Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SKATTAMÁL SETT Á ODDINN DAVÍÐ Oddsson, formaðurSjálfstæðisflokksins, settiskattamál á oddinn þegar hann setti 34. landsfund Sjálf- stæðisflokksins í Laugardalshöll- inni í gær og var ljóst af máli hans að þau mál munu verða of- arlega á baugi í næstu kosninga- baráttu. „Nú hefur Geir Haarde fjár- málaráðherra upplýst að mark- viss niðurgreiðsla á skuldum rík- issjóðs undir forystu hans og Friðriks Sophussonar hafi þýtt að við höfum nú 20 þúsund millj- ónum meira úr að spila á heilu kjörtímabili,“ sagði Davíð. „Þetta er vegna þess að vaxtagreiðslur, ekki síst til útlendinga, hafa lækkað um fimm þúsund milljónir á ári. Okkur í ríkisstjórninni þótti rétt að nota rýmri stöðu til að halda áfram lagfæringum á skatt- kerfinu. Þegar ég tala um lagfær- ingu í skattkerfinu er ég að tala um hana í okkar merkingu en ekki vinstri manna. Ég hef nefni- lega tekið eftir því að vinstri menn bæði hér á landi og annars staðar kalla skattahækkanir sínar gjarnan „metnaðarfullar umbæt- ur í skattkerfinu“.“ Davíð Oddsson taldi síðan upp helstu umbætur sjálfstæðismanna í skattkerfinu undanfarin 10 ár í 14 liðum og bætti síðan við í átta liðum þeim umbótum, sem til- kynnt var í liðinni viku að ákveðið hefði verið að efna til, þar á með- al að lækka skatt á fyrirtækjum úr 30 af hundraði í 18 af hundr- aði. Hann sagði að þetta væri ekki endanlegur listi: „Við erum ekki hættir. Báðir stjórnarflokkarnir eru því fylgjandi að í næsta áfanga verði eignarskattar á fólk og fyrirtæki algjörlega afnumdir. Þeir skattar ættu því að heyra sögunni til innan fárra ára.“ Það er fagnaðarefni að formað- ur Sjálfstæðisflokksins skuli lýsa yfir því að ekki verði látið staðar numið með þeim skattalækkun- um, sem þegar hafa verið til- kynntar. Í því sambandi verður að segja að afnám eignarskatts er í raun réttlætismál því að þar er í raun ekki verið að skattleggja verðmætasköpun, heldur taka skatt af eign fyrir þá ástæðu eina að hún er til og er þá búið að skattleggja hvert handtak við byggingu hennar og á einhverju stigi hverja krónu, sem notuð er til að kaupa eignina. Davíð Oddsson vék að sjávarút- vegsmálum í ræðu sinni og sagði meðal annars: „Þar mun þó lengi deilt og kannski svo lengi sem land byggist. Allstór hópur flokksmanna hefur verið hlynntur svonefndu veiðileyfagjaldi á sjáv- arútvegi og talið það eitt mesta réttlætismál samtímans. En engu fámennari hópur hefur verið því andsnúinn og talið það skaða sjávarútveginn og landsbyggðina. Ég hef skipað mér í síðari hóp- inn. Nú finnst sumum ekki nógu langt gengið í tillögum nefndar sem skilaði miklu áliti um fram- tíðarskipan sjávarútvegs hvað þetta atriði varðar. Og um það má auðvitað deila eins og annað. En um hitt er ekki hægt að deila, hvor framangreindra hópa hefur gefið meira eftir þegar að grund- vallaratriðinu sjálfu kemur og það eiga menn að muna og meta. Við skulum endilega takast á um sjávarútvegsmálin hér á fundin- um, en við skulum gera það þann- ig að flokkurinn hafi af því bæri- legan sóma.