Vísir - 24.10.1979, Blaðsíða 16
16
■BHiBaiétfkacíS^KYi^aa^toí^^riBam
VÍSIR
Miövikudagur 24. október 1979
Umsjón:
Katrin Páls-
dóttir
ar eru IM”
- segir Nína Björk Árnadóttir um leíkrit
sitt „Hvað sögðu englarnir?”
,,Ég veit að svona strákar eru
til , en þessi strákur hefur aðal-
lega orðið tii i minum skálda-
heimi,” sagði Nina Björk Árna-
dóttir, þegar Visir ræddi við
hana um leikrit hennar „Hvað
sögðu englarnir”, sem Þjóðleik-
húsið frumsýnir annað kvöid.
Leikritið fjallar um strák,
sam allt frá barnæsku hefur lent
i alls konar vandræöum. Nina
Björksagði, að grind leikritsins
heföi hún skrifað fyrir nokkrum
árum, en endarúeg leikgerð
heföi orðið til i sumar. Þá hefði
hún unniö að uppfærslu leikrits-
ins í samvinnu við leikstjórann,
Stefán Baldursson, leikmynda-
teiknarann, Þórunni Þórgrims-
dóttur, og leikarana.
„Við færðum leikritið I
draumkenndan búning í Ut-
færslunni,” sagði Nina Björk.
„Sviðið er veitingastaður. A-
horfendur verða á dansgólfinu i
leikhúskjallaranum, en leikur-
inn gerist umhverfis. Við notum
grisjutjöld, sem sést vel I gegn-
um, til að undirstrika að það
sem gerist er draumur stráks-
ins.
Hann dreymir þá atburði,
sem gerst hafa I lifi hans, og það
fólk sem þar kemur við sögu. Og
I draumi getur allt gerst.”
Sigurður Sigurjónsson leikur
strákinn og Tinna Gunnlaugs-
dóttir unnustu hans. Með önnur
hlutverk fara Briet Héðins-
dóttir, Helga Bachmann, Bessi
Bjarnason, Helgi Skúlason,
gott og þaulhugsað. Emil er á-
takanlega aumkunarverður Þðr-
bergur, en þó svo samúðarvekj-
andi, að andi bókarinnar skilar
sér fullkomlega. Margir fleiri
koma við sögu þennan tima i
Bergshúsi. Minmsstæðastir eru
þeir Harald G. Haralds og Hjalti
Rögnvaldsson f hlutverkum stúd-
entanna. Soffia Jakobsdóttir ger-
ir líka mjög góða hluti. Sem og
allir aðrir. Með sameiginlegu á-
taki verður þetta listileg útkoma.
Égheld mérsé óhættað fullyrða,
að brosið hafi ekki dáið á vörum
leikhúsgestaalla þessa þrjá tima,
sem sýningin tók, og fagnaðarlát-
um ætlaði aldrei að linna i lokin.
Ég óska Leikfélagi Reykjavik-
ur til hamingju með þessa
skemmtilegu sýningu. Megi hún Þðrbergarnir tveir: Jón Hjartarson og Emil Guðmundsson.
lengi lifa.
Þórhallur Sigurðsson, Helga
Jónsdóttir, Sigriður Þorvalds-
dóttir og Arnar Jónsson.
„Égreyni þarna að sýna fram
á þá tvöfeldni i þjóðfélaginu, að
fótunum sé kippt undan strák-
um, sem lenda utangarðs, á
meðan stórsvindlið fær að
grassera,” sagði Nina Björk.
— Er þetta þá varnarræöa
fyrir vandræðaunglinga?
„Það eru ekki til vandræða-
unglingar, heldur eru það að-
stæður þeirra sem eru vandr-
æðin.”
—SJ
Nina Björk
„Svona strák-
Helga Bachmann og Tinna Gunnlaugsdóttir I hlutverkum sinum i
„Hvað sögðu englarnir?”.
Glæsilegur sigur!
Ofvitinn
eftir Þdrberg Þórðarson
I teikgerð Kjartans Ragnars-
sonar.
Tóniist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Steinþór
Sigurðsson.
Lýsing: Daniel Williamsson.
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson.
Fagnaðarefni
Mikið er gaman i leikhUsinu,
þegar vel gengur. Mann langar til
að standa upp og hrópa húrra,
jafnvel hlaupa upp um hálsinn á
listafólkinu. Það er ekkert nema
þessi sama gamla islenzka
feimni, sem heldur aftur af
manni. Allt þetta kom yfir mig að
lokinni frumsýningu á Ofvitanum
i Iðnó á laugardagskvöldið. Hver
hefði getaö trúað þvi, aö þessi
bók, sem maður hló inn i sig um
tvítugt, af þvi að maður vildi
vera róttækur og töff, nyti sin
svona vel I leikbúningi? Hver
hefði trúað þvi, að hinn galsa-
fengni mórall kæmist svona vel
til skila, eins og raun bar vitni?
