Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 45
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 45 Suðvesturkjördæmi Aðalfundur Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi verður haldinn þriðjudag- inn 23. október nk. kl. 20.00 í Valhöll, Háaleitis- braut 1, Reykjavík. Dagskrá: ● Venuleg aðalfundarstörf. ● Önnur mál. Stjórn kjördæmisráðs. TILBOÐ / ÚTBOÐ Tilboð í Sæbakka Fasteigna- og skipasala Austurlands ehf. auglýsir eftir tilboðum í fasteignina Sæbakka, Borgarfirði eystri. Sæbakki er lítið einbýlishús á einni hæð sem stendur í útjaðri bæjarins. Húsið hefur mikið verið endurnýjað á síðustu misserum en endur- bótum er þó ekki að fullu lokið. Tilboð þurfa að hafa borist skrifstofu Fasteigna- sölunnar fyrir kl. 12:00, 17.10.2001 en í tilboði skal m.a. koma fram tilboðsfjárhæð og greiðslu- fyrirkomulag. Borgarfjarðarhreppur áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Allari nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteigna- og skipasölu Austurlands ehf., Egilsstöðum í síma 470 2205. TILKYNNINGAR Stofnfundur Vallasóknar í Hafnarfjarðarprestakalli Á Kirkjuþingi haustið 2000 var tekin ákvörðun um stofnun Vallasóknar í Hafnarfjarðarpresta- kalli í Kjalarnessprófastsdæmi á árinu 2001. Mörk sóknarinnar eru Reykjanesbraut að vest- an og norðvestan að Kaldárselsvegi, Kaldár- selsvegur og mörk Garðabæjar og Hafnarfjaðar að norðan, austan og suðaustan og Ásbraut að sunnan og suðvestan. Hér með er boðað til stofnfundar sóknarinnar fimmtudaginn 11. okt. nk. kl. 20.30 í Félagsheimili Hauka. Dagskrá stofnfundar verður í samræmi við 11. gr. starfsreglna um sóknarnefndir nr. 732/1998, sbr. og ákvæði til bráðabirgða í sömu reglum: 1. Gerð grein fyrir aðdraganda að stofnun sóknarinnar. 2. Framtíðarhugmyndir um kirkjustarf á svæð- inu. 3. Kosning fimm sóknarnefndarmanna og jafn- margra varamanna til 2ja ára. 4. Kosning tveggja skoðunarmanna eða endur- skoðanda og varamanna þeirra til árs í senn. 5. Kosning í aðrar nefndir og ráð. 6. Önnur mál. Allt þjóðkirkjufólk á svæðinu er velkomið. Þeir sem áttu lögheimili í sókninni 1. okt. 2001 hafa kosningarrétt og kjörgengi enda hafi þeir náð sextán ára aldri á fundardegi. Ath.: Í auglýsingu sem birtist nýlega var röng dagsetning í þess- um lið og leiðréttist það hér með. Gunnar Kristjánsson, prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi. Einbýlishús til leigu Til leigu í ca 10 mánuði, með húsgögnum og öllum húsbúnaði, vandað húsnæði. Leigist að- eins reyklausum einstaklingi eða pari með með- mælum og tryggingu frá fyrirtæki. Lág leiga. Sendið greinargóðar upplýsingar til: minicube@netscape.net . FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Huglækningar/ heilun Sjálfsuppbygging. Samhæfing líkama og sálar. Áran. Fræðslumiðlun. Halla Sigurgeirsdóttir, andlegur læknir. Uppl. í síma 553 8260 milli kl. 18.00 og 19.00. KENNSLA ■ www.nudd.is FÉLAGSLÍF  FJÖLNIR 6001100919 III I.O.O.F.Rb.1  1511098 — 9.II*  EDDA 6001100919 I Atkv.  HLÍN 6001100919 IV/V  Hamar 6001100919 I AD KFUK, Holtavegi 28 Fundur í kvöld kl. 20. Benedikt Arnkelsson fjallar um bænina. Allar konur velkomnar. www.kfuk.is Miðvikudagur 10. október Fyrsta myndakvöld vetrarins í sal Ferðafélagsins, Mörk- inni 6. Fjalllendi Suðursveita með viðkomu á Öræfajökli í máli og myndum, Vatnaleiðin o.fl. Allir velkomnir. Aðgangseyrir 500 kr., kaffiveitingar. TIL LEIGU R A Ð A U G L Ý S I N G A R Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmti- ganga um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30. Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og fyrirbænastud kl. 12 í kirkjunni. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir. Léttur há- degisverður að stundinni lokinni. Sam- vera foreldra ungra barna kl.14–16 í neðri safnaðarsal. 