“ Það er rétt hjá formanni Sjálf- stæðisflokksins að með því að fallast á veiðileyfagjald í grund- vallaratriðum hafa bæði Vilhjálm- ur Egilsson og Tómas Ingi Ol- rich, sem sæti áttu í endurskoðunarnefnd sjávarút- vegsráðherra og hafa verið þekktir að öðru, stigið stórt skref til sátta. Það er líka mikilsvert að forystusveit LÍÚ hefur fallist á greiðslu veiðileyfagjalds. Annars má gera ráð fyrir að deilur um smábátaútgerðina muni ekki síður og kannski fremur setja svip á umræður um sjáv- arútvegsmál á landsfundi að þessu sinni. Ummæli Davíðs Oddssonar um Háskóla Íslands vöktu athygli: „Við sjálfstæðismenn teljum þjóðarnauðsyn að búa við öflugan meginháskóla í landinu og við teljum Háskóla Íslands rísa vel undir því. En það breytir ekki því að við styðjum og fögnum allri samkeppni við hann. Við erum stolt af Háskóla Íslands, en við hikum ekki við að segja að það þarf að gera gagngerar breyt- ingar á stjórnfyrirkomulagi innan hans. Það er fullveikt og stirt og ekki fyllilega í takt við nútíma stjórnarhætti, þótt þar haldi margir ágætir menn um tauma. Það skortir mjög á að háskóla- mennirnir sjálfir hafi tekið stjórnunarlega veikleika Háskóla Íslands til alvarlegrar umræðu, en fjöldi dæma frá liðnum árum sýnir að nauðsynlegt er að gera gagngerar breytingar án tafar eigi háskólinn að hafa í fullu tré við alþjóðlega samkeppni.“ Undir þessi orð formanns Sjálf- stæðisflokksins munu margir taka. Það er löngu tímabært að gera víðtæka breytingu á stjórn- kerfi Háskóla Íslands. Hinir fjölmennu landsfundir Sjálfstæðisflokksins eru mikið pólitískt afl eins og dæmin sanna. Þar koma saman fulltrúar ólíkra þjóðfélagshópa, hagsmuna og sjónarmiða og móta í sameiningu stefnu stærsta stjórnmálaflokks þjóðarinnar. Það er ekki síst þessi vettvangur, sem tryggt hef- ur Sjálfstæðisflokknum þann styrk og þá stöðu, sem hann hef- ur í íslensku þjóðfélagi. D AVÍÐ Oddsson, for- sætisráðherra og for- maður Sjálfstæðis- flokksins, kom víða við í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins í gær. Fjallaði hann m.a. um ár- angur flokksins í ríkisstjórn á und- anförnum árum og sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa ákveðna stefnu og skýr markmið. ,,En hann er ekki kreddufastur í samstarfi og hefur ekki knúið á um að fá notið yf- irburðastöðu sinnar í íslenskum stjórnmálum. Þannig hefur hann sætt sig við í samningum við sam- starfsflokka að ráðherrasætum sé skipt jafnt, þrátt fyrir mikinn stærð- armun flokka. Auðvitað má finna að því að kosningaúrslit séu þannig leiðrétt eftir á, en á hinn bóginn ýtir þessi tilhögun undir að traust ríki á milli samstarfsflokka,“ sagði Davíð. Hann vék einnig að stöðunni á vettvangi stjórnmálanna í ræðu sinni og sagði m.a. að sér þætti lík- legt að Vinstri grænir byðu ekki fram í eigin nafni í næstu borgar- stjórnarkosningum og að hann teldi að það myndi veikja flokkinn og draga úr sérstöðu hans þegar fram í sækti. ,,Framsóknarflokkurinn var farinn að sækja í sig veðrið í höf- uðborginni, en sú þróun stöðvaðist er flokkurinn hvarf sem sjálfstæð stjórnmálaleg eining í höfuðstaðn- um,“ sagði Davíð. 