Vísir - 04.12.1979, Síða 5
Þriðjudagur 4. desember 1979
5
Guðmundur
Pétursson
skrifar
Þannig var umhorfs i Riverfront-hljómleikahöllinni i Cincinnati eftir slysið/ þar sem 11 unglingar troðust
undir/ er skriða áheyrenda ruddist til sæta sinna til þess aö hlýða á hljómsveitina The Who. Björgunarmenn huga
hér að líkum hinna látnu. Símamynd: UPI.
Ellefu tróöust undlr á
hljómieikum hjá WHO
Að minnsta kosti ellefu manns
létu lifið og margir til viðbótar
slösuðust, þegar fólk tróðst um til
þess að ná sætum við hljómleika
bresku rokk-hljómsveitarinnar
WHO i Cincinnati i Ohio i . hljómleikunum.
gærkvöldi.
Fólkið tróðst undir, þegar það
féll i ruðningnum, og aðrir hirtu
ekki um, þótt á þvi væri troðið i á-
kafanum til þess að ná sætum á
Salurinn tók um 18.000 manns i
sæti og var uppselt á hljómleik-
ana. Sæti voru ónúmeruð svo að
þeir sem fyrstir komust að, náðu
bestu sætum. Um leið og fólkinu
varhleypt inn, tók það á sprett og
tróðst áfrarft, eins og hver hafði
bolmagn til.
Flestir voru táningar eða rúm-
lega tvitugir.
Þelr síð-
ustuí
moskunni
eru nú
loks
slgraðlr
Her. Saudi Arabiu hefur yfir-
bugað siðustu uppreisnarmenn-
ina, sem tóku moskuna miklu i
Mekka á dögunum með vopna-
valdi.
Þeir siðustu héldu út i tvær vik-
ur, þar sem þeir höfðu búist til
varnar i kjallara moskunnar.
Voru þeir annað hvort handteknir
eða felldir i áhlaupi stjórnarher-
manna i nótt, eftir þvi sem kvis-
ast hefur frá Riyadh.
Þeir voru úr 200 manna hópi,
sem laumaðist með vopn inn i
moskuna 20. nóvember, tók fjölda
pilagrima gisla og lýsti einn úr
hópnum ,,mahdi”, sem er lausn-
ari múhammeðstrúarmanna.
Moskan, sem er helgasta guðs-
hús múhammeðstrúarinnar,
skemmdist mikið i átökunum,
sem urðu milli uppreisnar-
mannanna og hermanna Saudi
Arabiu.
Ekkert hefur frétst af afdrifum
þeirra uppreisnarmanna, sem
yfirbugaðir voru, en vist þykir, að
þeirra biði ekkert annað en
böðulssverðið.
Stjórnarskrárkosningar í iran:
Dræm kiðrsókn
Þjóðaratkvæðagreiðslan i tr-
an um hina nýju stjórnarskrá
landsins var viða framlengd i nótt
til morguns. Þar sem atkvæða
greiðslunni var lokið á tilskildum
tima, virðist yfirgnæfandi meiri-
hluti hafa sagt ,,já”.
En þátttaka i atkvæðagreiðsl-
unni var miklu minni en i hinni
fyrri, þar sem kjósendur voru
spurðir, hvort þeir vildu, að stofn-
að yrði islamskt lýðræði. Fram-
lenging atkvæðagreiðslunnar
sýnir, að yfirvöld hafa kviðið þvi,
að kjörsóknin yrði leiðinlega
dræm til afspurnar. Ekki aðeins i
afskekktustu byggðarlögum
heldur og i höfuðborginni Teher-
an.
Stjórnarskrárdrögin fela i sér,
að Khomeini verði falið alræðis
vald i reynd.
t hinni helgu borg Qom, heima-
bæ Khomeinis, höfðu nær 200.000
greitt atkvæði með stjórnar-
skránni nýju, meðan aðeins 62
höfðu sagt ,,nei”. — En i Azer-
baijan, þar sem ibúarnir styðja
Shariat-Madari æðstaprest og
aðalkeppinaut Khomeinis um
andlega leiðsögn þjóðarinnar, var
kjörsóknin einungis 15%.
Viða var þó lagt nokkuð kapp á
smölun atkvæða, og sumsstaðar
jafnvel farið með kjörkassana til
kjósenda. T.d. sást i Teheran,
hvar kjörkassa hafði verið komið
fyrir aftan á bifreið, sem ók á
milli kaffihúsa. Einum kjörkassa
var ekið til stúdentanna i banda-
riska sendiráðinu, svo að þeir
gætu einnig kosið.
Kennedy mlsstfgur
slg I gagnrýnlnni á
Carlerstlómlna
Edward Kennedy öldungar-
deildarþingmaður hefur valdið
miklum úlfaþyt i stjórnmálalifinu
i Bandarikjunum með ummælum
um stjórn transkeisara.
Sagði frambjóðandinn, að
stjórn keisarans „hefði verið ein
af mestu ofbeldisstjórnum mann-
kynssögunnar”. Ennfremur sagði
Kennedy, að keisarinn hefði stolið
milljörðum dollara frá tran.
Kennedy lét svo ummælt i sjón-
varpsviðtali i gærkvöldi, þar sem
hann veittist að stjórn Carters
forseta og stefnu hennar i utan-
rikismálum.
Ráðherrar Carters hafa gagn-
rýnt ummæli Kennedys harka-
lega, og segja, að þau séu þess
eðlis, að stofnað gætu lifi gislanna
fimmtiu i Teheran i hættu. Hafa
þeir varað við þvi, að það gæti
reynst hættulegt, ef út á við liti
svo út, sem innan Bandarikjanna
væri klofningur i afstöðu manna
til kröfugerðar stúdentanna, sem
hertóku bandariska sendiráðið i
Teheran.
Ctsölustaftir: Akranes: Bjarg hf.
Borgarnes: Kaupf. Borgf.
Bolungarvik: Versl. E.G.
isafjör&ur: Straumur s.f.
Hvammstangi: Versl. S.P.
Blönduós: Kaupf.Húnvetninga
Sauöárkrókur: Kaupf. Skag-
firöinga
Akureyri: Vöruhús KEA
Hljómver h.f.
Húsavik: Kuupf. Þingeyinga
Egilsstaöir: Kaupf. Héraösbúa
ólafsfjörftur: Versl. Valberg
Siglufjörftur: Gestur Fanndal
Hornafjörftur: KASK
Hvolsvöllur: Kaupf. Rangæinga
Vestmannaeyjar: Kjarni hf.
Keflavik: Duus.
1 SSVVSf V ,
m m m m
• •
Stórfallegt
hljómflutningstæki
á einstaklega góftu verfti
Allt í einu tæki:
Stereo-útvarp, Cassettusegulband,
plötuspilari og 2 stórir hátalarar.
Magnarinn er 44 wött. Tveir hátalarar
eru í hvorum kassa. Stór renndur 30
sm plötudiskur. tJtvarpift er meft lang-
bylgju, miftbylgju og FM stereo. RcO
selektor.
Komift og skoftift þetta stórfallega tæki
og sannfærist um SM 2850.
Toshiba-tækift er ekki afteins afburfta
stilhreint i útliti heldur lika hljómgott.
SM 2850 gefur yftur mest fyrir pening-
ana.
S-laga armur
Magnetísk hljóödós
V- / Æ
Einar Farestveit & co hf.
Bergstaðastræti 10 A
Sími 1-69-95 — Reykjavík
SM-2850
STEREO-SAMSTÆÐAN
Verö ca. kr. 406/000/-