12 spora starf kl. 19 í neðri safnaðarsal. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altar- isganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Háteigskirkja. Ævintýraklúbburinn kl. 17. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn úr 1.–3. bekk í umsjón Guðrúnar Helgu, Sigrúnar, Völu og Jóhönnu. Öll börn velkomin. Unglingaklúbburinn MeMe kl. 19.30. Kröftugt starf fyrir unglinga. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05. TTT-fundur kl. 16 fyrir krakka í 5.–7. bekk. Kvikmyndagerðin heldur áfram. Sig- urbjörn Þorkelsson og Bjarni Karlsson stjórna. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Sókn- arpresturinn kennir biblíufræðin á lifandi og auðskilinn hátt. Gengið inn um merkt- ar dyr á austurgafli kirkjunnar. Allir vel- komnir. Efni kvöldsins: Jesús frá Nasaret – vinur vina sinna. Allir velkomnir. Þriðju- dagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðar- stund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir lofgjörð við undirleik Gunnars Gunn- arssonar. Sr. Bjarni Karlsson flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá bænahóps kirkjunnar undir stjórn Margrétar Scheving, sálgæsluþjóns. Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara, kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir félagar velkomnir. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10–12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar kl. 10– 12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Léttur málsverður. Helgistund, samvera og kaffi. Starf fyrir 10–12 ára á vegum KFUM&K og Digraneskirkju. Húsið opnað kl. 16.30. Fótboltaspil, borðtennis og önnur spil. Hellaferð kl. 17. Verð 400 kr. Alfa-námskeiðið. Fræðari sr. Magnús B. Björnsson. Kvöldverður kl. 19, fræðsla, hópumræður, helgistund. Fella- og Hólakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund í kirkjunni. Organisti leikur frá kl. 12. Kl. 12.10 hefst stundin og að henni lokinni kl. 12.25 er framreiddur léttur há- degisverður í safnaðarheimilinu gegn vægu gjaldi. Fyrirbænaefnum má koma til presta og djákna. Þeir sem óska eftir akstri láti vita fyrir kl. 10 á þriðjudags- morgni í síma 557-3280. Starf fyrir 11– 12 ára drengi kl. 17. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30. Helgistund, handa- vinna, spil og kaffiveitingar. Kirkjukrakkar í Engjaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30– 18.30. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18 á neðri hæð kirkjunnar. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjallað. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjöl- breytt kristilegt starf fyrir 9–12 ára stúlk- ur í Kirkjuhvoli kl. 17.30 í umsjón KFUK. Bessastaðasókn. TTT – kristilegt æsku- lýðsstarf fyrir 10–12 ára í Álftanesskóla, stofu 104, kl. 17.30. Rúta ekur börnun- um heim. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17– 18.30 fyrir 7–9 ára. Kl. 20–22 æskulýðs- félag yngri félaga. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 kirkjuprakkarar fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 17.30 TTT-kirkjustarf 10–12 ára krakka, gengið inn um kirkjudyr uppi. Kl. 20 hjónakvöld. Sr. Kristján Björnsson flytur stutt erindi um hjónaband, ást og sambúð. Kaffi og spjall á eftir. Gott ef hjón skrá sig til þátttöku hjá sr. Kristjáni (893-1606) eða í safnaðarheimilinu (488-1500). Grindavíkurkirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á þriðju- dögum kl. 10–12. Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í Hrakhólum í kvöld kl. 20. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Safnaðarstarf Kynning á tólf spora starfi í Áskirkju KYNNING á tólf spora starfi Ás- kirkju fer fram í kvöld kl. 19:00. Þetta starf er ætlað fólki sem kann að hafa orðið fyrir einhverri nei- kvæðri reynslu og vill einfaldlega byggja sig upp á jákvæðum for- sendum. Hér er um einstakt tæki- færi að ræða fyrir alla þá sem vilja vaxa hið innra með markvissum hætti og þiggja styrk trúarinnar og reynslu annarra í veganesti. Allir sem áhuga hafa eru hjartanlega vel- komnir. Guðrún Kr. Þórsdóttir djákni. Alfanámskeið í Hafn- arfjarðarkirkju FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 11. októ- ber nk. kl. 19.00 hefst Alfa-námskeið í safnaðarheimili Hafnarfjarð- arkirkju en þrjú Alfa-námskeið hafa verið haldin þar fyrr og tekist vel. Alfa er fyrsti stafurinn í grísku, sem er frumtunga Nýja testament- isins og vísar til þeirra orða þess um Jesúm Krist, að hann sé upphafið og takmarkið. Alfa-námskeið felst í vikulegum samverustundum í tíu vikur þar sem á einfaldan og að- gengilegan hátt er fjallað um meginspurningar lífsins og svör kristinnar trúar við þeim. Fundir á námskeiðinu hefjast með léttum málsverði hverju sinni. Eftir málsverð fer fram fræðsla, síðan er spjallað og rætt um efnið. Alfa- námskeið felst jafnframt í gjöfulu og þægilegu samfélagi þar sem um- hyggja og trúarleg hlýja umlykur þátttakendur. Fjölmenn ráðstefna var nýlega haldin í Grafarvogskirkju með fyr- irlesurum frá Hollandi og Englandi þar sem víðtækt Alfastarf hefur far- ið fram en það breiðist nú óðfluga um heiminn. Alfanámskeiðið í Hafnarfjarð- arkirkju er öllum opið. Greitt er fyr- ir málsverði og kennslugögn kr. 4.500. Að auki er boðið upp á helg- arferð á miðju námskeiðinu sem sér- staklega er greitt fyrir en kostnaði haldið í lágmarki. Æskilegt er að þátttakendur láti skrá sig fyrirfram. Skráning fer fram í síma 6954490, 8548605 og 5551295. Námskeiðin eru samkirkjuleg því fræðsluna ann- ast bæði fræðarar úr Þjóðkirkjunni og samfélaginu Veginum. Það vott- ar einlægan vilja til þess að styrkja einingu kristinna manna á sögu- legum tímamótum og í upphafi nýrrar aldar. Sr. Gunnþór Ingason sóknarprestur hefur umsjón með Alfanámskeiðum í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Prestar Hafn- arfjarðarkirkju. FRÉTTIR VERSLUNIN DUKA hefur verið opnuð í Kringlunni. DUKA er ein þekktasta verslunarkeðjan í Sví- þjóð og selur heimilis- og gjafa- vöru, samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu. Flestar vörurnar í verslununum eru framleiddar fyrir DUKA. Þar fást einnig glervörur frá helstu glersmiðjum í Svíþjóð, leirvörur frá Höganäs og eldhúsáhöld frá Boda Nova. Sömu rekstraraðilar eru að DUKA-versluninni í Kringlunni og sænsku keðjunni Polarn O Pyret. Verslunarstjóri er Stefanía Gunnarsdóttir. Morgunblaðið/Ásdís Verslunarstjóri DUKA er Stefanía Gunnarsdóttir. DUKA opnað í Kringlunni Í KJÖLFAR nýju plötunnar „Lauf“ verður Hörður Torfason á faralds- fæti til þess að kynna hana. Hann spilar á Pollinum á Akureyri 11. október. Í Gamla Bauk á Húsavík 12. október og Ábæ í Siglufirði 13. október. Hörður Torfa- son kynnir geisladisk SAMBANDSÞING Norræna fé- lagsins var haldið á Egilsstöðum dagana 29. og 30. september síðast- liðinn. Á þinginu var Sigurlín Svein- bjarnardóttir endurkjörin formaður félagsins til næstu tveggja ára. Ný- kjörin sambandsstjórn Norræna fé- lagsins er að öðru leyti skipuð Bjarna Daníelssyni óperustjóra, Guðmundi Sigvaldasyni fram- kvæmdastjóra, Kristínu B. Sigur- björnsdóttur ferðafræðingi, Sigurði Hlöðverssyni tæknifræðingi, Sigur- veigu Sigurðardóttur kennara, Stef- áni Veturliðasyni verkfræðingi og Úlfi Sigurmundssyni hagfræðingi. Þingfulltrúar frá félagsdeildum Norræna félagsins um land allt fjöl- menntu á Egilsstaði til að marka stefnu í félagsstarfi Norræna félags- ins til næstu tveggja ára. Ný stjórn Norræna félagsins ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.