Vísir - 11.01.1980, Blaðsíða 13

Vísir - 11.01.1980, Blaðsíða 13
17 vísm Föstudagurinn 11. janúar 1980 Rannsókn ávísanamálsins hefur kostaö margar mílllðnir Þær voru ófáar ávisanirnar sem þurfti aö skoöa þegar máliö var til rannsóknar, Hér eru það laganemarnir Einar Sigurjónsson og Hallgrimur Viktorsson sem taka til hendinni. Málskjöl rannsóknarinnar fylltu marga pappakassa. lUpphaö lekkanna nam um premur milllörðum króna Rannsókn ávisanamálsins svonefnda hefur kostað ótaldar milljónir króna, eða milljónatugi öllu heldur, frá þvi rannsókn þess hófst á árinu 1976. Enn virðist rannsókn ekki vera lokið þar sem Seðlabankinn vinnur nú að frekari gagnaöfl- un samkvæmt kröfu rikissaksóknara. Áður hafði farið fram mjög itarleg rannsókn undir stjórn Hrafns Bragasonar sem var skipað- ur umboðsdómari i málinu. Stóð hún frá þvi i ágúst 1976 og alit fram á vor 1978 er hann sendi niðurstöður rannsóknarinnar til rikissak- sóknara. Þar var málið siðan þar til siðast liðið sumar að Seðlabankinn var beðinn um frekari gögn og mún bankinn vinna að öiflun þeirra núna. Nafnalistár; i gangi Éí’þrsaga iríáílins er i stuttu máH sú að á árinu 1976 hóf SéðjabankinÆáð rannsaka ávis- áháyiðskipti sáílmargra manna viðhanka og^sþarisjóði. Virtist hér um aðíræða skipulagða áfísanakeðju jia.r sem velt var hupdruðum miiljóna i gegnum bai^akerfið án þess að inni- stæða væri fjsjr hendi á þeim áVisfenareikningum sem þessir inenn notuða..... Sj|la sumár? ^óskaði Seðla- bankinn eftir því við rikissak- sók.rTara að ppinber rannsókn færi' fram á bessu máli.Miklar síigúsagnir Ifehgu manna á meðul um að'.hér færi gifurlegt svikamál og almenningur krafðist þess að nöfn hinna ,,seku” yrðu birt. Framtaksamir menn tóku sig þá tilog útbjuggu nafnalista þar sem nöfn ávisanaskrifara voru innfærð, og auðvitað var þetta alls samkvæmt „pottþéttum heimildum”. Blöðin þrýstu á um nafnbirt- ingu og eftir að Hrafn Bragason borgardómari. var skipaður umboðsdómari kallaði hann fréttamenn á sinn fund, skýrði þeim frá þeim gögnum sem fyrir lægju og reikningar hvaða manna væru inni i rannsókninni. Margir af þeim sem gengu með „pottþétt- an” lista upp á vasann urðu þá fyrir vonbrigðum. Brot á reglum Upphaflega hafði rannsókn beinst að 26 tékkareikningum 15 aðila og auk þess höfðu tveir menn að auki farið með suma þessara reikninga. t ágúst lá fyrir mikið af tölvufærðum gögnum og frumyfirheyrslum var lokið i byrjun október 1976. Þá var sýnt að kanna þurfti mun fleiri reikninga og fór svo að 58 reikningar voru skoðaðir og 44 teknir til nánari vinnslu. Fyrir þessum reikningum voru skrifaðir 20 menn en reikningar 17 manna fóru i áframhaldandi rannsókn en tveir af þeim höfðu ekki verið kærðir af Seðla- banka. Tugir manna voru yfirheyrðir og náði þessi könnun aftur til ársins 1974. Upplýsingar voru tölvufærðar og þar komu fram um 90 þúsund tékkahreyfingar og upphæð tékkanna nam þrem- ur milljörðum króna samtals. Mjög fljótlega lá það fyrir að reikningshafa höfðu brotið gegn reglum um tékkaviðskipti en það gekk frekar seint að fá tæm- andi upplýsingar frá bönkunum um viðskipti þessara manna við bankana. Það kom þó i ljós að sumir þessara manna hverra viðskipti voru til rannsóknar höfðu greitt bönkunum miklar upphæöir i formi vanskilavaxta af inni- stæðulausum ávisunum og virt- ust margir þeirra hafa átt greiðan aðgang að bankakerf- inu. Frá þvi að Hrafn Bragason skilaði af sér hinni umfangs- miklu rannsókn til rikissak- sóknara hefur verið næsta hljótt um þetta mál. Menn biðu „Við erum byrjaöir afiur á málinu núna” - segir Björn Tryggvason. aOstoOarbankastlórl Seðiabankans „Þetta lagðist niður um sinn, en við erum byrjaðir aftur á málinu núna”, sagði Björn Tryggvason, aðstoöar- bankastjóri Seðiabankans, þegar Vlsir spurðist fyrir um hvað liði rannsókn i ávisana- málinu svokaiiaða. En máiiö hefur verið til athugunar hjá Seölabankanum slðan I júli i fyrra. Björn sagði að dálitið hefði verið unnið i málinu siöastliðið haust, en vegna timaskorts hefði það verið lagt á hilluna og þráðurinn ekki tekinn upp fyrr en nú. .?Við höfum verið beðnir um frekari skýringar á ýmsum atriðum i þessu máli og það er ekkert óvenjulegt við það. Viö vorum búnir að vinna itarlega i þessu og töldum að við hefð- um gert okkar verk, en það eru oft óskýr mörkin um hver eigi að vinna hvað,” sagöi Björn og vildi ekkert segja nánar um i hverju rannsókn Seðlabankans er fólgin. -P.M. Hrafn Bragason borgardómari á biaðamannafundi þegar málið stóð sem hæst. „Vil ekkert segja um bessa málsmeöferð” - seglr Hraln Bragason. sem stjórnaðl rannsókn ávfsanamálslns á sfnum tlma „Það er hátt á annað ár sið- an þetta mál var afgreitt af minni hálfu og ég vil ekkert segja um þá málsmeðferð semþaðhefur fengið siðan”, sagði Hrafn Bragason borgar- dómari, þegar Visir spurði hann álits á meðferð ávisana- málsins. Hrafn sagði að menn legðu mismunandi mat á hlutina og vildi ekkert fullyrða um i hverju rannsókn Seðlabank- ans gæti verið fólgin. -P.M. spenntir eftir að vita hvort ákæra yrði gefin út á reiknings- hafa eða ekki. Allt árið 1978 leið án þess að nokkur svör fengjust hjá em- bætti rikissaksóknara um fram- hald málsins. „Málið er hérna” var það svar sem blöð fengu er spurt var um ávisanamálið. Smám saman gáfust fjölmiðlar upp á að fá fréttir af máli sem engar upplýsingar var hægt að fá um en siðastliðið sumar mun embætti rikissaksóknara hafa óskað eftir viðbótarupplýsing- um frá þeim er kærði, það er Seðlabankanum. Það virðist þvi ljóst að málinu er ekki lokið og verður fróðlegt að fylgjast með framhaldi þess næstu mánuði eða ár. -SG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.