Vísir - 10.01.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 10.01.1980, Blaðsíða 9
VÍSIR Fimmtudagurinn 10. janúar 1980 , •, «. , ,v\ \ 9 Umsjón: Guðmundur Pétursson Ferrarl Tveir frægir ökuþórar úr Formúlu I-kappakstrinum sjást hér á eintali, og efiaust er umræðuefnið hinn nýi Formúlu I-blll Ferrari, sem notaður verður i heimsmeistarakeppninni þetta timabilið. — i bílnum situr Gilles Villeneuve frá Kanada, frægur ökugarpur, en maðurinn á hækjunum er enginn annar en Jody Scheckter frá Suður-Afriku, sjálfur heimsmeistarinn. Gullæðiö Verðið á gulli að undanförnu hefur hagað sér eins og barómetrið, færst upp og niður og þá mest upp. Núna í vikunni voru öll fyrri met i sölu þessa góðmálms slegin, þegar únsan af gulli fór upp i 080 dollara á markaðnum i Hong Kong, en það datt i gær aftur niður i 608 dollara. A annarri myndinni hér sést fólk biða hjá ein- um gullsalanum i New York eftir þvi að kaupa gull, gull, gull. Hin myndin gefur nokkra hugmynd um, hvaða skriður hefur komist á sölu og kaup á gullskart- gripum i gullæðinu. Studlo 54 Myndsviðið er hið fræga diskó tek „Studio 54” i New York og það eru engir stirðbusar, sem eru á dansgólfinu. T.v. er Zhandra Rodriques, ballett- dansmær frá Alþjóðaballettin- um í Caracas, sem slettir þarna úr klaufunum, en Leonid Kozlow dettur ekki úr hrynj- andinni. Kona hans, Valentina, virðist eitthvað hikandi i djamminu. Þau hjón voru mjög i fréttum fyrr i vetur, þegar þau struku frá sovéska Bolshoi- ballettinum. ROCKY OG SÚ HÝJA Sú var tíðin, að Sylvester Stallone, sem skaust upp á stjörnuhimin kvikmyndanna með myndinni „Rocky”, sagðist aldrei mundu hafa orðið að neinu, ef ekki væri vegna konu sinnar. Það hevrir til liðinni tið, og hér sést hann skeggjaður orðinn i fylgd með leikkonunni Susan Anton, sem eins og hann leitar nú skilnaðar frá ektamaka sinum, til þess að geta stofnað heimili með Stallone. Slón er sögu rlkarl Þessi Bermúdamær komst I heimspressuna I vetur fyrir ...tja, þarf annars nokkuð að tiunda það. Hún heitir Gina Swainson, er 21 árs, og þótti bera af 70 öðrum þokkadisum, sem kepptu að þvi að verða fegurðardrottningin „Miss World ’79”.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.