Vísir - 04.12.1979, Qupperneq 12
VlSIR
Þriðjudagur 4. desember 1979
12
L YSING
LJOS
heimilistæki hf
Simi 24000
IANDLEG HREYSTl-ALLRA HEILLW
! JL 1
GEÐVERNDks
\ /I
! I
3 ▼ 2,
IGEOVERNDARFÉLAG ISLANDS^
Munið
FRÍMERKJASÖFNUN
féiagsins,
, Innlend
og erlend
Gjarna umslög heik
einnig vélstimpluö
umslög
skrifstofan
Hafnarstræti 5,
Pósth 1308 eöa sima 13468
Ljósin í lagi
- lundin góð.
Slík áhrif hafa rétt stillt Ijós
á meðfarendur í umferöinni.
UMFERÐARRÁÐ
smáauglýsinga
sími VÍSIS er
86611
pp
Hlutur Slalfstæolskvenna i
Reyklavfk er Dágdorinn”
- segir Ragnhlldur Helgadóttlr
„Þessi úrslit uröu mér vitan-
lega vonbrigöi, því mér virtist
ákaflega vel unniö af hálfu
sjálfstæðismanna fyrir þessar
kosningar og mikill samhugur
rikja meðal þeirra sem að þeim
unnu,” sagði Ragnhildur Helga-
dóttir eftir aö ljóst varð i
morgun að hún yrði ekki þing-
maður næsta kjörtimabil.
„Við höfðum trú á þessari
stefnu og teljum, aö hún heföi
getaö gert verulegt gagn og það
var ekki vanþörf á að taka til
hendinni i efnahagsmálunum.
En hún hefur ekki hlotiö traust
meðal kjósenda og það verður
að taka þvi.
Mér finnst hlutur sjálfstæöis-
kvenna í Reykjavik mjög bág-
borinn og vona að þessi Urslit
verði til þess að konuri Sjálf-
stæðisflokknum strengi þess
heit að bæta hlut sinn fyrir
næstu kosningar.”
Ragnhildur hvað þessi úrslit
engin áhrif hafa á störf sín i
Sjálfstæðisflokknum. „Ég sé
ekki betur en að það sé full þörf
á að halda á spöðunum,” sagði
hún.
„Hón betur ð illa
úrfærðrl stefnu
fiokksins en aðrir”
Fréttamenn og tölvuspekingar útvarpsins sátu sveittir yfir nýjustu
kosningatölum: T.v. Guðmundur Guömundsson tölvufræöingur,
Vilhelm G. Kristinsson fyrrverandi fréttamaöur svo og fréttamenn-
irnir Kári Jónasson, liermann Sveinbjörnsson og Gunnar Eyþórs-
son. VIsismyndBG
- seglr Sverrlr Hermannsson
„Éggerði mérnú hærri vonir,
en ég er ýmsu vanur og þarf
ekki aö kvarta,” sagði Sverrir
Hermannsson þegar úrslit á
Austurlandi lágu fyrir I nótt.
— Hver er skýringin á að þér
tókst að bæta við fylgi þitt frá
siðustu kosningum?
„Ég hélt betur á illa útfærðri
stefnu flokksins en aðrir.”
— Er rétt að þú hafir lýst þig
andvigan leiftursókninni?
„Já, ég vildi endurtaka það,
sem við gerðum 1960. Þá
sýndum við árangur fljótt, en
unnum siðan bug á verðbólg-
unni á tveim árum.”
— Hvað segir þú um önnur
úrslit í kjördæminu?
„Sem minnst, en kappann
Lúövik misstu þeir og þaö eru
ekki margir sem fæðast honum
likir.” _sj
Lemursókninni
hefur verió hafnað
PP'
99
- segir Svavar Gestsson
„Það sem er athyglisveröast
viö tölurnar til þessa er að leift-
ursókn Sjálfstæöisflokksins hef-
ur verið hafnaö”, sagði Svavar
Gestsson þegar Visir ræddi við
hann um sexleytið i morgun um
þau úrslit sem þá voru ljós.
„Þó aö Sjálfstæðisflokkurinn
hafi verið i stjórnarandstöðu I
alllangan tima gegn óvenjulegri
rikisstjórn, þá hefur hann ekki
fengið verulega aukningu, langt
frá þvi. Það er það ánægjulega
við kosningaúrslitin, eins og þau
liggja fyrir núna”, sagði
Svavar.
Miöað við stöðuna í heild,
sagðist Svavar vera sáttur við
útkomu Alþýðubandalagsins I
Reykjavik.
„I siöustu kosningum 1978
fengum við talsvert af fylgi
þeirra, sem voru að mótmæla
þáverandi rikisstjórn Geirs
Hallgrimssonar og Ólafs Jó-
hannessonar. Nú höfum viö
sjálfir verið i rikisstjórn um
hrið viö óvenjulega erfiðar að-
stæður. Ég gerði mér alltaf
grein fyrir þvi aö við vorum að
sækja á brattann og þetta gæti
orðiö erfitt”, sagöi Svavar þeg-
ar hann var inntur eftir skýr-
inguá fylgistapi. Hann sagði að
þrátt fyrir nokkurt tap nú, þá
væri Alþýðubandalagið með
hæstu tölu yfir landiö sem veriö
hefur frá 1956, fyrir utan siöustu
kosninga. —KP.
