Vísir - 04.12.1979, Side 17
LUKKUKORT
Þú fréttir aif miklum tollahækl
leikföngum og sérð þér leik á
MupirgjadMHnæMuþrlggjejóu
o milljónir.
- seglr Albert Guðmundsson
„Þetta eru mér mikil vonbrigði
— ég verð að viðurkenna að við
Sjálfstæðismenn bjuggumst við
miklu betri útkomu” sagði Albert
Guðmundsson, annar maður á D-
lista i Reykjavik, þegar Visir
innti hann álits á kosningaúrslit-
unum.
Albert sagðist alls ekki hafa bú-
ist viö þessari fylgisaukningu
Framsóknarflokksins, frekar að
hann bætti engu við sig. Fannst
honum það furöulegt, að Sjálf-
stæðisflokkurinn skyldi ekki bæta
meiru við sig en raun bar vitni,
sérstaklega i Reykjavik. Yrðu
Sjálfstæðismenn nú að sleikja
sárin, hver i sinu horni.
Albert var spurður hvort út-
koman i Reykjavik veikti ekki
stöðu Geirs Hallgrimssonar for-
manns Sjálfstæðisflokksins, en
hann vildi þar litlu til svara.
Sagðist hann ekki gera sér grein
fyrir, hvaða afleiðingar þetta
gæti haft, en augljóst væri að
leiftursóknin hefði ekki náð til
fólksins.
Þá var Albert spurður hvað
hann áliti um stjórnarmyndun og
sagðist hann þá vera ansi hrædd-
ur um, að vinstri stjórn tæki við
enda væru hinir flokkarnir búnir
að lýsa þvi yfir, að þeir vildu ekki
fara i stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum.
„Þaö vantar eitthvað i þetta
allt”, sagði Albert loks og var
greinilegt að hann var vonsvikinn
með kosningaúrslitin. —HR
Þúk LUKKtJf<ORT
jZ'Xsz&nSz'zs:
Nýtt íslenskt spil fræðandi um íslenskt efnahagslíf.
— Lífleg dægradvöl —
ÚTGÁFUFÉLAGIÐ JÖRUNDUR
SÍMI22516 REYKJAVÍK
Jóhann fvlgist með kosningaúrslitunum I sjónvarpinu ásamt fjölskyldu
sinni og vinum. Visismynd: Heiðar Baldursson, Keflavik.
VÍSIR
Þriðjudagur 4. desember 1979
„Sigur Framéoknarflokksins varð meiri en ég átti von á”, sagði Bene-
dikt Gröndal i nótt. Vfsismynd: BG
„Vlð vlllum lá
vlnsiri sljóm’
- seglr ólafur Ragnar Grlmsson
„Ég er mjög ánægður með, aö
við Alþýðubandalagsmenn i
Reykjavik skyldum halda okkar
þingmannatölu. Sérstaklega
finnst mér það mikilvægt, að við
skyldum koma i veg fyrir að
Sjálfstæöisflokkurinn bætti við
sig einum einasta þingmanni
þar”, sagöi Ólafur Ragnar
Grimsson, þriöji maöur á lista Al-
þýðubandalagsins i Reykjavik, i
morgun.
ólafur kvaöst telja, að þessi
staðreynd, að Alþýðubandalagið
héldi sinum þingmannastyrk i
Reykjavik og Sjálfstæðisflokkur-
inn bætti ekki við sig, væri alvar-
legt áfall fyrir leiftursókn hins
siðarnefnda. Jafnframt ætti þaö
að vera lexia fyrir alþýðuflokks-
menn að það eina sem þeir upp-
skæru með stjórnarslitunum væri
aö gera Alþýöuflokkinn aftur aö
minnsta stjórnmálaflokknum og
hefja Framsókn á ný i sitt fyrra
veldi. Nú væri Vilmundur búinn
að hefja Ólaf Jóhannesson og
Steingrim upp til áhrifa.
„En umfram allt eru úrslitin i
Reykjavik okkur fagnaðarefni,
þvi að þó viö höfum misst eitt-
hvaðaf atkvæöum, þá er það mun
minna en flokkurinn gerir annars1
staðar á landinu”.
Stjórnarmyndun?
„Viö sögðum fyrir kosningar,
aö markmið okkar væri vinstri
stjórn og það er óbreytt”, sagði
Ólafur Ragnar.
— JM
„Striðið er ekki tapað”, sagði Ell-
ert B. Schram eftir að sýnt var
hvernig úrslitin uröu i Reykjavik.
