Vísir - 04.12.1979, Side 8
vtsm Þri&judagur 4. desember 1979
8
utgefandi: Reykjaprenth/f
FramkvæmdastjOri: Davfð Gufimundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Hörfiur Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson.
Fréttastjóri erlendra trétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaöamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin
Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guö-
vinsson.
iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V.
Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson,
Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurfiur R. Pétursson.
Auglýsingar og skrifstofur:
Slfiumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreifisla: Stakkholti 2-4, sími 86611.
.Ritstjórn: Siöumúla 14, simi 86611 7 linur.
Askrift er kr. 4.000 á mánufii
innanlands. Verfi í lausasölu
200. kr. eintakifi.
Prentun Blafiaprent h/f
Kjósendur hafa nú fellt sinn dóm. Nú veröur aö mynda rikisstjórn, sem er fær um aö
takast á viö vandamálin i þjóöfélaginu.
Sigur Framsóknarf lokksins
var það, sem mest kom á óvart í
úrslitum alþingiskosninganna i
gær og fyrradag. Að vísu hafði
verið við því búist, að f lokkurinn
rétti verulega hlut sinn f rá hinum
mikla ósigri í kosningunum á síð-
asta ári. En útkoma hans er mun
betri en flestir höfðu gert ráð
fyrir, og í raun og veru erfitt að
gera sér grein fyrir ástæðum
hennar. Sennilega eru þær marg-
ar. En f lokkurinn hefur nú á nýj-
an leik öruggan sess sem næst
stærsti flokkur þjóðarinnar.
Kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins
varð hins vegar talsvert minna
en reiknað hafði verið með stuttu
fyrir kosningar. Þó að úrslitin
séu í ýmsum kjördæmum áþekk
kosningaúrslitunum t.d. 1967 og
1971, verða þau að teljast áfall
fyrir f lokkinn. Um það leyti sem
vinstri stjórn Ólafs Jóhannes-
sonar sprakk og framan af
kosningabaráttunni hafði flokk-
urinn verulegan meðbyr, eins og
eðlilegt var eftir hina skelfilegu
óstjórn vinstri stjórnarinnar á
efnahagsmálunum. En eftir það
virtist flest ganga Sjálfstæðis-
flokknum á móti. Klofnings-
framboð sjálfstæðismanna í
tveimur kjördæmum felldu tvo
kjördæmakosna þingmenn
flokksins, og höfðu trúlega áhrif
víðar. Flokknum virðist ekki
haf a tekist að koma stef nu sinni i
efnahagsmálum til skila. Og
þegar á reyndi er sýnilegt, að
kjósendur hafa ekki verið búnir
að öðlast traust á því, að Sjálf-
stæðisf lokkurinn væri í stakk bú-
inn til að leiða þjóðina út úr ef na-
hagsöngþveitinu, kjósendur hafa
ekki verið búnir að gleyma þvi,
hvernig stjórn efnahagsmálanna
mistókst i tíð samstjórnar Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins 1974-1978.
Þó að kosningaúrslitin séu
vissulega áfall fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Ijósi þeirra möguleika,
sem flokkurinnn hafði til þess að
ná góðri kosningu, mega menn
ekki gleyma því, að flokkurinn
hefur nú unnið nokkuð á og er
langstærsti flokkur þjóðarinnar.
Ósigur Alþýðuflokksins og
Alþýðubandalagsins er eðlileg
afleiðing af því, hvernig sigur
þessara tveggja flokka í síðustu
kosningum var til kominn. Sá
sigur var illa fenginn. Hann
f ékkst út á glamuryrði, óraunhæf
kosningalof orð 'og beina
skemmdarstarfsemi gegn efna-
hagslífi þjóðarinnar. Þessir
flokkar hafa því fengið maklega
refsingu, og er það vel.
Hvað tekur nú við að kosning-
unum loknum? Um það er auð-
vitað ómögulegt að f ullyrða. Lík-
legast er, að Steingrímur Her-
mannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, reyni fyrst að
mynda nýja vinstri stjórn, enda
hef ur hann lýst yf ir því, að hugur
hans standi til þess og lýst sig
andvígan samstarfi við Sjálf-
stæðisf lokkinn. Hvort Alþýðu-
flokk og Alþýðubandalag fýsir i
slíkt samstarf, skal ósagt látið.