Mun leggja mig aila fram”
99
„Ég er ekki nógu ánægð meö
úrslitin. Ég hélt að Sjálfstæöis-
flokkurinn heföi meiri meðbyr
en raun ber vitni, ” sagði Salóme
Þorkelsdóttir, sem nú tekur sæti
á Alþingi I fyrsta sinn.
- seglr Salóme Þorkelsdóttlr nýkjörlnn Dlngmaöur
Helgadóttir skyldi nú falla út af
þingi.
„Auðvitað er ég þó ánægð
með að komast inn á þing. Ég
geri mérgrein fyrir að nú er al-
varan framundan. Ég mun
leggja mig alla fram og vinna
að málefnum okkar Sjálfstæðis-
manna eins og mér er frekast
unnt,” sagði Salóme.. —SJ
Hún sagði að svo virtist vera,
aöfólk vildi áframhafa hlutina I
lausu lofti og hafnaöi róttækum
lausnum i efnahagsmálum.
Eins kvað hún það valda sér
vonbrigöum að Ragnhildur
Traustsylíriýsing á
vinstrimeirlhluta”
- segir Guðrún Heigadótllr
„Vlnstrl stjðrn"
sagöl GuOmundur G.
„Ég er mjög ánægður.að þetta
skyldi hafast og þótt ég teldi sjálf-
ur, að þetta yrði allt i járnum hér
i Reykjavik, þá bjóst ég aldrei
við, að þetta yrði svona stór sigur
um allt land”, sagði Guðmundur
G. Þórarinsson,annar maður á B-
lista i Reykjavik og nýr maður i
hópi þingmanna.
Loks var Guðmundur spuröur,
hvaða horfur hann teldi á
stjórnarmyndun og sagðist hann
þá vera þeirrar skoðunar, að
gömlu stjórnarflokkarnir ættu aö
reyna að mynda nýja vinstri
stjórn. _Hr
„Kemur
ð övart”
- seglr ingólfur
GuOnason.
„Þetta kemur mér ákaflega á
óvart og ég er á ýmsan hátt ó-
viðbúinn þingsetu” sagði Ingólfur
Guðnason, þriðji maöur á lista
Framsóknarflokksins i Norður-
landskjördæmi vestra, i samtali
við Visi i morgun, en flokkurinn
vann mjög á i kjördæminu og fékk
þrjá menn kjörna.
Jngólfur sagði, að þessi
kosningabarátta væri sin fyrstu
afskipti af pólitik. Hann hefði
haft sinar skoðanir en ekki opin-
berlega fyrr en nú.
Um það hvort einhver mála-
flokkur væri honum sérstaklega
hugleikinn sagði hann að það
væri fyrst og fremst að réttindi
dreifbýlisins yrðu ekki skert.JM
-.ír-.-'
mM
„Við erum ánægð hér i
Reykjavik með þessi úrslit. Við
skiptum um tvo frambjóðendur,
reynda og góða félaga, Eðvarð
Sigurðsson og Svövu Jakobs-
dóttur. Við vorum viö þvi búin
að við værum ekki eins sterk á
svellinu, en það kom i ljós að
flokkurinn treystir okkur”,
sagði Guörún Helgadóttir I
spjalli viö Visi þegar ljóst varð
að hún yrði uppbótarþingmaður
i Reykjavik, um klukkan hálf
sex i morgun.
„Ég samgleðst Framsóknar-
flokknum og hefði getað hugsað
mér verri kost. Mér finnst Al-
þýðuflokkurinn koma út eins og
hann hafði unnið til”, sagði
Guörún.
„Ef kjósendur i Reykjavik
heföu verið óánægðir með
vinstri stjórn i borginni, þá var
nú tækifærið til að hafna henni.
Það notuðu þeir ekki og viö tök-
um þaö sem traustsyfirlýsingu.
i borgarstjórn hafa Framsókn-
armenn og Alþýðubandalagið
unnið saman af einurð og
áhuga. Það er greinilegt að þaö
er metið nú i Alþingiskosning-
um. 1 siöustu kosningum svar-
aði þjóöin þvi að hún vill vinstri-
stjórn og það sama gerir hún
nú”, sagöi Guðrún. Hún sagðist
nú snúa sér óskipt að stjórnmál-
unum og láta af starfi sinu hjá
Tryggingastofnun. —KP.
Alþýðuflokksmenn komu saman I Þórscafé I nótt og fylgdust þar
með kosningaúrslitunum. Hér er Jón Baldvin Hannibalsson aö
ræða við félaga sina um kosningatölurnar sem birtust á sjónvarps-
skjánum.