Visism.: GVA
Ekki hænir
í póiitfk”
- sagðl Ellert B. Schram
„Ég er ánægður með að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur styrkt
stöðu sina, en það er ljóst aö and-
stæðingum okkar hefur tekist að
hræða fólk frá þvi að kjósa okkur
með þvi að segja að stefna okkar
leiddi til atvinnuleysis”, sagði
Ellert B. Schram 8. maður á lista
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik i
sarhtali við Visi er fyrstu tölur
lágu fyrir i gærkvöldi.
Ellert benti þó á að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði bætt við sig 6 til
7% atkvæðum en þeir hefðu gert
sér vonir um stærri sigur.
Eftir þessum tölum að dæma
var Ellert ekki inni sem upp-
bótarþingmaöur og þau úrslit
breyttust ekki. „Ég er þó ekki
hættur i pólitikinni. Þaö er siöur
en svo að striðið sé tapað þó ein
orrusta sé töpuð”, sagði Ellert.
— KS
Geir Hallgrimsson ræðir við
blaðamann VIsis i nótt.
Visismynd: BG.
Ólafur Jóhannesson var kátur.þegar biaðamaður Visis ræddi við hann I
nótt. Visismynd: GVA
„Viðurkenni að þetta er ósigur
fyrir Alþýöuflokkinn ”, segir
Vilmundur Gylfason en Ólafur
Jóhannesson stendur i dyragætt-
inni fyrir aftan. Visismynd: GVA.
„Hllóta að vera
spemandi verketiH"
- seglr Jóhann Elnvarðsson um hlngmennskuna
sem lofuðu mestu siðast og stóöu
ekki við neitt, einnig hefðu menn
ekki verið hrifnir af þvi aö
hlaupið héfði verið frá stjórnar-
störfunum þegar samningar voru
lausir og þing rétt að hefjast.
Loks sagðist hann telja að stefna
Framsóknarflokksins hefði fallið
fólki vel I geð.
„Hvernig þingmennskan leggst
i mig? Ég er nú ekki farinn að
leggja það niður fyrir mér, en ég
held aö það hljóti að vera spenn-
andi verkefni eins og ný verkefni
eru gjarnan og ég hlakka til að
takast á við þau” sagði Jóhann
Einvarðsson. —JM
Albert Guðmundsson og Pétur Sveinbjarnarson voru meðal þeirra,
sem voru I Sjálfstæðishúsinu I nótt og fylgdust með kosningasjónvarpi
þar.
„SeiKium sárln -
„Ég er að sjálfsögöu mjög
ánægöur”, sagði Jóhann Ein-
varðsSon, bæjarstjóri i Keflavik.
þegar Visir ræddi við hann i nótt.
Þegar lá ljóst fyrir að Jóhann
væri kominn inn á þing sem full-
trúi Framsóknarflokksins,sem nú
endurheimti sætið sem hann
missti i siðustu kosningum i
Reykjaneskjördæmi.
Jóhann var heima hjá sér i hópi
vina og ættingja, og ætlaði að
vaka þar til úrslit væru ljós. Hann
kvaðst telja, að þessi fylgis-
aukning Framsóknarflokksins
væri bæði vegna þess að fólk
hefði verið óánægt með þá flokka
„ottast erfiða
stjórnarmyndun”
- segir BenediKt Gfðndai. formaður AlDýöunokkslns
„Þrátt fyrir töluvert at-
kvæðatap eru þetta ein
bestu úrslit sem Alþýðu-
flokkurinn hefur fengið í
ein 30 ár. Flokkurinn hefur
nú náð að festa sig
í ákveðnum sessi" sagði
Benedikt Gröndal, for-
sætisráðherra og formaöur
Alþýðuflokksins er -Vísir
sótti hann heim á fimmta
timanum í nótt.
Benedikt sagði þessar kosning-
ar einkennast af miklum sveiflum
eins og siðast. Þá hefði Alþýðu-
flokkurinn farið úr 9,2% atkvæða
upp I 22%. Allar likur væri á að
heildaratkvæöamagn flokksins
nú yrði um .18% og Alþýðuflokk-
urinn væri kominn upp úr þeirri
lægð sem hann hefði verið i 1971-
74.
„Þau úrslit sem nu liggja fyrir
gefa ekki skýra visbendingu um
stjórnarmyndun.en ástæða er til
að óttast að hún verði erfið” sagði
Benedikt Gröndal er hann var
spurður um þetta atriði.
