I samvinnu við
X
s;
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
X
ÓDÝR
DILKA-
SLÖG