Alþýðublaðið - 16.03.1922, Blaðsíða 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
— S rbaesku þingraenainair
Kiiierow.tchi og Navakowitch sem
baðir eru kommunistar, voru kærð
ir fyrir uppreist og kom mál
þeitra íyrir bæztarétt í Beigrad í
janúar. En feæztiiéttur lét ekki
brúka sig til ofsókaa eins og uar*-
irrétturion ha'fði gert og hæzti étt-
ur Bandaríkjanna og fldri ríkja
nú á síðusttu timum, og voru báð
ir mennimir sýknaðir.
— í Svfþjóð var aðeins einn
kvenmaður flugmaður, það var
ungfiú Eísa Anderson Hún stökk
út úr flugvél í Akersund þ. 22,
jan og ætlaði að Lta sig líða tii
jarðar í „fallskermi“. En af or
sökum sem ekki eru kunnar þand-
ist „fallskermurinn* ekki út, og
Elsa féll rakleitt til jarðar úr 400
metra hæð Beið hún þegar bana *
— Sovjetstjórnin hefir gefið upp
sakir öllum sem barist hafa sem
óbreyttir liðsmenn eða undirliðs-
foringjar móti bolsivíkum í herum
Koltschaks, Denikins, Vifrangels,
Savinkovs, Petijúra, Bulak Bolako
vitsch, Peremykins, Jtídenitsch og
annara uppreistarforingja, gegn
iússnesku verkaroannastjórninni,
Geta þeir sem erlendis eru af
þessum mönnum nú snúið aftur
heim.
í slenzkur
helmii 1,8,13 naðuv
Prjönaðar vörur:
Næríatnaður (karlm.)
Kvenskyrtur
Drengjaskyitur
Teipuklukkur
Karlmpeysur
Drengjapeysur
Kvent-okkar
Kar I manna sokk&r
Sportsokknr. (litaðir og ólitaðir)
Drengjahúfur
Telpuhúfur
Vetlisgar (karlm. þæfðir & óþæfðir)
Treflar
Þessar vörur eru seldar
í Pósthússtræti 9.
Kaupfélagið.
Reiðbjól gljábrend og
viðgerð f Fálkanum.
2 StÚlkur vantar að Vífila
stöðum 1. apr. Uppiýslngar hjí
yfir bjúkrunarkonunni.
Alþbl. @r biað sllrsr alþýðu.
Afgreiðsla
blaðsins er í Aiþýðuhúsinu við
Ingóifsstræti og Hverfísgötu,
Sími 0 8 8.
Augiýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg, ( siðasta lagi
kl. 10 árdegis þann dag sem þær
eiga að koma í biaðið.
Áskriftagjald eln kr. á mánuði.
Auglýsingaverð kr. 1,50 cm. eind.
Útsöiumenn beðnir að gera skii
tii afgreiðsiunnar, að minsta kosti
ársfjórðungsiega.
Alt @f nikkelevað
og koparhúðað í Faittaaum.
Ágætt saltkjöt
fæst hjá Kaupfólaglnu
Pósthússtræti 9 og Laugav. 22 A
Sími 1026. Simi 728.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólajur Fríðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.
Edgar Rice Burroughs-. T&rzan^
ef hann sæist. Hann fór afarvarlega, því Kulonga hafði
kent honum að bera virðingu fyrir litlu hraðfara tein-
unum, sem stráðu dauða svo snöggléga í kringum sig.
Loksins kom hann að gríðarstóru laufmiklu tré, þöktu
lirfum stórra skordýra. Hann húkti i trénu, og gægðist
i gegnum þétt laufið niður á það sem fram fór fyrir
neðan. Hann var hissa.
Þarna voru nakin börn að hlaupa og leika sér milli
kofanna. Konur sátu á hækjum sfnum og steyttu korn
á stórum steinum, en aðrar tóku duftið, hnoðuðu það
i köggla og létu það á eldinn. Lengra burtu voru
konur að ýmsum störfum.
Aliir voru með grasskýlur um mittið, og sumir höfðu
eirhringa um öklana, handleggina eða í nefinu. Sumir
höfðu skrítilegar keðjur í kringum hálsinn.
Tarzan apabróðir horfði með vaxandi undrun á þessi
ókunnu dýrin. Ur fylgsni sínu sá hann allmarga karl-
menn hingað og þangað og lengst burtu frá sér við
skíðgarðinn sá hann hermenn sem voru að víggirða
rjóðrið fyrir áfásum óvina.
Hann veitti því eítirtekt, að konurnar einar unnu.
Hvergi voru karlmenn að stinga upp akurinn eða sýsl-
andi við nokkuð af heimastörfum.
Síðast tók hann eftir konu sem var að vinna rétt
fyrir neðan hann.
Fyrir framan hana var dálítil skál, sem var yfir eldi;
i henni sauð þykkur, rauðleitur lögur. Öðrum megin
við hana lá mikið af viðarteinum, og rak hún odda
þeirra niður i lögin, og raðaði þeim svo á mjóa grind,
sem var hinum megin við hana.
Tarzan apabróðir var frá sér numinn. Þarna sá hann
galdurinn við banvæni örva bogmannsins. Hann tók
eftir því hve varlega konan fór svo ekki kæmi dropi
af leginum við hana, og einu sinni þegar dropi kom
á fingur henuar, rak hún hann samstundis ofan í vatns-
skál sem hjá henni stóð og néri burtu löginn með
handfylli af laufum.
Tarzan apabróðir þekti ekki eitur, en skynsemi hans
sagði honum, að það væri þessi lögur sem dræpi svo
skjótlega, en ekki litla örin, sem að eins var sendill, er
flutti þetta efni inn í llkamann.
Það væri þó gaman að ná í meira af þessum pitur-
pílum. Bara að konan færi frá verki sínu eitt augna-
blik, þá gæti hann rent sér niður, gripið handfylli sffia,
og verið búinn að fela sig aftur áður en hún hefði
anflað þrisvar.
Meðan hann var að hugsa um, hvernig hann ætti að
narra hana burtu, heyrði hann óp frá fjarsta hluta rjóð-
ursins. Hann leit upp, og sá svartan hermann standa
beint undir trénu, sem hann hafði drepið morðingja
Kölu í, rétt áður.
Þessi náungi var að kalla og veifa spjótinu yfir höfði
sér. Hann benti aftur og aftur á eitthvað sem lá við
fætur hans. '
Á augnabliki var alt á tjá og tundri í þorpinu. Vopn-
aðir menn ruddust út úr kofunum og þutu 1 ofboði til
hins æsta varðar. Á eftir þeim fóru gamlir menn, konur
og krakkar, svo þorpið var á svipstundu orðið mann-
laust.
Tarzan apabróðir vissi, að þeir höfðu fundið fckrokk-
inn af félaga sínum, en það skeytti hann miklu minna
um en hitt, að nú var enginn í þorpinu, sem gat varn-
að honum þess, að taka eins mikið af örvum og hann
lysti.
Hann rendi sér fljótt og hljóðlega til jarðar rétt hjá
eiturpottinum. Sem snöggvast stóð hann hreyfingarlaus