Um útkomu annarra flokka
sagði Benedikt, að sigur Fram-
sóknarflokksins væri mun meiri
en hann hefði átt von á. Miðað við
pólitiska stöðu Sjálfstæðisflokks-
ins i haust væri fylgi Sjálfstæðis-
flokksins langt fyrir neðan það,
sem ætlað var. Alþýðubandalagið
virtist tapa álika miklu og
Alþýðuflokkurinn og tilviljun
virtist ætla að ráða þvi hvor
flokkurinn fengi einum þing-
mann.i fleiri en hinn. Þetta svip-
aða fylgi þessara flokka skipti
miklu á vinstri vængnum þar sem
Alþýðubandalagið hefði lengi ætl-
að sér að þurrka Alþýðuflokkinn
út.
„óneitanlega hefur misheppn-
að stjórnarsamstarf dregið úr
fylgi Alþýðuflokksins. Það hefur
valdið kjósendum i launþegastétt
vonbrigðum, að tveir verkalýðs-
flokkar gátu ekki unnið saman.
Framsókn satá milli og fleytir nú
rjómann ofan af” sagði Benedikt.
Varöandi afsögn rikisstjórnar-
innar sagði Benedikt Gröndal að
stjórnin segði af sér um leið og öll
úrslit lægu fyrir og gæti það jafn-
vel orðið i dag.
VÍSIR
Þriöjudagur 4. desember 1979
„vonlr okkar hafa
aigjörlega brugðlst
- segir Gelr Haligrimsson. formaður sjálf stæDlsf lokKsin s
„A þessu stigi er ég ekki reiðu-
búinn að skýra Orslit kosninganna
en ljóst er aö klofningsframboð i
tveimur kjördæmum hafa ekki
eingöngu valdið- flokknum tjóni
þar heldur og annars staöar á
landinu”, sagði Geir Hallgrims-
son er Visir ræddi við hann á
heimili hans laust fyrir klukkan
fimm i morgun.
Geir Hallgrimsson sagði enn-
fremur að ákveðin stefna Sjálf-
stæðisflokksins i baráttunni gegn
verðbólgunni hefði ekki hlotið
þann hljómgrunn sem sjálf-
stæðismenn hefðu vænst.
Þegar Geir var spurður, hvort
úrslitin væru ekki persónulegt á-
fall fyrir hann, svaraði hann þvi
til, að auðvitað væru úrslitin mik-
il vonbrigði fyrir alla sjálfstæðis-
menn og ekki sist hann sjálfan, en
það væri flokkurinn og framtið
hans sem skipti öllu máli.
„Það er ljóst að vonir okkar um
verulega fylgisaukningu hafa al-
gjörlega brugðist. Við settum að
visu markiö hátt og þvi orðið fyrir
enn meiri vonbrigöum, ekki sist
hér i Reykjavlk” sagði Geir Hall-
grimsson.
„Þótt fylgið hafi aöeins aukist
frá siðustu kosningum, þá ber á
það að lita,að þær voru okkur lika
mjög óhagstæðar” sagöi Geir
ennfremur.
Er Geir var spurður hvort hann
hefði skýringar á hinni miklu
fylgisaukningu Framsóknar-
flokksins.kvaðst hann ekki kunna
neinarskýringará þvi. Hann vildi
engu spá að svo stöddu um stjórn-
armyndun en bað Visi að flytja
þakkir þeim fjölda fólks, sem
hefði unnið fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn i þessari kosningabaráttu.
-SG
..Urslltln mlklð
lagnaðarefni”
- seglr óialur Jóhannesson
„Crslitin eru mikið fagnaðar-
efni fyrir okkur framsóknar-
menn, sérstaklega vegna þess, að
þessi fylgisaukning er um allt
land”, sagi ólafur Jóhannesson,
fyrrverandi formaður Fram-
sóknarflokksins og forsætisráð-
herra, þegar Visir ræddi við hann
um fimmleytið i morgun.
Hann kvaðst telja þetta stað-
festingu á þvi.að borið héfði verið
traust til flokksins I fyrri stjórn og
að stefnuskrá flokksins félli fólki i
geð. Um stjórnarmyndun sagðist
hann ekki vilja bæta neinu við þaö
sem hann hefði þegar sagt, að
hann teldi að hún tæki langan
tima og yrði erfið. Hann var
sþurður, hvort hann teldi þessi
úrslit stuðning við nýja vinstri
stjórn eða Framsóknarflokkinn
fyrst og fremst og taldi hann það
vera hið siðarnefnda.
Ólafur var kátur og lék á als
oddi og sagði „það skiptast á skin
og skúrir i pólitik og maður
verður að taka hvorutveggja
jafnvel”. —JM
EKKI ;
vlöbrlgOI i
aðfara 1
á þing”
- seglr Karvei
Pálmason
„Sigur sameiginlegs framboðs
okkar er að minu viti stórt spor
sem marka mun timamót i
stjórnmálabaráttu i kjördæm-
inu”, sagði Karvel Pálmason 2.
maður á lista Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum við Visi i morgun.en
hann varð landskjörinn þingmaö-
ur og tekur nú aftur sæti á Al-
þingi.
