Vísir - 24.01.1980, Blaðsíða 1
H3\
Fimmtudagur 24. janúar 1980/ 20. tbl. 70. árg.
fiiti 20% af hlutafé
Kredltkorta hf.:
stærsti
hluthaf-
inn selur
sinn hlut
Magniís K. Jónsson stærsti
hluthafinn i Kreditkort hf.,
sagði sig í gær úr stjórn
Kreditkorta hf. og hefur hann
einnig farið fram á að hluta-
bréf sin verði boðin til sölu.
1 yfirlýsingu sem Magnús
hefur sent frá sér, segir að á-
stæðan fyrir ákvörðuninni sé
sú, að hann hafi verið „auri
ataður af illum pennum" og
telji hann að það geti skaðað
framgang f yrirtækisins
Kreditkort hf. Hefur stjdrn
fyrirtækisins samþykkt beiðni
hans um að vera leystur frá
störfum og bjóða hlutabréf
hans, sem nema tæpum 20% af
hlutafé fyrirtækisins, til sölu.
Segist stjórnin harma þann
,,róg og dylgjur" sem Magnús
hefur verið borinn.
„Minskoðun er sii, að þessi
atriði eigi eingöngu við skrif
Timans i þessu máli", sagði
Róbert Árni Hreiðarsson, lög-
fræðingur Kreditkorta hf.,
þegar Visir bar undir hann
þessi ummæli.
Vfsir hefur skýrt frá þvi, að
Magnús K. Jónsson hafi verið
stjórnarformaður Myndiðj-
unnar Astþórs hf. og Astþórs
Magnússonar hf. en þau fyrir-
tæki voru lýst gjaldþrota á sl.
ári.
Rétt er að taka fram, að
Visir hefur undanfarna daga
einungis skýrt frá staðreynd-
um málsins, sem liggja fyrir
hjá opinberum aðilum, en
hvorki birt „róg" né „dylgj-
ur".
—HR
Það var kræsileg sjón sem
blasti við ljósmyndara Vísis i
Kjötverslun Tómasar á
Laugaveginum í morgun. Pét-
ur Pétursson afgreiðslumaður
var i óðaönn að koma girnileg-
um þorramat fyrir á trogum,
en þorrinn byrjar á morgun.
Hjá Tómasi er meðal annars
hægt að fá þorrabakka með 17
tegundum matar og er þessi
skammtur um eitt ldltí^VIsism.
GVA).
SR á Slgluflrðl án starfsieyflsi
„Rikisverksmiðjurnar á Siglu-
firði hafa ekki starfsleyfi frá
Heilbrigöiseftirliti rfkisins, en
mál þeirra hefur ekki verið hægt
að taka fyrir hér hjá stofnuninni
ennþá vegna mannfæðar" sagði
Hrafn Friðriksson, yfirlæknir,
forstöðumaður Heilbrigðiseftir-
litsins i viðtali við Visi.
Hrafn sagði, að verksmiðjunum
bæri að koma sér upp fullnægj-
andi mengunarbúnaði, þannig að
ibúar á Siglufirði hefðu ekki
óþægindi af þessari starfsemi.
Tilefni fyrirspurnarinnar voru
mótmæli 800 Siglfirðinga til
stjórnar Sildarverksmiðja rikis-
ins vegna mengunar frá verk-
smiðjum þeirra á Siglufirði, sem
Visir skýrði frá i gær, en nánar er
fjallað um málið á blaðsfðu 11 i
dag.
Gialdbrotamál
Myndlðlunnar
ÁstDórs hf.:
Eignirnar fluttar til
mánuði fyrir gjaldhrot
Eignatllfærslunni má rifta að matl skiptastióra
Myndiðjan Astþór hf. lét Giró-
myndir fá mestan hluta lagers
sins upp i skuldir, réttum
mánuði áður en Myndiðjan var
lýst gjaldþrota. Samkvæmt
gjaldþrotalögum mun slik
eignatilfærsla vera riftanleg.
Þetta kom fram þegar Visir
ræddi viö Guðmund Ola Guð-
mundsson skiptastjóra í gjald-
þrotamáli Myndiðjunnar Ast-
þórs. Eins og kunnugt er eru
Girómyndir i eigu Magnúsar K.
Jónssonar fyrrum stjórnarfor-
manns Myndiðjunnar Astþórs
hf., en hann er stærsti hluthaf-
inn i Kreditkortum hf. eins og
Visir hefur skýrt frá.
Guðmundur Óli sagði að
eignatilfærsla þessi hefði farið
fram i januarmánuði 1979, en 2.
mars hefði Myndiðjan verið
lýst gjaldþrota. Hefði andvirði
lagersins verið i kringum 5
milljónir króna. Taldi Guð-
mundur að eignatilfærsla þessi
væririftanleg að þvi-leyti að hún
fór fram á sam a á ri og til gj ald-
þrotsins kom og hefði það verið
löngu fyrirsjáanlegt. Þ.að mun
að auki vera ástæða til rif tunar
að greitt var i afbrigðilegum
gjaldeyri einsog vörubirgðum.
Guðmundur sagði að einnig
væru til athugunar eignatil-
færslur milli þessara fyrirtækja
frá febrúar 1978. Þá tóku Giró-
myndir nánast yfir eignir
Myndiðjunnar Astþórs. Voru
þá eignir og skuldir Myndiðj-
unnar metnar til jafns eða á 26
milljónir. Hvort það eignamat
fengi hins vegar staðist væri
ennþá nokkuð óljóst.
Að sögn Guðmundar nema
kröfur á þrotabúið nú 45-50
milljonum króna og eru stærstu
kröfuhafarnir GJaWheimtan og
tollstjóri. Verða kröfuhafar
kallaðir á fund, sennilega i
næstu viku, og þd verður
væntanlega tekin ákvörðun um,
hvor áðurnefnd eignatilfærsla
milli fyrirtækjanna verður kærð
til saksóknara til að. fá henni
rift en slfkt veröur að gera með
dómi.
— HR