Þótt það tækist að koma því á
laggirnar, getur sú stjórn ekki
ráðið við verðbólguvandann í
þjóðfélagi okkar, fyrst og f remst
af því að Alþýðubandalagið getur
ekki frekar nú en áður starfað
sem ábyrgur stjórnarflokkur.
Sjálfstæðisf lokk, Alþýðuflokk
og Framsóknarflokk greinir að
vísu á um ýmis atriði í stjórn
ef nahagsmálanna, en innan
þessara flokka allra ríkir þó víð-
tækur skilningur á nauðsyn þess
að ná verðbólgunni niður. Sam-
starf þessara þriggja flokka er
vissulega annmörkum háð. En
þeir eiga allir að hafa lært sína
lexiu.
Hvort sem menn telja sig nú
hafa fengið sigur eða beðið ósig-
ur, mega engin ábyrg öfl í þjóð-
félaginu skerast úr leik um lausn
þeirra vandamála, sem við er að
glíma. Þjóðarhagur krefst þess.
Og öll eigum við fyrst og fremst
að hugsa sem íslendingar frem-
ur en f lokksmenn.
kjörstjórn, starfsmenn yfirkjör-
stjórnar og fulltrúar flokkanna.
Eftir var að telja nokkur
vafaatkvæði, atkvæði með út-
strikunum og utankjörstaðarat-
kvæði. Jón Tómasson sagði eftir
að hann hafði lesið upp tölurnar
að talning hefði gengið mjög vel
og mun betur en búist hefði ver-
ið við.
Nokkrar kjördeildir i Reykja-
vik voru opnar til klukkan ellefu
og enn voru að berast kjörkass-
ar til yfirkjörstjórnar. En samt
sem áður virtist ljóst að úrslitin
væru þegar komin strax á fyrstu
klukkustund eftir að kosninsu
var lokið. —KS
Reykjavlk:
fyrri kosningadaginn.
Talning atkvæða hófst klukk-
an fimm i gær en klukkustund
áður var byrjað að flokka at-
kvæði. Um 50 rnanns voru að
störfum við talninguna, yfir-
talln er klðrfundl lauk
,,Þetta er kosning aldarinn-
ar”, sagði einn af talningar-
mönnum i Austurbæjarskólan-
um um ellefuleytið i gærkvöldi
er blaðamönnum var hleypt inn
i leikfimisal skólans, þar sem
talning atkvæða i Reykjavik fór
fram.
Það var mikil spenna i loftinu
ogviðheyrðum fyrstutölur utan
að okkur. Mesta athygli vakti að
samkvæmt þeim hefði Fram-
sóknarflokkurinn unnið einn
mann,en Alþýðuflokkur og Al-
þýðubandalag tapað hvor sinum
manninum, en Sjálfstæðisflokk-
urinn hefði einnig unnið mann.
Það leið smástund þar til hægt
var að sjónvarpa fyrstu tölum.
Um tuttugu minútum yfir
ellefu var Jón Tómasson
borgarlögmaður, formaður yfir-
kjörstjórnar.tilbúinn að lesa upp
tölurnar.
Aður höfðu birst i sjónvarpinu
fyrstu tölur frá Reykjanesi og
þegar tölvan spáði úrslitum yfir
allt landið fór mikill kliður um
salinn.
Alþýðuflokkur með 10 þing-
menn, Framsóknarflokkurinn
18, Sjálfstæðisflokkurinn 21 og
Alþýðubandalagið 11. Þetta
kom mönnum sannarlega á
óvart.
Þegar fyrstu tölur komu i
Reykjavik var búið að telja
rúmlega 40 þúsund atkvæði eða
megnið af greiddum atkvæðum
Rúmiega 40 púsund atkvæðl
Kliður fór um sali Austurbæjarskólans I gærkvöldi.þar sem talningin i Reykjavík fór fram.er sjónvarpið Jón Tómasson athugar þau atkvæði sem taun nata verið.
birti fyrstu kosningaspá. Visismyndir: GVA