Og hver hefði trúað þvi fyrir
fjörutiu árum, að islenzka
borgarastéttin ætti eftir að
skemmta sér yfir Þðrbergi sem
góðlátlegum og allsendis hættu-
lausum grinista? Slikt var óhugs-
andi.
Ofvitinn er endurminningar
roskins manns, það liða þrjátiu ár
frá þvi atburðirnir gerast, þar til
bókin er gefin út. Afstaða höf-
undar til hins umkomulausa
unglings er vingjarnleg. Hann
skopast að sjálfum sér, en er þó
fullur samúöar. Hann skopast að
samtið sinni, en með vissu um-
burðarlyndi þó, þvi að timinn
læknar öll sár,og Þdrbergur fékk
uppreisn æru. Það snilldarlegasta
viðbókinaer þóorðfæri höfundar,
og sem betur fer, er þvi hvergi
hnikað til. Leikstjórinn fer ekki út
á þá braut aö leggja einhverja
persónulega merkingu i orð og
uppákomur, heldur leyfir höf-
undinum að njóta sin tii fullnustu.
Sýning Ofvitans er glæsilegur
sigur og i rauninni merkisatburð-
ur i islenzku leikhúslifi. Fyrst og
fremst er það að þakka Kjartani
Ragnarssyni, sem fékk þá furðu-
leguflugu Ihöfuðið að setja Ofvit-
ann á svið, og jafnframt leikstjór-
anum, Kjartani Ragnarssyni,
sem tókst að skila þessu verkefni
sinu heilu i höfn. Uppfærslan er
frábær og nýtur sin mjög vel I
þeirri umgerð,sem Steinþór valdi
henni. Með einföldum tjöldum og
leikmunum ganga skiptingar
mjög greiðlega, atburðarásin er
hröð og átakalaus, allt klárt og
skýrt. Tónlist Atla er Ismeygilega
skopkennd, alveg i stil við anda
verksins. Ljósameistari brást
heldur hvergi.
Sýning Ofvitans er lika sigur
fyrir meistara Þórberg, sem birt-
ist okkur á sviðinu i tvöföldu
gervi. Jón Hjartarson leikur
meistara Þorberg, rithöfundinn,
sem skráir sögu unglingsins. Mér
finnst Jónná Þðrbergi bæði i' tökt-
um og látbragöi, án þess þó að
vera bara eftirherma. Samspil
hans og Emils Guðmundssonar i
hlutverki æskumannsins mjög
leiklist
Bryndis
Schram
skrifar
Billiardstofan Plútó getur tekið á móti 12 gestum. Vísismynd
Billiardstofa í Ketlavfk
íslenskir höfundar
á húigörsku
„Við getum tekið á móti tólf
manns eins og er, en eigumvoná
borði til viðbótar og þá getum við
fjölgað gestum um fjóra”, sagði
Arni JUlíusson einn eigandi bill-
iardstofunnar Plútó, sem opnuö
hefur verið i Keflavik. Meðeig-
andi Árna er Grétar Grétarsson.
Billiardstofan er við Hafnargötu
32. Þar eru tvö 12 feta borð og eitt
8 feta. Eigendur hafa innréttað
stofuna sjálfir. Þar er öl- og sæl-
gætissala.
„Aldurstakmarkið hjá okkur
er 16 ár og við höfum strangar
gætur á að ekki sé haft vin um
hönd”, sagði Arni.
Billiardstofan Plútó er opin
virka daga frá klukkan 17 til 23.30
og frá 13 til 23.30 um helgar.
—KP.
Komið er Ut i BUlgariu safn-
ritið Maðurinn og hafið i bók-
menntum Norðurlanda, Urval
sagna frá þessum löndum, allt
frá tólftu öld og fram á okkar
daga.
Islenskir höfundar ritsins eru
Snorri Sturluson, Jón Trausti,
Kristmann Guðmundsson, Jón
Björnsson, Gréta SigfUsdóttir,
Þorsteinn Stefánsson, úlafur
Jóhann Sigurðsson, Matthias
Johannessenog Jóhannes Helgi.
Þá eru I bókinni verk eftir Knut
Hamsun, Martin Alexander
Nexö, Heinesen, Strindberg,
Verner von Heidestam og
Runeberg.
Jóhannes Helgi annaðist for-
val sagnanna, en valinu voru
þær skorður settar að sögurnar
væru tiltækar í þýðingum. Hlut-
ur Islendinga er einna fyrir-
ferðarmestur i bókinni, sem er
tæpar fimm hundruð blaðsiöur.
Útgefandi er G. Bakalóv i
Vanra.