Vísir - 04.12.1979, Qupperneq 2
f/y f * *» r* * * /
vísm Þriöjudag
ur 4. desember 1979
2
Reykirðu?
Þórður Halldorsson: Nei, þaö er
litiö, ég fæ mér vindil á stórhá-
tiöum. Hér áöur fyrr reykti ég
pakka á dag.
Baldur Sigurösson, starfsm.
Blaöaprents: Ég hætti fyrir 3
árum, þá var ég búinn aö reykja
i 30 ár og fannst timi til kominn
aö hætta. Þaö var ekkert erfitt.
Bjarni Karlsson, útvarpsvirki:
Nei, éghætti á „Reyklausa dag-
inn” og hef ekki fengiö mér
smók siöan. Þaö var leikur einn
aö hætta.
Sveinn Jóhann Sveinsson,
sendibilastjóri: Nei, þaö hef ég
aldrei gert og aldrei langaö til
þess.
Sævar Pétursson, nemi: Nei,
hef aldrei gert. Ég er hreykinn
af þvi en viö iþróttamenn reykj-
um ekki.
r
V
Svinhveliö í fjörunni austur viö Kvisker: Eins og sjá má er þaö töluvert illa farið og kann aö hafa rekið langar leiöir hingaö til lands.
Mynd Ævar Petersen
en alflpeí áður hér við lanfl
Merkilegan hval rak á fjörur austur við Kvi-
sker i A-Skaftafellssýslu nú fyrir helgi og var það
hvalur af ætt svinhvala. Hefur þessi tegund svin-
hvala aldrei fundist fyrr hér við land, að þvi er
best er vitað.
Að sögn Ævars Petersens,
dýrafræðings hjá Náttúrufræði-
stofnun Islands, var hér um að
ræða 6 metra langan hval og
hafði hann augsýnilega verið
dauður i nokkurn tima, þegar
hann fannst. Kann hann þvi að
hafa rekið töluverðan spöl sunn-
an úr hafi, en tegund þessi telst
til úthafshvala og koma þeir
sjaldan norðar i Atlantshaf en
að Bretlandseyjum.
Ævar sagði, að tegund þessi
væri sjaldfundin, vegna þess
hve djúpt hún lifir úti i hafi. Að-
eins væri vitað um 20-30 skipti
að hvalur þessi hefur fundist og
þá venjulega rekinn. Litiö væri
vitað um lifnaðarhætti hans,
nema hvað hann lifði mest á
smokkfiski og sild. Að útliti til
liktist hann nokkuð höfrungi,
nema hvað hann væri . miklu
stærri og klunnalegri. Þekktar
væru 15 tegundir af ætt svin-
hvala og væri þetta eins og áður
sagði i fyrsta sinn, sem þessi
tegund fyndist hér við land. Arið
1912 hefði hins vegar fundist
svinhvalur af annarri tegund og
hafði hann rekið á fjörur suður á
Vatnsleysuströnd, en það hefði
fyrst verið i fyrra að menn upp-
götvuðu hverrar tegundar hann
var.
Haus hvalsins var fluttur til
Reykjavikur nú um helgina, en
Ævar Petersen dýrafræöingur meö hauskúpu svinhvalsins. Visis-
mynd BG
skafa þurfti allt kjöt af beinun-
um-til að finna út nákvæmlega
hvaða tegund svinhvala hér
væri um að ræða. — HR
Sjaldgæfan
úthafshval
rekur á fjörur
Hvaiategund, sem aðeins hefur
fundist 1 20-30 sklpli I heimlnum.
Opnunartlmi versiana á laugardaginn:
„Munumekki leggja framkæru
gegn heim sem hðfðu opið”
- segir Magnús L. Sveinsson. skrifstolustlóri
,,Ég geri ekki ráð fyrir þvi að
við munum leggja fram kæru á
hendur þeim verslunum sem
höfðu opið eftir hádegi á laugar-
daginn i trássi við samkomulag
Kaupmannasamtakanna og
Verslunarmannafélags Reykja-
vikur”, sagði Magnús L. Sveins-
son, skrifstofustjóri VR, i samtali
við Visi. ,,Ég held nú, að sú hin
dræma verslun, sem var i þessum
búðum eftir hádegið, þegar þær
höfðu auglýst opnun fyrir margar
milljónir, sé nægileg refsing”.
Forsaga þessa máls er sú, að
nýlega var gert samkomulag
milli Kaupmannasamtakanna og
VR um opnunartima verslana i
desember og var þar ákveðið. að
laugardaginn 1. desember skyldi
aðeins opið til hádegis.
Reglugerð heimilar hins
vegar að opið sé til klukkan fjögur
fyrsta laugardag desember-
mánaðar og auglýstu fjórar
verslanir, Hagkaup, Karnabær,
Penninn og Vörumarkaðurinn, að
opið yrði hjá þeim til klukkan
fjögur, og var það brot d sam-
komulagi VR og Kaupmanna-
samtakanna.
Stefán Friðfinnsson hjá Vöru-
markaðinum sagði i samtali við
Visi fyrir helgi, að honum væri
fyrirmunað að skilja hvaða aðili
það væri, sem heföi hag af þvi að
aðeins væri opið til hádegis,
þegar „starfsfólkið vildi vinna og’
kúnnarnir vildu hafa opið”.
IJ