Vísir


Vísir - 16.01.1980, Qupperneq 1

Vísir - 16.01.1980, Qupperneq 1
Miðvikudagur 16. janúar 1980, 13. tbl. 70. árg. Lítil starfsemi i Bændaskólanum á Hólum: ELLEFU STARFSMENN EN ENGINN NEMANDII ,,Það er alvegrétt að engir nemendur hafa ver- ið i Hólaskóla i vetur, þrátt fyrir fullt kennaralið, en kennurum er ekki hægt að segja upp i hvelli”, sagði Bragi Sigurjónsson landbúnaðarráðherra i samtali við Visi. Bragi sagði að þegar skólinn hófst i byrjun október hefðu að- eins 6-7 nemendur verið búnir að skrá sig. Taldi skólanefndin ekki fært að hefja- skólahald með svo fáum nemendum enda óvist að allir kæmu til leiks. Þvi hefði kennsla fallið niður fram að jólum. Af þessum sökum hefði verið ákveðið að auglýsa námskeiðahald eftir jólin og þegar upplýsingar um þátttöku á þvi lægju fyrir, yrði væntan- lega tekin afstaða til þess hvort segja ætti upp skólastjóra og kennurum. Bragi sagði að þessi upp- stokkun starfsliðs miðaðist við það að hægt yrði að breyta kennslunni næsta vetur og taka þá m.a. upp nýjar búgreinar, t.d. laxeldi, loðdýrarækt og jafnvel ferðamannaþjónustu. Yrðu kennarar og aðrir starfs- menn þá endurráðnir i sam- ræmi við breytta kennsluhætti, en væntanlega yrðu einnig sum- ir gömlu kennaranna við Hóla- skóla endurráönir. Loks sagði Bragi að auk skólastjóra heföu fjórir kennar- ar verið ráðnir við skólann i vet- ur. Þá hefur Visir aflað sér þeirra upplýsinga að annað starfslið við búrekstur sé sex starfsmenn. —HR Ríkissaksóknari í málflutningi í Guðmundarmáiinu: Skipverjar á Júpiter sjást hér gera við nótina eftir veiheppnaða veiðiferð, en þeir komu meö 700 tonn af loðnu til hafnar. Visismynd: BG. Gelrfinnsmállð: Vitnl aftur- kallar framburð . Vitni i Geirfinnsmálinu hefur dregið fyrri framburð sinn til baka og gefið skriflega yfirlýs- ingu um að fyrri framburður hafi verið rangur. Þetta vitni mun hafa borið um feröir Kristjáns Viðars kvöldið sem ferðin til Keflavikur á að hafa veriö farin. Þá hafa verjendur tveggja sak- borninga.Tryggva Rúnars Leifs- sonar og Sævars Cisielski, óskað eftir þvi að saksóknari leggi fram álitsgerð um áhrif eiturlyfja og þá einkum LSD á skapgerð og skaphöfn manna og raunveru- leikaskyn meö tilliti til fram- burðar. Saksóknari hafði samband við dr. Þorkel Jóhannesson prófessor og mun hann skila álitsgerð. er lögð verður fram i Hæstarétti. —SG Eria Bolladóttir: „Ákvðrðun að eigln irumkvæði” Vitni hótað ef bað breytti ekki framburði Vitni i Guðmundarmálinu hefur borið fyrir rétti að það hafi orðið fyr- ir hótunum frá mönnum er það var statt I Veitingahúsinu Kiúbbnum. Hefðu þeir sagt að barn þess væri i hættu og spurðu hvort það byggi ekki i timburhúsi. Þessar upplýsingar komu fram i ræðu Þórðar Björnssonar rikis- saksóknara i Hæstarétti i gærdag. Hann sagði, aö stúlka sem vann á Kópavogshæli áriö 1974, er Guð- mundur Einarsson hvarf, hafi komið fyrir dóm á föstudaginn i siðustu viku. Sævar var hjá þess- ari stúlku um kvöldiö áður en hann fór að Hamarsbraut 11 aö- faranótt 27. janúar 1974. Fyrir dóminum skýrði stúlkan svo frá að á siðast liðnu hausti hefði hún fengið bréf frá Sævari Cisielski austan frá Litla-Hrauni þar sem hann bað hana um að koma i heimsókn á Hraunið og ennfremur að breyta framburði sinum á þann veg að hann hefði verið hjá henni alla nóttina 27. janúar. Stúlkan sinnti þessu ekki en reif bréfið. Siðar var hringt til hennar frá konu sem nokkuö hefur starf- að fyrir fanga á Litla-Hrauni og var erindi konunnar að skila til stúlkunnar frá Sævari að hún ætti að breyta framburöi sinum. Kon- an kom fyrir dóm og staðfesti aö hún hefði komiö þessum skila- boðum áleiðis. Vitnið neitaði að breyta fyrri framburði sinum og sagði frá þeim hótunum sem það kveðst hafa oröið fyrir vegna þess. Málflutningur heldur áfram fyrir Hæstarétti i dag og þá fjall- ar saksóknari um Geirfinnsmál- ið. Lýkur saksóknari ræðu sinni á morgun og þá taka verjendur sakborninga við. —SG Sama dag og vitni f Guð- mundarmálinu kom fyrir dóm og skýrði frá hótunum i sinn garð dró Erla Bolladóttir fyrri fram- burð sinn i Geirfinnsmálinu til baka. Hún sagöi þá fyrir dómi, að hún hefði tekið þessa ákvörðun að eig- in frumkvæði eftir langa Ihugun vegna breyttra lifsviðhorfa og kom ekki fram hjá henni. að hún hafi verið beitt hótunum til að breyta framburði sinum. —SG Sprenglng Mikil sprenging kvaö við i Drafnarfelli I Breiöholti um klukkan 1 i nótt og brotnaöi stór rúða I verslunarhúsi við Drafnar- fell. Er lögreglan kom á staöinn kom i ljós að þarna hafði heima- tilbúin sprengja veriö notuð. —SG \

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.