„Það er ekki það langt siðan að
ég fór af Alþingi að þetta verði
mikil viðbrigði fyrir mig.
Ég gleöst að sjálfsögöu yfir
þessum sigri þó tæpt stæði. Ég
bjóst alltaf við þvi að við fengjum
um 1200 atkvæði en gerði mér
grein fyrir aö það gæti brugöið til
beggja vona.
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til allra þeirra sem studdu
okkurá Vestfjöröum”, sagöi Kar-
vel.
— KS
Sérframboð
vestmanna-
eylnga
kæmi til
athugunar
- seglr Guómunflur
Karlsson
„Þaö gæti verið til athugunar,
aö Vestmannaeyingar yrðu með
sérframboð i næstu kosningum,
ef þetta á að þróast i þessa átt”
sagði Guömundur Karlsson,
annar maöurá lista Sjálfstæöis-
flokksins i Suðurlandskjör-
dæmi, þegar Visir ræddi viö
hann um úrslitin I nótt. Guð-
mundur visaði þarna til fram-
boðs Eggerts Haukdal i kjör-
dæminu, en Eggert náði kjöri 1
kjö^æminu en Guömundur ekki.
Um Urslitin I heild sagöi Guö-
mundur, að þaö ylli sér von-
brigðum, að Sjálfstæðisflokkur-
inn kæmi ekki betur út en raun
bæri vitni. —JM
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Þurfum að athuga
vel okKar gang”
- seglr Vllmundur Gylfason um útkomu
AlpýðuflokKslns í hessum kosnlngum
„Ég viðurkenni að þetta er ósig-
ur fyrir Alþýðuflokkinn og við
þurfum að athuga vel okkar
gang”, sagði Vilmundur Gylfason
2. maöur á lista flokksins i
Reykjavik i samtali við Visi i
nótt, eftir að úrslit voru farin að
skýrast i Reykjavik.
„Ég harma að við skulum fá
færri atkvæði nú en siðast.
Skýringin á þvi er að stjórnar-
samstarfið mistókst. En ég vil
vekja athygli á þvi að við erum
ennþá stærri en við höfum nokk-
urn tima verið fram að siðustu
kosningum”, sagöi Vilmundur.
— KS
»■
FramsóKn og
sjáifstæöisfioKKur
eiga okki samieið”
- sagöl GuDmunflur Blarnason
„Þessi úrslit sýna mjög mikla
hreyfingu til Framsóknarflokks-
ins og ég tel að hún stafi fyrst og
fremst af þvi að flokkurinn hefur
sýnt ábyrgð og drengskap” sagði
Guðmundur Bjarnason, þriðji
maður á B-listanum i Norður-
landskjördæmi eystra, i samtali
viö Visi, en hann er nýr maður á
þingi.
Guðmundur sagöi að þessi úr-
slithefðu komið sér mjög á óvart.
Þeir framsóknarmenn i kjör-
dæminu hefðu talið að mjög mjótt
væri á mununum milli sin og ann-
ars manns á lista Sjálfstæðis-
flokksins, en annað heföi nú kom-
ið á daginn.
Guömundur var spurður hvaða
málum hann hyggðist beita sér
fyrir á Alþingi og sagöi hann að
þar væri aðallega um að ræða
jafnvægismál er snertu kjördæm-
iö, t.d. jöfnun á hitakostnaði.
Loks sagðist Guðmundur álita
að erfitt yrði um stjórnarmyndun
og að Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn ættu þar
ekki samleið.
— HR
hver I sínu hornl”
Vona að ég Koml
Kjðrdæminu að liðl
»
= 99
- seglr Stefán GuDmundsson HngmaDur
FramsóknarflokKslns
„Mér list bærilega á aö setjast
á þing, en ég hef sama sem engan
tima haft til að hugleiöa það,”
sagöi Stefán Guðmundsson á
Sauðárkróki, sem var i nótt i
fyrsta sinn kjörinn þingmaður
Framsóknarflokksins.
Stefán kvaðst vera mjög á-
nægður með úrslit kosninganna.
„Fólk virðist hafa borið traust til
stefnu flokksins.”
— Hverju hyggst þú helst beita
þér fyrir á þingi?
„Það eru ýmis mál, sem mér
eru hugleikin og ég vona, að ég
geti komið minu kjördæmi að
liöi,” sagði Stefán, en vildi ekki
að svo stöddu nefna ákveðin mál.
—SJ