20 þúsund milljónum meira úr að spila á heilu kjörtímabili Davíð fjallaði í ítarlegu máli um aðgerðir í skattamálum og þær skattalækkanir sem ríkisstjórnin hefur ákveðið og sagði: ,,Nú hefur Geir Haarde fjármálaráðherra upp- lýst að markviss niðurgreiðsla á skuldum ríkissjóðs undir forystu sinni og Friðriks Sophussonar hafi þýtt að við höfum nú 20 þúsund milljónum meira úr að spila á heilu kjörtímabili. Þetta er vegna þess að vaxtagreiðslur, ekki síst til útlend- inga, hafa lækkað um fimm þúsund milljónir á ári. Okkur í ríkisstjórn- inni þótti rétt að nota rýmri stöðu til að halda áfram lagfæringum á skattkerfinu. Þegar ég tala um lag- færingu í skattkerfinu er ég að tala um hana í okkar merkingu en ekki vinstri manna. Ég hef nefnilega tek- ið eftir því að vinstri menn, bæði hér á landi og annars staðar, kalla skattahækkanir sínar gjarnan „metnaðarfullar umbætur í skatt- kerfinu“! Hverjar hafa verið okkar helstu umbætur í skattkerfinu síð- astliðin 10 ár? Aðstöðugjaldið ill- ræmda var fellt niður. Virðisauka- var 50% þegar sjálfstæ tóku við stjórnarforystu fy um. Skattur á húsaleigubæ ur afnuminn. Stórlega verð úr stimpilgjöldum. Gólf s hátekjuskatts hækkar um og með árinu 2001. Þetta eru aðgerðir í okk fundarmenn góðir. Þetta er við sjálfstæðismenn köllu verulegar umbætur í skatt Og ég vil undirstrika að ekki endanlegur listi. Við e hættir. Báðir stjórnarflokk því fylgjandi að í næsta áfa eignarskattar á fólk og fyr gjörlega afnumdir. Þeir ættu því að heyra sögunni fárra ára. Og ef áhrifa ok stæðismanna gætir áfram stjórninni mun áfram verða þessari braut í framtíðinn um þess fullvissir að rí mun vel þola þessar br vegna góðrar stöðu sinnar minnkandi vaxtabyrði, ein áðan nefndi. Það er einnig reynsla að sanngjarnir ska sér betur í ríkissjóð en skattar. Sanngjörn ska hvetur fólk og fyrirtæki til skattstofninn stækkar smá skattur á matvæli var lækkaður úr 24,5% í 14%. Skattur á fyrirtæki var lækkaður úr 50% niður í 30%. Skatt- ur á lífeyrissjóðsiðgjöld var afnum- inn. Skattfrádráttur vegna hluta- bréfakaupa var tryggður allan tímann. Heimilaður var skattfrjáls viðbótarlífeyrissparnaður. Persónu- afsláttur hjóna verður að fullu milli- færanlegur. Afnuminn var tekju- tenging barnabóta með yngri börnum. Barnabætur hækka um 500 milljónir á ári í þrjú ár í röð sem er ígildi skattalækkunar til þeirra sem barnabóta njóta. Skattprósenta í staðgreiðslu var lækkuð í áföngum um 4,33%. Bifreiðagjöld lækkuð. Skemmtanaskattur felldur niður. Skattar á gjaldeyrisviðskipti felldir niður. Jöfnunargjöld á innfluttar vörur felld niður. Nú síðast hafa eftirfarandi um- bætur verið ákveðnar: Skattfrjáls gólf eignaskatta einstaklinga hækka um 20% til að mæta hækkun fast- eignamats. Sérstakur aukaeignar- skattur verður afnuminn. Almennur eignarskattur einstaklinga lækkar um helming úr 1,2% niður í 0,6%. Eignarskattur fyrirtækja lækkar um helming. Tekjuskattur fyrir- tækja lækkar úr 30% í 18% en hann Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfs Áfram haldið á braut skatta lækkana í framtíðinni Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflo ins, sagði í setningarræðu á 34. landsfundi Sjálfstæðisflokks gær, að báðir stjórnarflokkarnir væru því fylgjandi að í næ áfanga umbóta í skattamálum verði eignaskattar algjörlega numdir. Ef áhrifa sjálfstæðismanna gæti áfram í landstjórn muni áfram verða haldið á braut skattalækkana í framtíðin Gestir fylgjast með setningu landsfundar Sjálfstæði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.