Vísir


Vísir - 15.01.1980, Qupperneq 1

Vísir - 15.01.1980, Qupperneq 1
Ráöherrarnir Roger Sietzen t.v. og Paul Helminger f morgun. Vísismynd BG Ræða framtíð Flugleiða Viöræður milli flugmálayfir- valda á tslandi og i Luxemburg um málefni Flugleiða hófust i morgun kl. 10 i Ráðherrabústaðn- um. Viðræður þessarsniiastum það áhvernhátt Luxemborgarar geta komið til móts við Flugleiðir i þeim erfiðleikum sem flugfélagið á nú við að etja. Hefur þar verið talað um ýmsa valkosti m.a. að stofna sameiginlegt flugfélag Luxemborgara og Flugleiöa. H.R. Siaðlesi að Sævar var sleginn við yflrheyrslu: var Tryggva haldlð vakandl um nælur? Alvarlegar ásakanir um meint harðræði I garð gæslufanga i Guðmundar-og Geirfinnsmálinu koma fram i þeim gögnum sem liggja fyrir Hæstarétti þar sem þessi mál eru nú flutt. Kemur þar fram meðal annars staðfesting á fréttum Visis um að Sævar Ciesielski var eitt sinn sleginn við yfirheyrsiu i fangeis- inu i Siðumúla. Sá atburöur átti sér stað i mai 1976 og fyrir nokkru lauk opin- berri rannsókn þar sem stað- fest var að Sævar var sleginn kinnhesti við eina yfirheyrsl- una. Rétt er að taka fram að þar átti enginn af rannsóknaraðil- um hlut að máli en löðrungurinn virðist hafa verið gefinn að til- efnislausu. Þá má nefna að einn fanga- vörður hefur borið að Tryggva Rúnari Leifssyni hafi verið haldið vakandi á næturnar. þeg- ar hann átti að fara i yfirheyrsl- ur daginn eftir. Fangaverðinum kvaöst hafa blöskraö svo þetta athæfi.að hann hafi ekki getað þagað yfir þessu. Einnig hefur sami fangavörð- ur borið að limdur hafi verið heftiplástur fyrir munn Tryggva i fangaklefa til þess að þagga niður i honum. Þaö skal tekið fram, að samstarfsmenn þess fangavarðar.er gaf þessar upplýsingar hafa neitað þvi að þær séu réttar, en atburöirnir eiga að hafa átt sér stað á árinu 1976. Málskjöl um meint harðræöi i garð gæslufanga fylla þykkt bindi og kemur rikissaksóknari væntanlega að þessum atriöum i lok sóknarræðu sinnar fyrir Hæstarétti. —SG Getraunlr Vfsis: Sfðasti skila- dagurlnn Fresti til að skila lausnum á jóiagetraun verðlaunamynda- gátu og verðlaunakrossgátu Vfsis rennur út i dag, 15. janú- ar. Dregið verður í þessum get- raunum öllum eftir daginn i dag úr þeim lausnum, sem berast Visi, Siðumúla 14, fyrir miðnættið. Mörg vegleg verðlaun eru i boði I öllum getraununum. Margs konar vandamál h|á ..Lagmetlnu” Lagmetismál hafa verið mikið til umræöu.undanfarið. Kvartanir hafa hvað eftir ann- að borist frá útlöndum vegna skemmdrar vöru og hefur þetta skaðað markaðinn, bæði Sovétrikjunum og Evrópu. Við þessi vandamál Sölu- stofnunar lagmetis bætist svo, að aukin óánægja virðist rikja meðal nokkurra aðila innan sölusamtakanna með stofn - unina og hefur Norðurstjarn- an ákveðið að hætta aðild frá og með næstu áramótum. „Það er rétt að viðurkenna, að það eru ákveðin vandamál, en þó ekki óyfirstiganleg”, segir Gylfi Þór Magnússon, fraipkvæmdastjóri Sölustofn- unar lagmetis, en hann hefur sagt þvi starfi sinu upp. Um þessi mál er fjallað i forystugrein Visis á blaðsiðu 8 og i frásögn og viðtölum á blaðsíðu 9. Málsskjöl fyila 25 bindi sem standa hér á borði rfkissaksóknara viö málflutninginn I Hæstarétti. (Vfsism. DG) Saksóknari heidur máiflulningi áfram kl. 13.30: BEBINN AB REIFfl MÁLIB LIKA MEÐ TILLITITIL MANN- DBÁPS AF GÁLEVSI Málflutningur f Guðmundar- og Geirf innsmálum heldur áfram klukkan 13.30 i dag fyrir Hæstarétti. Saksóknari heldur þá áfram aö reifa Guömundar- málið og lýkur þvi væntanlega i dag. Þá er Geirfinnsmálið eftír og lýkur sóknarræðu vart fyrr en á fimmtudag. Krafist er af ákæruvaldinu staðfestingar á ævilöngum fangelsisdómum yfir Kristjáni Viðari ogSævariCiesielski, sem báðir voru viðstaddir mál- flutninginn i gær og þyngingar á dómum yfir öðrum sakborning- um. Forseti Hæstaréttar, Björn Sveinbjörnsson, óskaði eftir þvi við rikissaksóknara við mál- flutninginn I gær I Guðmundar- málinu, að hann reifaði málið einnig með tilliti til 215. og 218. greinar hegningarlaga. Fyrri greinin fjallar um manndráp af gáleysi en hin síðari um likams- meiðingar. Refsiramminn sam- kvæmt þessum greinum al- mennra hegningarlaga er allt annar en ef um manndráp af ásetningi er að ræða og há- marksrefsing allt að sex ár. Málsskjöl Guðmundar- og Geirfinnsmála fylla 25 þykk bindi og gefur þaö nokkra hug- mynd um hve yfirgripsmikil þessi mál eru, en fjórir af sex sakborningum koma við sögu i báðum málunum. Sjá nánar á bls. 2-3. —SG Tillögur Alhíðuhandalagsins I efnahagsmálum: Nlðurfærsia verð- lags um 6% sirau Tillögur Alþýðubandalagsins i efnahagsmálum, sem þing- flokkurinn gekk endanlega frá á fundi i morgun.gera m.a.ráðfyr- ir 6% niðurfærslu verðlags nú þegar og ymsum ráðstöfunum til aðauðvelda fyrirtækjum þá verð- lækkun, svo sem 1.5% lækkun launaskatts og lækkun vaxta um 8-10% á árinu. Tillögurnar voru I öllum aðal- atriðum samþykktar á miðstjórnarfundi Alþýöubanda- lagsins um helgina, en þingflokk- ur Alþýðubandalagsins gekk i morgun endanlega frá þvi plaggi sem lagt verður fram i væntan- legum stjórnarviðræðum. Nánar segir frá efnahagsmála- tillögum Alþýðubandalagsins i frétt á bls. 3. T

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.